Morgunblaðið - 06.01.2001, Page 34

Morgunblaðið - 06.01.2001, Page 34
34 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. F ORSETI bæjarstjórnar Fjarðabyggðar telur að auk erfiðleika stærstu atvinnufyrirtækjanna hafi efnahagsástandið mest áhrif á íbúaþróunina. Mikil- vægar efnahagsaðgerðir stjórn- valda miðist við þensluástandið á höfuðborgarsvæðinu en ekki þá stöðnun og samdrátt sem einkenni landsbyggðina. Veruleg fækkun íbúa hefur orðið á nokkrum stöðum á landsbyggð- inni, ekki síst í bæjum og þorpum á Vestfjörðum, Norð- urlandi og Austfjörð- um. Í flestum tilvik- um nefna forsvars- menn sveitarfélag- anna stöðu atvinnu- mála sem skýringar á fækkun íbúa. Engar nýjar skýringar „Ég hef engar nýj- ar skýringar, aðeins þær sömu og bent hefur verið á síðustu árin,“ segir Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, þeg- ar skýringa hans er leitað á fækkun fólks í öllum bæjunum þremur sem mynda Fjarðabyggð. Þannig fækkaði um 41 mann í Neskaupstað, 34 á Eskifirði og um 15 á Reyðarfirði. Íbúum sveitarfélagsins fækkaði um tæp 3% á síðasta ári og hefur fækkað um rúm 14% á síðustu tíu árum. „Ég upplifi stöð- una þannig að það séu tvö hagkerfi í landinu. Annars vegar hagkerfi þenslu og góðæris á höfuðborgar- svæðinu og hins vegar hagkerfi sem einkennst hefur af stöðnun eða samdrætti víða á landsbyggðinni. Mikilvægar aðgerðir stjórnvalda taka mið af þensluástandinu á höf- uðborgarsvæðinu,“ segir Smári. Því til viðbótar nefnir hann að stóru sjávarútvegsfyrirtækin hafi verið að ganga í gegn um erfiða tíma vegna lækkunar á afurðaverði, hækkunar útgerðarkostnaðar vegna olíuverðs og gengisþróunar. Samdráttur hjá þessum stóru fyr- irtækjum hafi síðan áhrif í öllu sam- félaginu. Pólverjarnir fluttu suður Íbúum á Seyðisfirði fækkaði um 32 á síðasta ári, eða um 3,9%. Íbúum á Seyðisfirði hefur fækkað flest ár á tíu ára tímabili og eru þeir nú 795, 19% færri en fyrir tíu árum, og hafa íbúarnir ekki verið færri síðan um 1960. Ólafur Sigurðsson bæjarstjóri segir að fyrirtæki sem var með marga útlendinga í vinnu hafi hætt starfsemi á árinu. Það hafi leitt til þess að 27 Pólverjar fluttu suður til Reykjavíkur. Telur hann ekki að þessi breyting hafi mikil áhrif á aðra íbúa sveitarfélagsins eða tekjur þess, nema hvað fjölgun sem varð þegar Pólverjarnir komu hafi skert mjög framlög Seyðisfjarðar- kaupstaðar úr Jöfnunarsjóði sveit- arfélaga. Telur hann að úthlutunar- reglur sjóðsins séu einkennilegar þegar sveitarfélag sem misst hafi 200 manns á áratug fái ekki fólks- fækkunarframlög. Stóriðja og laxeldi Ólafur bæjarstjóri á Seyðisfirði segir að miklir möguleikar séu til þess að snúa vörn í sókn á Austur- landi. Íbúaþróunin sé komin á botn- inn og muni snúast við á næstu ár- um. Nefnir hann stóriðjustefnu Austfirðinga, virkjunaráform, nýja Norrænu og sterk sjávarútvegsfyr- irtæki. Smári Geirsson vekur athygli á því að Fjarðabyggð sé með mjög stór verkefni í atvinnulífinu, líklega stærri en flest önnur, auðvitað í samvinnu við marga aðila. Nefnir hann uppbyggingu orkufreks iðn- aðar með álveri á Reyðarfirði sem hann segir að muni gjörbreyta öll- um forsendum fyrir íbúaþróun á svæðinu. Þá nefnir hann mikil áform um uppbyggingu fiskeldis sem skipti einnig miklu máli. Loks getur hann um vinnu sem tengist uppbyggingu smærri fyrirtækja. Smári vonast til að laxeldi hefjist í Mjóafirði í vor og það verði komið í fullan rekstur vorið 2002. „Ég geri mér vonir um að laxeldið hafi já- kvæð áhrif og stuðli að því að fólk hverfi síður á braut. Ég vonast einnig til þess að þegar líður á árið 2001 verði ljóst hvað verður um stóriðjuna og að niðurstaðan verði þannig að hugsunarháttur fólks gjörbreytist,“ segir Smári. Flytja á eftir börnunum Íbúum á Kópaskeri fækkaði um 24 á síðasta ári eða um tæp 15%. Þar býr núna 141 maður. Steindór Sigurðsson, sveitarstjóri Öxarfjarð- arhrepps, telur að fækkunin hafi að stærstum hluta orðið vegna brott- flutnings stórra fjölskyldna sem fylgi börnum sínum þegar framhaldsskóla. Dýrt sé tvö heimili og taki sumir þá un að flytja á eftir börnun staklega þeir sem ekki e staðnum. Í staðinn hafi ko staklingar eða fámennar f ur. Steinþór segir að þótt orðið miklar breytingar í a inu á síðasta ári sé þörf á að vinnuna, ekki síst með því a störf sem gefi fólki kost tekjum en það nú hafi. S betri í sveitinni í Öxarfjarð en þorpinu og telur Steind hafi frekar orðið fjölgun en Vantar meiri vinnu í Í Ólafsfirði fækkaði um 3 eða um 3,4% en þar bjug manns 1. desember sl. Ásg Ásgeirsson, bæjarstjóri í Ó segir að ástæðu fækkunar og fremst að leita í ástandinu. „Við lentum í erfiðum hr um í atvinnumálum í lok ár höfum átt á brattann að sæ varðar vinnu í landi síðan. misstu atvinnuna hér fl margir um set og settust a staðar. Á sama tíma er sve ið hins vegar með hæsta ú landinu á mann vegna fj manna. Það endurspeglar ar ekki stöðu atvinnumál vantar meiri vinnu í landi.“ Ásgeir segir að verið sé a því að skapa frekari atvinn firði, m.a. í fjarvinnslu. „ umst enn til að fjarvinnsla að verða það sem hún átt orðin. Þessi vinna hefur heldur hægt en við vonum Íbúum margra staða á landsbyggðinni fækkaði v Hagkerfi stöð og samdrátt landsbyggð Íbúum margra sveitarfélaga fækka umtalsvert á síðasta ári, ekki síst Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfj um. Forsvarsmenn sveitarfélaganna í flestum tilvikum að breytingar í atvinnumálum séu helsta skýring neikvæðrar byggðaþróunar. Íbúum á Kópaskeri fækkaði um 24 á síðasta ári, eða um 15%. Byggðin er veiðum og vinnslu og stundum berst þar mikill rækjuafli á land, eins og þ var tekin. NÝTUM BYR TUNGUNNAR TÓMAS GUÐMUNDSSON Hundrað ár eru liðin frá fæð-ingu Tómasar Guðmunds-sonar skálds í dag. Tómas er sannarlega eitt af ástsælustu skáld- um Íslendinga. Ljóð hans lifa á vörum þjóðarinnar. Tómas er borgarskáldið. Hann var fyrstur til að líta á borgina sem boð- legt yrkisefni. Allt frá upphafi ald- arinnar höfðu flest höfuðskáld Ís- lendinga búið í borginni, Stein- grímur, Hannes, Þorsteinn og Einar, en ekkert þeirra orti um Reykjavík svo heitið geti. Skáldin voru þá enn upptekin af fegurð náttúrunnar sem var allt í kringum borgina en borg- arlandslagið og borgarlífið átti ekki heima í kveðskap. Tómas breytti þessu í Fögru veröld, annarri ljóða- bók sinni, sem kom út árið 1933. Tóm- as horfði ekki út úr borginni heldur inn í hana, hann orti ekki um fjalla- sýnina heldur Austurstrætið, húsin í bænum, höfnina og fjölskrúðugt mannlífið. Með nýjum efnistökum átti Tómas einnig þátt í endurnýjun skáldamáls- ins sem yngri skáld héldu áfram, tungumál borgarinnar hlaut þegnrétt í skáldskap. Í grein sem Soffía Auður Birgisdóttir ritar um skáldið í Les- bók Morgunblaðsins í dag er lögð áhersla á þessa nýsköpun Tómasar: „Þeir sem ritað hafa um ljóðlist Tóm- asar Guðmundssonar hafa flestir lagt áherslu á þá miklu endurnýjun ljóð- málsins sem skáldskapur hans býr yfir og þarf enginn að velkjast í vafa um réttmæti þeirrar áherslu.“ Áhrif Tómasar eru mikil á síðari tíma skáld og enn má finna þau í verkum yngstu skálda. Tómas hefur þannig ótvírætt mikilvæga stöðu í ís- lenskri bókmenntasögu. En þrátt fyrir hana og þrátt fyrir vinsældir er ástæða til að meira verði fjallað um verk hans. Ljóðasafn hans kom út fyrir rúmum áratug með formála eft- ir Kristján Karlsson. Tímabært er að fram fari frekari rannsóknir á verk- um hans. Hér er augljóslega verk að vinna, bæði áhugavert og þarft. Það eru fleiri en Íslendingar semhafa áhyggjur af tungu sinni. Í frétt hér í blaðinu á fimmtudag kom fram að Danir óttist að danska verði ekki töluð hér á jörð eftir hundrað ár ef áhugaleysið um tunguna og viðgang hennar verði viðvarandi. Að mati danskra sérfræðinga eru mállýskur þar í landi að hverfa og að verða til nokkurs konar ríkisdanska þar sem aldur og þjóðfélagsstaða setja frekar svip sinn á tunguna en búseta. Ein- ungis 5% Dana tala mállýsku en þær eru þó enn um fjörutíu talsins. Í viðtali við Kristján Árnason pró- fessor og formann Íslenskrar mál- stöðvar í blaðinu í dag koma fram svipaðar áhyggjur um stöðu íslensk- unnar og íslenskra mállýskna. Krist- ján segir að íslenskar mállýskur í dag séu miklu frekar tengdar mun á starfshópum og stéttum heldur en bú- setu. Þær fáu staðbundnu mállýskur sem hér hafa verið talaðar eru á und- anhaldi. Sýna rannsóknir að mállýsk- ur stefni suður eins og þjóðin en að auki sé tilhneiging til þess að fram- burðarmállýskur leiti saman. Útjöfnun á hvers konar mismun er í raun eðlileg afleiðing af tækniþróun síðustu aldar. Fólk er bæði farið að geta ferðast meira en það gerði og fjölmiðlar hafa þar að auki hreinlega flutt heiminn inn í stofu til hvers og eins. Fjölmiðlar hafa sömuleiðis hing- að til miðlað sama efni til allra og þannig steypt hópa, þjóðir og nú að sumra mati heimsbyggðina alla í eitt mót. Þessar sömu ástæður eru fyrir hraðri og gríðarmikilli útbreiðslu enskunnar sem bæði danskir mál- verndarmenn og íslenskir óttast. Kristján tekur djúpt í árinni eins og danskir starfsbræður hans og segist ekki bjartsýnn á að hérlendis verði töluð íslenska eftir hundrað ár. Hann segir: „Það verður væntanlega talað eitthvert tungumál á Íslandi eftir 100 ár, en hvort það verður það tungumál sem við nú köllum íslensku – það er önnur saga. Hugsanlega höldum við þessum þræði, annar möguleiki er að það þyrfti að þýða Íslendingasögur yfir á „nútíma íslensku“, þriðji kost- urinn er svo að við töluðum bjagaða ensku, nokkurs konar pidgin-mál. Ég er ekki í vafa hvern kostinn af þessum þremur mér líst best á. Þess ber að lokum að geta að enginn ætti að láta sér detta í hug að það sé eitthvað auð- veldara að tala ensku heldur en ís- lensku.“ Það er erfitt að verjast þessari þró- un. Ef fram heldur sem horfir verður ef til vill ekki annað en mállýskumun- ur á stórum svæðum þar sem áður voru töluð ólík tungumál. Rökin gegn slíkri útþurrkun á málsmenningar- hefðum þjóða eru svo margtuggin að óþarfi er að hafa þau yfir hér. En hvað er til ráða? Því hefur verið haldið fram áður hér að lítt stoði að reyna einungis að halda úti þeirri verndarstefnu gagnvart erlendum og þá einkum enskum áhrifum á tunguna sem fylgt hefur verið. Með nýrri fjöl- miðlatækni hafa allir múrar milli landa og þjóða og málsvæða fallið. Nú er til dæmis hægt að nálgast það sjón- varpsefni sem hugurinn stendur til hvar sem er í heiminum eða því sem næst. Árangursríkast virðist því að hefja gagngera sókn inn á umráða- svæði enskunnar, það er að segja fjöl- miðlana og tölvuheimana, en þess má geta að nýleg könnun leiddi í ljós að 80% alls efnis á Netinu eru á ensku. Það þarf að styrkja tunguna í sessi í þessu nýja umhverfi með því að efla framleiðslu á íslensku sjónvarps-, út- varps-, net- og tölvuefni. Á sama tíma þyrfti að efla íslenskukennslu í grunn- og framhaldsskólum. Ýmislegt hefur verið gert í þessum efnum með góðum árangri. Það hefur til dæmis sýnt sig að mikil eftirspurn er eftir íslensku sjónvarpsefni. Sömu- leiðis njóta íslensk vefrit og þeir fáu íslensku tölvuleikir sem til eru mikilla vinsælda. Er ekki rétt að nýta þennan byr?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.