Morgunblaðið - 06.01.2001, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 06.01.2001, Qupperneq 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 43 Stefáni fyrst í Arsenal-ferð fyrir mörgum árum og kom hann mér strax vel fyrir sjónir og í honum var að finna traust og hlýju sem hann margsýndi mér og félögum sínum í klúbbnum. Ég fól Stefáni, að skrifa ferðasögu klúbbsins þegar við fórum í „ferð aldarinnar“ til London að sjá Arsenal spila haustið 99 sem síðan yrði gefin í jólablaði klúbbsins. Stef- án skoraðist ekki undan því en taldi erfitt að feta í fótspor æviráðins ferðasöguritara klúbbsins, Hjálmars Arinbjarnar, sem ekki komst með í ferðina. Það er þó skemmst frá því að segja að Stebba fórst þetta verulega vel úr hendi og leysti af hreinni snilld svo eftir var tekið, þar sem einmitt hans skemmtilegi húmor og heims- borgaralega yfirsýn fékk notið sín. Við hjónin ásamt fleiri félögum nut- um samvistar við hann á fríkvöldum í flestum ferðunum sem hann fór í, þar sem hann leiddi okkur inn á framandlega veitingastaði þar sem hans hógværi heimsborgari fékk notið sín. Ekki lét hann sitt eftir liggja er við heimsóttum indverska veitingastaðinn í London sem félags- menn Arsenal-klúbbsins heimsækja alltaf þar sem sungin voru ættjarð- arlög í bland við létt þjóðhátíðarlög. Aftur lágu leiðir okkar saman sl. vor er við skunduðum mörg saman til Köben til þess að sjá okkar menn vinna Evróputitil, en það tókst þó ekki í það sinnið. En innkoma Stebba í þá ferð var eins og áður mjög skemmtileg, hann hafði nefni- lega unnið heimavinnuna og haft samband við bróðurson sinn Andrés sem búsettur var úti og var öllum hnútum kunnugur og fylgdi hann okkur víða um Kaupmannahöfn og að endingu nánast inn á völlinn. Ég var Stefáni þakklátur fyrir þetta inn- legg, því miklar róstur voru í mið- borg Kaupmannahafnar vegna þessa leiks og því gott að hafa staðkunn- ugan með sér. Við vorum nánast jafn gamlir (upp á hár) undirritaður ein- um sólarhring eldri og við þar með báðir meyjur sem náðum vel saman, en ekki sagði hann mér frá manni sem líktist honum úr hófi fram nema að einu leyti og átti mjög svipaðan afmælisdag og fæðingarár og við. Það var þannig að eitt sinn var ég á ferð í Vestmannaeyjum og sá þar Stebba tilsýndar, stökk að honum og fór að ræða við hann um okkar helsta áhugamál Arsenal, en þessi tók lítið undir og fóru því að renna á mig tvær grímur þar til að hann upp- lýsir mig um sannleikann. Þarna var kominn tvíburabróðir hans og aðeins eitt skildi þá að, hann hélt með Leeds. Ég gæti lengi haldið áfram en læt hér staðar numið en get þó ekki látið hjá líða að minnast þess er hann óumbeðinn lagði mér lið í prófkjörs- baráttu vorið ’99, við Ásdís viljum þakka honum góð kynni og vináttu. Það er kannski táknrænt að hans síðustu spor voru við okkar eftirlæti, knattspyrnu. Ég vil svo fyrir hönd allra Arsenal-aðdáenda á Íslandi þakka honum samfylgdina og votta fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Kjartan Björnsson. Eftir hádegi á gamlársdag bárust okkur veiðifélögunum í Elliðaey þau sorgartíðindi að formaðurinn okkar, Stefán Erlendsson, hefði orðið bráð- kvaddur í Íþróttamiðstöð Vest- mannaeyja aðeins 35 ára gamall. Okkur félagana, eins og aðra Eyja- menn, setti hljóða og erum harmi slegnir og skiljum ekki hvers vegna Stefán var tekinn frá okkur, langt um aldur fram. Eins og margir ungir menn í Vest- mannaeyjum fékk Stefán snemma áhuga á lundaveiði og atvikin æxl- uðust svo að hann gerðist veiðifélagi í Elliðaey. Það var mikið lán því Stef- án var jákvæður maður að eðlisfari, traustur og hrókur alls fagnaðar. Það var síðan á vordögum á sl. ári að Stefán var kosinn formaður félags- ins. Það var góð prófraun á nýjan for- mann að leiða árshátíð Félags bjarg- veiðimanna og það var ekki mikið vandamál, enda átti hann gott með að vinna með öðrum og fá aðra til liðs við sig. Sjálfur átti hann stóran þátt í skemmtidagskrá, sem að hluta var frumsamin af honum. Þegar sól fer að hækka og vor er í lofti fer að fara fiðringur um úteyja- karla í Vestmannaeyjum. Þá fer að styttast í lundann og komið að því að fara úteyjar og gera ból og veiðistaði klára fyrir sumarið. Stefán lét sig aldrei vanta í þessar ferðir. Stefán hefur undanfarin ár ritað í ferðalok í dagbók Elliðaeyjar það sem gerst hafði og hann kunni svo sannarlega að skrásetja hlutina á sinn hátt og það var oft endir á góðri ferð, þegar hann las úr dagbókinni og stílbragð hans var þannig að allir höfðu gaman af, jafnvel þeir sem mest var um fjallað hverju sinni. Það verður erfitt fyrir okkur hina í vor að fara í þessar ferðir án Stefáns, sem jafnframt hef- ur ritað sín síðustu orð í dagbók okk- ar Elliðeyinga. Þá mun skorta á hnyttin tilsvör hans og húmor í trillunni á leið út í Elliðaey eða á kvöldvökunni. Stefán var mikill félagsmaður og vann jafnframt mjög gott og óeig- ingjarnt starf í þágu íþróttahreyf- ingarinnar og ljóst er, að þar sem hann starfaði fór maður sem var ávallt boðinn og búinn að taka að sér verk og skila þeim eins og til var ætl- ast. Skarð félaga okkar, Stefáns Er- lendssonar, verður vandfyllt á þeim vettvangi er hann starfaði. Foreldrum, systkinum og öðrum aðstandendum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Með þessum fátæklegum orðum kveðjum við þig, kæri vinur, þín verður sárt saknað. Veiðifélagar, Elliðaey. Í dag kveð ég góðan vin minn, Stefán Erlendsson. Ég kynntist Stefáni í kringum 1984 ásamt Ólafi tvíburabróður hans og fleiri góðum félögum. Stefán var traustur og góð- ur félagi og vorum við einnig vinnu- félagar í nokkur ár hjá Netagerðinni Ingólfi en þar hafði ég einnig unnið með föður Stefáns, Erlendi Stefáns- syni, og sannast hið forkveðna að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Stefán var félagi í Elliðaey og tók við formennsku þar sl. vor. Það verð- ur sárt fyrir okkur félagana að vera án Stefáns því manna duglegastur var hann að fara út í eyju hvort held- ur var til veiða eða einhverra ann- arra erinda. Stefán var líka húmor- isti mikill og voru kvöldvökurnar í Elliðaey ógleymanlegar en þá fóru þeir bræður á kostum. Stefán var mikill áhugamaður um knattspyrnu og var mikill Arsenal-maður, eins og undirritaður, og hittumst við einu sinni í viku ásamt tveimur félögum okkar og tippuðum. Stefán hafði oft lýst fyrir mér ferðum á Highbury sem hann hafði farið. Hagnað, sem átti að myndast með getraunum, átti að nota til að fara eina slíka ferð, en hún bíður betri tíma. Það var því ekki að ósekju að fyrir rúmu ári bað ég Stefán að ganga til liðs við okkur í Knattspyrnuráði ÍBV og var það auðsótt mál og mikill fengur fyrir knattspyrnuna í Eyjum að fá þá starfskrafta til liðs við sig. Stefán starfaði mikið fyrir 2. fl. ÍBV og fór með þeim í flestar ferðir og einnig voru margar góðar ferðir með mfl. ÍBV. Við Stefán vorum að ræða málin á æfingu hjá ÍBV inni í Íþróttamiðstöð þegar kallið kom og engu varð við bjargað og var erfitt fyrir leikmenn og ráðsmenn ÍBV að horfa á eftir góðum félaga. Ég kveð þig kæri vinur. Foreldrum, systkinum og öðrum aðstandendum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guðni Hjöll. Elsku Stefán, nú ert þú farin frá okkur langt um aldur fram. Þú sem varst svo fastur þáttur í lífi okkar. Hann rennur seint úr minni mínu þessi gamlársdagur og þetta andar- tak þegar tengdapabbi minn færði mér þessi hræðilegu tíðindi. Þetta gat ekki verið satt, þú sem hefur ver- ið heima hjá okkur mörgum sinnum í viku í heimsókn eða að horfa á fót- bolta með Jóa og síðast daginn fyrir gamlársdag að sjá Arsenal liðið ykk- ar spila. Og við ætluðum að hittast á gamlárskvöld eins og við höfum allt- af gert. En svo er bara allt búið, á einni svipstundu ert þú tekinn frá okkur allt of snemma. En við erum víst ekki spurð að því þegar kallið kemur. Þær eru ófáar ferðirnar sem við höfum farið í sam- an upp á land, erlendis eða út í Elliðaey. Alltaf varst þú með og varst oft fyrstur að stinga upp á að við færum öll sömun saman og krakkarnir líka, í grillferðir og fjör. Þú varst svo barngóður að börn voru aldrei nein fyrirstaða hjá þér þó svo þú ættir engin sjálfur. Börnin okkar elskuðu þig og fannst þú alltaf svo skemmtilegur, og yfirleitt laumuðu þau sér með pabba sínum ef þau vissu að það var pizza í matinn hjá þér á Eurofótboltakvöldunum ykkar Jóa en fótbolti átti hug þinn allan. En svona er lífið og við verðum að reyna að taka þessu með æðruleysi að þú sért farinn því lífið heldur víst áfram þó að besti vinur okkar sé far- inn, en það verður aldrei eins. Við kveðjum þig með miklum söknuði og reynum að vera þakklát fyrir þann tíma sem við fengum að hafa með þér. Við biðjum góðan Guð að styrkja foreldra, systkini og að- standendur þína á þessari erfiðu stundu. Þínir vinir, Júlía, Jóhann, Berglind og Ragnar Þór. Okkur langar til að minnast þín kæri vinur með fáeinum orðum. Við urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast þér fyrir 10 árum í Vest- mannaeyjum. Það var upphaf að skemmtilegum samverustundum og góðri vináttu. Þú varst ríkur af kímnigáfu, orðheppinn og vinsæll meðal vina. Til þín var alltaf hægt að leita þegar eitthvað bjátaði á. Við sóttumst eftir samveru þinni og hlökkuðum alltaf til þegar við fór- um saman með þér og Ólafi bróður þínum á sumrin í ferðalög eða hitt- umst við önnur tækifæri. Þá var allt- af gaman og mikið hlegið enda varstu hrókur alls fagnaðar. Við teljum það forréttindi að hafa kynnst þér, þú auðgaðir líf okkar á meðan þú lifðir. Elsku Stefán, hafðu þökk fyrir allt í gegnum árin. Okkar innilegustu samúðarkveðjur til fjöl- skyldu og annarra ástvina. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (Hallgrímur J. Hallgrímsson.) Ólafur Bjarni Guðmundsson, Sonja Kristín Jakobsdóttir. Nei og aftur nei, þetta getur ekki staðist, minn besti vinur er dáinn einungis 35 ára gamall og við sem áttum eftir að gera svo ótalmargt saman. Tvíbbunum, eins og við kölluðum þá, kynntist ég snemma á lífsleið- inni. Strax eftir gos vorum við farnir að sparka bolta á barnaskólalóðinni sem var okkar uppáhaldsiðja með vinum okkar á þeim árum, ásamt því að spila á spil. Seinna bættist síðan við flakk um fjöllin hér í Eyjum. Er við komumst á unglingsár varð okkur snemma ljóst að ekki myndum við gera garð- inn frægan á knattspyrnuvellinum en við bættum það upp með ódrep- andi áhuga á ÍBV og enska fótbolt- anum, en þar héldum við Stefán upp á sama liðið sem er Arsenal, en hinn tvíbbinn með Leeds. Undanfarin ár hafa verið ofboðslega skemmtileg, Euro-kvöldin okkar sem voru í kjall- aranum á Hásteinsveginum; þá eld- aði Stefán pizzur eða einhverja skemmtilega skyndirétti sem við hentum í okkur og drukkum bjór með, síðan var látið öllum illum lát- um fyrir framan sjónvarpið. Horft á enska boltann heima á Illugagötunni og þegar vel gekk var síminn óspart notaður til að hringja í vini og kunn- ingja til að svekkja þá eða þá að sím- inn hringdi stöðugt hjá okkur þar sem var gert grín að okkar liði. Þá fáu leiki sem við sáum ekki saman vorum við alltaf í símasambandi hvor við annan hvar sem við vorum í heiminum. Ég mun aldrei gleyma söngnum hans Stefáns þegar hann hringdi í mig ef ég var ekki að horfa á boltann með honum og okkar menn skoruðu „one nil to the Arsenal“ söng hann þá í símann. Mikið verður lífið nú breytt að horfa á boltann bara einn eða með peyjunum og eng- inn Stefán, kannski að hann sitji bara á besta stað á Highbury og fylgist með hverjum leik hjá okkar mönnum. En það er margt að þakka. Við gátum gert mikið og margt saman á þessum stutta tíma og er ég þakk- látur fyrir þann mikla og góða vin- skap sem þú sýndir mér og Júlíu og hversu góður og yndislegur þú varst alltaf við Berglindi og Ragnar Þór. Ég þakka allar heimsóknirnar heim til okkar þar sem þú varst hrókur alls fagnaðar, allar gúrkurnar sem að við spiluðum. En sérstaklega þakka ég þér fyrir að vera bara þú. Að endingu vil ég biðja góðan Guð að styrkja og vaka yfir Gauju, Ella, Ólafi og öllum öðrum fjölskyldu- meðlimum. Jóhann Freyr Ragnarsson (Jói Ragg). Það var okkur sem reiðarslag þeg- ar okkur barst sú hörmulega frétt að starfsfélagi okkar og góður vinur til margra ára væri látinn aðeins 35 ára gamall. Stefán hóf störf hjá Neta- gerð Ingólfs 1988 og starfaði sem að- stoðaryfirverkstjóri hjá fyrirtækinu síðustu árin. Hann var mjög metn- aðarfullur starfsmaður sem sýndi sig best í því að honum var treyst fyrir mörgum mjög erfiðum og krefjandi verkefnum. M.a. var hann sendur til Írlands 1995 og Taiwan 1999 til að hafa yfirumsjón með verkefnum sem fyrirtækið stóð að og leysti hann það með miklum sóma. Stefán var alltaf mjög lífsglaður og yfirleitt hrókur alls fagnaðar bæði í vinnunni og eins þegar við félagarnir vorum að skemmta okkur saman. Við minnumst þess þegar hann kom með háðvísur um okkur starfsfélag- ana sem hann hafði samið sjálfur í tilefni skemmtunar og auðvitað söng hann sjálfur manna hæst og hafði mest gaman af. Það var alltaf stutt í grínið og stríðnina hjá honum. Við vinnufélagar vissum að hans aðal áhugamál voru úteyjarlíf í Elliðaey og snattið í kringum það og einnig fylgdist hann með knattspyrnu af lífi og sál og þá sérstaklega liði sínu í enska boltanum, Arsenal, en hann fór nokkrar ferðir utan til að fylgjast með þeim. Þá var áhugi hans á knatt- spyrnu það mikill að hann byrjaði að starfa í knattspyrnuráði ÍBV fyrir síðasta tímabil. Stefán hafði ákveðn- ar skoðanir í pólitík og var oft gaman í Netagerðinni þegar við náðum hon- um upp í heitar umræður um hin ýmsu pólitísku mál. Við minnumst Stefáns sem trausts og góðs félaga sem var alltaf boðinn og búinn að að- stoða ef til hans var leitað. Við vinnufélagar kveðjum þig með miklum söknuði og minnumst þín sem mikils og góðs félaga sem við teljum að hafi verið mikil forréttindi að fá að vinna með. Við sendum Gauju og Ella, systk- inum og öllum ættingjum, okkar dýpstu samúðarkveðjur. Samstarfsfélagar hjá Netagerð Ingólfs. Fátt mega sín orð, þá mest á reyn- ir. Svo er og hér við hið óvænta, for- varalausa, harmsára og ótímabæra fráfall Stefáns Erlendssonar. Eigi að síður skal þó festa nokkur orð á blað til að minnast, sýna samhug og þakka. Frá bernsku hans hafa leiðir legið saman, jafnan á heimili foreldra hans, sem um áratuga skeið hafa verið einstakir, nánir vinir okkar hjónanna. Þar komu strax fram ljúf- ir kostir Stefáns og örlæti. Fyrir honum var sem sjálfsagt að víkja úr rúmi og herbergi fyrir okkur, láta okkur eftir sæti sitt við fjölskyldu- borðið og gera heimsóknir okkar, dvöl og kynni öll sem ljúfust og ánægjuríkust. Stefán var hreinskiptinn, ákveð- inn í sjónarmiðum, en jafnframt reiðubúinn að sjá og virða viðhorf annarra. Kostir hans, festa, karl- mennska hans, hreysti, drenglyndi og heiðarleiki, voru jafnan ráðandi, hvar sem hann gekk að störfum eða íþróttum. Sem knattspyrnuunnandi frá bernsku votta ég íþróttaráði Vestmannaeyja samúð, því hér er skarð fyrir skildi. Kærir vinir, Elli, Gaua og aðrir ástvinir. Við sendum ykkur öllum dýpstu samúðar- og vinarkveðjur. Guð styrki ykkur, huggi og blessi. Látið þær björtu og ljúfu minning- arnar hefja ofar harmi og trega í vissunni um endurfundina á landi lif- enda. Kveðjum okkar fylgja samhljóma kveðjur frá Líknar- og vinafélaginu Bergmáli. Sérstakar þakkir fyrir allt sem þið hafið svo örlátlega gert fyrir Bergmál. Blessuð sé minning Stefáns. Sólveig og Jón Hjörleifur Jónsson. Gleðigjafi er orð sem leynir ekki á sér, en samt geta forsendurnar fyrir því verið svo misjafnar. Stefán Er- lendsson var einn af þessum per- sónuleikum sem leyndu svo á sér, því þeir sem voru svo heppnir að kynn- ast honum í leik og starfi, nutu þess að hann bjó yfir góðum kostum í röð- um í ríkari mæli en flestir. Hann var sannkallaður gleðigjafi í þess orðs bestu merkingu. Stefán naut sín vel í hópi Bjarg- veiðimanna og sinnti þar forustu með glæsibrag í hverju máli sem hann tók að sér. Hann var boðinn og búinn að taka að sér verkefni og hvert erfitt verk vannst honum létt. Hann var allt í senn duglegur, ráða- góður, framtakssamur, skemmtileg- ur og gegnheill drengskaparmaður. Það er mikið áfall og mikið álag að missa þannig félaga svo ógnarlega langt fyrir aldur fram. Stefán var Ellireyingur af lífi og sál enda for- maður þess svipmikla og tilþrifa- mikla hóps með glæsibrag. Stefán skar sig úr fyrir margt,en fyrst og fremst fyrir það hve jarð- bundinn hann var og tillitssamur, því þrátt fyrir lensku galgopaháttar og prakkaraskaps í samfélagi okkar út- eyinga þá gekk hann aldrei of langt þegar menn slógu á létta og liðuga strengi svo sem háttur er úteyinga. Honum fór svo vel að vera hrókur alls fagnaðar, því hann var mikill húmoristi, en um leið svo fjölfróður og skynsamur. Hann hafði þau áhrif að mönnum leið vel í návist hans og menn hegðuðu sér um leið betur en vonir stóðu til. Þannig var hann boð- beri hins góða til félaga sinna í lífsins melódí. Mörg var stundin skemmti- leg með honum og Ólafi bróður hans þegar þeir leikarar af Guðs náð tóku lotur sem voru hreint frábærar, lot- ur þar sem þeir túlkuðu menn og málefni á sinn hátt. Það fór heldur ekki á milli mála að þrátt fyrir glens- ið og gamnið var djúpvitur hugsun á bak við allt sem þeir gerðu, þroski sem við félagar þeirra vorum svo montnir af þótt það væri aldrei talað um það í sjálfu sér. Það er auðvelt að sjá Stefán fyrir sér í góðra vina hópi, hvort sem er á pallinum við Ellireyjarbólið, inni í skála eða á öðrum mannamótum þar sem lífsgleðin var tekin tökum. Það er hins vegar svo sárt og erfitt að eiga ekki von á fleiri slíkum lotum með Stefáni, hlýlega glottinu og glettninni í auga og hugmyndum og vangaveltum sem höfðu alltaf festu og voru uppbyggilegar. Stefán var þeirrar gerðar þrátt fyrir ungan ald- ur að geta túlkað hvaða aldur sem var. Svo vel var hann gerður. Svo reið aldan yfir óvægin og grimm og það er ekkert skynsam- legt svar. Augu Eyjanna gráta sakn- aðartárum og berginu blæðir blíðs- árum klið. En minningin er eins og vorið, minningin kallar á þökk og gleði fyrir góðan dreng, hlýjar og nærir þegar söknuðurinn særir. Góður Guð varðveiti og hlúi að ást- vinum Stefáns og félögum hans heima og heiman. Megi góðar minn- ingar vagga vinum hans eins og vindurinn vaggar hvanngrænu gras- inu í hásumri Elliðaeyjar. Þannig bylgjast lífið sjálft og þannig var Stefán sjálfur hinn magnaði en lát- lausi gleðigjafi. Árni Johnsen.  Fleiri minningargreinar um Stef- án Erlendsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.