Morgunblaðið - 06.01.2001, Side 45
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 45
✝ Kristín fæddistað Búðum í Eyr-
arsveit við Grundar-
fjörð hinn 20. júní
1921. Hún lést á St.
Fransiskusspítala í
Stykkishólmi hinn
27. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Cecil
Sigurbjörnsson, f.
22.8. 1896, d. 20.2.
1933, bóndi og sjó-
maður að Búðum í
Grundarfirði, og
Oddfríður Kristín
Runólfsdóttir, f.
21.2. 1898, d. 16.11. 1972, húsmóð-
ir. Systkini Kristínar: Bæring, f.
24.3. 1923, vélstjóri í Grundarfirði;
Soffanías, f. 3.5. 1924, d. 24.3.
1999, forstjóri í Grundarfirði; Guð-
bjartur, f. 7.3. 1927, d. 4.9. 1994,
vélsmiður í Grundarfirði; Páll, f.
20.1. 1932, verkstjóri í Grundar-
firði.
Kristín giftist 14.3. 1942 Haraldi
Ísleifssyni, f. 27.9. 1914, verkstjóra
og fiskmatsmanni. Hann var sonur
Ísleifs Jónssonar, bónda og verk-
stjóra í Dagverðarnesi og í Stykk-
ishólmi, og Kristborgar Guð-
þrjár dætur og þrjú barnabörn:
Tvíburana Önnu Sigríði banka-
starfsmann og Oddfríði Kristínu
kennara, f. 23.1. 1968. Oddfríður
var gift Hafsteini E. Hafsteinssyni.
Þau skildu. Dóttir þeirra er Anna
Kristín, f. 30.6. 1995; Ritu Hvönn,
f. 7.2. 1977. Sambýlismaður henn-
ar er Þorsteinn Sigurlaugsson.
Þau eiga tvo syni: Ólaf Tryggva, f.
13.9. 1997 og Trausta Marel, f.
31.5. 2000.
Kristín var búsett í Grundarfirði
og ólst þar upp. Þar stundaði hún
barna- og unglingaskólanám þess
tíma og síðan nám við Húsmæðra-
skólann á Staðarfelli 1938–39. Hún
fluttist í Stykkishólm árið 1942 þar
sem hún og Haraldur byrjuðu bú-
skap sinn í Narfeyrarhúsi, Stykk-
ishólmi. Þau byggðu sér hús sem
nefnt var Bjarg en það varð síðar
Skólastígur 28 í Stykkishólmi. Þau
fluttu í það haustið 1945 og bjuggu
þar allan sinn búskap, þar til fyrir
3 árum að Kristín flutti í þjónustu-
íbúð fyrir aldraða. Auk húsmóður-
starfa stundaði Kristín fiskvinnslu-
störf til 1977, var síðan dagmóðir
til 1983 og loks vökukona á Dval-
arheimili aldraðra til 1990. Þau
voru mjög samhent hjón og áttu
mjög gæfuríka sambúð. Þau eign-
uðust þrjú börn, sjö barnabörn og
þrjú barnabarnabörn.
Útför Kristínar fer fram frá
Stykkishólmskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
brandsdóttur húsmóð-
ur. Haraldur andaðist
31.3. 1985.
Börn Kristínar og
Haralds eru: Cecil, f.
2.5. 1943, sóknar-
prestur á Seyðisfirði.
Hann kvæntist Ólínu
Torfadóttur hjúkrun-
arforstjóra og eiga
þau tvö börn: Kristínu
Haröldu, f. 10.8. 1963,
verkfræðing, og Har-
ald Ísleif, f. 3.12. 1979,
iðnskólanema. Cecil
og Ólína skildu. Sam-
býliskona Cecils er
Kristín G. Sigurðardóttir, hjúkr-
unarfræðingur, hún á eina dóttur;
Gylfi, f. 7.4. 1946, heilsugæslu-
læknir í Laugarási í Biskupstung-
um. Hann var í sambúð með Höllu
Arnljótsdóttur og eiga þau tvö
börn: Þröst Frey, f. 22.5. 1979, lög-
fræðinema, og Guðbjörtu, f. 19.12.
1982, verslunarskólanema. Gylfi
og Halla slitu samvistum. Gylfi er
kvæntur Rut Meldal Valtýsdóttur
húsmóður, en hún á þrjá syni;
Kristborg, f. 2.3. 1950, kennari í
Stykkishólmi, gift Trausta
Tryggvasyni kennara og eiga þau
Við minnumst ömmu alltaf í dyr-
unum á Skólastígnum, hlæjandi af
gleði þessum skemmtilega hlátri
sem kom öllum öðrum til að brosa
líka. Hún var svo glöð að barna-
börnin væru komin í heimsókn, en
inni biðu okkar heimagerðar kræs-
ingar, pönnukökur og annað góð-
gæti.
Það var aldrei lítið um að vera hjá
henni ömmu, því alltaf voru ein-
hverjir að koma til að heimsækja
hana og það var alltaf stutt í hlát-
urinn. Amma var alltaf svo góð við
alla, ekki bara við okkur barnabörn-
in, heldur líka alla aðra, smáa og
stóra og helst þá sem minna mega
sín í þjóðfélaginu. Hún lagði líka
mikið af kröftum sínum til stuðn-
ings kirkjustarfi og getum við nefnt
það sem dæmi, að þegar bygging
nýju sóknarkirkjunnar í Stykkis-
hólmi stóð sem hæst, ákvað amma
að leggja fram fé til kaupa á lýsing-
unni er nú prýðir loftið í kirkjuskip-
inu. Það gerði hún til minningar um
afa, sem ekki lifði það að sjá kirkj-
una fullbúna, en amma saknaði hans
alltaf mjög. Nú eru þau saman á ný
og ekkert fær þau aðskilið.
Amma var mikið blómabarn og
var sérstaklega hrifin af rósum.
Hún átti heilt gróðurhús af falleg-
um rósum og garðurinn var þéttset-
inn hádegisblómum, dalíum og
mörgum öðrum blómum. Síðar var
byggð sólstofa við húsið, þar sem
hún hafði einnig mikið af blómum
og rósum. Amma hafði reglulega
gaman af handverki ýmiss konar og
saumaði blóm í dúka og myndir,
sem geta talist hreinustu listaverk.
Amma prjónaði líka mikið og pakk-
arnir frá henni voru oftast mjúkir
og leyndust þar t.d. fallegir treflar,
húfur og vettlingar á alla fjölskyld-
una.
Þegar við komum í heimsókn til
ömmu var oft spilað á kvöldin og
amma sagði okkur sögur frá gömlu
dögunum, þegar börnin léku sér
með legg og skel og undu vel við, því
þau þekktu ekkert annað. Það var
gaman að heyra sögurnar hennar
ömmu. Amma fylgdist alltaf vel með
samtíðinni og missti helst aldrei af
neinum fréttatíma, hvorki í útvarpi
né sjónvarpi. Mest um vert er þó
hversu gott það var að spjalla við
ömmu um lífið, tilveruna og bara
hvaðeina, en amma var góður hlust-
andi og ráðagóð.
Við erum þakklát fyrir að hafa átt
svona yndislega ömmu.
Guðbjört og Þröstur Freyr.
Enn hefir einn af mínum traust-
ustu vinum kvatt jarðlífið. Hún var
mér kær og oft lágu spor mín til
hennar og þær verða ekki auðtaldar
stundirnar sem við áttum saman á
heimili hennar við Skólastíginn. Þar
var bæði ljúft og gott að koma.
Margar stundir sem skilja eftir sér-
stakar minningar. Kristín var
sterkur persónuleiki og starfaði að
gróðri og gengi bæjarfélagsins.
Hún tók virkan þátt í starfi kven-
félagsins hér og málefnum kirkju og
kristindóms vann hún af einlægum
hug meðan kraftar entust.
Hún átti fagurt og gott heimili og
góðan mann, Harald Ísleifsson, sem
lengi var verkstjóri í frystihúsi
Kaupfélagsins. Þau stóðu vel saman
og byggðu traust og vandað hús í
Hólminum og voru nágrannar mínir
um langt og farsælt tímabil. Við
byggðum sitt hvorum megin við
Skólastíginn, sitt á hvorri klöppinni
og þau hjón voru ekki sein að koma
sér upp fallegum garði í kringum
húsið, sem var mikil bæjarprýði.
Þar stóðu þau hjón vel saman og var
gaman að fylgjast með gróðrinum
og fallegu blómunum sem þar áttu
góðar hendur að frá upphafi. Ég
kynntist þeim hjónum fljótt eftir að
ég kom í Hólminn. Þau giftu sig í
mars 1942, sama árið og ég kom.
Þau hjón voru samtaka í því að
neyta hvorki tóbaks né áfengis og
þar stóðum við vel saman, vissum að
bindindi á þá hluti borgaði sig best.
Þau sáu fljótt á lífsleiðinni hvert böl
tóbak og áfengi var bæði í félagslífi
og eins fyrir einstaklinga og heim-
ilin. Þau voru því börnum sínum og
skylduliði sönn fyrirmynd og þá má
ekki gleyma hversu þau bæði hlúðu
að málum kirkjunnar okkar. Það
voru ótaldar stundir er þau vörðu til
þess að kirkjulíf gæti blómgast í
bænum og dafnað. Haraldur var
lengi í sóknarnefnd og lagði þar
alltaf jákvætt til málanna og það má
segja að hann hafi verið með fyrstu
hvatamönnum að byggingu nýrrar
kirkju og úr því dró konan hans
ekki, heldur hvatti til.
Það var bæði hollt og gott að
kynnast Kristínu. Hún hafði svo
hreinar og ákveðnar skoðanir á hin-
um daglegu viðfangsefnum og mat
allt sem vel var gert og Hólmurinn
var henni kær og vildi hún hans hag
sem mestan, fylgdist með allri
framþróun og gladdist yfir öllu því
sem miðaði til bóta, og eins var með
það sem miður fór, það tók hún sér
nærri. Það tel ég mér til mikilla
tekna að hafa átt hennar vináttu frá
fyrstu kynnum okkar og handtak
hennar og hlýja var slík að hún
vermir lengi. Eftir að við vorum
bæði komin á Dvalarheimilið urðu
samfundir okkar fleiri og vináttan
traustari.
Hún átti góða og farsæla ævi,
eignaðist góð börn sem hafa nýtt
sér það veganesti sem þau fengu í
foreldrahúsum og þá var nú hlúð að
ömmubörnunum sem voru mikið
ljós í lífi hennar.
Kristín gekk ekki heil til skógar
síðustu æviárin, en því tók hún með
fullvissu þess að dauðinn væri
ávinningur þegar ævistarfið hefði
verið mikil blessun, og þakklát fyrir
allt fékk hún hægt andlát á sjúkra-
húsinu hér í Hólminum.
Hún verður mér lengi í huga og
ég bið henni blessunar á nýjum veg-
um ljóss og lífs og þakka henni
tryggð og vináttu fyrr og síðar.
Góður guð veri með henni. Ég sendi
ástvinum hennar innilegar samúð-
arkveðjur.
Árni Helgason, Stykkishólmi.
KRISTÍN
CECILSDÓTTIR
✝ Jón Halldór Ás-grímsson fæddist
á Móskógum í Fljót-
um í Skagafirði 14.
janúar 1929. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnuninni á Sauðár-
króki 29. desember
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Ásgrím-
ur Halldórsson, bóndi
og vegaverkstjóri á
Tjörnum í Sléttuhlíð,
f. 26.11. 1886, d.
21.12. 1960, og Ólöf
Konráðsdóttir, hús-
freyja, f. 16.3. 1890, d.
16.3. 1956. Systkini Jóns voru Her-
bert, f. 20.1. 1915, d. 31.7. 1963;
Indíana, f. 8.1. 1916, d. 23.5. 1982;
Konráð, f. 13.5. 1917, d. 22.5. 2000;
Þórhallur, f. 21.9. 1919, d. 10.1.
1923; Pétur Jón, f. 25.11. 1921, d.
13.11. 1924; Sigrún, f. 25.12. 1923.
Hinn 31. desember 1956 kvænt-
ist Jón Erlu Jónsdóttur, f. 5.3. 1934.
Þau eignuðust sjö börn. Fyrir átti
Erla Óskar Hjaltason, f. 1952, bú-
settur á Hofsósi, sem Jón gekk í
föðurstað. Hans kona er Sigríður
Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Þeirra börn Áslaug María, Jón Þór
(látinn) og Kristinn Ragnar. 1) Ólöf
Ásta, f. 1956, búsett á Sauðárkróki,
gift Helga Ragnarssyni, mjólkur-
fræðingi, þeirra sonur er Guð-
mundur Ingi. Fyrir átti Ólöf Sig-
urberg Svein og Huldu Björk
Sveinsbörn. 2) Þorbjörn, f. 1958,
búsettur á Akranesi, kvæntur Ey-
rúnu Þorleifsdóttur, hárgreiðslu-
kona, þeirra synir eru Þorleifur,
Ómar Logi og Aron.
Fyrir á Þorbjörn
dótturina Hörpu. 3)
Guðbjörg, hjúkrun-
arfræðingur, f. 1959,
búsett í Reykjavík,
gift Stefáni Geir Sig-
urbjörnssyni, blikk-
smið, þeirra sonur er
Jón Þór. Fyrir á Guð-
björg dótturina
Lindu Maríu Þor-
steinsdóttur. 4) Krist-
inn Herbert, f. 1963,
búsettur á Siglufirði,
hans dóttir er Erla
Sif. 5) Jón Jökull, f.
1965, búsettur í Glæsibæ í Sléttu-
hlíð. 6) Anna María, f. 1972, búsett
á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði, í sam-
búð með Jóni Benjamínssyni,
þeirra börn Benjamín Jóhannes,
Ágústa Líf og Daníel Eldar. 7) Ás-
grímur, rafvirki, f. 1974, í sambúð
með Piu Aaberg. Barnabarnabörn
Jóns eru fjögur talsins.
Jón ólst upp á Tjörnum í Sléttu-
hlíð og stundaði öll almenn sveita-
störf og var í vegavinnu hjá föður
sínum. Jón og Erla hófu búskap í
Reykjavík, þar sem Jón starfaði í
rafgeymaverksmiðjunni Pólum.
1963 fluttist fjölskyldan norður í
Sléttuhlíð í Skagafirði og hóf bú-
skap, fyrst á Keldum til 1965, þá á
Ysta-Hóli til 1968 og á Vatni til
1976 er þau fluttu að Glæsibæ þar
sem Jón stundaði búskap til ævi-
loka.
Útför Jóns fer fram frá Hofsós-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Nú er elsku afi okkar búinn að
kveðja. Það er erfitt að sætta sig
við að þú sért dáinn. Í hugsunum
okkar áttir þú alltaf að vera til
staðar og ekki kom upp sú hugsun
að eitthvað gæti komið fyrir þig,
það var því kaldur veruleikinn sem
snart okkur þegar við heyrðum
fyrst af sjúkdómi þínum fyrir
þremur mánuðum, en ekki grunaði
okkur að þetta tæki svona fljótt af.
Og söknuðurinn er mikill en við
vitum að nú er afi hjá Guði og líð-
ur vel þar.
Elsku afi, nú eru allar kvalir á
enda hjá þér og við vitum að þér
líður vel núna og munt vaka yfir
okkur og veita okkur styrk. Þótt
söknuðurinn sé mikill varðveitum
við allar minningarnar sem við eig-
um um þig í hjarta okkar.
Sá sem eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pét.)
Blessuð sé minning elsku afa
okkar.
Hulda og fjölskylda,
Sigurbergur og fjölskylda.
Enn var brugðið beitta ljánum,
brott er nafn af lífsins skjánum.
Eitt af gildu traustu trjánum,
tók í einu höggi sá,
er enginn komast undan má.
Ei var þinnar ættar siður,
undan víkjast, lyppast niður.
Sléttuhlíð þér bænir biður,
barn þú varst á hennar fold.
Hvíldin ljúf í móður mold.
Mikið verk um ævi unnið,
þó aðrir hafi lengra spunnið,
lífsins garn og léttar runnið,
í leit að tísku og dægurbrag.
Slíkt var ei þitt lundarlag.
Ég kveð þig Jón og kistu þína,
með krossi signi og virðing mína,
vil ég þér með sanni sýna,
Sólarfaðir blessi þig,
á leið um æðra lífsins stig.
Kristján Árnason frá Skálá.
JÓN HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstofa Íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.