Morgunblaðið - 06.01.2001, Page 57
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 57
SINNA verka nýtur seggja hver,
sæll er sá, sem gott gerir. Svo segir í
Sólarljóðum og það á víða við, t.d. á
Bjarni S. Konráðsson heiður skilinn
fyrir dugnað við að safna og gefa út
vísur og ljóð.
Nýjasta verk hans, Undir blá-
himni, kom út nú fyrir jólin, ljóðakver
prentað í prentsmiðjunni Hólum, 208
bls. með gömlu og nýju efni. Gamla
efnið er tilefni þess að ég rita þessa
grein. Ef vafi er á hver sé höfundur
ber að forðast fullyrðingar og að skrá
vísu, sem kveðin var um 1726 eftir
mann, sem fæddist rúmri öld síðar er
vægast sagt fráleitt. Auk þess er 1. og
3. ljóðlínum vísunnar ruglað. Vísan,
Far vel Hólar fyrr og síð, er prentuð
á bls. 197 í bókinni og sögð vera eftir
Jon Benidiktsson, það tel ég rangt.
Ég lærði vísuna 1946 og Jónas afi
minn sagði mér að hún væri nokkuð
örugglega ort af Jóni Pálssyni Vídal-
ín 1726. Jón Pálsson var sonur Páls
lögréttumanns í Víðidalstungu, sem
var eitt af betri skáldum 17. og 18.
aldarinnar. Jón P. Vídalín var skip-
aður sýslumaður yfir Eyjafjarðar-
sýslu 1726 þá 25 ára gamall og ný-
kvæntur Helgu dóttur Steins biskups
á Hólum. Sagt var að þegar hann fór
frá Hólum til Möðruvalla að birta lög-
sagnarbréf sitt hafi hann ort vísuna
Kveðju vísu til Hóla.
Jón sneri heim til Hóla 12. okt.
1726 í tvísýnu veðri og fólkið í Flögu-
seli, fremsta bæ í Hörgárdal, vildi að
hann og tveir unglingar, sem voru
samferða honum, gistu þar yfir nótt-
ina en degi var þá mjög tekið að halla
og snjódrífa nokkur.
Jón þakkaði gott boð með vísu:
Ó hvað tíminn er að sjá
undarlega skaptur.
Hvað mun dagurinn heita sá
að hingað kem ég aftur?
Hann kom aldrei aftur að Flögu-
seli, því aftaka veður olli dauða þeirra
þriggja á Hjaltadalsheiðinni og líkin
fundust ekki fyrr en í júlí árið eftir.
Þrátt fyrir mikla leit, sem Steinn
biskup lét gera um veturinn, fundust
bara hestarnir og slitin beisli við læk
á heiðinni, snærinn geymdi líkin fram
í júlí.
Þannig var sagan, sem afi sagði
mér um tilurð þessara tveggja vísna,
við munum atburði betur með að
tengja þá einhverju eftirminnilegu og
ártali.
Sýslumaðurinn ungi á betra skilið
af okkur sveitungum hans en að við í
lok 20. aldar rænum hann andans
verkum, enda veit ég eftir samtal við
Bjarna S. að það var aldrei ætlun
hans né heldur að prenta oss í Brúar-
vallavísu Jónasar frá Hofdölum á bls.
101 í staðinn fyrir þeim, óhöpp í
prentun, sem ég vil benda eigendum
bókarinnar á að leiðrétta, hver í sínu
eintaki yfirstrika Benidiktsson á bls.
197 og skrifa að líkindum Pálsson Ví-
dalín í staðinn, tölusetjið svo 1. ljóð-
línu sem 3. og 3. sem 1. þannig er bók-
in meira virði.
Ég vona svo að Bjarni fari gæti-
lega í skráningu höfunda á gömlum
húsgönguvísum í næstu bók sinni.
Þekktur fræðimaður á Akureyri,
Hörður Jóhannsson, tjáði mér að
Hólavísan væri prentuð á bls. 183 í
Vísnasafni Páls Vídalíns, sem Jón
Þorkelsson sá um og fékk prentað í
Kaupmannahöfn 1897. Þar eru
nokkrar vísur fleiri eignaðar Jóni
Pálssyni og hinn grandvari útgefandi
segir að sumar vísurnar séu af sum-
um taldar eftir Jón son Steins bisk-
ups sem dó ungur á 2. tug átjándu
aldarinnar, þar er öryggis gætt en
Jóns Ben. ekki, enda er hann þá í
fullu fjöri og gat komið sínum at-
hugasemdum að ef einhverjar hefðu
verið.
Öll erum við mannleg og okkur
hendir óhjákvæmilega mörg mistök,
það er eðlilegt. Hitt verðum við að
kappkosta að gjöra sem minnst illt og
skaða engan að ósekju, eg ætla að
ljúka þessu pári mínu með tilvitnun í
orð nýkjörins manns 20. aldarinnar
skáldsins Laxness er hann segir í Ís-
landsklukkunni:
Okkar glæpur er að vera ekki
menn, þó við heitum svo...
Megi svo 21. öldin okkur blessun
veita.
Far-vel Hólar fyrr og síð,
farvel sprund og halur,
farvel Rafta-fögur-hlíð,
farvel Hjaltadalur...
PÁLMI JÓNSSON,
Hólavegi 27, Sauðárkróki.
Hver er höfundur vísnanna?
Frá Pálma Jónssyni:
VIÐ erum tveir hópar sem sóttu um-
ferðarskóla Sjóvár-Almennra fyrir
unga ökumenn á í Reykjavík í nóv-
ember. Við veltum fyrir okkur mik-
ilvægum þætti er snertir öryggi okk-
ar í umferðinni. Hvers vegna við
unga fólkið tökum áhættu með því að
aka undir áhrifum áfengis. Því vilj-
um við benda ykkur, kæru jafnaldr-
ar, á nokkur atriði sem skipt geta
sköpum í þessu efni.
Við erum viss um að það að aka
undir áhrifum áfengis er mesta
ábyrgðarleysi sem menn geta sýnt.
Við fullyrðum það vegna þess að við
vitum eftirfarandi:
Dómgreindin skerðist verulega
við áfengisneyslu.
Viðbragðstími lengist við neyslu
áfengis.
Aksturinn verður óöruggur.
Sjónsviðið þrengist.
Auknar líkur á syfju í akstri.
Menn verða kærulausari við
neyslu áfengis.
Við erum réttlaus ef við ökum
undir áhrifum áfengis.
Því hvetjum við ykkur til að huga
að því að skilja bílinn eftir heima (og
lyklana) ef þið ætlið að neyta áfengis.
Best væri bara að sleppa því að
drekka. En ef það gengur ekki og
bíllinn er nálægt er þjóðráð að biðja
vin okkar sem er edrú um að geyma
lyklana. Við hvetjum ykkur til að
taka strætó eða leigubíl. Kostnaður-
inn við slíkt eru smáaurar í saman-
burði við þann kostnað sem við gæt-
um þurft að leggja út ef við völdum
tjóni ölvuð.
Að lokum viljum við benda ykkur
á að það er ekkert hægt að gera til að
flýta fyrir því að verða edrú. Lifrin í
okkur vinnur sitt verk hægt og bít-
andi. Því verðum við að gæta þess að
fara ekki of snemma af stað að
morgni eftir neyslu áfengis. Margir
hafa farið of snemma af stað og misst
prófið daginn eftir.
F.h. ungra ökumanna í
ökuskóla Sjóvár-Almennra í
Reykjavík í nóvember,
EINAR GUÐMUNDSSON
forvarnafulltrúi Sjóvár-Almennra.
Hefur þú ekið undir áhrifum?
Frá ungum ökumönnum í
ökuskóla Sjóvár-Almennra:
Ölvaður ungur ökumaður getur verið í allt að 900 sinnum meiri hættu á
að slasast en væri hann edrú. Er áhættan þess virði? Hér fór illa.
RAÐGREIÐSLUR
Útsala
í dag laugardag 6. janúar kl. 12-19
og sunnudag 7. janúar kl. 13-19.
Allt að 45% afsláttur ef
greitt er með korti
5% aukaafsláttur m.v.
staðgreiðslu
Sími 861 4883
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hótel, Sigtúni, Reykjavík,
Fákafeni 11, sími 568 9120
Útsala
10-60% afsláttur
af gjafavöru
opið til
kl.22
öll kvöld
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r