Morgunblaðið - 06.01.2001, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 59
DAGBÓK
Útsala!
10—50% afsláttur
Úlpur
Kápur
Jakkar
Pelskápur
líta út sem ekta
Opið laugardaga
frá kl. 10—16
Mörkinni 6,
sími 588 5518
Jákvætt námskeið
um hjónaband og sambúð
í Hafnarfjarðarkirkju
6. árið í röð
Skráning er hafin á hið feikivinsæla hjóna-
námskeið Hafnarfjarðarkirkju sem yfir 3.400
manns hafa tekið þátt í
frá árinu 1996.
Á námskeiðinu er fjallað um samskipti hjóna,
leiðir til að styrkja hjónabandið
orsakir sambúðarerfiðleika, leiðir út úr víta-
hring deilna og átaka, ólíkar fjölskyldugerðir,
ástina, kynlífið, hamingjuna og börnin
fyrir utan allt hitt
Aðeins 15 pör komast á hvert námskeið. Skráningar-
sími er 555 1295 á skrifstofutíma alla virka daga
og hefst skráning mánudaginn 8. janúar.
Leiðbeinandi á
námskeiðinu er
sr. Þórhallur Heimisson,
Hafnarfjarðarkirkju, en
hann hefur mikla reynslu
af fjölskyldustarfi.
!
"" #"$
%
!&
' ! #( ! #"&
)!!
✭
✭ ✭ ✭
&
! *&
&+*& "! ✭
!" #
✭ $
%" &
'
( "
)
,
- . /--
- !
!! &
0""
!
!
12* 223 12* 4*&
Í 3-2 tígullegu stendur als-
lemma í NS og hálfslemma
er örugg þótt liturinn
brotni 4-1. En þegar aust-
ur á alla fimm tígla varn-
arinnar virðist slögunum
fækka niður í tíu.
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ KD753
♥ G62
♦ 98
♣ ÁK10
Vestur Austur
♠ G9 ♠ 108642
♥ D1098543 ♥ --
♦ -- ♦ G10765
♣ 9876 ♣ DG2
Suður
♠ Á
♥ ÁK7
♦ ÁKD432
♣ 543
Vestur Norður Austur Suður
2 hjörtu Pass Pass Dobl
Pass 4 spaðar Pass 4 grönd
Pass 5 spaðar Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Útspil: Laufnía.
Sagnhafi tekur á laufás,
spilar tígli á ás og fær
vondu fréttinar þegar vest-
ur hendir hjarta. Hvernig á
hann nú að athafna sig?
Ágætur biðleikur er að
leggja niður hjartaás.
Austur hendir spaða. Nú
er orðið nokkuð ljóst að
austur er einn um að valda
alla liti (laufnían er „topp-
ur af engu“) og sennileg-
asta skipting hans er ein-
mitt 5-0-5-3 með DGx í
laufi. Kastþröng ætti því
að vera inni í myndinni. En
samgangurinn er þungur
og því verður að tímasetja
spilamennskuna vel. Það
gengur til dæmis ekki að
taka hjartakónginn, því
austur getur þá hent tígli
og brotið svo samganginn
við blindan með laufdrottn-
ingu næst þegar hann
kemst inn á tígul. Sagnhafi
verður að fara krókaleið.
Hann tekur á spaðaás og
spilar svo hjartasjöu undan
kóngnum!! Vestur drepur á
drottningu og gerir best í
því að spila laufi. Kóngur
blinds fær þann slag og
síðan tekur sagnhafi spaða-
hjónin og hendir einum
tígli og hjartakóng!
Norður
♠ 75
♥ G
♦ 9
♣ 10
Vestur Austur
♠ -- ♠ 10
♥ 985 ♥ --
♦ -- ♦ G107
♣ 87 ♣ D
Suður
♠ --
♥ --
♦ KD43
♣ 5
Þetta er staðan. Hjarta-
gosa er spilað og austur á
enga vörn. Það kostar
strax tvo slagi að henda
spaða eða tígli, svo líklega
losar hann sig við lauf-
drottningu. En þá kemur
lauftían og þvingar austur
á ný.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
GULLBRÚÐKAUP. Á nýársdag áttu 50 ára hjúskaparaf-
mæli hjónin Anna Þorgilsdóttir og Sveinn B. Ólafsson til
heimilis að Rauðagerði 64, Reykjavík. Þau dvöldu í faðmi
fjölskyldunnar á þessum tímamótum.
60 ÁRA afmæli. Sl.fimmtudag 4. janúar,
varð sextugur Björn Pálma-
son, bifvélavirki, Álfhóls-
vegi 131, Kópavogi. Eigin-
kona hans er Guðrún
Bjarnadóttir. Í tilefni þessa
taka þau á móti gestum í
dag, laugardaginn 6. janúar,
kl. 20 að Álfabakka 14a, 3.
hæð.
LJÓÐABROT
ÁLFAREIÐIN
Stóð ég úti í tunglsljósi, stóð ég út við skóg, –
stórir komu skarar, af álfum var þar nóg.
Blésu þeir á sönglúðra, og bar þá að mér fljótt, –
og bjöllurnar gullu á heiðskírri nótt.
Hleyptu þeir á fannhvítum hestum yfir grund, –
hornin jóa gullroðnu blika við lund, –
eins og þegar álftir af ísa grárri spöng
fljúga suður heiði með fjaðraþyt og söng.
Heilsaði hún mér drottningin og hló að mér um leið,
hló að mér og hleypti hestinum á skeið.
Var það út af ástinni ungu, sem ég ber?
Eða var það feigðin, sem kallar að mér?
(Heine. Jónas Hallgrímsson þýddi.)
STAÐAN kom upp á alþjóð-
legu skákmóti í Merida í
Mexíkó er lauk fyrir
skömmu. Alþjóðlegi meist-
arinn Jose Gonzales Garcia
(2440) hafði hvítt gegn landa
sínum Jose Enrique Alayola
(2214) og veitti sá fyrrnefndi
andstæðingnum snoturt
náðarhögg. 29.Bg7! Dg5
29...Dxg7 hefði verið svarað
með 30.Hxe7+ og hvítur
vinnur. 30.Re6! Dd2 svartur
yrði mát eftir
30...Bxe6
31.dxe6#
31.Rd8+ og
svartur gafst
upp enda
verður hann
mát eftir
31...Bxd8
32.Df8#. Lok-
astaða móts-
ins varð þessi:
:1. Valerij Fil-
ippov 7 vinn-
ingar af 9
mögulegum.
2.-3. Viktor
Mikhalevski
og Aleksander
Wojtkiewicz 6
½ v. 4.-6. Walter Arencibia,
Florentino Garmendez og
Alberto Escobedo Tinajero
6 v. 7. –11. Anthony J Miles,
Gilberto Hernandez, Nikola
Mitkov, Reynaldo Vera,
Sergey Kudrin og Tapani
Sammalvuo 5 ½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
50 ÁRA afmæli. Í dag 6.janúar verður fimm-
tug Ingigerður Guðbjörns-
dóttir, ljósmóðir. Eiginmað-
ur hennar er Robert
Berman. Hún tekur á móti
gestum í dag kl. 19.30 í sam-
komusal Fríkirkjunnar í
Reykjavík að Laufásvegi 13.
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins: Þótt
þú sért upptekinn af efnis-
legum gæðum getur þú um
leið verið gjafmildur. Þú ert
athugull og nærfærni þín
vekur aðdáun annarra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Reyndu að líta til lengri
tíma þegar þú skipuleggur
aðgerðir þínar því það sem
lítur vel út nú kann að reyn-
ast skammgóður vermir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sýndu sveigjanleika og
vertu viðbúinn óvæntum
uppákomum. Þær þurfa
ekki að vera til tjóns ef þér
tekst að bregðast rétt við.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nú hefur þú það í hendi
þinni að láta mikil umskipti
yfir þig ganga. Óttastu ekki
nýjungar og vertu ekki fast-
heldinn á forna siði.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Forðastu að taka þátt í hlut-
um sem eru einskis virði og
því hrein tímasóun. Notaðu
heldur tímann til að byggja
þig upp á jákvæðan hátt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er oftast auðveldara að
láta stjórnast af atburða-
rásinni heldur en hafa sjálf-
ur áhrif. Reyndu samt að
láta til þín taka.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er ekki alltaf rétta ráð-
ið að grípa inn í líf annarra
þótt aðstæður séu til þess.
Hugsaðu um sjálfan þig
fyrst og fremst.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það getur reynt á þolin-
mæðina að þurfa að end-
urtaka sjálfan sig oft svo
allir skilji. En gefðu þér
tíma til þess því án skiln-
ings annarra verður þér
ekkert úr verki.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur lag á að koma að
hlutunum úr óvæntri átt og
það laðar að þér samstarfs-
menn sem kunna að meta
hæfileika þína.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það kann að kosta þig mikla
vinnu að komast fyrir allar
staðreyndir málsins. Vertu
viðbúinn því að komast að
ýmsu óvæntu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt þekking þín á ákveðn-
um hlutum sé mikil eru þeir
þó til sem neita að hlusta á
rök þín. Þá er ekki um ann-
að að ræða en að drífa hlut-
ina af.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það getur verið auðvelt að
eignast vini og aðdáendur
en mundu bara að ekki eru
allir viðhlæjendur vinir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er ekki nóg að hafa
svörin á reiðum höndum ef
maður getur ekki unnið rétt
úr þeim. Treystu eðlisávís-
un þinni betur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.