Morgunblaðið - 06.01.2001, Side 64
AÐDÁENDAKLÚBBUR Elvis
Presleys ætlar aldeilis að gera sér
glaðan dag nú í kvöld og halda upp
á 66 ára afmæli kóngsins, sem er á
mánudaginn.
Veislan hefst kl. 21 í Þórshöll og
segir Jósef Ólafsson, formaður
klúbbsins, að margt skemmtilegt
verði á dagskrá og að kvöldið
verði meiriháttar flott. „Margir
ætla að koma og heiðra kónginn
með nærveru sinni,“ segir Jósef,
„og allt er klappað og klárt“.
Veislan hefst á sýningu þar sem
uppistaðan eru söngatriði með lög-
um sem Elvis gerði ódauðleg.
Fram koma margir æfðustu
Presley-söngvarar landsins, auk
leynigests sem kemur að skemmta.
Síðan hefst dansleikur með
André Bachman „Miðaverð er
1.500 kr., allir eru velkomnir og
tekið verður vel á móti öllum,“ lof-
ar Jósef, sem vonast ekki síður eft-
ir ungu fólki í afmælið. „Það er
kominn tími til að láta það vita
hver Elvis Presley er.“
Hitti Elvis í draumi
Meðlimir klúbbsins eru tíu, en
hann var stofnaður 14. október sl.
og hefur starfsemin verið að
þróast síðan. „Við héldum upp á
stofndaginn, hæfileikakeppni var
haldin 10. og 11. nóvember, og síð-
an höfum við verið að undirbúa af-
mælishátíðina alveg á fullu,“ segir
Jósef Presley einsog hann er
gjarnan kallaður á meðal félag-
anna.
Jósef segir enga kunnáttu í sér-
legum Elvis-töktum nauðsynlega
fyrir þá sem vilja sækja um inn-
göngu í klúbbinn. „Svo á ekkert að
vera að herma eftir honum. Það á
að boða það sem hann söng, syngja
lögin hans og láta vita að hann er
á lífi hérna á þessu landi, Íslandi.
Það getur enginn hermt eftir Elvis
Presley, það er alveg á hreinu. Það
getur enginn orðið eins og kóng-
urinn.“
Jósef segist hafa lesið grein í
Morgunblaðinu þar sem sagt er frá
viðtali sem tekið var við Elvis
Presley í gegnum miðil rúmu ári
eftir að hann dó.
„Ég hef mikla trú á þessum
miðli, auk þess sem mig hefur
dreymt Elvis og hann hefur sagt
mér það sama. Í fyrrinótt var ég
staddur á tónleikum sem hann
hélt, ég fór baksviðs, fékk að
heilsa upp á hann og hann talaði
við mig. Ég sagði honum að klúbb-
urinn okkar væri ekkert að herma
eftir honum, hann var mjög
ánægður með það og ég sagði hon-
um að við værum bara að boða það
sem hann bað okkur fyrir hérna á
þessu landi.
Við komum bara fram í göllum
og syngjum lögin sem hann gerði
góða hluti með til að gleðja aðra.“
– Vilja einhverjir í klúbbnum
halda því fram að Elvis sé á lífi?
„Hann er á lífi. Faðir hans
keypti búgarð um 20 km frá
Graceland og hann býr þar. Í sum-
ar verður haldin Elvis-keppni í
Ameríku á vegum elsta klúbbsins
sem starfræktur er í Englandi. Það
getur verið að ég og Héðinn Valdi-
marsson guðfaðir klúbbsins okkar
förum þangað báðir. Þá ætlum við
að fara til Gracelands og ætla ég
að kanna þetta allt saman.“
– Og reyna að finna Elvis?
„Já, já, ég þarf ekki að leita
langt, og ég veit að ég finn hann
alveg. Hann býr á þessum bónda-
bæ. Hann er þar karlinn og vill fá
frið frá fólkinu og slappa af.“
Og það er þá vonandi að Elvis
njóti afmælisdagsins rétt eins og
aðdáendur hans á Íslandi og sjálf-
sagt víðar um veröld.
Elvis Presley á 66 ára afmæli
Enginn
er eins
og kóng-
urinn
Ljósmynd/Egill Egils
Héðinn guðfaðir og Jósef formaður hafa í mörgu að snúast fyrir aðdáendaklúbbinn.
64 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 168
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Vit nr. 167
Framhald af
Pokemon-æðinu
sem er enn að
gera allt
vitlaust í
heiminum
Einn strákur getur
bjargað heiminum!
www.sambioin.is
Sýnd kl. 1.45, 3.50, 5.55, 8 og 10.10. Vit nr. 178Sýnd kl.1.30, 3.30, 6, 8 og 10.30 Vit nr. 177
Sýnd kl. 1.40, 3.50 og 6. Íslenskt tal. Vit nr. 179
BRING IT ON
Hvað ef...
Stundum leggur maður allt undir til að ná takmarkinu.
Flottir kroppar og dúndur tónlist!
BRUCE WILLIS SAMUEL L. JACKSON
Frá M. Night Shyamalan höfundi/leikstjóra
„The Sixth Sense“
ÓFE Hausverk.is
ÓHT Rás 2
1/2
kvikmyndir.is
HL Mbl
Ertu tilbúinn fyrir sannleikann?
TÉA LEONINICOLAS CAGE
"Óskarsverðlaunahafinn Nicolas Cage (Lea-
ving Las Vegas, The Rock) og Téa Leoni
(Bad Boys) í frábærri gamanmynd"
Sýnd kl. 2 og 4. ísl
tal Vit nr. 169 - Sýnd kl.
6 enskt tal. Vit nr. 170
Sýnd kl. 8 og
10.10.
B. i. 16. Vit nr. 161
Sýnd kl. 10.15. B.
i. 12. Vit nr. 176
Sýnd kl. 1.50. ísl tal.
Vit nr. 144.
Það verða engin jól ef þessi fýlupúki fær að ráða
Jim
Carrey
er
ÓHT Rás 2
Mbl
1/2
Radíó X
"Honum var gefið
tækifæri að skyggnast
inn í það líf sem hann
hafði áður hafnað.
HÁSKÓLABÍÓ
Hagatorgi sími 530 1919
þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B. i. 12.
2 f
yri
r 1
Hvað er Ikíngut?
Fljúgandi ísbjörn?
Marbendill?
Sæskrímsli?
...eða besti vinur þinn?
Ný íslensk ævintýramynd
fyrir alla aldurshópa
DV
DANCER
IN THE DARK
„fyndin og skemmtileg“
H.K. DV
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.Sýnd kl. 2, 5.30, 8 og 10.30.
Nick Nolte Anjelica Huston Uma Thurman
Rómantísk átakamynd frá Mercant og Ivory, þá sem gerðu
Dreggjar Dagsins (Remains Of The Day) og Howards End.
Sýnd kl. 2 og 5.30. Síð. sýningar.
AMANDA PEET
ÚR WHOLE NINE YARDS
Sýnd kl. 10.Sýnd kl. 8 og 10.15.
Stundum leggur maður allt undir til að ná takmarkinu.
Flottir kroppar og dúndur tónlist!
ÓHT Rás 2
Fullorðið fólk
Vuxna människor
G a m a n m y n d
Leikstjóri Felix Herngren og Fred-
rik Lindström. Handrit Jon Olof
Ågren. Aðalhlutverk Felix Hern-
gren, Karin Bjurström, Fredrik
Lindström. (120 mín.) Svíþjóð 1999.
Myndform. Öllum leyfð.
GAMANMYNDIR hafa kannski
ekki alveg þótt sterkasta hlið
sænskrar kvikmyndagerðar hingað
til – þótt vitanlega
hafi komið þaðan
einstaka glaðning-
ur sem sýnt hafi
að þeir geta vel
slegið á létta
strengi, frændur
okkar, ef þeir losa
örlítið um bindis-
hnútinn.
Fullorðið fólk er
vissulega sænsk mynd, það sér
hver sem horft hefur á sænskar
myndir áður (og auðvitað líka þeir
sem þekkja tunguna). Myndin seg-
ir frá Frank sem er sléttur og
felldur hamingjusamlega giftur
ungur maður á yfirborðinu en und-
ir niðri blundar í honum óstjórnleg
þörf eftir villtara lífi og villtara
sambandi. Hann lætur til skara
skríða þegar hann kynnist ungri
frakkri listakonu sem hann svalar
hvötum sínum með. En góðu ráðin
gerast dýr þegar hann áttar sig á
því að hann er orðinn ástfanginn af
annarri konu en eiginkonunni.
Að sænskum sið þá eru vanda-
málin vissulega til staðar og hall-
ærislegheitin líka. En það sem ger-
ir myndina að svo kærkomnum
glaðningi er lævís, sprækur og
jafnvel á stundum kvikindislegur
húmorinn. Fín gamanmynd.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Laus í
rásinni