Morgunblaðið - 04.03.2001, Side 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NOKKUR erill var hjá slökkvi-
liðinu á Akureyri í fyrrinótt. Um
klukkan kortér yfir þrjú var til-
kynnt um eld við KA-heimilið
við Dalsbraut. Þar hafði verið
kveikt í blaðarusli utan við húsið
rétt hjá loftræstiviftu sem blés
reyk inn í loftræstikerfi hússins
og dældi honum inn í íþróttasal-
inn. Dyraverðir á staðnum voru
búnir að slökkva eldinn þegar
slökkvilið kom á vettvang.
Árshátíð Háskólans á Akur-
eyri stóð sem hæst þegar atvikið
átti sér stað og þurfti að rýma
húsið vegna reyksins. Óveruleg-
ar skemmdir urðu en loftræsta
þurfti salinn. Ekki er vitað
hverjir voru að verki.
Þá var tilkynnt um eld í stiga-
gangi í fjölbýlishúsi í Tjarnar-
lundi laust fyrir klukkan fjögur.
Þar hafði verið kveikt í gardínu
milli fyrstu og annarrar hæðar á
meðan íbúarnir sváfu sem fast-
ast. Síðar um nóttina var til-
kynnt um eld í sama stigagangi
og að þessu sinni hafði verið
kveikt í gardínu á efstu hæð.
Íkveikjur á
Akureyri
STUTT
Í FYRRINÓTT höfðu lög-
reglumenn afskipti af öku-
manni bifreiðar í Mosfellsbæ
sem hafði ekið á brott eftir að
hafa keyrt utan í annan bíl.
Tveir menn voru í bílnum og
sinnti ökumaðurinn ekki stöðv-
unarmerkjum.
Því hófst eftirför sem barst
upp í Mosfellsdal þar sem
mennirnir hlupu úr bílnum. Þar
komust þeir undan en voru
handteknir tveimur tímum síð-
ar. Ökumaðurinn er grunaður
um ölvun við akstur og fyrir að
hafa stungið af frá árekstri.
Eftirför
í Mosfellsbæ
LÖGREGLUNNI í Reykjavík
var tilkynnt um sjö líkamsárásir
í fyrrinótt en að sögn varðstjóra
voru þær allflestar minni háttar.
Þó var dyravörður í Keiluhöll-
inni í Öskjuhlíð sleginn með
þeim afleiðingum að hann rot-
aðist og var hann fluttur á slysa-
deild.
Dyravörður
rotaður
BIFREIÐ sem stóð utan við
heimahús í Ólafsvík var stolið
þaðan í fyrrinótt.
Þjófurinn var stöðvaður af
lögreglunni í Reykjavík þar
sem hann ók um á hinni stolnu
bifreið. Þjófurinn er grunaður
um ölvun við akstur.
Stal bíl
í Ólafsvík
FLUGI á eins hreyfils vél til
Addis Ababa í Eþíópíu hefur
verið frestað fram í næstu viku,
en ráðgert hafði verið að leggja
af stað laugardag fyrir viku.
Óhagstæð veðurskilyrði hafa
komið í veg fyrir brottför en
þegar flugmennirnir, Sigurður
Runólfsson og Hergill Sigurðs-
son, voru tilbúnir snemma á
þriðjudagsmorguninn og veð-
urskilyrði hagstæð kom smá-
vægileg bilun í ljós rétt áður en
farið var í loftið. Því var hætt
við flugið og er nú verið að bíða
eftir varahlutum og er áætlað
að leggja af stað eftir helgi.
Flugi til
Eþíópíu frestað
SAMFARA mokveiði á loðnumiðun-
um að undanförnu hefur þorskveiði
glæðst síðustu daga hjá smærri bát-
um við Faxaflóa og suður með
ströndinni, einkum hjá netabátum
en einnig hefur ágætlega veiðst hjá
mörgum línubátum. Fram að þeim
tíma var veiðin dræm og lítið að hafa
á þessum veiðislóðum.
Skipstjóri Hafnarbergs RE, Einar
Björn Tómasson, sem leggur upp í
Sandgerði, sagði við Morgunblaðið
að netaveiðin væri nokkuð góð. Regl-
an hefur verið sú að þorskurinn hef-
ur fylgt loðnutorfum og þegar þorsk-
urinn hefur etið sig yfirfullan leggst
hann á botninn og veiðist þá frekar í
net en á línu.
„Síðustu tveir dagar hafa verið
fínir. Við fiskuðum vel á fimmtudag,
náðum 8 tonnum á Faxaflóanum og
enn betur í dag eða á milli 9–10 tonn.
Þetta hefur verið ágætt og verður
áreiðanlega gott áfram. Það þýðir
alla vega ekkert annað en að vera
bjartsýnn. Loðnan er að fara suður
með landinu og maður fylgir bara
loðnunni,“ sagði Einar Björn að
kvöldi föstudags, mitt á milli þess
sem hann gaf skipanir til sinna
manna úr brúnni um hvar leggja ætti
netin. Sex manns eru í áhöfn Hafn-
arbergsins.
Aðspurður hvernig vertíðin hefur
verið sagði Einar Björn veiðina ekki
hafa verið svona góða í langan tíma.
Ekkert hafi veiðst af þorski í haust
og lítið sem ekkert síðan, eða þar til
nú. Hann sagði þorskinn bara væn-
an, þeir á Hafnarberginu hefðu not-
að 8 tommu netmöskva en væru nú
að breyta yfir í 9 tommuna.
„Annars er loðnan óútreiknanleg
núna þegar hún kemur að vestan.
Það er mjög óvanalegt. Við höfum
alltaf beðið eftir loðnunni fyrir sunn-
an land, þeirri sem kemur austan
frá, en lítið hefur fundist fyrir aust-
an. Þetta kemur þveröfugt á mann
og maður veit ekkert hvernig maður
á að snúa sér í loðnunni. Þetta var
síðast svona fyrir mína tíð. Ég held
að þýði ekki einu sinni að spyrja
elstu menn, þeir eru áreiðanlega
búnir að gleyma hvernig þetta var.
Ég hef verið í sambandi við loðnu-
skipstjóra og þeir segja að hún fari
suður fyrir Reykjanesið. Svo er bara
spurning hvort hún geri það og við
munum fylgja henni eitthvað eftir,“
sagði Einar Björn.
Starfsmenn hafnarvigtarinnar í
Sandgerði hafa haft í nógu að snúast
síðustu daga og ekki bara vegna
þorskveiða smábátanna. Nóg hefur
verið að gera í loðnunni sem og við
löndun á mjöli og dýrafóðri.
Allt á uppleið og ekki seinna
vænna vegna verkfalls
Guðmundur Einarsson, starfs-
maður á hafnarvigtinni, sagði þorsk-
veiðina „ágætis kropp og með skásta
móti“ þegar slegið var á þráðinn
þangað og aflað frétta. Sem dæmi
um aflabrögðin sagði hann litla neta-
báta hafa landað allt upp undir 9
tonnum af þorski eftir lögn yfir eina
nótt. Þá sagði hann trillurnar hafa
veitt ágætlega á línu. Þær hafi náð
3–4 tonnum eftir daginn, aðallega af
þorski og ýsu. Guðmundur sagði
veiðisvæði þeirra netabáta sem
leggja upp í Sandgerði einkum hafa
verið suður af Stafnnesi og síðan eft-
ir strandlengjunni.
„Þetta er allt á uppleið, enda ekki
seinna vænna þar sem verkfall er að
skella á. Vegna loðnunnar er landað
hér allan sólarhringinn og síðan í síð-
ustu viku höfum við staðið hér sólar-
hringsvaktir. Við höfum í raun verið
að brjóta allar Evrópusamþykktir
því helgarvaktin hjá okkur stendur
frá klukkan 5 síðdegis á föstudegi og
fram til klukkan átta á mánudags-
morgun. Við höfum skipt því tveir á
milli okkar,“ sagði Guðmundur.
Samkvæmt upplýsingum frá hafn-
arvigtinni í Grindavík hefur þorsk-
veiðin hjá bátunum þaðan ekki geng-
ið jafn-vel og í Sandgerði, sér í lagi
hjá netabátunum. Betur hefur gefist
á línunni hjá þeim 15–20 bátum sem
leggja upp í Grindavík. Í vikunni
bárust um 450 tonn af þorski að
landi, sem er undir meðallagi.
Veiðin að glæðast í Breiðafirði
Frá Vestmannaeyjum fengust
þær fréttir að ágæt þorskveiði væri
hjá netabátunum, sem einkum hafa
verið að veiðum austur í Kantinum
og úti fyrir Vík í Mýrdal. Ekki hefur
viðrað til línuveiða hjá trillukörlun-
um í Eyjum.
„Þessir stærri netabátar eru að
koma með 40–50 tonn af ágætum
þorski. Fram til þessa er þetta ósköp
dauft en hefur verið að taka við sér
þessa síðustu daga. Nú er sá tími að
fara í hönd að þorskurinn leitar upp
á grunnið. Síðan byggist þetta ekki
eingöngu á því hvað veiðist mikið
heldur hvað menn mega veiða mik-
ið,“ sagði Torfi Haraldsson, starfs-
maður hafnarvigtarinnar í Eyjum.
Kristján Helgason, hafnarvörður í
Ólafsvík, sagði við Morgunblaðið að
þorskveiðin væri almennt ekkert til
að hrópa húrra fyrir í Breiðafirðin-
um. Og þótt vel veiddist þá væri
kvótinn ekki mikill. Hann sagði að
veiðin væri samt að glæðast og til
marks um það tók Kristján á móti
dragnótarbátum á föstudagskvöld
með allt að 14 tonn eftir daginn og
litlir netabátar voru þá að fá um 6–7
tonn.
Þorskveiðar úti fyrir suðvesturlandi hafa tekið kipp síðustu daga
„Fylgir bara loðnunni"
Morgunblaðið/Alfons
Gert að um borð í Pétri Jacobi frá Ólafsvík, en aflabrögð í net hafa glæðst að undanförnu, enda er loðnan geng-
in á svæðið. Það eru þeir Ástgeir og Daniel sem gera að aflanum.
LANDSSÖFNUN Krabbameins-
félags Íslands fór vel af stað í gær-
morgun að sögn Hildar Bjarkar
Hilmarsdóttur söfnunarstjóra. Þús-
undir sjálfboðaliða gengu í hús um
allt land í gær og að sögn Hildar
voru þeir á öllum aldri, allt frá smá-
börnum upp í fólk á níræðisaldri.
Klukkan tíu í gærmorgun hleypti
forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, af stokkunum söfnuninni
í safnaðarheimili Neskirkju en hún
var ein fjölmargra söfnunarstöðva
á landinu. Með honum á myndinni
eru Sigurður Björnsson, formaður
Krabbameinsfélags Íslands, og
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri
félagsins.
Landssöfnun Krabbameinsfélagsins
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
Þúsundir sjálfboðaliða um land allt
HAFNFIRSKI frystitogarinn Ven-
us kom til hafnar í Tromsø klukkan
átta í morgun en norska strandgæsl-
an tók hann fyrir að hafa smáfiska-
skilju rangt upp setta við veiðarnar.
Að sögn Einars Enresen hjá norsku
strandgæslunni var skipstjórinn,
Guðmundur Jónsson, í yfirheyrslu
hjá lögreglunni í Tromsø í gær-
morgun að viðstöddum lögfræðingi.
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals
hf., sem gerir skipið út, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að um-
rædd smáfiskaskilja hafi verið rétt
sett upp þegar lagt var úr höfn hér
heima en líklega hafi hún aflagast á
leiðinni út. „Öll svona tæki geta af-
lagast á svipaðan hátt og það getur
sprungið á bílnum hjá þér án þess
þó að það sé meiningin,“ sagði Krist-
ján.
Að hans sögn var aðeins stór fisk-
ur í aflanum. „Hefði trollið verið
fullt af smáfiski hefði þetta sjálfsagt
verið verra.“ Kristján sagði óljóst
hvort hægt yrði að ljúka málinu í
gær eða hvort skipið yrði að vera í
Tromsø fram á mánudag.
Telja
skilju hafa
aflagast á
leiðinni