Morgunblaðið - 04.03.2001, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.03.2001, Blaðsíða 39
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 39 irnir hétu og til hvers þeir voru notaðir. Það var eins og líf hefði kviknað í safninu því vart var hægt að fá betri lýsingu á munum og vinnubrögðum til sjós og lands. Nokkrum árum seinna fórum við í ferðalag um Vestfirði á heimaslóð- ir þínar við Arnarfjörð og sagðir þú okkur frá staðháttum og hvers vegna fjöllin hétu þeim nöfnum sem þau heita. Í þeirri sömu ferð sagðir þú okkur frá helstu kenni- leitum Gísla sögu Súrssonar og rifjaðir upp atburði sögunnar. Eft- ir þetta finnst okkur sem Vestfirð- irnir hafi fengið aðra og ríkulegri merkingu en áður. Þó við bræðurnir litum stundum á þig sem hálfgerðan fornmann varstu alltaf með á nótunum um málefni líðandi stundar. Einkum voru þér hugleikin kvótamál, vega- framkvæmdir og landsbyggðar- mál. Til fyrirmyndar var skýr- mælgi þín og orðaval enda þér í mun að enginn misskildi hvað þú værir að segja. Þótt þú berðist við ólæknanleg- an sjúkdóm léstu aldrei deigan síga og alveg fram á síðasta dag fylgdist þú með fréttum og atburð- um og lást ekki á þeim skoðunum þínum sem þér var í mun að við fengjum að heyra. Ofar öllu í þín- um huga var réttlætið, sanngirnin og sannleikurinn. Elsku afi, það er erfitt að kveðja þig núna þótt við höfum lengi vitað hvert stefndi. En minningarnar um þig munu lifa með okkur alla tíð. Megi Guð hugga ömmu í sorg hennar og varðveita hana. Hvíl í friði. Eyþór og Ívar Kristleifssynir. Ég man að það var hann sem kenndi mér, kornungum, að lesa svo að frá fyrsta skóladegi var ég fluglæs. Eftir skólann fór ég oft með strætó í vinnuna hans afa og vann þar heimavinnuna á meðan afi kenndi vistmönnunum á Kópa- vogshæli smíðar. Við tveir smíð- uðum líka saman bát úr einum við- arkubb og fullt af nöglum allan hringinn með band vafið á milli nagla fyrir rekkverk. Þar að auki var báturinn með ógurlega háu mastri gerðu úr priki af málning- arpensli. Ég fékk hjá afa auka- kennslu í öllum greinum hvort sem um var að ræða íslenskar mál- fræði- eða stafsetningarreglur. Við fórum bara rólega yfir og vönd- uðum okkur við hvert verk fyrir sig. Einu sinni þurfti ég að mæta í dönskupróf með danska orðabók og fékk lánaða orðabókina hans afa. Sú bók var frekar gömul og skrifuð með gömlum dönskum stafsetningarreglum sem voru all- ar skrifaðar samviskusamlega í prófinu. Kennarinn minn var í mestu vandræðum með að fara yf- ir prófið því það var allt skrifað á einskonar forn-dönsku. Hann afi kenndi mér að fara vel með peninga og að safna fyrir hlutunum. Þannig fékk ég vasa- pening á hverjum mánudegi, 50 kr. og síðar 100 kr., og var ég vel sett- ur með þær uns ég byrjaði 13 ára að vinna mér inn pening í helg- arvinnu. Hann afi átti sögur sem gaman var að hlusta á og hann gat sagt mér frá nánast hvaða Íslend- ingi sem var og gat oftast rakið ut- anbókar hvernig ég var skyldur þeim sem um var rætt, ef skyld- leika var að finna á annað borð. Skipti litlu hvort sá lifði á 20. öld eða á 10. öld. Afi kunni fullt af gömlum og sjaldgæfum orðum og spurði mig alltaf í fyrstu hvort ég þekkti merkingu orðsins en ég stóð næstum alltaf á gati. Hins- vegar hafði afi skýringuna á reiðum höndum og fylgdi hún allt- af í kjölfarið. Og þessi kveðjuorð sem ég hef ritað nota ég til að kveðja hann elsku besta afa minn hinsta sinni. Unnar Már Sigurbjörnsson. Ég elska þig af því sem þú gerir og þann sem þú ert og ég elska þig ekki bara af því að þú ert afi minn, því allir elska afa sinn. Ég elska þig af öllu hjarta og þú ert besti afi í heimi. Ef ég hugsa um þig fæ ég störu. Og það að ég geti ekki faðmað þig nema í draumi fær mig til að fella tár. Úr stjörnunum á kvöldin sé ég minningar um þig. Elsku besti afi, ég elska þig af öllu hjarta. Karen Björnsdóttir. Afi minn, Bjarni Ólafsson, hefur nú gengið æviveg sinn allan og hafið það ferðalag sem okkar bíður allra. Þegar ég lít yfir farinn veg og rifja upp þær minningar um hann sem mér þykja kærastar þá stendur framar öllum minningin um það að hann kenndi mér að lesa. Vil ég hér þakka honum fyrir að hafa eytt tíma sínum í að kenna lítilli stúlku, sem oft var með at- hyglina annars staðar en í kverinu. Lestrarnámið gekk hratt og vel fyrir sig og ég varð fljótt læs. Get ég að öllu leyti þakkað þennan námsárangur minn þolinmæði afa, sem aldrei æsti sig þótt ég legði mig ekki alltaf vel fram eða vildi gera eitthvað annað en að skoða stafi í bók. Eftir að ég útskrifaðist úr ,,afaskóla“ máttu leikföngin mín þola að vera afskipt því nú beind- ist nánast öll athygli mín að lestri bóka og hef ég haft mikla ánægju af bókalestri alla tíð síðan. Það er því svo að með lestrarkennslu sinni hefur afi gefið mér eina af þeim dýrmætustu gjöfum sem mér hafa verið gefnar. Afi hafði reynd- ar sjálfur mikla ánægju af lestri bóka og voru fornsögurnar honum sérlega kærar sem og allt sem varðaði sögu íslensku þjóðarinnar og menningu hennar. Ég trúi því að nú hafir þú, afi minn, fengið aft- ur þann mátt sem þú hafðir misst og getir nú haldið áfram þar sem þú slepptir við að kynna þér sögu Íslands og menningu og hefur örugglega frá mörgu að segja þeg- ar við hittumst aftur. Þín dótturdóttir, Margrét. „Að heilsast og kveðjast það er lífsins saga“. Í dag minnumst við Bjarna bekkjarbróður okkar úr Kennara- skóla Íslands. Vorið 1948 var eft- irminnileg kveðjustund í Kennara- skólanum. Freysteinn Gunnarsson opnaði okkur sýn til framtíðar í allri sinni hógværð og háttvísi. Hann lagði fram skýringu og upp- runa á orðinu embættismaður. Við fundum að þessi titill gæti orðið okkar stimpill eða vörumerki í líf- inu, ásamt þeirri ábyrgð sem því myndi fylgja. Freysteinn sagði að sami stofn væri í orðinu ambátt. Ekki reisti hann álit okkar á kenn- araprófinu með þessum hætti. Hinn djúpvirti leiðtogi sagði að ambáttin hefði á sínum tíma haft sama hlutverk og þjónninn. Hann hvatti okkur til að miða öll störf sem þjónar en ekki herrar. Far- sæld þjónsins væri varanleg, en herradómurinn fallvaltur og hefði síður hugsjón uppalandans að leið- arljósi. Þessi skýring Freysteins mun hafa sest að hjá okkur. Þar veit ég að Bjarni mun hafa tileinkað sér það ekki síður en aðrir. Lífshlaup bernsku hans og æsku hefur lotið þessu lögmáli. Í frumbernsku slitu foreldrar hans samvistir. Hann dvaldist hjá móður sinni fram að fermingu, en þá lést hún. Eftir það var hann til heimilis hjá fóstur- systur móður sinnar. Til náms stefndi hugur hans. Á Núpi var hann tvo vetur og bjó sig síðan undir próf í 2. bekk Kennaraskól- ans 1945. Í Kennaraskólanum vor- um við sessunautar einn veturinn. Þar fann ég hvern mann Bjarni hafði að geyma. Hann var dulur og hlédrægur, en vann samviskusam- lega að náminu. Þrautseigur var hann. Þar átti hann ekki langt að sækja. Faðir hans missti vinstri hönd í sprengikúluslysi. Með handlagni smíðaði hann sér „hjálp- arhönd“ sem hann batt við vinstri handlegg og vann þannig að smíð- um eins og tvíhentur væri. Kennsl- an varð ekki samfelld hjá Bjarna, en handavinnukennslan varð sú grein sem hann stundaði mest. Á þessari síðari kveðjustund okkar bekkjarsystkina fylgir sökn- uður til góðs félaga, en aðstand- endum færum við innilega samúð. F.h. 4. bekkjar Kennarask. Ís- lands 1948. Hjörtur Þórarinsson.                                         !! " #   % !! " "   & ' ' (  ()                                                         !  "  " # $%             !     # $% &     !   #  % $!     # ! ' (  $%   $)  *+$    , *  , #  ,  # -! !    + #$   +                                                             !"  # $ %&  '      # !   ""##   $% & % '%  %% (  ""##  )% ( ""   %*+%'% ,-"" (  ""#'% &- "*  $." #  $%%    ""#'%  %%!   ""*+%#  /%0$  ""#'% 1 "$ " #   2  ,-" #   %%  &+%'% ' *+%                                            !  " !  #         !"#  $%&  '!"# (" )""*  !"  '!""* +    #"# %&'  '!"#  #  " (""*  '!"  '!""* , - ."% "#    '!"#  / 0  ""* * $  $& 1                                              ! " #$   %&  $  " #$  '#  (       ) *  !"#$ " %#&! '$()$#$ !( %%* "  " %#&! '$()$#$  +%! %%*  " +,% " %%* *                                                         !" #     % "          !    # $       %#        &  # % '     (  )  $  #     MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Birting afmælis- og minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.