Morgunblaðið - 04.03.2001, Page 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FISKBÚÐIN VÖR
Höfðabakka 1 - sími 587 5070
Farðu varlega!
Salmonella
KúariÐa
Gin- og
klaufaveiki
Kamfilobaktus
Heilsársbústaður
Sérlega vandaður 60 fm
heilsársbústaður til sölu.
Til sýnis í Helluhrauni 22,
Hafnarfirði.
Kanada Hús ehf., s. 555 7177 www.kanadahus.is
ÞAÐ ER enginn barnaleikur að leika
fyrir börn. Það er raun sem nemend-
ur leiklistardeildar Listaháskóla Ís-
lands fá að kynnast á þriðja ári en þar
er uppsetning á leikriti ætlað börnum
eða unglingum ávallt gert að loka-
verkefni ársins.
Í ár setja nemendur skólans hvorki
meira né minna en Þúsund og eina
nótt á svið.
Barnaleikrit fyrir
alla aldurshópa
„Við erum að frumsýna barnaleik-
rit fyrir alla aldurshópa,“ útskýrir
Arnbjörg Hlíf Valsdóttir leiklistar-
nemi. „Við viljum segja að það sé fyrir
fimm ára og eldri. Þetta er leikgerð
eftir Dominic Cook sem var sett upp í
London á síðasta ári við góðar und-
irtektir. Þetta eru nokkrar sögur úr
1001 nótt. Þetta eru reyndar ekki þær
allra frægustu. Það er ein aðalsaga af
konungi sem er svikinn af konu sinni.
Eftir það vill hann aðeins giftast til
einnar nætur og eftir brúðkaupsnótt-
ina eru konurnar teknar af lífi. Svo
kemur að því að hann giftist konu að
nafni Sharazad, hún fær alltaf að lifa
lengur og lengur þar sem hún er alltaf
að segja honum sögur. Hún endar
með því að segja honum sögur í 1001
nótt eða þar til að hann er farinn að
elska hana.“
Ævintýrin sem Sharazad spann til
þess að þyrma lífi sínu eru sígild um
allan heim og nægir þar að nefna æv-
intýri Alladins og Simbaðs sæfara.
Báðar þessar söguhetjur eru reyndar
fjarri góðu gamni í leikritinu.
„Þetta eru ekki alveg þekktustu
sögurnar kannski en sumar eru þó
nokkuð dramatískar og alltaf stutt í
húmorinn. Aðrar eru alveg spreng-
hlægilegar. Við fáum að sjá ævintýrið
af Ali Baba og þjófunum 40, litla betl-
aranum, Abu Hassan og síðan söguna
af konunni sem vildi ekki borða.“
Listin að leika fyrir börn
„Maður þarf náttúrulega að leika
allt miklu stærra, einlægara og skýr-
ara fyrir börnin. Þetta er ofsalega góð
æfing. Þau eru mjög þakklátir áhorf-
endur og skemmtilegir en maður þarf
rosalega mikið að hrífa þau með. Þau
eru fljót að missa einbeitinguna ef það
er eitthvað sem ekki hrífur þau.“
Hver sagði að það væri sældarlíf að
vera leikari?
„Við leikum flest mörg hlutverk.
Allt frá prinsessum og kalífum niður í
þjófa og hunda. Það er mjög mikið að
gerast baksviðs, miklar búningaskipt-
ingar. Þetta er mikil svita- og hreyf-
isýning. Það er eins og maður sé að
taka þrjá góða leikfimitíma að leika í
þessari sýningu. Það skiptir máli að
hafa einbeitinguna í lagi.“
Nemendahópurinn sýnir skólahóp-
um verkið í húsnæði Listaháskólans
að Sölvhólsgötu 13. Á virkum dögum
kl. 10 og 14. Um helgar er leikritið svo
sýnt áhugasömum kl. 14 og 17, þeim
er bent á að hafa samband við leiklist-
ardeildina til þess að panta miða.
Leiklistarnemendurnir eru auk
Arnbjargar þau Brynja Valdís Gísla-
dóttir, Gísli Pétur Hinriksson, Ívar
Örn Sverrisson, Ólafur Egill Egils-
son, Tinna Hrafnsdóttir, Unnur Ösp
Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna Páls-
dóttir. Leikstjóri hópsins er María
Reyndal.
En skyldi vera kominn einhver
skrekkur í hópinn fyrir frumsýn-
inguna?
„Bara góð fiðrildi í magann, eigum
við ekki bara að segja það,“ segir Arn-
björg að lokum.
3. bekkur leiklistardeildar Listaháskóla Íslands frumsýnir 1001 nótt
Morgunblaðið/Golli
„Eigi skal höggva:“ Ath. atburð-
urinn er sviðsettur.
Spunnið til að halda lífi