Morgunblaðið - 04.03.2001, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 04.03.2001, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 41 Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Blómaskreytingar við öll tilefni Opið til kl. 19 öll kvöld ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 www.utfararstofa.is ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga er andlát verður, í samráði við aðstandendur Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Kistur Krossar Duftker Gestabók Legsteinar Sálmaskrá Blóm Fáni Erfidrykkja Tilk. í fjölmiðla Prestur Kirkja Kistulagning Tónlistarfólk Val á sálmum Legstaður Flutn. á kistu milli landa Sjáum einnig um útfararþjónustu á allri landsbyggðinni. Áratuga reynsla. ✝ Petrína SigrúnÁgústsdóttir fæddist í Reykjavík 1. október 1951. Hún lést í Banda- ríkjunum á Calvary Hospital 12. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ágúst Jóhann Alexandersson, f. 28.6. 1924 í Kjós í Árneshreppi, d. 17. 6. 1970, og kona hans Kristín Guð- mundsdóttir, f. 29.3. 1926 á Seljum á Snæfellsnesi , d. 16.12. 1989. Systur Petrínu eru: Rúndís, f. 25.8. 1947, d. 5.5. 1968; Birna Guðmunda, f. 20.1. 1949; Sveins- ína, f. 13.5. 1957; og Dröfn, f. 5.10. 1960. Petrína ólst upp í Kópavog- inum, en giftist 1968 og fluttist til Bandaríkjanna, þar sem hún bjó til ævi- loka. Börn hennar eru öll búsett í Banda- ríkjunum en þau eru: Hannah Rúnd- ís, Leonard Albert, Kristín Theresa, Joseph Ágúst, Andrés Christian og Patric Jóhann. Útför Petrínu fór fram á Long Island hinn 20. febrúar, en minningarathöfn verður haldin í Hjallakirkju í Kópavogi sunnudaginn 4. mars og hefst klukkan 16. Elsku Peta, nú er lífsgöngu þinni hér á jörð lokið. Við vitum aldrei hvenær kallið kemur, heldur bara hlýðum því. Þú barðist eins og sönn hetja við þenn- an illvíga sjúkdóm sem fellir allt of marga. Við söknum þín sárt, en minnumst þín með gleði í hjörtum okkar. Ég krýp og faðma fótskör þína, frelsari minn, á bænastund. Ég legg sem barnið bresti mína, bróðir, í þína líknarmund. Ég hafna auðs og hefðarvöldum, hyl mig í þínum kærleiksöldum. (Guðmundur Geirdal) Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guð blessi þig. Systur, mágar og frændsystkini. Dauði kærrar frænku á besta aldri er dapurleg staðreynd. Peta flutti til Bandaríkjanna fyrir meira en 30 árum og hitti ég hana aldrei eftir það, en fylgdist eins vel og ég gat með lífi hennar þar. Það var oft erfitt, en fyrir fáum árum virðist loksins hilla undir betri tíma. Því var það reiðarslag þegar hún greindist fyrir skömmu með illvíg- an sjúkdóm, sem ekki sýndi mis- kunn. Peta fæddist á afmælisdegi lang- ömmu sinnar og var því skírð eftir henni. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vera viðstödd fæðingu þessarar frænku minnar. Faðir hennar, bróðir minn, fór að sækja ljósmóð- urina og skildi mig eftir hjá móð- urinni. Meðan hann var í burtu fæddist Peta. Það var ævintýri fyr- ir 15 ára stúlku að verða vitni að því kraftaverki sem fæðing barns er. Ég mun aldrei gleyma því. Eftir að Peta veiktist veittu syst- ur hennar, Birna, Sísí og Dröfn, henni allan þann stuðning sem hægt er að veita úr fjarlægðinni. Fyrir umhyggju sína vil ég þakka þeim sérstaklega. Blessuð veri minning Petrínu Sigrúnar Ágústsdóttur. Guð al- máttugur styrki börnin hennar, systurnar og fjölskyldur þeirra. Alda Sigrún Alexandersdóttir. PETRÍNA SIGRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR ✝ Hallgrímur Elís-son fæddist í Hallgeirseyjarhjá- leigu í Austur-Land- eyjum 7. október 1952. Hann lést 23. júlí 2000. Foreldrar hans voru Pálína Guðmundsdóttir frá Sigluvík í Vestur- Landeyjum, f. 10.3. 1911, d. 27.6. 1982, og eginmaður henn- ar Elís Hallgrímsson, f. 14.9. 1907, að Hrafnkelsstöðum í Helgafellssveit á Snæfellsnesi, d. 10.10. 1991. Systkini Hallgríms eru 1) Hall- fríður Elísdóttir (Hædý), f. 18.10. 1937. Börn hennar eru Róbert, Sonja, Stephanie og Erik. 2) Guðjón Elís- son, f. 6.10. 1944, d. 18.2. 1996. Börn hans eru Elín Gróa, Gísli Þór og Þorvald- ur Ingi. 3) Sigríður Elísdóttir, f. 2.3. 1947. Hennar börn eru Halldór Páll og Elís Már. 4) Þorvald- ur Elísson, f. 29.6. 1948, d. 5.2. 1989. Börn hans eru Smári Björn, Pálmi Þór og fósturbörn Júlíana og Hjörleifur. Hallgrímur starfaði lengst af sem sjálfstæður atvinnurekandi. Útför Hallgríms fór fram frá Háteigskirkju 4. ágúst 2000. Nú læt ég Guð stýra minni hendi. Það er elsta systkinið sem ritar þessi sorgarorð (Hædý systir). Hallgrímur var yngstur. Minn ástkæri bróðir og heillavinur. Það falla titrandi tár á blað. Þetta er svo sorglegt, því að hann elskaði aðra meira en sjálfan sig. Minn ástkæri bróðir fékk mikið í vöggugjöf, hann var fjarskalega mikill mannvinur. Hann var mjög hjálpsamur við náungann og alltaf var hann harð- vinnandi og heiðarlegur í gjörðum sínum. Ég elskaði bróður minn af hjarta og sál. Svo elskaði Guð okkur fyrst, áður en við elskuðum hann. Seinast þegar ég sá bróður minn vorum við mæðgurnar á ferð í des- ember 1999. Hann var vanur að sækja mig á flugstöðina og hann vildi allt fyrir okkur gera. Það var svo mikill fögnuður og yndisleg vin- átta. Við vorum í góðu yfirlæti hjá honum og skreyttum heimili hans jólaljósum. Hann sendi okkur að- ventuljós til Kaliforníu, og allt er þetta orðið svo dýrmætt og minn- ingarnar ógleymanlegar. Minn ástkæri bróðir hafði mikla hæfileika, hann spilaði svo fallega á nikkuna, svo samdi hann lag fyrir mig. En sá fögnuður. Okkar vinátta var svo sterk og blessuð, og alltaf var farið upp í sveitir, dali og fjöll. Bróðir minn vissi hvað ég fagnaði fegurð landsins. Já, hann var góður bróðir. O, ég sakna hans svo mikið. Við skulum elska náungann meira en okkur sjálf. Það hvílir mikil ábyrgð á lögmönnum landsins að þeim verði gefin viska og speki í réttarsalnum. Því mikil eru lög Guðs. Að lokum þakka ég öllum sem studdu okkur í okkar miklu erfið- leikum. Og ástarkveðjur nær og fjær. Svo þakka ég okkar himneska föður að hafa gefið mér svona ást- kæran bróður. Þín ástkæra systir og frænka, Hædý Elísdóttir og Steph- anie Grimsby og fjölskylda, Kaliforníu. HALLGRÍMUR ELÍSSON gert, hversu mjög sem við vildum. Þóroddur var svo mikill sólar- geisli. Hann lýsti upp myrkrið sem hvolfdist yfir fjölskylduna þegar Freysteinn bróðir hans kvaddi þetta líf fyrir ári. Hann gat alltaf kallað fram bros og hlaut óendanlega ást og umhyggju foreldra sinna sem aldrei þraut þótt myrkrið væri þrúgandi. Okkur fullorðna fólkinu finnst erfitt að skilja hvers vegna lítil börn eru hrifin úr faðmi foreldra sinna. Enn erfiðara er fyrir börnin að skilja það. Þeim finnst heimurinn grimmur og vondur að svona geti gerst. Hvers vegna eru til svo vondir sjúk- dómar að þeir eira ekki einu sinni litlum börnum? Hvers vegna fá ekki allir að lifa og vera hamingjusamir? Þegar Freysteinn stóribróðir var dáinn fannst stelpunum okkar mikið vanta: „Er Þóroddur ekki lengur litlibróðir?“ Jú, það fór ekki á milli mála að Þóroddur væri enn litlibróð- ir og að Freysteinn yrði áfram stóri- bróðir hans. Þetta var þó ekki alveg nóg. Loks fundu þær lausnina sjálf- ar: „Hann Freysteinn er orðinn englabróðir Þórodds.“ Þeim er það dálítil huggun að nú eru bræðurnir saman. Þóroddur er líka orðinn englabróðir og þeir fá að kynnast og leika sér saman. Þær eru líka sann- færðar um að það sé gott að vera engill í himnaríki því þar séu allir góðir og heimurinn fallegur og laus við mengun, sjúkdóma og sorgir. Þóroddur bar nafn landnáms- manns eins og Freysteinn bróðir hans. Þeir eru líka landnámsmenn og nema fjarlæg lönd í nýjum heimi. Kæru vinir okkar, Hanna og Har- aldur. Við eigum þá ósk heitasta að þið finnið aftur ljós í myrkrinu sem umlykur ykkur. Við sendum ykkur, foreldrum ykkar og systkinum ein- lægar samúðarkveðjur. Victor, Anna, Steinunn og Inga Rut. Við erum þakklát fyrir þann stutta tíma sem við þekktum Þórodd Haraldsson. Þessi mikli fjörkálfur varð fjölskylduvinur og leikfélagi Maríu dóttur okkar þegar hann og foreldrar hans fluttu hingað til Boston frá Íþöku. Þrátt fyrir stutta viðkynningu tengdumst við Haraldi, Hönnu og Þóroddi vináttuböndum. Við eigum margar góðar minningar um ánægjustundir með Þóroddi og for- eldrum hans í Boston, og við munum sakna þessara samverustunda. Það æðruleysi og sá kjarkur sem þau sýndu þrátt fyrir áfallið sem þau urðu fyrir, fyrir aðeins rúmu ári er eldri sonur þeirra lést, er aðdáun- arverður og verður okkur alltaf minnisstæður. Við lærðum mikið af samvistum okkar við þau. Þóroddur var mjög skemmtilegur drengur, brosmildur og mannblend- inn og varð María strax yfir sig hrif- in af honum og fylltist alltaf kæti þegar hún heyrði að til stæði að hitta Þórodd. Það var okkur mikið áfall að heyra að Þóroddur hefði dá- ið, skömmu eftir að hann og for- eldrar hans fluttu til Íslands eftir áralanga dvöl í Bandaríkjunum. Á herðar foreldra Þórodds hefur verið lögð byrði sem fæst okkar geta gert sér í hugarlund. Við von- um að einhvers staðar leynist sá styrkur sem getur hjálpað þeim að glíma við þennan mikla missi. Við sendum Haraldi, Hönnu og öðrum ástvinum Þórodds innilegar samúð- arkveðjur. Árni Kristjánsson, Anna María Hauksdóttir, María Kristín Árnadóttir. Svo leggur þú á höfin blá og breið á burt frá mér og óska- löndum þínum, og stjarna hver, sem lýsir þína leið, er lítill gneisti, er hrökk af strengjum mínum. Þú skilur eftir minningar hjá mér, um marga gleðistund frá liðnum árum, og alltaf mun ég fagna og þjást með þér, og þú skalt vera minn í söng og tárum. Eitt orð, eitt ljóð, eitt kvein frá kvaldri sál er kveðja mín. Ég veit þú fyrirgefur. En seinna gef ég minningunum mál, á meðan allt á himni og jörðu sefur. Þá flý ég yfir djúpin draumablá, í dimmum skógum sál mín spor þín rekur. Þú gafst mér alla gleði sem ég á. Þú gafst mér sorg sem enginn frá mér tekur. VILHJÁLMUR EINARSSON ✝ Vilhjálmur Ein-arsson fæddist á Selfossi 4. mars 1980. Hann lést 30. júlí 2000 og fór útför hans fram frá Sel- fosskirkju 4. ágúst. Svo kveð ég þig. En er þú minnist mín, þá mundu að ég þakka liðna daga. Við framtíð mína fléttast örlög þín. Að fótum þínum krýpur öll mín saga. Og leggðu svo á höfin blá og breið. Þótt blási kalt og dagar verði að árum þá veit ég, að þú villist rétta leið og verður minn – í bæn og söng og tárum. (Davíð Stef.) Með þessu ljóði eftir Davíð Stef- ánsson langar mig til að minnast sonar míns, Vilhjálms Einarssonar, sem í dag hefði orðið 21 árs. En við fögnum ekki, heldur syrgjum. Þetta ljóð er kveðja mín til þín, elsku Vil- hjálmur minn, við sjáumst svo í ann- arri veröld. Guð geymi þig, þín Mamma. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi að- eins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálf- um. Formáli minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.