Morgunblaðið - 04.03.2001, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
KÆRA foreldri. Ég á tvær stelp-
ur. Eina sem er 3 ára og eina sem
er að verða 3 mánaða.
Eftir svona 10–13 ár verða þær
komnar á þennan krítíska aldur
þegar boð og bönn okkar foreldr-
anna verða farin að fara verulega í
taugarnar á þeim og þau fara að
sjá í gegnum okkur. Við erum ekki
eins fullkomin og þau héldu
kannski að við værum. En þó að
stelpurnar mínar séu enn ungar þá
líður tíminn hratt og innan
skamms verða þær unglingar. Ný-
lega sá ég nokkra slíka standa fyr-
ir utan sjoppu reykjandi sígarett-
ur. Nota bene allir unglingarnir
voru að reykja, enginn þorði að
vera öðruvísi en hin. Það minnti
mig á hve rosalega áhrifagjarn ég
var þegar ég var unglingur og er
kannski enn. Þessir unglingar voru
allir vel undir 16 ára aldri. Ekki
svo óalgeng sjón í dag og við erum
í rauninni orðin nokkuð ónæm fyr-
ir því að sjá krakka langt undir
lögaldri reykja. Þetta er jú hluti af
okkar menningu og hefur verið
það um nokkurt skeið.
Ég fór svo að hugsa: Hvað er
það í raun og veru sem að ég er að
horfa á? Jú í rauninni er ég að
horfa á börnin okkar fyrir utan
sjoppuna okkar að neyta ávana-
bindandi eiturlyfja sem þau
keyptu í sjoppunni eins og hvert
annað nammi. Það er margstaðfest
í margs konar rannsóknum að
unglingar sem reykja eru mun lík-
legri til að fara að drekka áfengi
og neyta eiturlyfja. Hver eru skila-
boðin sem við erum að senda börn-
unum okkar með því að selja tóbak
við hliðina á súkkulaðinu og
brjóstsykrinum. Jú þetta er svona
nammi sem þú kaupir í sjoppunni
sem er gott að nota til að ögra for-
eldrunum og með því að sjúga að
þér eitrið finnst þú vera orðinn
fullorðinn og töff á augabragði.
Svo kom annað sjokk sem olli
því að ég varð meira glaðvakandi
en ég hef verið í mörg ár. Ég
komst að því að sá sem ber
ábyrgðina á því að ástandið er eins
og það er, er meðal annarra ég.
Ég og þú. Það er ég sem skapa þá
menningu sem börnin mín og
barnabörnin lifa og hrærast í. Ég
ákvað að kanna aðeins stöðu mála
og sendi einni góðri alþingiskonu
tölvupóst og spurði að því hvers
vegna ekkert væri gert í því að
koma tóbakinu út úr sjoppunum.
Hún sagðist hafa komið með til-
lögu fyrir nokkru um það að aðilar
sem selja tóbak þyrftu til þess
leyfi sem væri háð því að ungling-
um væri ekki selt tóbak. Ef þessir
aðilar brytu af sér myndu þeir
missa leyfið. Það varð víst allt vit-
laust. Forsvarsmenn verslunar og
þjónustu töldu það víst að sjoppur
og fleiri staðir færu á hausinn í
kippum og fleiri hörmungar
myndu ríða yfir þjóðfélagið ef að
þyrfti að fá leyfi til að selja tóbak.
Sú staðreynd að það látist nokk-
ur hundruð manns á ári af völdum
reykinga skiptir víst ekki máli.
Langflestir þeirra sem reykja vilja
hætta þvi en eiga í erfiðleikum
með það og eru síður en svo að
berjast fyrir frelsi ungs fólks til að
fá að hefja reykingar.
Því segi ég: Burt með tóbakið úr
sjoppunum. Munum að allt hálfkák
í baráttunni er gagnslaust og að
hlutirnir breytast ekki af sjálfu
sér. Unglingurinn þarf ekki að
reykja nema eina sígarettu til að
vera kominn með annan fótinn í
greipar fíknarinnar. Breytum
þessu og verum vakandi og stöð-
ugt á verði.
Að lokum tvær spurningar. Er
mikill munur á hugarfari tóbaks-
framleiðenda, sem taka gróðavon-
ina fram yfir líf og heilsu fólks, og
hugarfari fólks sem óttast hag
sjoppueigenda ef við reynum að
vernda börnin okkar frá klóm eit-
urlyfjanna með því að færa sölu
tóbaks til Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins? Eigum við að sætta
okkur við þetta ástand og láta
„tóbaksnammið“ eyðileggja líf
barnanna okkar, vona að þetta lag-
ist að sjálfu sér með tíð og tíma,
eða eigum við að gera eitthvað í
málinu strax?
BIRGIR Þ. JÓAKIMSSON
jógakennari,
Melhaga 12, Reykjavík.
Viltu nammi?
Frá Birgi Þ. Jóakimssyni:
Morgunblaðið/Þorkell