Morgunblaðið - 04.03.2001, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.03.2001, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 21 LÍFSSKÓLINN ILMOLÍUMEÐFERÐARSKÓLI Ráðstefna um ilmolíuvinnslu úr plöntum og meðferð þeirra laugardaginn 10. mars 2001, kl. 9.00—17.00 í Háskóla Íslands, stofu 101 Lögbergi. Dagskrá. I. Setning ráðstefnunnar: Selma Júlíusdóttir, skólastjóri Lífsskólans. II. Vísindarannsóknir í Evróðu á lækningarmætti plantna Erwin Haringer, prófessor frá Þýskalandi. III. Kynning og útbreiðsla læknismeðferðar með ilmolíum á sjúkrahúsum og hjúkrunarstofnunum í Evrópu: Erwin Haringer, prófessor. IV. Notkun ilmolíufræða á sjúkrahúsi í Munchen við hlið hefð- bundinna læknismeðferða á sjúkrahúsum: Margrét Demleitner, ilmolíufræðingur og iðjuþjálfi frá Þýskalandi. V. Ilmolíumeðferð í heimahúsum: Margrét Demleitner, ilmolíufræðingur og iðjuþjálfi. VI. Vísindarannsóknir á lækningamætti íslenskra jurta, s.s. vallhumals, blóðbergs og hvannar: Steinþór Sigurðsson, lífefnafræðingur. VII. Markaðssetning fæðubótarefna úr íslenskum lækninga- jurtum: Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Heilsujurta. VIII. Notkun vallhumals, hvannar og blóðbergs til lyfjagerðar og umfjöllun um sjúkdóma sem lyfin notast gegn: Erwin Haringer, prófessor. IX. Kynning á viðhorfum stjórnvalda til vísindalegrar meðferðar heilsujurta til lækninga. X. Kynning á aðferðum við eimingu íslenskra jurta og framtíðar möguleikar; kynning á ferð til Korsíku með íslenskan vall- humal til eimingar; kynning á Lífsskólanum: Selma Júlíusdóttir, ilmolíufræðingur og skólastjóri Lífsskólans. XI. Pallborðsumræður. Ráðstefnustjóri: Þorsteinn Barðason, jarðfræðingur og framhaldsskólakennari. Túlkur: Alma Oddsdóttir, sjúkraþjálfari. Heiðursgestir á ráðstefnunni verða frumkvöðlarnir Úlfur Ragnarsson, læknir og Ævar Jóhannesson, tækjafræðingur. Ráðstefnugjald kr. 5.500. Sími 557 7070 Fax 557 7011 menn á heimavelli. Þeim málum fer sífellt fjölgandi, þar sem hreyfingin þarf að snúa bökum saman yfir landamæri og þá skipta persónuleg samskipti verulegu máli.“ Frumkvæði starfsmanna Ari sagðist hafa gert mikið af að sækja nýjungar til Norðurlanda í starfi sínu og sama ætti við um aðra starfsmenn ASÍ. „Reyndar er það svo að frumkvæði og styrkur starfs- manna ASÍ hefur aukist verulega,“ sagði hann. „Sambandið hefur borið gæfu til að vera með frábært starfs- fólk og þegar það fer saman eins og ég tel að hafi verið, mjög gott starfsfólk en tiltölulega veik for- usta, fer hluti af frumkvæðinu yfir á starfsmennina. Starfsmenn verða þá mjög virkir í samfélagslegri um- ræðu, bæði út á við og hér heima. Það hefur verið þannig á undan- förnum árum að stór hluti af frum- kvæði frá ASÍ á sér upphaf hjá starfsmönnum sambandsins. Það er félagslega erfitt að horfast í augu við þessa staðreynd en við búum í töluverðum sérfræðingaheimi og mikilvægt að menn átti sig á því og viðurkenni.“ Aðspurður segist Ari ekki sjá eftir að hafa hagað sínum málum með þessum hætti. „Ég er í raun mjög sáttur við að hafa valið þessa leið,“ sagði hann. „Ég var ósáttur við stöðuna eins og hún var á síðustu árum en ég er óá- nægður með hvernig hlutirnir þró- uðust í kring um þingið. Það var mjög sérstök umræða á þinginu og í raun ófrægingarherferð gagnvart mér þar sem ég var sagður standa fyrir ýmsum skoðunum sem voru blátt áfram hlægilegar en fólkið valdi þetta og það virðir maður. Staðan er þannig núna að ég hef valið sjálfur hvernig ég vil haga mínu lífi. Ég hef haldið áfram á eig- in verðleikum og fengið nýtt og gott starf. Miðað við það sem á undan er gengið er ég mjög ánægður með að skipta gjörsamlega um heim. Þessi kafli, vinna og barátta fyrir verka- lýðshreyfinguna, er liðinn í mínu lífi og ég fer að snúa mér að öðru.“ En hverjar eru framtíðarhorfur í verkalýðsmálum að mati Ara? „ASÍ er hálfgert í lausu lofti,“ sagði hann. „Stóra sáttin, sem átti að koma á síðasta þingi, kom ekki vegna deilna sem urðu í kjölfar kosninganna. Eitt samband, Rafiðnaðarsamband- ið, sem reiknað var með að tæki sæti í miðstjórn, gerði það ekki. Það á því ekki sæti í miðstjórninni og það hefur einnig verið töluverð óá- nægja um framhaldið, t.d. aðkomu félaga, sem eiga beina aðild að sambandinu en eru ekki í lands- samböndum. Reyndar var ákveðið á þinginu að veik landssambönd ættu áfram að vera lykileining í ASÍ og sú ákvörðun er umdeild. Að mínu mati átti að taka landssamböndin út úr skipulagi ASÍ og byggja á beinni aðild félaga. Alþýðusamband sem byggist á veikum landssamböndum verður aldrei sterkt.“ Ari bendir á að á næsta ársfundi ASÍ í maí nk. verði að kjósa helming forustunnar á ný og samkvæmt nýju reglunum einnig varaforseta og að ári verði kosið um hinn helming forustunnar og forseta sambandsins. „Ég á erf- itt með að sjá hvernig þessi skipan verður í framtíðinni,“ sagði hann. „Ég hef haft áhyggjur af því hvað staða ASÍ hefur veikst í samfélags- legri umræðu. Þegar þjóðin er spurð hvað henni finnist um sam- bandið hafa 54% enga skoðun á því. Það er mjög slæm staða. Við sjáum þegar horft er til stjórnmálamanna að Davíð Oddsson forsætisráðherra er í þeirri stöðu að vera bæði vin- sælasti og óvinsælasti stjórnmála- maðurinn. Það er mjög góð staða því að allir hafa þá skoðun á honum. Hann er í umræðunni en það sama gildir því miður ekki um ASÍ. Það hefur verið að aukast á síðustu misserum að fólki verður meira og meira sama um sambandið. Ég hef því áhyggjur af að það muni ganga illa að keyra upp þann styrk sem ASÍ hafði áður. Ég hef fundið á þeim árum sem ég hef unnið hjá sambandinu hvað það er sífellt erf- iðara fyrir okkur að koma að okkar sjónarmiðum gagnvart Alþingi, ráðuneytum og stjórnvöldum. Við erum ekki sama aflið og við vorum áður.“ Önnur viðfangsefni Ari hefur verið ráðinn nýr fram- kvæmdastjóri Aflvaka hf., sem er hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar og er óhætt að fullyrða að þar verða viðfangsefnin allt önnur en hjá ASÍ. „Þetta er ópólitískt fyrirtæki og því er ætlað að vera andlit borgarinnar út á við í atvinnumálum og kannski inn á við einnig,“ sagði Ari um nýja starfið. „Það hafa orðið miklar breytingar á fyrirtækinu á síðasta ári og er í raun verið að byrja á nýj- um grunni. Fyrirtækið var bæði at- vinnuþróunar- og fjárfestingarfyrir- tæki en nú er búið að skilja frá fjárfestingarþáttinn. Þetta er spurning um að reyna að bæta stöðu Reykjavíkur í atvinnumálum. „Selja“ borgina, bæta starfið innan borgarinnar, bæta samstarf milli borgarstofnana, ná upp samstarfi við atvinnulífið og í raun stuðla að því að borgin verði í fremstu röð á hverjum tíma. Það er mikið talað um samband höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Fólk er eðli málsins samkvæmt upptekið af þeirri umræðu þar sem staðan er mjög alvarleg fyrir báða aðila. Svona straumar eins og liggja til borgarinnar eru engum til gagns en það má ekki gleyma því að höf- uðborg er mjög mikilvæg. Reykja- vík sem höfuðborg er auðvitað í samkeppni við aðrar borgir í öðrum löndum um atvinnutækifæri, ferða- mannastraum, ráðstefnur og annað. Það má ekki heldur gleyma því að landið allt byggist á að höfuðborgin standi vel. Ég held að við verðum að átta okkur betur á því. Mér finnst ég hafa fengið frábær tækifæri með þessu nýja starfi og er þakklátur fyrir það. Ég er staðráðinn í að ein- henda mér í þetta verk og skila sem bestum árangri.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.