Morgunblaðið - 04.03.2001, Page 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMNINGAR tókust í gær milli
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar og borgarinnar. Samningur-
inn gildir frá 1. janúar sl. til október-
mánaðar árið 2005.
Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður
félagsins, sagði að samningurinn
væri á hefðbundnum nótum hvað
varðar launabreytingar. Búið hefði
verið að leggja línur í öðrum samn-
ingum og erfitt fyrir félagið að brjóta
sig út úr þeim ramma sem mótaður
hefði verið. Samningurinn fæli í sér
3% árlega hækkun, en síðasta árið
myndu laun hækka um það sama og
samið yrði um á almennum markaði
á þeim tíma. Auk þess hefði náðst
samkomulag um launaflokkahækk-
anir.
Sjöfn sagði að í samningnum 1997
hefði verið samið um að hefja vinnu
við starfsmat. Núna hefði orðið nið-
urstaðan að ganga lengra og taka á
árinu 2002 upp starfsmatskerfi að
breskri fyrirmynd. Samningsaðilar
hefðu orðið sammála um að ef tilraun
með þetta kerfi ætti að geta gengið
upp yrði að gefa henni rúman tíma
og þess vegna væri samningstíminn
svona langur.
Sjöfn sagði að þetta starfsmats-
kerfi byggðist á því að meta til jafns
hliðstæð störf. Hún kvaðst gera sér
vonir um að með þessu yrði stigið
mikilvægt skref í að jafna laun milli
karla og kvenna.
Fulltrúaráð félagsins hefur verið
boðað til fundar nk. mánudag og þá
verður tekin ákvörðun um kynningu
og atkvæðagreiðslu um samninginn.
Um 2.000 félagar eru í Starfsmanna-
félagi Reykjavíkurborgar.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar semur til 2005
Reyna breskt starfsmatskerfi
Lionsmenn heimsækja tóbakssölustaði
Ekkert tóbak
undir 18
L ionshreyfingin muná næstunni fara íyfir 700 verslanir
og söluturna sem selja
tóbak til þess að afhenda
eigendum eða verslunar-
stjórum bréf þar sem þeir
eru hvattir til að taka
virkan þátt í átakinu, með
bréfinu fylgja límmiðar
sem á er letrað: Ekkert
tóbak undir 18. Hrund
Hjaltadóttir er fjölum-
dæmisstjóri Lionshreyf-
ingarinnar á Íslandi. Hún
var spurð hver ætti frum-
kvæðið að þessari
fræðsluherferð.
„Frumkvæðið kemur
frá tóbaksframleiðendum
og fulltrúum þeirra hér-
lendis. Þeir komu svo að
máli við Samtök verslunar
og þjónustu, Landssamband ís-
lenskra verslunarmanna, Áfeng-
is- og tóbaksverslunina og um-
hverfis- og heilbrigðisnefnd
Reykjavíkurborgar og hvöttu til
þessarar herferðar og samkomu-
lag var um að allir þessir aðilar
ásamt Lionshreyfingunni á Ís-
landi tækju höndum saman um
framkvæmd umræddrar herferð-
ar.“
– Hvert er markmið þessara
aðgerða?
„Það er að brýna fyrir fólki að
samkvæmt landslögum síðan
1996 er bannað að selja og af-
henda ungmennum 18 ára og
yngri tóbak. Það hafa verið gerð-
ar nokkrar óformlegar kannanir
á sölu tóbaks til ungmenna undir
18 ára aldri á útsölustöðum víðs
vegar um landið og því miður hef-
ur komið í ljós að í þessum efnum
er víða pottur brotinn. Þessi stað-
reynd er meginástæða þess að
hafist var handa við þetta verk-
efni.“
– Hvenær hefjast aðgerðirnar?
„Þær hófust um síðustu helgi
og standa fram eftir næstu viku.
Tóbaksframleiðendur eiga lista
yfir alla þá sem versla við þá og
Lionshreyfingin fékk þessa lista
og skipti sölustöðunum niður á
alla Lionsklúbba á landinu.“
– Hvað margir Lionsmenn fara
í útsölustaðina?
„Á öllu landinu eru 88 Lions-
klúbbar, þeir munu skipta verk-
efninu á milli sinna manna. Hver
félagsmaður fer líklega á um það
bil tvo til þrjá staði.“
– Hvernig hefur þeim verið
tekið sem þegar hafa farið í þess-
ar heimsóknir?
„Þeim hefur verið mjög vel
tekið og átakinu í heild hefur ver-
ið vel tekið. Öllum finnst þetta
mjög gott málefni, að hefta að-
gengi ungmenna að tóbaki eins
og unnt er.“
– Af hverju var Lionshreyfing-
in tilbúin til þess að taka þátt í
þessari herferð?
„Það er vegna þess að okkur
þótti verkefnið mjög verðugt og
við höfum staðið að forvörnum í
mörg ár með því að styrkja út-
gáfu Lions-quest námsefnisins
(að ná tökum á tilver-
unni), sem er kennt í 7
og 8 bekk grunnskól-
ans og annað námsefni
sem heitir: Í sátt og
samlyndi og er notað
til kennslu í 8 og 9
bekk. Einnig hefur
Lionshreyfingin ákveðið að gefa
út margmiðlunardisk í lífsleikni í
tilefni af 50 ára afmæli Lions á
Íslandi árið 2001. Verður disk-
urinn gefinn öllum þeim sem
stunda nám í 8. bekk grunnskól-
ans á Íslandi næsta skólaár.“
– Hver hefur samið efnið sem
er á disknum?
„Það eru Lionsmenn ásamt
margmiðlunarfyrirtækinu Domus
Media. Það hefur verið á stefnu-
skrá Lionshreyfingarinnar til
margra ára að vinna fyrir og með
ungu fólki og þetta er liður í því.“
– Ætlið þið að gera eitthvað
frekar til þess að stemma stigu
við reykingum?
„Við gerum allt sem við getum
til að minnka reykingar og koma
í veg fyrir þær. Við reynum að
gera þetta með allri þeirri
fræðslu sem hægt er að veita.“
– Ætlið þið að ganga í hús og
hvetja fullorðna til að hætta að
kaupa sér tóbak?
„Nei, það ætlum við ekki að
gera en hins vegar að leggjum við
Krabbameinsfélaginu lið þessa
helgi við söfnun með því að ganga
í hús, safna fé og afhenda
fræðslubæklinga um skaðsemi
reykinga m.a., en það er liður í
heilsuboðorðum Krabbameins-
félags Íslands.“
– Er starfsemi Lions blómleg
um þessar mundir?
„Já, hún er það. Okkur hefur
tekist að fjölga nokkuð félögum á
síðastliðnu ári. Á föstudaginn var
afhentum við tvo stóra rannsókn-
arstyrki sem eru afrakstur söfn-
unar Rauðu fjaðrarinnar, og sá
hluti sem kemur úr Norræna vís-
indasjóðnum, en 20% söfnunar-
fjárins fóru í þann sjóð. Tvö rann-
sóknarteymi fengu þessa styrki.“
– Hver eru helstu markmið
Lionshreyfingarinnar yfirleitt?
„Nr. 1,2 og 3 að leggja lið alls
staðar þar sem þess er þörf. Við
höfum t.d. nýlega sent 2.500 doll-
ara til hjálparstarfs
vegna jarðskjálftanna í
Indlandi.“
– Eru Lionsfélög er-
lendis líka í forvarnar-
baráttu?
„Já, þeir hafa unnið
mikið verk í sambandi
við Lions-Quest verkefnið líka en
vegna fyrrnefndrar herferðar til
að takmarka sölu tóbaks við 18
ára og eldri má geta þess að sam-
bærilegt verkefni hefur líka farið
fram undir sömu yfirskrift í
Finnlandi og Svíþjóð með góðum
árangri, en þar komu Lionsmenn
að vísu ekki að málum.“
Hrund Hjaltadóttir
Hrund Hjaltadóttir fæddist 27.
september 1949 í Reykjavík. Hún
lauk kennaraprófi frá Kenn-
araskóla Íslands 1970 og hefur
verið grunnskólakennari allar
götur síðan. Nú kennir hún í
Seljaskóla í Reykjavík. Hún er
núverandi fjölumdæmisstjóri
Lionshreyfingarinnar. Hrund er
gift Guðmundi Helga Gunn-
arssyni byggingarstjóra hjá Ís-
lenskum aðalverktökum og eiga
þau þrjá syni og þrjú barnabörn.
Reynum að
leggja lið
alls staðar
þar sem þess
er þörf