Morgunblaðið - 14.03.2001, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.03.2001, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ „SÚ venja er forn að biskup sendi kirkju sinni hirðisbréf, til að uppörva, hvetja og áminna söfnuð sinn, að hætti postul- anna,“ segir Karl Sigurbjörnsson biskup meðal annars í inngangi rúmlega 200 blaðsíðna hirðis- bréfs sem hann hefur gefið út. Þar er að finna hugleiðingar bisk- ups um hvað íslenska kirkjan er, hvaða erindi og hlutverk henni beri að rækja. „Það er hugsað sem grundvöll- ur að samtali, samtali sem ég vildi sjá í kirkjunni, á vettvangi safnaðanna, er kirkjan horfir í átt til nýs árþúsunds,“ segir hann einnig í inngangi sínum. Hirðisbréfið fjallar m.a. um af- skipti kirkjunnar af stjórnmálum. Segir þar að kirkjan eigi ekki að skipta sér af flokkapólitík, prest- ar eigi ekki að taka afstöðu í flokkspólitískum deilumálum úr predikunarstólnum. En stjórn- mál séu sameiginleg málefni safnaðarins og kirkjunni beri að móta og halda vörð um réttlátt, frjálst og lögbundið samfélag, að minna á þá sem halloka fari í samfélaginu og tala máli þeirra. Í bréfinu segir að minnt sé á þetta hlutverk þegar hingað sæki fólk á flótta undan ógnum og bágum kjörum eða í leit að betra lífi. Biskup hvetur presta og söfnuði þjóðkirkjunnar til að tala fyrir umburðarlyndi gagnvart fólki af öðrum trúarbrögðum, að efna til samtals við múslima og leitast við að yfirvinna hleypidómana sem hindra skilning og ala á sundrung og reisa múra milli fólks og trúarbragða. Í hirðisbréfinu er einnig fjallað um stöðu kirkjunn- ar um víða veröld, um hnattvæð- ingu og vaxandi bil milli fátækra og ríkra. Þar er hart deilt á þá neysluhyggju og þau markaðsöfl sem halda börnum í fátækum löndum sem þrælum við að fram- leiða merkjavöru fyrir ríkari löndin. Hlynna þarf að fjölskyldum presta Karl Sigurbjörnsson leggur áherslu á nauðsyn þess að efla sí- menntun presta og að sálgæsla og handleiðsla sé tryggð prestum í starfi. Þess er og þörf að hlynna að fjölskyldum presta sem oft eru í erfiðri aðstöðu vegna þess hve altæk krafa prestsembættisins er og vinnutími oft óreglulegur. Til að tryggja að prestar geti sinnt þjónustunni heilir og óskiptir er mikilvægt að tekið sé á starfs- aðstöðu þeirra og starfskjörum. Þá er kafli í hirðisbréfinu um samkynhneigð og leggur biskup áherslu á að allir séu velkomnir í kirkju Krists og að altari hans til blessunar og fyrirbænar. Kristnir menn eru áminntir um þann sársauka og neyð sem ótti og fordómar valda þeim sem eru samkynhneigðir. „Víða er sam- kynhneigð hafnað í heilagri ritn- ingu,“ segir biskup meðal annars. „Eru þau fyrirmæli ótvíræð og sí- gild? Hvað með hliðstæð boð sem varða stöðu kvenna og kynlíf í lögmáli Móse og hjá Páli? Hver er staða þeirra boða? Er samkyn- hneigð meiri synd en ýmislegt annað sem fordæmt er í lögmál- inu og bréfum postulanna, en sem flestir eru nú sammála um að eru forboð bundin samtíma- menningu þeirra?“ Segir biskup að stuðla verði að því í kirkju og samfélagi að umburðarlyndi og virðing fyrir manngildinu ráði og því þurfi menn að hlusta hver á annan og með virðingu. Hann segir staðfesta samvist vera sam- búð en ekki hjónaband og að eng- in þjóðkirkja Norðurlandanna hafi treyst sér til að stíga það skref að vígja samkynhneigða sem hjón. „En þeim sem leita fyr- irbænar kirkjunnar og blessunar Guðs yfir samlíf sitt og heimili er ekki vísað á bug, hvert svo sem sambúðarform heimilisfólksins er.“ Útgefandi „Í birtu náðarinnar – hirðisbréf til íslensku kirkjunn- ar“ er Skálholtsútgáfan – útgáfu- félag þjóðkirkjunnar. Bókin er 212 síður. Umbrot annaðist Skerpla ehf. og bókin er prentuð hjá Gutenberg. Biskup Íslands sendir frá sér hirðisbréf Hvetur presta og söfn- uði til umburðarlyndis SÍÐASTLIÐINN laugardag var lið- ið eitt ár frá því íslensku norð- urpólsfararnir Haraldur Örn Ólafs- son og Ingþór Bjarnason lögðu af stað í leiðangur sinn frá Ward Hunt-eyju í Kanada. Íslenski leið- angurinn var einn margra leið- angra sem reyndu við pólinn í fyrra, en á annan tug leiðangra voru þá gerðir út. Í ár eru nokkuð færri á ferðinni en markmið pólf- aranna eru sem fyrr háleit og sí- fellt er keppt að því að bæta um betur og setja ný met af hvers kyns tagi. Í fyrra var m.a. 52 daga hraðamet á pólinn bætt um 10 daga og í fyrsta skipti tókst að arka yfir allt Norður-Íshafið á mettíma, 109 dögum, svo eitthvað sé nefnt. Að minnsta kosti fimm norð- urpólsleiðöngrum hefur verið hleypt af stokkunum þetta árið og eru leiðangursmenn þessa dagana að takast á við hefðbundna byrj- unarörðugleika, grimmdarfrost, sem getur farið í 50 stig, myrkur og hvítabirni. Þegar hefur a.m.k. einn leiðangur misheppnast, þegar danski pólfarinn Bettina Aller varð að láta sækja sig út á ísinn 6. mars sl. eftir fjögurra daga úthald. Hana kól á tveim fingrum eftir að hafa beitt skammbyssu til að verjast hvítabirni sem forvitnaðist um hagi hennar þar sem hún lá sofandi í tjaldi sínu. Birninum stökkti hún á flótta með aðvörunarskoti en sat eftir með kal á fingrum. Þetta var önnur tilraun hinnar 38 ára gömlu fjölmiðlakonu til að ganga ein síns liðs á norðurpólinn, en í fyrra hélt hún út í 11 daga áður en hún meiddist á fæti og varð að láta sækja sig. Nýtt takmark hjá Ousland Eins og í fyrra lagði Bettina af stað frá Síberíu en þaðan gerir jafnaldri hennar, Norðmaðurinn Børge Ousland, út yfirstandandi leiðangur sinn. Hann er enn á ferð- inni eftir tíu daga og hyggst ekki aðeins ganga á pólinn heldur yfir allt Norður-Íshafið og enda förina í Kanada, þaðan sem Haraldur og Ingþór lögðu upp í fyrra. Með þessu hyggst Ousland verða fyrst- ur manna í heiminum til að ganga einn síns liðs yfir Norður-Íshafið, en tveir landar hans, Rune Gjeld- nes og Torry Larsen, urðu fyrstir til að ná því takmarki í fyrra. Þeir komust við illan leik á áfangastað á Ward Hunt-eyju eftir 109 daga göngu og unnu þar með þrekvirki sem mörgum fyrri leiðöngrum mis- tókst. Nú ætlar Ousland að bæta um betur og verða fyrstur til að fara sömu leið aleinn á mettíma, en hann tók með sér nesti til 90 daga. Það hentar honum ekki illa að brjóta blað á þessu sviði, enda er hann einn allra fremsti pólfarinn í heiminum. M.a. varð hann fyrstur manna í heiminum til að ganga ein- samall án stuðnings á norðurpólinn árið 1994. Leið hans að þessu sinni er 1.720 km löng og nú þegar hefur hann lagt að baki 230 km eða sem samsvarar lengd Þjórsár, frá upp- tökum til ósa. Leiðangurinn hefur ekki gengið vandræðalaust, enda hafa hvíta- birnir gerst nærgöngulir, auk þess sem hann varð fyrir áfalli þegar sleði hans brotnaði strax í upphafi svo skipta varð honum út fyrir nýj- an. Því má bæta við að Ousland átti góða daga á Íslandi í febrúar í fyrra þegar hann hitti Harald og Ingþór vegna íslenska leiðangurs- ins. Haraldur var í sambandi við Ousland áður en leiðangur þess síð- arnefnda hófst og hefur fylgst með gangi mála hjá Norðmanninum. „Leiðangur Ouslands er ótrúleg- ur, því bæði er verkefnið erfitt og svo lendir hann í því að brjóta sleð- ann sinn fljótlega,“ segir Haraldur. „Hins vegar fékk hann geysigóða byrjun og lenti á rennisléttum ný- lögðum ís fyrstu 100 km. Þannig lagði hann að baki allt að 40 km dagleiðir í byrjun. Sá böggull fylgdi þó skammrifi að hann var í vandræðum með að finna ósaltan ís til að bræða í neysluvatn. Þetta varð honum umhugsunarefni, þ.e. hvort ástæðan fyrir þessu væri hlýnun jarðar sem orsakar það að gamall ís, sem oft er erfiður yf- irferðar, sé hreinlega farinn frá landi.“ Vill verða yngsti pólfarinn Breskur tveggja manna leið- angur er nýlagður af stað frá Síb- eríu, sem hefur m.a. það markmið að koma yngsta pólfara sögunnar á norðurpólinn, hinum 23 ára Ben Saunders. Með honum í för er Pen Hadow og er leiðangri þeirra m.a. ætlað það hlutverk að afla fjár til rannsókna á krabbameini í blöðru- hálskirtli og eistum. Einn pólfara í ár er 42 ára gam- all Japani sem ætlar að láta flytja sig á norðurpólinn 20. mars og ganga heim til sín – til Japans. Þetta er maður að nafni Hyoichi Kohno og ætlar hann að verja næstu sex árum í leiðangurinn. Hann hefur áður farið á norðurpól- inn og er því ekki óvanur slíkum ferðalögum og kynntist íslensku pólförunum lítillega í fyrra. Að síðustu má svo nefna tveggja manna leiðangur sem sam- anstendur af Singapúrbúa og Þjóð- verja. Þeir lögðu af stað 1. mars og fara sömu leið á pólinn og Har- aldur og Ingþór. Haraldur hallast að því að marg- ir pólfarar hafi talið fara vel á því að sigra pólinn á því herrans ári 2000 enda hafi leiðangrar verið óvenju margir það ár. „Svo virðist sem ártalið 2000 hafi komið ýmsu af stað jafnt í pólferð- um sem öðru. Flestir pólfaranna í fyrra voru vandanum vaxnir enda stóðu margir sig frábærlega. Það var líka óvenjukalt í fyrra og marg- ir pólfarar fengu kal. Þessa dagana rifjast upp fyrir manni fyrstu dag- arnir á ísnum sem voru mjög erf- iðir. Erfiðu stundirnar eru þó fljót- ar að gleymast,“ segir Haraldur. Norðurpólsfarar hafa undanfarið haldið út á ísbreiður Norður-Íshafsins Tekið á grimmd- arfrosti og hvítabjörnum Ferðatímabilið um ísbreiður Norður-Ís- hafsins er nýhafið þetta árið. Örlygur Steinn Sigurjónsson leit yfir sviðið og komst að því að einn pólfarinn ætlar að setja nýtt met á ísnum og annar ætlar að ganga til Japans af norðurpólnum. Ljósmynd/Ingþór Bjarnason Haraldur Örn Ólafsson í barátt- unni á ísnum í fyrravetur. Leið Norðmannsins Børge Ouslands liggur frá Síberíu yfir til Kanada.                          FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur kveðið á um að fjöldi barna hjá dagmæðrum megi ekki fara yfir fimm börn. Vegna þessa munu félagsmála- yfirvöld í Kópavogi draga til baka þær heimildir sem hafa verið veittar fyrir því að dagmæður hafi sex börn í sinni umsjá. Samkvæmt reglugerð félagsmála- ráðuneytisins mega dagmæður gæta allt að fjögurra barna samtímis að meðtöldum þeim börnum sem fyrir eru á heimili yngri en sex ára. Eftir að minnsta kosti eins árs starfstíma er heimilt að veita leyfi fyrir einu barni til viðbótar þannig að mest geti dagmóðir haft fimm börn í sinni umsjá. Þrátt fyrir þessa reglugerð hefur viðgengist m.a. í Kópavogi frá árinu 1998 að veita dagmæðrum leyfi fyrir allt að sex börnum en að sögn Emilíu Júlíusdóttur, daggæslufulltrúa þar, var það gert vegna þrýstings frá al- menningi og dagmæðrum. Mikill skortur hafi verið á dagvistunarpláss- um á þessum tíma og því var tekið upp á þessu að undangenginni fag- legri úttekt á aðstæðum hverju sinni. Nýlega fóru svo samtök dagmæðra fram á það við félagsmálaráðuneytið að umræddri reglugerð yrði breytt þannig að hægt væri að veita dag- mæðrum heimild fyrir því að hafa sex börn í sinni umsjá. Að sögn Ingi- bjargar Broddadóttur, deildarstjóra í félagsmálaráðuneytinu, var þeirri beiðni hafnað með hliðsjón af velferð og heilbrigði barnanna en það hafi verið talið ærið verkefni fyrir eina manneskju að gæta fimm barna auk matseldar og þrifa sem fylgir því starfi. Samtímis var það ítrekað við stærstu sveitarfélögin að hámarks- fjöldi barna hjá dagmæðrum með eins árs starfsaldur væri fimm. Vegna þessa munu daggæsluyfir- völd í Kópavogi fylgja reglugerðinni fastar eftir en áður. Dagmæður hafi ekki fleiri en 5 börn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.