Morgunblaðið - 14.03.2001, Síða 55

Morgunblaðið - 14.03.2001, Síða 55
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 55 Námskeið í táknmáli Námskeið í táknmáli hefjast 19. mars. Kennt verður Táknmál 1, 2, 3, 4 og 5. Innritun og nánari upplýsingar í síma 562 7702 eða tölvupóst gigja@shh.is . Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. TIL SÖLU Lagerhillur Góðar lagerhillur til sölu. Upplýsingar í síma 898 6068. Grjótnám í Eldvarpahrauni eldra og Þórðarfellshrauni fyrir brimvarnagarða við innsiglinguna í Grindarvíkurhöfn Mat á umhverfisáhrifum — úrskurður Skipulags- stofnunar Skipulagsstofnun hefur úrskurðað samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrif- um. Fallist er á fyrirhugað grjótnám í Þórðar- fellshrauni og efnistöku af svæði 5b í Eldvarpa- hrauni eldra eins og henni er lýst í framlögðum gögnum framkvæmdaraðila, en lagst gegn efn- istöku í Eldvarpahrauni eldra utan svæðis 5b. Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu- lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: http://www.skipulag.is. Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 11. apríl 2001. Skipulagsstofnun. KENNSLA SMÁAUGLÝSINGAR DULSPEKI Huglækningar/ heilun Sjálfsuppbygging. Samhæfing líkama og sálar. Áran. Fræðslumiðlun. Halla Sigurgeirsdóttir, andlegur læknir. Uppl. í síma 553 8260 f.h. KENNSLA Keramiknámskeið Þú getur byrjað þegar þú vilt. Opið hús fyrir alla á miðviku- dagskvöldum kl. 20—23. Keramik fyrir alla, Laugavegi 48b, s. 552 2882. FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 18  1813148  9.III*  GLITNIR 6001031419 I  Njörður 6001031419 I I.O.O.F. 7  18131471/2  8.0. I.O.O.F. 9  1813148½  9.III  Hamar 6001031419 III  HELGAFELL 6001031419 VI Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58—60. Samkoma í kvöld kl. 20.30. Fjáröflunarsamkoma í umsjá Kristniboðsfélags kvenna. Elfa Ágústsdóttir og Kjartan Jónsson tala. Árni Gunnarsson syngur. Happdrætti. Allir hjartanlega velkomnir. sik.is . Miðvikudagur 14. mars Í kvöld kl. 20.00 Vakningaherferðin heldur áfram með ofurstunum Inger og Einar Höyland. Brigader Óskar Jóns- son stjórnar. Allir hjartanlega velkomnir. Myndasýning í FÍ-salnum 14. mars kl. 20:30. Helgi Arn- grímsson og Áskell Heiðar Ás- geirsson frá Borgarfirði eystra fjalla um Víknaslóðir milli Borg- arfjarðar og Seyðisfjarðar og Gerður Steinþórsdóttir sýnir myndir úr ferð frá Hveravöllum í Geitland, norðan og vestan Langjökuls. Aðgangseyrir 500. Kaffiveitingar í hléi. Námskeið í rötun; áttaviti og GPS-staðsetningartæki. Skráið ykkur á skrifstofu, s. 568 2533. Takið þátt í spurningaleikn- um á heimasíðu FÍ. Dagsferðar- miði dreginn út í hverri viku. www.fi.is, textavarp RUV bls. 619. Mosfellsbær Fræðslu- og menningarsvið Innritun nýrra nemenda Innritun allra sex ára barna í Mos- fellsbæ, (fædd 1995) fer fram í Varmár- skóla dagana 14.—21. mars n.k. kl. 9.00—15.00 í síma 525 0700. Einnig fer fram innritun nemenda sem eru að flytjast frá öðrum bæjarfélögum. Skipting skólahverfis milli austur- og vestursvæðis er með svipuðum hætti og áður. Nánari upplýsingar er að fá á skrifstofu Varmárskóla, hjá útibússtjóra í Vestursetri og hjá skólafulltrúa. Áríðandi er að foreldrar innriti börn sín á þessum tíma. Skólafulltrúi. R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUAUGLÝSINGAR sendist á augl@mbl.is SEINNI hluti Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema fór fram laugardaginn 10. mars. Til keppni mættu þrjátíu nemendur og fór Guðni Ólafsson, Menntaskólanum í Reykjavík, með sigur af hólmi. Náði hann fullu húsi stiga, en fast á hæla honum kom Eyvindur Ari Pálsson, einnig úr Menntaskól- anum í Reykjavík, með aðeins einu stigi minna. Í heild varð sætaskipan þessi: Í 1. sæti varð Guðni Ólafsson, MR, 2. sæti Eyvindur Ari Pálsson, MR, 3. sæti Ingvar Sigurjónsson, MR, 4. sæti Ragnheiður Helga Har- aldsdóttir, MR, 5. sæti Sigurður Örn Stefánsson, MA, 6. sæti Grét- ar M.R. Amazeen, MR, 7. sæti Matthías Kormáksson, MR, 8. sæti Ásta Ásgeirsdóttir, MR, 9. sæti Andri H. Kristinsson, MH, 10. sæti Stefán Þorvarðarson, MR, 11. sæti Þóra Þorgilsdóttir, MR, 12.–13. sæti Bjarnheiður Kristinsdóttir, MR, og Þorbjörn Guðmundsson, MR, 14. sæti Ásgeir Alexand- ersson, MA, 15. sæti Sigurður Páll Steindórsson, MR, 16. sæti Jens Guðjónsson, MH, 17. sæti Hilmar Páll Haraldsson, MR, 18.–19. sæti Gunnar Geir Pétursson, MS, og Guðni Karl Rosenkjær, Flensborg, 20. sæti Kristinn Bjarnason, MR. Nemendur í þrettán efstu sæt- unum munu taka þátt í Norrænu stærðfræðikeppninni hinn 29. mars og eiga þeir jafnframt möguleika á að verða valdir í lið Íslands fyrir ólympíukeppni í stærðfræði í sumar. Úrslit voru tilkynnt í verðlauna- hófi í Skólabæ á sunnudaginn var, þar sem Brynjar Arnarsson, fulltrúi Kaupþings, afhenti við- urkenningar, en þrír efstu kepp- endur hlutu auk þess pen- ingaverðlaun. Kaupþing stóð straum af kostnaði við fram- kvæmd keppninnar og gaf verð- launafé, eins og undanfarin ár. Í forkeppninni í ár tóku þátt á sjötta hundrað nemenda, en þeim fjörutíu sem bestum árangri náðu þá var boðið til leiks um helgina. Hafa þeir nemendur fengið send æfingadæmi í vetur, til undirbún- ings fyrir úrslitarimmuna, en ljóst er að hið langa kennaraverkfall mun hafa nýst sumum vel til þessa. Lokakeppnin á laugardaginn samanstóð af sex verkefnum sem nemendur fengu fjóra tíma til að skrifa lausnir að. Að meðaltali leystu keppendur tæplega tvö og hálft dæmanna. Bestum árangri náðu þau í dæmi 3, sem hljóðaði svona: Rögnvaldur ætlar upp stiga með 10 þrepum. Í hverju skrefi fer hann annaðhvort upp um eitt þrep eða upp um tvö þrep. Á hve marga mismunandi vegu getur hann farið upp stig- ann? MR-ingar röðuðu sér í efstu sætin Sigurvegarar í Stærðfræðikeppni framhalds- skólanema árið 2001, Guðni Ólafsson og Eyvindur Ari Pálsson. Ingvar Sigurjónsson var fjarverandi. Fulltrúar Íslands í Norrænu stærðfræðikeppninni 29. mars. Í aftari röð frá vinstri, Stefán Þorvarðarson, Þorbjörn Guðmundsson, Andri H. Krist- insson, Guðni Ólafsson, Eyvindur Ari Pálsson, Þóra Þorgilsdóttir. Í fremri röð frá vinstri, Grétar Amazeen, Bjarnheiður Kristinsdóttir og Ragnheið- ur Helga Haraldsdóttir. Á myndina vantar Ingvar Sigurjónsson, Sigurð Örn Stefánsson, Matthías Kormáksson og Ástu Ásgeirsdóttur. Brynjar Arnarsson frá Kaupþingi afhendir Guðna Ólafssyni 1. verðlaun að viðstöddum Lárusi Bjarnasyni frá framkvæmdanefnd keppninnar. Lokakeppni Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.