Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 33

Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 33 Á NÆSTU dögum heldur Þjóðleik- húsið í leikferð til Ísafjarðar með leikritið Já, hamingjan eftir Krist- ján Þórð Hrafnsson. Verkið fjallar um tvo bræður sem leiknir eru af Ísfirðingnum Baldri Trausta Hreinssyni og Bolvíkingnum Pálma Gestssyni. Leikið verður í Menningar- miðstöðinni Edinborg á Ísafirði nk. föstudags- og laugardagskvöld kl. 20.30. Já, hamingjan fjallar á gam- ansaman hátt um alvarlegan árekstur í sambandi tveggja bræðra. Verkið hefur verið sýnt frá janúarlokum á Litla sviði Þjóðleik- hússins. Miðasala er hafin í Þjóð- leikhúsinu (greiðslukortaþjónusta) og verður í Edinborgarhúsinu frá og með 15. mars. Pálmi Gestsson og Baldur Trausti Hreinsson í hlutverkum sínum í Já, hamingjan. Þjóðleik- húsið sýnir á Ísafirði  FJÖLSKYLDUR við aldahvörf er eftir Sigrúnu Júlíusdóttur, pró- fessor í félagsráðgjöf við Háskóla Ís- lands. Bókin hefur að geyma greinasafn, en allar eiga þær sameiginlegt að fjalla um að- stæður fjöl- skyldna, náin tengsl og uppeld- isskilyrði barna. Samnefnarinn er breytingar og þau umskipti sem breyttar sam- félagsaðstæður hafa haft í för með sér fyrir fjöl- skyldur, fullorðna og börn, en einnig fyrir fagfólk. Í fréttatilkynningu segir að grein- arnar feli í sér boðskap um gildi mannlegra tengsla og að innan fjöl- skyldna skapist sú undirstaða sam- kenndar, umburðarlyndis og sið- ræns þroska sem mestu skiptir, bæði fyrir einstaklinga og samfélag manna. Í lokakafla bókarinnar er sjónum beint að heildrænu samhengi breyt- inganna. Gerð er tilraun til að varpa ljósi á breytta sýn á manninn og á af- leiðingar hennar fyrir fagfólk í sam- starfi með fjölskyldum. Sigrún Júlíusdóttir hefur langa reynslu af fjölskylduráðgjöf í geð- heilbrigðisþjónustu og var yfir- félagsráðgjafi á geðdeild Landspít- alans um árabil. Hún hefur stundað margvíslega fræðslu fyrir almenn- ing og kennt og skipulagt endur- menntun fagfólks í uppeldis-, heil- brigðis- og félagsþjónustu, einkum um fjölskyldumálefni. Hún átti sæti í framkvæmdanefnd um Ár fjölskyld- unnar 1994 og situr í fjölskylduráði. Rannsóknir hennar eru á sviði félagsráðgjafar og fjölskyldufræða. Hún hefur stýrt umfangsmiklum rannsóknum á uppeldisaðstæðum barna á Íslandi og nýlega gaf hún út ásamt Nönnu K. Sigurðardóttur bókina Áfram foreldrar: Rannsókn um sameiginlega forsjá og velferð barna við skilnað foreldra. Útgefandi er Háskólaútgáfan. Bókin er kilja, 265 bls. og kostar 3.400 kr. Nýjar bækur Sigrún Júlíusdóttir ♦ ♦ ♦ ÞEIR sem ráða í Hollywood í dag sátu límdir við sjónvarpið á fimmta og sjötta áratugnum og halda að allar bestu kvikmyndirnar liggi í endurgerðum á gömlum, amerísk- um sjónvarpsseríum. Við höfum séð mýgrút slíkra mynda, fæstar góðar, og hér kemur enn ein í safnið, Æv- intýri Rockys og Bullwinkles, sem segir frá nokkrum teiknimyndafíg- úrum úr teiknimyndaseríu sjón- varpsins frá því á sjötta áratugnum. Fyrir sakir tæknibrellna komast þær yfir í mannheima og takast á um völdin í heiminum. Rocky og Bullwinkle er dæmigerð fyrir bruðl- ið í draumaverksmiðjunni. Það er varla tutla af viti í allri myndinni en sýnilegt að hún kostaði milljarða. Hver skellti skuldinni á Kalla kanínu?, sem vill svo til að var sýnd í Ríkissjónvarpinu sömu helgi og þessi mynd var frumsýnd, gerði því miklu betri og skemmtilegri skil fyrir áratug síðan að blanda saman leikurum af holdi og blóði við teikni- myndafígúrur. Í Rocky og Bull- winkle nenna menn naumast að nýta möguleikana sem það býður uppá. Það er ákveðin sjálfsgagnrýni og sjálfshæðni sem spilað er með þegar hinni gamalkunnu teikni- myndaveröld er lýst og hvorki Rocky né Bullwinkle taka sig of há- tíðlega auk þess sem sögumaður leikur stórt hlutverk með skondn- um athugasemdum sínum en þar með eru kostir myndarinnar upp- taldir. Allt annað er magnað delluverk þar sem meira að segja Robert De Niro lætur sig hafa það að skop- stæla frægustu senu síns leikferils (Ertu að tala við mig?) án þess að ná fram neinum áhrifum nema undrun. Hann leikur ómenni að nafni Óttalaus sem etur handbend- um sínum, Jason Alexander og Rene Russo, á þá Rocky og Bull- winkle um leið og hann ætlar að ná völdum með því að dáleiða fólk með vondu sjónvarpsefni. Að öðru leyti gerir De Niro fátt annað en að garga skipanir út í loftið. Hinn kubbslegi Alexander á sínar stundir en Russo virðist gersamlega úti að aka. Það sama má segja um þá sem gerðu þetta furðuverk. Arnaldur Indriðason Rocky og Bullwinkle KVIKMYNDIR S a m b í ó i n Á l f a b a k k a „The Adventures of Rocky and Bullwinkle“. Leikstjóri: Des McAnauff. Framleiðandi: Robert De Niro. Aðalhlutverk: Robert De Niro, Rene Russo, Jason Alexander, Randy Quaid og Janeane Garolfalo. 2000. ÆVINTÝRI ROCKYS OG BULLWINKLES  FYNS Grafiske Værksted í Óðins- véum opnaði sýningu í tilefni 25 ára afmælis verkstæðisins nýlega. Um er að ræða fjölbreytta og yfirgrips- mikla samsýningu félagsmanna sem stendur til 18. mars í salarkynnum Fyns Kunstmuseum. Þrír Íslendingar eru meðlimir í þessu félagi og eiga verk á þessari sýningu. Þeir eru Einar Sölvason, Harpa Björnsdóttir og Svandís Eg- ilsdóttir. Upplýsingar um félagið er að finna á heimasíðu þess á www.- fynsgv. Samsýning grafíkera í Óðinsvéum kvennanna sem elska riddarann velur fíflið þær allar með tilheyr- andi fyrirgangi. Tsjekhov reyndi aldrei síðar að skrifa farsa, en sum atriði Platonovs sýna að það hefði ekki vafist fyrir honum frekar en annað. Leikgerð Ólafs Darra er fjórða útgáfa verksins sem ég hef séð og þær eru ótrúlega ólíkar innbyrðis. Villihunang, leikgerð Michaels Frayns, leggur mest upp úr fars- anum, en hin ómótstæðilega kvik- myndagerð, Sjálfspilandi píanó, nær best inn að kvikunni. Að óreyndu mætti ætla að óhefl- að æskuverk á borð við þetta væri heppilegra viðfangsefni fyrir unga og óreynda leikendur sem ættu erfitt með að sýna og fela í senn þann undirtexta sem spennan í síðari verkum Tsjekhovs byggist á. Galgopaskapurinn og fjörug at- burðarásin í Platonov ættu að henta betur. Leikstjóri þessarar sýningar hefur hins vegar valið leið hófstillingar og fágunar og verður það óneitanlega á kostnað krafts og leikgleði. Eins hefði Ólafur Darri þurft að leggja meiri rækt við að móta per- sónur og gera afstöðu þeirra skýr- ari. Of mörg lykilandartök fara forgörðum vegna þess að á þetta skortir. Ekkert skortir hins vegar upp á fágun og umgjörð. Glæsileg leik- mynd og búningar ásamt bráð- skemmtilegri tónlist setja sterkan svip á sýninguna. Og á þeim augnablikum sem sýningin sleppir fram af sér beisl- inu sést hvaða möguleikar eru fyr- ir hendi í verkinu og hópnum. Framsögn er með örfáum undan- tekningum prýðileg. Það er samt eiginlega ekki sanngjarnt að leggja dóm á frammistöðu ein- stakra leikara á grundvelli þess- arar sýningar. Hæfileikana vantar ekki, hér eru þeir einfaldega van- nýttir. Við bíðum spennt framhaldsins. ÞÓTT Platonov jafnist ekki á við meistarastykkin fjögur sem frægð Tsjekhovs hvílir á er í þessum sex klukkutíma óskapnaði að finna nánast öll viðfangsefni og flestar persónugerðir sem hann síðar fág- aði og mótaði af fullþroska snilld. Auralaus yfirstétt, yfirvofandi gjaldþrot, menntamenn þrúgaðir af eigin getuleysi í lífinu, hlægileg- ir eldri menn, drykkfelldir læknar, fjálglegar og innihaldslausar ræð- ur um göfgi vinnunnar, vonlaus ást. Lífsleikni er lítt gefin fólkinu hans Tsjekhovs. Fólkið sem safnast í kringum hina töfrandi en illa skuldsettu Önnu Petrovnu á sveitasetri henn- ar á hverju sumri er af þessu tsjekhovska sauðahúsi og Platonov er bæði fíflið og riddarinn við hirð- ina. Frekar óheppileg blanda því þegar hann þarf að velja milli Skortur á lífsleikni LEIKLIST H e r r a n ó t t Höfundur: Anton Tsjekhov. Leikgerð: Ólafur Darri Ólafsson, byggt á þýðingum Árna Bergmann og Péturs Einarssonar. Lýsing og útlitshönnun: Sigurður Kaiser. Leikendur: Ástrós Elísdóttir, Bragi Páll Sigurðarson, Friðrik Thor Sigurbjörnsson, Grétar Már Amazeen, Grímur Hjörleifsson, Hildur Knútsdóttir, Kristín Una Friðjónsdóttir, Magnús Davíð Norðdahl, Margrét Erla Maack, Margrét Jóna Einarsdóttir, Saga Sigurðardóttir, Sunna María Schram, Svanlaug Jóhannsdóttir, Sverrir Ingi Gunnarsson, Tanja Marín Friðjónsdóttir, Valgerður B. Eggertsdóttir og Þorgeir Arason. Hljómsveit: Árni Egill Örnólfsson, Brynja Guðmundsdóttir, Eiríkur Gauti Kristjánsson, Kristmundur Guðmundsson og Sigurður Þór Rögnvaldsson. Tjarnarbíói sunnu- daginn 11. mars. PLATONOV Þorgeir Tryggvason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.