Morgunblaðið - 14.03.2001, Side 10

Morgunblaðið - 14.03.2001, Side 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁRNI Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, var málshefjandi í umræðunni, en til and- svara var flokksbróðir hans Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Ekki verður beinlínis sagt að ágreiningur hafi verið þeirra í millum um þessi mál, þar eð báðir sögðu Reykjavíkurflug- völl gríðarlega mikilvægan fyrir landsbyggðina og ferðaþjónustu í landinu. Undir lok umræð- unnar sagðist Árni Johnsen ekki hafa á tuttugu ára þingferli tekið þátt í jafn einróma utandag- skrárumræðu um nokkurt mál. Árni, sem er jafnframt formaður samgöngu- nefndar Alþingis, sagði við upphaf umræðunnar að fyrirhuguð kosning um hvort flugvöllurinn eigi að vera eða fara eftir árið 2016 yrði ekki til að auka vinarþel milli höfuðborgar og lands- byggðar. Hann sagði deiluna um flugvöllinn snúast um peninga og fólk; stillt væri upp verði á ákveðnum landskika og það látið ráða ferð- inni. Árni benti á að 460 þúsund farþegar færu um Reykjavíkurflugvöll á ári, þar af væru að- eins um 10% erlendir ferðamenn. Reykjavík hefði stórkostlegar tekjur af vellinum og 6-7 þúsund störf tengdust honum beint og óbeint. Kosningin stuðlar ekki að vinarþeli „Sú kosning sem stendur fyrir dyrum hjá Reykjavíkurborg er ekki til þess fallin að stuðla að vinarþeli meðal landsmanna í heild, hvorki landsbyggðarmanna eða höfuðborgarbúa,“ sagði Árni og benti á það forskot sem Reykja- víkurborg hefði fengið á landsbyggðina vegna ýmissa fjárfestinga samfélagsins, s.s. í menn- ingarstofnunum og sjúkrahúsum. Sagði hann að ekki ætti að þurfa að deila um stöðu og skyldu höfuðborgarinnar og íbúa hennar og af þeim sökum væri hjákátlegt að taka nú upp kosningu um framtíð flugvallarins. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, sagði að með atkvæðagreiðslunni næstkomandi laug- ardag væri ekki aðeins verið að kjósa um fram- tíð flugvallarins, heldur einnig framtíð og fram- vindu innanlandsflugs á Íslandi. Benti ráðherrann á að á næsta ári yrði að mestu lokið við endurbætur á Reykjavíkurflugvelli, en þær hefðu átt sér langan aðdraganda. Vísaði hann m.a. til bréfaskipta borgarstjóra og þáverandi samgönguráðherra, Halldórs Blöndals, árið 1996 þar sem samgönguráðu- neytið hefði áður en framkvæmdir við endur- bæturnar hófust kallað eftir upplýsingum frá borgaryfirvöldum um hvort uppi væru nokkur áform um annað en að standa við aðalskipulag borgarinnar um að framtíð innanlandsflugsins yrði áfram á Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýr- inni. Í svarbréfi borgarstjóra hefði verið stað- fest að í endurskipulagningu aðalskipulags væri ekki gert ráð fyrir breytingum í þessum efnum. Miðað að því að auka rými fyrir íbúðabyggð og atvinnustarfsemi Sagði hann að öll áform samgönguyfirvalda um framkvæmdir á Reykjavíkurflugvelli mið- uðu að því að auka rými fyrir íbúðabyggð og at- vinnustarfsemi á svæðinu en um leið að styrkja atvinnulíf í höfuðborginni í sessi með því að treysta stoðir innanlandsflugsins og ferðaþjón- ustunnar í landinu. Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Samfylk- ingarinnar sagði afar brýnt að allir landsmenn gerðu sér grein fyrir því, að þótt meirihluti Reykvíkinga kysi á laugardag að flugvöllurinn færi úr Vatnsmýrinni þýddi það ekki að innan- landsflugið yrði fært til Keflavíkur, eins og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefði hótað með óskammfeilni, eins og hún orðaði það. Að 16 árum liðnum kynni einhver staðsetn- ing, sem nú lægi ekki í augum uppi, að verða hagkvæmari og það væri lýðræðislegt að íbúar fengju að hafa áhrif á byggðaþróun í sínu bæj- arfélagi. Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður Vinstri grænna, sagði að umræða um skipulagsmál hefði oft einkennst af sleggjudómum og umræð- an um Reykjavíkurflugvöll væri því miður kom- in í sama farið. Sagði Kolbrún þjóðina hafa klúðrað tækifæri sem gefist hefði til að taka upp glaðlega og bjartsýna umræðu um skipulags- mál höfuðborgarinnar. Kenndi hún samgöngu- ráðherra um og sagði hann hafa heft sköpunar- mátt umræðunnar með einstökum þvergirðingshætti. „Eina ráðið er að láta sem við hvorki sjáum né heyrum í samgönguráð- herra,“ sagði Kolbrún og benti á að á sínum tíma hefði 450 manna þorp þurft að víkja fyrir flugvellinum. Þá hefðu íbúar ekki verið spurðir. Því væri tímabært að spyrja íbúana nú og raun- ar til fyrirmyndar. Aðrir þingmenn sem tóku til máls voru á einu máli um mikilvægi þess að Reykjavíkurflugvöll- ur yrði áfram í Vatnsmýrinni. Guðmundur Hall- varðsson þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði t.d. að Reykvíkinga skiptu miklu máli þau störf sem flugvellinum tengdust og efnahagsleg áhrif af honum. Hann sagði að með sameiginlegu átaki Flugmálastjórnar og borgaryfirvalda væri auð- velt að laga flugvöllinn að borginni og efla þann- ig höfuðborgina. Kristján L. Möller þingmaður Samfylking- arinnar sagðist vonast til að Reykvíkingar sam- þykktu að hýsa flugvöllinn áfram en jafnframt yrði að taka tillit til óska borgaryfirvalda um aukið landrými. Hann sagði að með tilliti til ná- lægðar við sjúkrahúsin lægi í augum uppi að flugvöllurinn væri best staðsettur þar sem hann er nú. „Landsbyggðin þarf sterka og öfluga höf- uðborg og höfuðborgin þarf sterka og öfluga landsbyggð,“ sagði Kristján. Ísólfur Gylfi Pálmason þingmaður Fram- sóknarflokksins sagðist vonast til að Reykvík- ingar greiddu atkvæði um að hafa fluvöllinn þar sem hann er nú. Undir það tók flokksbróðir hans Jón Kristjánsson. Tómas Ingi Olrich þing- maður Sjálfstæðisflokks sagði að ef innanlands- flugið yrði flutt til Keflavíkur væri samgöngu- málum þjóðarinnar stefnt marga áratugi aftur í tímann. Það þýddi versnandi flugsamgöngur sem myndu gengisfella Reykjavík sem þjón- ustumiðstöð fyrir landið. Undir lok umræðunnar sagðist samgöngu- ráðherra ekki hafa gert annað í þessu máli en sinna því hlutverki sínu að framkvæma ákvarð- anir sem Alþingi sjálft hefði tekið í flugmála- áætlunum. Það væri niðurstaða sín eftir um- ræðuna að þjóðin ætti að taka höndum saman á þeim nótum, sem hann hefði áður lagt til, að ná fram sátt um nýtt og endurskipulagt flugvall- arsvæði í Vatnsmýrinni með meira rými og betra umhverfi. Segir kosið um framtíð innanlands- flugs hér á landi Þingmenn landsbyggðarinnar voru áberandi í umræðu utan dagskrár um framtíð Reykjavíkurflugvallar á Al- þingi í gær. Flestir lögðu þunga áherslu á að völlurinn yrði áfram í Vatnsmýrinni, en þó fögnuðu sumir atkvæðagreiðslu um þessi mál. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra um atkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar GUÐRÚN Ögmundsdóttir, sem var málshefjandi umræðunnar, sagðist ekki vilja gera efni dómsins sem slíkt að umtalsefni, því ekki skuli deilt við dómarann. Í þessu máli hafi lýsingar barnsins, sem studdar voru öðrum sönnunargögnum og sérfræðiálitum, ekki verið tekin gild og slíkur dómur gefi tilefni til að endurskoða þau lög sem um meðferð þessara mála gilda í því skyni að tryggja réttarstöðu barna. Hins vegar minnti hún á að sýknudómum sé sjaldan áfrýjað til Hæstaréttar, enda þótt hún telji fulla ástæðu til þess í umræddu til- felli. „Það er heldur ekki hjá því komist að hugsa um sönnunarbyrði og sönn- unargögn þegar kynferðisbrotamál eru annars vegar. Hafa þær ekkert að segja? Dugar bara að segja nei þegar í dóminn er komið?“ spurði hún. Guðrún taldi jafnræðis ekki gætt við málsmeðferð þegar sum börn eru yfirheyrð í Barnahúsi en önnur í dómsal. „Bæði börnin eru sex ára, annað úr austurbæ hitt úr Vesturbæ. Ekki getur þetta snúist um að sum börn séu heppin en önnur óheppin, allt eftir hvoru megin hryggjar þau lenda í yfirheyrslum,“ sagði hún og benti á að þetta væru afar svipuð mál, sama sorgin, sama reynslan. Jafnræðisregla stjórnarskrárinnar hljóti líka að ná til þessara barna. Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra vísaði til þess í máli sínu að 1. maí 1999 hefðu gengið í gildi laga- breytingar um skýrslutökur af börn- um í kynferðisbrotamálum. Eftir setningu laganna hafi skýrslutökur farið fram bæði í Barnahúsi og í hús- næði Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem sérstaklega hefur verið innrétt- að húsnæði sem vel henti í slíkum til- vikum. Stefnt sé að því að slíkt hús- mæði verði einnig innréttað við aðra héraðsdómstóla. Nefndi hún að skiptar skoðanir hafi verið um hvort húsnæðið henti betur og megi segja að dómurum hafi sýnst eitt um það en aðstand- endum Barnahússins annað. Reynd- in hafi orðið sú að hvort tveggja hús- næðið var notað og fyrstu fimmtán mánuðina frá því lögin tóku gildi hafi verið teknar 111 skýrslur af börnum fyrir dómi sem meintum brotaþolum í kynferðisbrotamálum. Skýrslu- taka, einkum af yngri börnum, fór þá fram 60 sinnum í Barnahúsinu en 51 sinni, einkum af eldri börnum, í hús- næði dómstóla. Upplýsti dómsmálaráðherra að bæði hún og félagsmálaráðherra hafi komið að málinu og einnig formaður dómstólaráðs og niðurstaðan hafi orðið vinnureglur dómstóla í lok september, þar sem gert sé ráð fyrir notkun Barnahúss. Dómsmálaráðherra sagðist vera sammála málshefjanda um það að kynferðisafbrotamál gegn börnum væru viðkvæm og vandmeðfarin mál. „Það er ákaflega mikilvægt að gætt sé hagsmuna barna, ekki síst í kynferðisbrotamálum,“ sagði hún. Mætti ekki í héraðsdómi þrátt fyrir úrskurð Hæstaréttar „Ágreiningurinn um ágæti skýrslutökuaðstöðu varð til þess að í því máli sem verið hefur í fréttum nú síðustu daga var 8. september sl. kveðinn upp úrskurður í Héraðs- dómi Reykjavíkur gegn andmælum réttargæslumanns barnsins að skýrslutaka af því skyldi fara fram í húsnæði Héraðsdóms en ekki í Barnahúsi eins og réttargæslumað- urinn vildi. Var sá úrskurður stað- festur í Hæstarétti eins og fram kemur í umræddu máli lauk ekki deilunni um skýrslutökustað. Barnið mætti ekki í héraðsdómi til skýrslu- gjafar og dómurinn vildi ekki nota aðstöðuna í Barnahúsi í þessu máli. Ég vil taka það fram að embætti lög- reglustjórans í Reykjavík átti á þess- um tíma fund með foreldrum barns- ins, sem við sögu kemur í málinu, og réttargæslumanni þess og skýrði þar fyrir þeim afleiðingar þess ef neitað yrði að barnið mætti til skýrslutöku í húsnæði Héraðsdóms Reykjavíkur. Einnig var höfð milli- ganga um að þau hittu dómarann og skoðuðu húsnæði dómstólsins sem útbúið er sérstaklega í þessu skyni. Engu að síður varð niðurstaðan sú sem fram kemur í dómnum.“ Sólveig sagði að fimm kynferðis- brotamál af þessu tagi hefðu komið upp á þessu ári og skýrslutaka í þeim öllum hafi farið fram í Barnahúsinu. Aðdragandi dómsins eldri en samþykkt dómstólaráðs „Sá dómur sem er kveikjan að þessari umræðu á sér aðdraganda sem er eldri en samþykkt dómstóla- ráðs. Þetta er héraðsdómur sem ef til vill verður áfrýjað en ég hvorki get né vil meta meginefni hans, sekt eða sakleysi þess sem sökum er bor- inn,“ sagði hún og bætti því við að hún vilji trúa því að sú deila um notk- un Barnahússins sem komi fram í dóminum muni ekki endurtaka sig í síðari málum af svipuðu tagi. Hún sagðist telja að samnýta eigi aðstöðu og sérfræðiþekkingu þar sem því verði við komið en það virðist nú vera gert og því væri hún treg til að trúa því að um slíkt þurfi beinlínis að mæla fyrir með sérstakri lagasetn- ingu. Hins vegar benti hún á að heildarendurskoðun standi yfir á lögunum um meðferð opinberra mála og rétt sé að skoða málið í því samhengi. „Það er auðvitað fyrir öllu að menn leggist á eitt um að tryggja hagsmuni og velferð barnanna og að friður ríki í þessum málum. Réttar- staða barna þarf að vera trygg og ég trúi því að hún sé það í þessu landi,“ bætti hún við. Þeir þingmenn aðrir sem tóku þátt í umræðunni lýstu allir yfir áhyggj- um sínum af málinu en fögnuðu um leið þeirri þróun sem orðið hefur að undanförnu með aukinni notkun Barnahúss til skýrslutöku. Meðal þeirra var Páll Pétursson félags- málaráðherra sem sagði þó sorglegt að héraðsdómarar hafi ekki nýtt sér aðstöðu barnahúss í enn meira mæli. Hann lagði áherslu á að fyrrgreint mál hafi komið upp áður er hann og dómsmálaráðherra funduðu með dómsmálaráði. „Eftir fundinn hefur notkun Barnahúss stóraukist og þar eru nú 35 börn í meðferð,“ sagði hann. Ráðherra upplýsti einnig að hann hefði látið kanna það sérstaklega að sá héraðsdómari sem kvað upp dóm í fyrrgreindu máli hafi hins vegar aldrei sett dómþing í Barnahúsi. Ögmundur Jónasson, Vinstri- grænum, benti á að í umræddu máli hefði barnið ekki komið fyrir héraðs- dóm að ráði barnayfirvalda og verj- andi ákærða hefði ekki gert athuga- semdir við það. Samt sem áður sé ekki tekið tillit til framburðar barns en neitun ákærða tekin til greina þótt hann hafi áður við yfirheyrslu játað á sig ósæmilega hegðun. „Það er sorglegra en tárum taki að ekki sé tekin gild skýrsla sem tekin er í Barnahúsi til að nota í málflutn- ingi vegna ákærumáls þar sem korn- ungt barn á í hlut,“ sagði hann. Nýting Barnahúss hefur stóraukist Guðrún Ögmundsdóttir og Jóhann Ársælsson. Skýrslutökur af börnum vegna kynferð- isbrota voru ræddar utan dagskrár á Al- þingi í gær. Tilefni umræðnanna var nýleg- ur sýknudómur héraðsdóms yfir karlmanni er sakaður var um kynferðisbrot gegn ungri stjúpdóttur sinni. Sólveig Pétursdóttir og Páll Pétursson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.