Morgunblaðið - 14.03.2001, Blaðsíða 60
60 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í VIKUNNI sem leið var ég að horfa á
Ríkissjónvarpið, eins og gengur og ger-
ist, og kom ég inn í miðjan þáttinn OK.
Jújú, það var umræða í gangi í þætt-
inum um félagslíf ungmenna úti á landi
og hvað er hægt að gera til að bæta
aðstöðuna. Þetta er alveg ferlega
þreytt umræðuefni í unglingasjón-
varpi. Þessi ungmenni virðast hafa þörf
fyrir að blaðra um þetta í sjónvarps-
þátt, sem enginn horfir á, svo bíða þau
spennt í sínum bæjum úti á landi eftir
að einhver bæjarstjóri reisi glæsilega
félagsmiðstöð fyrir þau. En hver færi
að fjármagna félagsmiðstöðvar fyrir
krakka sem segjast fara í partí og
drekka um helgar þegar ekkert er að
gera? Það er kannski ekki margt í boði
fyrir þau, en ekki virðist hugmynda-
flugið vera uppá marga fiska.
En eins og áður sagði, var ég að
horfa á þennan þátt OK. Mér finnst
þessi þáttur vægast sagt leiðilegur og
hefði ég haft meira gaman af því að
leita að bílastæðum í miðbænum en
að horfa á OK. Ég horfði á spurn-
ingakeppni, þar sem þekktir foreldr-
ar koma með börnin sín og fá að vita
hversu vel þau í raun þekkja börnin
sín. Það getur verið erfitt fyrir for-
eldra að vita allt því börn eru alltaf að
skipta um skoðanir á hlutunum.
Nema hvað að svo eru refsingar
fyrir hvert rangt svar og eigur fólks
eyðilagðar! Þetta finnst þessum
þáttastjórnendum rosalega fyndið og
gaman, enda flissa þær eins og tvær
13 ára gelgjur. Þegar skíði Ólafar
Rúnar voru skemmd með sprey-lími
og sagi var mér nóg boðið! Hvaða öm-
urlegi aulahúmor er þetta? Að Harpa
Rut Hilmarsdóttir og Steinunn Þór-
hallsdóttir, konur á þessum aldri
(skilst mér 22 og 29 ára), hafi ekki
meiri þroska en svo! Þetta finnst þeim
rosalega fyndið, að ýta undir
skemmdarverk á eigum annarra, eins
og það sé eitthvað í lagi?? Svo er fólk
að furða sig á ungmennum í tengslum
við ofbeldi og skemmdarverk á Ís-
landi. Ríkissjónvarpið er fjölmiðill,
ungt fólk mótast af honum og öðru
áreiti. Hver veit nema þetta verði orð-
ið svo að krakkar í grunnskóla fara í
svona leiki. „Ef þú veist ekki svarið,
þá eru eigur þínar skemmdar.“ Hvað
gerir Ríkissjónvarpið þá?! Hvar er
fræðsluefnið? Hvar eru þættir tengd-
ir jákvæðri ungmennahreyfingu,
menningu og öðru uppbyggjandi
efni? Ég man þegar það var þáttur
sem hét Kolkrabbinn, almennilegt
efni þar sem óþekktir listamenn og
annað ungt fólk gerði góða hluti. Svo
kemur eitthvað það sem Harpa og
Steinunn vilja meina að sé „nálgun
ungmenna með óvenjulegum hætti“.
Vissulega er þetta óvenjulegt, en
einnig óvenju óskipulagt og leiðinlegt.
Ég veit ekki hvaða einkahúmor er í
þessum þáttum, hann kemur sér illa
til skila og þarf mikla þolinmæði til að
horfa á heilan þátt án þess að skipta
um stöð. Mér blöskrar við tilhugs-
unina að þetta skuli vera framtíð rík-
issjónvarpsins, innantómir og glærir
unglingaþættir með akkúrat engum
jákvæðum boðskap. Það var fínt að
horfa á Jón M og stelpuna sem var að
temja hrossin, en allt sem þátta-
stjórnendur tóku sér fyrir hendur í
þættinum mátti hreinlega klippa úr.
Ég spyr, erum við virkilega að
borga fyrir svona sjónvarpsefni sem
er beint til ungmenna sem hafa fram-
tíð Íslands í höndum sér? Ég segi nei
takk og ef þær geta verið með þátt í
sjónvarpinu þá getur hver sem er það,
ég sé ekki að þurfi neina hæfileika til!
Ef einhver þarna úti er ósammála
mér, vil ég endilega að skrifað sé um
það í Morgunblaðinu, því mig langar
rosalega mikið til að vita hvað er
svona jákvætt við þennan þátt.
GUÐNÝ S. BJARNADÓTTIR,
listakona og ljóðskáld,
Hnjúkaseli 4.
Er ég að borga fyrir
þennan viðbjóð?
Frá Guðnýju S. Bjarnadóttur:
KOSNING um veru eða brottför
Reykjavíkurflugvallar hefur farið í sér-
kennilegan farveg svo ekki sé meira
sagt. D-listinn hef-
ur, í vandræðalegri
leit sinni að stjórn-
arandstöðumálum,
kosið að vinna gegn
skipulagshagsmun-
um Reykvíkinga
með því að gera
kosninguna sjálfa
tortryggilega.
Ástæða þess að
mikilvægt er að Reykvíkingar taki af-
stöðu nú um framtíð flugvallar er sú,
að það er eina leiðin til þess að sam-
gönguráðherra skoði aðra kosti.
Hann hefur sjálfur gefið út þá barna-
legu yfirlýsingu, að lítt athuguðu
máli, að fari flugvöllurinn verði innan-
landsflug flutt til Keflavíkur. Slíkar
hótanir eiga Reykvíkingar að láta
sem vind um eyru þjóta. Markmið
samgönguráðherra er að þessi kosn-
ing mistakist. Fari svo er hann tilbú-
inn að leggja 3 til 4 milljarða í flugvall-
armannvirki til að festa þennan
kalblett í ásjónu borgarinnar í sessi.
Samgönguráðherra hefur hingað
til ekki sýnt mikinn vilja til að leggja
fé í samgöngubætur í borginni, en
Reykvíkingar geta bókað að fjáraust-
ur til að tryggja áframhaldandi veru
flugvallar í Vatnsmýrinni mun ekki
vefjast fyrir honum. Eina leiðin til að
koma í veg fyrir slíkt er að kjósa gegn
veru flugvallar í Vatnsmýrinni. Áróð-
ur D-listans um að sniðganga kosn-
ingarnar vinnur því beinlínis gegn
lýðræði borgarbúa, möguleikum
þeirra til að hafa áhrif á umhverfi sitt
og móta framtíð sína.
Það er sorgleg skammsýni sam-
gönguráðherra og borgarfulltrúa D-
listans að reyna að spilla möguleikum
borgarbúa til að kjósa um framtíð
sína. Ég skora á alla kosningabæra
Reykvíkinga að tjá vilja sinn í kom-
andi kosningum og tryggja með því
að ákvörðunin verði í höndum borg-
arbúa en ekki núverandi yfirvalda
samgöngumála.
HAFLIÐI HELGASON,
framkvæmdastjóri.
Völlur á ráðherra
Frá Hafliða Helgasyni:
Hafliði
Helgason