Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 31

Morgunblaðið - 14.03.2001, Page 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 31 BANDALAG sjálfstæðra leikhúsa hefur sent frá sér eftirfarandi álykt- un: „Í nóvember 1999 sendi Bandalag sjálfstæðra leikhúsa (SL) inn erindi til Samkeppnisráðs þess efnis að ráð- ið tæki til meðferðar ójafna sam- keppnisstöðu sjálfstæðu leikhúsanna og sviðslistahópanna, og þeirra leik- húsa sem njóta verulegs stuðnings ríkis og borgar. Samkeppnissráð hef- ur nú komist að niðurstöðu varðandi erindi þetta og fagnar SL mjög því áliti sem þar kemur fram. Í áliti ráðs- ins segir meðal annars: “… sam- keppnisráð beinir þeim tilmælum til menntamálaráðherra að hann beiti sér fyrir endurmati á opinberri aðstoð við leikhúsrekstur. Leitað verið leiða til þess að samræma betur en nú er hin menningarlegu og listrænu mark- mið sem að er stefnt og markmið samkeppnislaga um að opinberir styrkir raski ekki samkeppni á leik- húsmarkaði. Meðal möguleika sem þar gætu komið til skoðunar væri að opinber fjárstuðningur til leiklistar yrði í meira mæli í formi styrkveit- inga til einstakra verkefna sem valin yrðu af óháðum aðilum á samkeppn- isgrundvelli, þar sem bæði sjálfstæð og opinber leikhús gætu leitað eftir fjármögnun, en í minna mæli í formi styrkja til reksturs tiltekinna stofn- ana og launa fastráðinna starfsmanna hjá þeim. Með því móti væri hugs- anlegt að auka jafnræði meðal keppi- nauta á leikhúsmarkaði, án þess að listrænum markmiðum yrði fórnað.“ Með þessum orðum er stutt kröft- uglega við kröfu Bandalags íslenskra listamanna, Leiklistarsambands Ís- lands og SL um stóraukinn stuðning ríkisins við starfsemi sjálfstæðra leik- húsa og sviðslistahópa. Segja má að Reykjavíkurborg hafi þegar svarað breyttum aðstæðum með því að hrinda í framkvæmd áætlun um auk- inn stuðning við sjálfstæðu leikhúsin og sviðslistahópana á næstu þremur árum. Í niðurstöðu samkeppnisráðs kem- ur fram að ekki sé tilefni til íhlutunar í þessu máli. Byggir sú niðurstaða meðal annars á því að fjárveitingar ríkisins til leikhúsmála styðjast við sérlög og samkvæmt samkeppnislög- um „getur samkeppnisráð ekki gripið til aðgerða gegn athöfnum opinberra aðila sem kunna að hafa skaðleg áhrif á samkeppni þegar þær styðjast við sérlög sem heimila slíkar athafnir“. Er því ljóst að samkeppnisyfirvöld hafa ekki heimild til íhlutunar um fjárframlög ríkisins sem byggjast á leiklistarlögum. Menntamálaráðherra hefur nú til skoðunar í ráðuneyti sínu tillögur frá Bandalagi íslenskra listamanna og SL um aukinn stuðning á komandi ár- um. Bandalag sjálfstæðra leikhúsa er bjartsýnt á að álitsgerð Samkeppn- isráðs styðji við þá ákvörðun að ráðu- neytið muni bregðast ákveðið við og auka stuðning sinn verulega og til samræmis við aukið mikilvægi sjálf- stæðu leikhúsanna og sviðslistahóp- anna. Bandalag sjálfstæðra leikhúsa hef- ur um allangt skeið barist fyrir rétt- látum og sanngjörnum stuðningi op- inberra aðila við starfsemi sjálfstæðra leikhúsa og sviðslista- hópa. Er þar litið til þess að starfsemi þessara leikhúsa og hópa hefur marg- faldast hin síðari ár, bæði hvað varðar umfang starfsins sem og aðsókn al- mennings. Stuðningur við þessa bar- áttu hefur verið víðtækur innan sam- félags leiklistarfólks og meðal annarra listamanna. Í því sambandi má nefna að bæði Leiklistarsam- bands Íslands og Bandalag íslenskra listamanna sendu frá sér ályktun á síðasta ári þess efnis að verulega þyrfti að hækka styrki til starfsemi sjálfstæðu leikhúsanna og sviðslista- hópanna. Bandalag íslenskra lista- manna sendi einnig frá sér skýrslu inn til menntamálaráðuneytisins í janúar síðastliðnum, þar sem sett er fram hugmynd að stefnumörkun um stóraukinn stuðning við starf sjálf- stæðu leikhúsanna og sviðslistahóp- anna á næstu árum. Þessi hefur enda verið skoðun leiklistarfólks til margra ára, samanber ályktanir Leiklistar- ráðs frá fyrri árum.“ Bandalag sjálfstæðra leikhúsa sendir frá sér ályktun Bjartsýnt á aukinn stuðn- ing menntamálaráðherra KAFFILEIKHÚSIÐ í Hlaðvarp- anum býður til einleikjaveislu dag- ana 18.–28. mars. Fluttir verða allir einleikirnir úr einleikjaröð Kaffi- leikhússins frá liðnum vetri, auk einleikjanna „Ég var beðin að koma...“ með Sigrúnu Sól Ólafs- dóttur og „Þá mun enginn skuggi vera til“ með Kolbrúnu Ernu Pét- ursdóttur. Auk þess verður leik- lestrarkvöld þar sem einleikir, sem ekki hafa verið fluttir fyrr, verða lesnir og opinn umræðufundur þar sem einleikjaformið verður til um- fjöllunar. Á sunnudag kl. 15 verður á fjöl- unum barnaeinleikurinn Stormur og Ormur eftir Barbro Lindgren og Ceciliu Torudd. Halla Margrét Jó- hannesdóttir sér um leikinn. Mánu- daginn 19. mars og fimmtudaginn 22. mars kl. 21 verður sýnt leikritið Þá mun enginn skuggi vera til með Kolbrúnu Ernu Pétursdóttur. Þriðjudaginn 20. mars kl. 21 er á dagskrá Geðveikur svartur gam- aneinleikur – Háaloft eftir Völu Þórsdóttur sem jafnframt fer með einleikinn. Föstudaginn 23. mars og laugardaginn 24. mars kl. 21 er ein- leikurinn Ástareinleikur að vori: Bannað að blóta í brúðarkjól eftir Gerði Kristnýju. Einleikari er Nanna Kristín Magnúsdóttir. Laug- ardaginn 24. mars kl. 15 verður umræða um einleikjaformið. Frum- mælendur eru Soffía Auður Birg- isdóttir, Halldóra Friðjónsdóttir og Vala Þórsdóttir. Sunnudaginn 25. mars kl. 15 verður sýndur helgiein- leikurinn Missa Solemnis eftir Michael Tourniere og Kristiinu Hurmerinta. Einleikari er Jórunn Sigurðardóttir. Kl. 21 verður sýnd- ur einleikurinn Ég var beðin að koma... með Sigrúnu Sól. Leikritið verður einnig sýnt miðvikudaginn 26. mars kl. 21. Þriðjudaginn 27. mars kl. 21 verður á fjölunum ein- leikurinn Bersögull sjálfsvarn- areinleikur – Eva eftir Liselotte Holmene og Irene Lecomte. Guð- laug María Bjarnadóttir leikur. Dagar ein- leikjanna í Kaffileik- húsinu Morgunblaðið/Jim Smart Einleikjakonurnar í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum: Vala Þórsdóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Halla Margrét Jóhannsdóttir, Guðlaug María Bjarnadóttir og brúðarmærin Nanna Kristín Magnúsdóttir. ÞAÐ eru tvær aðalpersónur í þessu nýja útvarpsleikriti Krist- jáns Hreinssonar, hinn settlegi útvarps- maður Marinó og Sól- rún Pétursdóttir, sem ber listamannsnafnið Solla. Solla er á mörkum þess sem eðlilegt getur talist í daglegri hegðun, hún er ör og ákveðin í að koma á framfæri hug- mynd sinni um að koma skikki á jarð- arfarir landsmanna og kenna þeim hvern- ig á að haga sér við slík tækifæri – og auðvitað með fulltingi Marinós fyrir hönd Ríkisútvarpsins. Það er hyldjúp gjá á milli ákefðar hennar og sannfæringar í frábær- um flutningi Eddu Arnljótsdóttur og efasemda og hæglætis Marinós sem Arnar Jónsson túlkaði með fáum og meistaralegum dráttum. Bestur var samt Árni Pétur Guð- jónsson sem var svo skemmtilega ósvífinn í lýsingu sinni á jarðarför- inni og í viðtölum við jarðarfar- argesti. Aðrir leikarar stóðu sig mjög vel í minni hlutverkum: Hanna María Karlsdóttir sem eig- inkona Marinós sem stjórnar hon- um með harðri hendi og Valur Freyr Einarsson og Steindór Hjörleifsson sem forviða jarðarfar- argestir. Kristján Hreinsson hefur áður skrifað leikrit, sögur, söngtexta, ljóð, greinar og tækifærisvísur. Fyrir höfundi virðist vaka að bregða upp í þessu stutta útvarps- leikriti smámynd af stúlku sem reynir á mjög sérstakan hátt að vinna úr sorg sinni. Honum tekst þetta ætlunarverk sitt mæta vel, sérstaklega hvernig hann notar tungumálið sem verkfæri til að meitla skýra mynd af sérhverri persónu. Í hljóðmynd verksins er notuð mjög falleg tónlist. Þessi áhrifa- ríku stef virðast gefa til kynna að hér sé á ferðinni spennuleikrit – að hlustandinn eigi von á einhverri skelfilegri afhjúpun sem reki botninn í frásögnina af hinni undarlegu hegðun stúlkunnar. Skýringin kemur í lokin en þessi síend- urtekna krefjandi tón- list ber einfaldan söguþráðinn ofurliði. Annars er hljóðmynd- in einstaklega spenn- andi og vel unnin, at- riðin vel afmörkuð og möguleikar miðilsins notaðir til hins ýtr- asta. Kristín Jóhannesdóttir gætir þess vandlega að leikurinn sé hóf- stilltur til þess að fyndnin í verk- inu skyggi ekki á hinn harmræna boðskap. Aftur á móti hefði hún mátt velja tónlist sem hæfði anda verksins betur – hér reynist þetta fallega stef einum of dramatískt fyrir viðfangsefnið. Að vinna úr sorginni LEIKLIST Ú t v a r p s l e i k h ú s i ð Höfundur: Kristján Hreinsson. Leikstjóri: Kristín Jóhannesdóttir. Hljóðvinnsla: Björn Eysteinsson. Leikendur: Arnar Jónsson, Árni Pétur Guðjónsson, Dóra Þórhalls- dóttir, Edda Arnljótsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, María Sigurð- ardóttir, Steindór Hjörleifsson og Valur Freyr Einarsson. Frumflutt laugardag 10. mars; endurtekið fimmtudag 15. mars. BESTA JARÐARFÖRIN Kristján Hreinsson Sveinn Haraldsson TÓNLEIKAR til styrktar Neist- anum, styrktarfélagi hjartveikra barna, verða í Langholtskirkju annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Fram koma átta kórar er syngja hver í sínu lagi og í loka- atriði tónleikanna sameinast þeir og flytja verkið Á páskum eftir Sigurð Bragason söngstjóra. Verk- ið er fyrir tvo kóra, tvöfaldan karlakvartett, tvær barnaraddir og fjóra einsöngvara. Einsöngvararn- ir eru Guðbjörn Guðbjörnsson, Jó- hanna Guðríður Linnet, Kristín Sædal Sigtryggsdóttir og Magnús Ingvar Torfason. Undirleikari er Bjarni Þ. Jónatansson. Allur ágóði rennur til hjart- veikra barna og kostar miðinn 1.200 kr. Morgunblaðið/Golli Einsöngvarar og kórar æfa dagskrána í Langholtskirkju. Í forgrunni eru söngvararnir Jóhanna Guðríður Linnet, Kristín Sædal Sigtryggs- dóttir, Guðbjörn Guðbjörnsson og Magnús Ingvar Torfason. Tónleikar til styrktar hjartveikum börnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.