Morgunblaðið - 14.03.2001, Side 12
VEÐURBLÍÐAN á höfuðborg-
arsvæðinu hefur yljað mörgum
borgarbúanum þessa síðustu góð-
viðrisdaga. Grallararnir sem ljós-
myndari Morgunblaðsins rakst á
niðri á ylströnd Nauthólsvík-
urinnar kunnu vel að meta óvænt
forskot á sumarið og skipulögðu
veglegar sjóorrustur í flæðarmál-
inu. Þetta var líklega síðasta tæki-
færi til slíkra leikja í bili þar sem
Veðurstofan spáir hægri austlægri
eða breytilegri átt, með svalara
veðri. Hitinn verður á bilinu 1 til 6
stig.
Sjóorrust-
ur á yl-
ströndinni
Morgunblaðið/Vilhelm Gunnarsson
FRÉTTIR
12 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
75 SKIPSTJÓRAR sendu í gær-
kvöldi frá sér yfirlýsingu þar sem
skorað er á samninganefndir sjó-
manna og útgerðarmanna að ná sátt-
um og ljúka gerð kjarasamnings áður
en boðað verkfall skellur á. Yfirlýs-
ingin í heild sinni er svohljóðandi:
„Vegna yfirvofandi verkfalls sjó-
manna, sem verið hafa samningslaus-
ir í meira en eitt ár, viljum við und-
irritaðir skipstjórar skora á
samninganefndir sjómanna og út-
gerðarmanna að nýta sér þann
skamma tíma sem er fram að boðuðu
verkfalli til að vinna af heilindum við
að ná samkomulagi og ljúka gerð
kjarasamnings. Málið er stærra en
svo að hægt sé að draga lappirnar
endalaust. Einnig viljum við skora á
þá fjölmörgu útgerðarmenn sem við
vitum að hafa fullan vilja til að gera
raunhæfan kjarasamning, að láta
ekki fámennan hóp valdamikilla
manna innan LÍÚ neyða sig út í
óþarfa átök við sjómenn með þeim al-
varlegu afleiðingum sem slíkt getur
haft í för með sér fyrir þá sjálfa, fyrir
sjómenn, fiskverkafólk og þjóðarbúið
í heild.
Samantekt þessi var unnin af fáum
úr hópnum á einni dagstund með
óformlegum hætti. Nöfn skipstjór-
anna 75 eru valin af handahófi og bera
undirtektir vott um hug manna í við-
komandi máli. Án efa hefði verið hægt
að þrefalda undirskriftalistann án
mikillar fyrirhafnar. Tíminn er hins
vegar að renna út og látum við því hér
staðar numið að sinni.“
Undir yfirlýsinguna skrifa:
Haraldur Sverrisson - Suðurey
VE, Stefán Guðmundsson - Aron ÞII,
Ólafur Óskarsson - Friðrik Sigurðs-
son ÁR, Sindri Óskarsson - Frár VE,
Alexander Hallgrímsson - Fróði ÁR,
Einar Guðnason - Jón á Hofi ÁR, Jón-
as Sigmarsson - Hafnarröst ÁR, Ósk-
ar Kristjánsson - Háey VF, Sigurður
G. Sigurjónsson - Smáey VE, Aðal-
steinn Einarsson - Hringur GK, Stef-
án Einarsson - Aðalbjörg RE, Sigurð-
ur Ólafsson - Aðalbjörg II RE,
Kolbeinn Marinósson - Albatros GK,
Guðbjartur Ö. Einarsson - Arnar ÁR,
Þórhallur Óskarsson - Arney KE,
Sigurmundur Arinbjörnsson - Ála-
borg ÁR, Gísli Unnsteinsson - Tjald-
ur SH, Viðar Björnsson - Ársæll SH,
Hannes Haraldsson - Baldur VE,
Svavar Ágústsson - Rúna RE, Hall-
grímur Guðmundsson - Happasæll
KE, Vilhelm Henningsson - Hásteinn
ÁR, Ármann Stefánsson - Jón Gunn-
laugs GK, Halldór Þ. Gestsson -
Kristrún RE, Jón B. Árnason - Núp-
ur BA, Ægir Ármannsson - Ófeigur
VE, Guðmundur S. Halldórsson -
Reykjaborg RE, Guðmundur S. Jóns-
son - Sigurfari GK, Oddgeir Ísaksson
- Sjöfn EA, Ólafur Sigurðsson - Sól-
rún EA, Brynjar Kristmundsson -
Steinunn SH, Guðmundur Gústafs-
son - Sæbjörg ST, Halldór K. Valdi-
marsson - Benni Sæm GK, Ómar Þor-
leifsson - Sigurborg SH, Jónas
Jónsson - Bervík SH, Hallgrímur
Guðmundsson - Bjarmi VE, Erlingur
K. Guðmundsson - Bjarni Gísla SF,
Jóhannes Héðinsson - Brimnes BA,
Benedikt P. Jónsson - Bjarmi BA,
Guðmundur Ársælsson - Brynjólfur
ÁR, Óskar Karlsson - Dalaröst ÞH,
Helgi Ágústsson - Danski Pétur VE,
Magnús Ríkharðsson - Drangavík
VE, Jens Brynjólfsson - Egill SH,
Örn Einarsson - Erling KE, Þor-
steinn Guðmundsson - Erlingur SF,
Arnþór E. Hermannsson - Sæþór
EA, Sigurjón Halldórsson - Farsæll
SH, Grétar Þorgeirsson - Farsæll
GK, Jónas Þ. Jónsson - Fjölnir GK,
Erling Pétursson - Freyja RE, Gísli
Jónsson - Freyr GK, Óli B. Björg-
vinsson - Gaukur GK, Jónas Jóhanns-
son - Geir ÞH, Valdimar G. Hafsteins-
son - Haförn VE, Agnar Guðnason -
Gjafar VE, Bergvin Oddsson - Glófaxi
VE, Pétur Sveinsson - María Péturs-
dóttir VE, Egill Þráinsson - Svein-
björn Jakobsson SH, Erlendur Þór-
isson - Guðrún Björg BA, Einar B.
Tómasson - Hafnarberg RE, Ólafur
Á. Sigurðsson - Haförn ÞH, Guðfinn-
ur Karlsson - Sæberg ÁR, Kjartan
Guðmundsson - Guðrún VE, Sveinn
Steinarsson - Gulltoppur ÁR, Örn
Ragnarsson - Hafdís SF, Jóhann
Kiesel - Hafnarey SF, Guðmundur Á.
Mattíasson - Hamar SH, Guðmundur
Þorkelsson - Sæfari ÁR, Steingrímur
Jóhannesson - Votaberg SU, Heiðar
Erlingsson - Þinganes SF, Guðbjart-
ur Jónsson - Gunnbjörn ÍS, Baldur
Birgisson - Trausti ÁR, Guðmundur
Guðlaugsson - Þórunn Sveinsdóttir
VE, Sveinn Valgeirsson - Byr VE.
Tíminn fram að boðuðu
verkfalli verði nýttur
BÆJARRÁÐ Húsavíkur telur að
ekki verði séð að innanlandsflug í nú-
verandi mynd eigi framtíð fyrir sér,
sé horft til þeirrar þróunar sem orðið
hafi á undanförnum misserum og
eigi eftir að halda áfram. Þetta kem-
ur m.a. fram í bókun bæjarráðs
vegna umræðna um staðsetningu
Reykjavíkurflugvallar. Þar kemur
jafnframt fram sú skoðun að flutn-
ingur á miðstöð flugsamgangna til
Keflavíkur myndi skapa lands-
byggðinni veruleg sóknarfæri í
ferðaþjónustu með beinni tengingu
millilandaflugs og innanlandsflugs
þar sem erlendir ferðamenn kæmust
beint á áfangastað án þess að þurfa
að fara um Reykjavík.
Reinhard Reynisson, bæjarstjóri
Húsavíkur, segir menn líta þannig á
málið að núverandi staðsetning flug-
vallar í Reykjavík grundvallist meðal
annars á þeirri meginforsendu að
auðvelda landsmönnum öllum að-
gengi að þeirri miðstöð stjórnsýslu,
menningar og öryggismála sem höf-
uðborgin eigi að vera.
„Ef flugvöllurinn á að vera slík
umferðarmiðstöð til og frá miðju
landsins í þeim skilningi, þá verður
auðvitað að vera umferð um þennan
völl, þ.e.a.s. að innlandsflug sé öflugt
og virkt í þeim skilningi að Íslend-
ingar fari í erindagjörðum til sinnar
höfuðborgar; hinn almenni borgari,
stjórnsýslan og forsvarsmenn í at-
vinnulífinu.“
Bæjarráð Húsavíkur telur hins
vegar að innanlandsflug eigi ekki
framtíð fyrir sér og verði ekki sam-
keppnisfært við bílinn verði það al-
farið rekið áfram á forsendum mark-
aðarins. Að sögn Reinhard sjá menn
ekki annað fyrir sér en að áætlunar-
flug muni snarminnka á næstu árum
frá stórum hlutum landsins og það
verði aðeins þeir staðir sem eigi allra
lengst og erfiðast aðgengi að höfuð-
borgarsvæðinu sem muni nota flugið
í einhverjum mæli.
Oft betra að aka alla leið
Reinhard segir að samkvæmt
þessu hljóti rökin fyrir því að taka
dýrmætt land í höfuðborginni undir
tiltölulega litla flugumferð að verða
veikari. Að sögn Reinhards hefur
ákveðinn hluti af þeirri umferð sem
fór með flugi frá Húsavík færst al-
farið yfir í bíla eftir að flugið lagðist
niður. Íbúar þurfa nú að aka í
klukkutíma til Akureyrar og bíða
þar eftir flugi og þá er oft spurning
hvort ekki sé einfaldlega betra að
aka alla leið og spara þar með tals-
verðan kostnað og hafa jafnframt
bílinn til afnota í borginni.
„Þannig að ýmsir þættir gera að
verkum að samkeppnisstaða flugsins
í núverðandi stöðu er mjög erfið. Síð-
an nýtir maður samskiptin á Netinu
miklu meira og finnur í raun og veru
að maður kemst miklu oftar hjá því
að fara en áður.“
Flugið ekki
samkeppn-
isfært við
bílinn
Bæjarráð Húsavíkur
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skipta- og iðnaðarráðherra mælti í
gær á Alþingi fyrir frumvarpi um
breytingu á lögum um stofnun
hlutafélaga um Landsbanka Íslands
og Búnaðarbanka Íslands þar sem
heimilt verður að selja hlutafé rík-
issjóðs í bönkunum.
Verði frumvarpið að lögum er
stefnt að því að sala á hlutafé rík-
isins í bönkunum tveimur hefjist ár-
ið 2001 og ljúki fyrir lok kjörtíma-
bilsins árið 2003. Þó er gerður sá
fyrirvari, að sala á hlutabréfum
hljóti ætíð að taka mið af aðstæðum
á hlutabréfamarkaði, öðrum þjóð-
hagslegum aðstæðum og þeim
mögulegu sölutækifærum sem fyrir
hendi eru hverju sinni.
Þá er þess getið að í samræmi við
stefnu ríkisstjórnarinnar um sölu
fyrirtækja í eigu ríkisins verði lögð
áhersla á sölu til almennings og til-
boðssölu. Einnig er gert ráð fyrir að
kannaður verði áhugi kjölfestufjár-
festa á kaupum á stórum hlut í
bönkunum. Í því sambandi verði
sérstaklega hugað að fjárfestingu
erlends fjármálafyrirtækis í bönk-
unum.
Fjörlegar umræður spunnust eft-
ir að viðskiptaráðherra hafði mælt
fyrir frumvarpinu. Lögðu þingmenn
Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs áherslu á andstöðu sína
gegn áformum um sölu ríkisbank-
anna, en þingmenn Samfylkingar-
innar lýstu þeirri skoðun sinni að að-
eins bæri að selja annan bankanna
eins og sakir stæðu á markaði.
Vilja fremur selja hlut ríkisins
í Búnaðarbankanum nú
Í máli Össurar Skarphéðinssonar,
formanns Samfylkingarinnar, kom
fram að flokkurinn telur að aðstæð-
um á fjármálamarkaði sé þannig
háttað um þessar mundir að ástæða
sé til þess að láta ýtrustu varúðar-
sjónarmið ráða ferðinni við sölu á
hlut ríkisins í viðskiptabönkunum.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um
sölu á Búnaðarbanka Íslands og
Landsbanka Íslands sé opinn tékki,
sem ekki tryggi dreifða eignaraðild,
virka samkeppni eða samráð við
starfsfólk.
Í yfirlýsingu sem þingflokkur
Samfylkingarinnar sendi frá sér
vegna málsins kom ennfremur fram
að alla þætti samkeppnisvæðingar
þurfi að undirbúa af ýtrustu kost-
gæfni og það sé óráð og óðagot að
selja hlut ríkisins í báðum bönkum á
sama tíma. Samkeppnisvæða eigi
annan bankann að fullu og meta
reynsluna af því ferli áður en tekin
verði ákvörðun um ráðstöfun á hlut
ríkisins í þeim banka sem þá verði
eftir í meirihlutaeign ríkisins. Sam-
fylkingin segist vilja knýja fram
ýmsar breytingar á frumvarpinu,
m.a. að einungis verði nú veitt heim-
ild til sölu á hlut ríkisins í Búnaðar-
banka Íslands. Þá vill flokkurinn að
10% af hlutabréfum ríkisins verði
dreift jafnt á milli fjárráða Íslend-
inga.
Ögmundur Jónasson, formaður
þingflokks Vinstri grænna, lýsti
hins vegar algjörri andstöðu flokks-
ins við áform ríkisins um sölu bank-
anna. Sagði hann að dreifð eignarað-
ild yrði best tryggð með núverandi
fyrirkomulagi, þ.e. að ríflega 280
þúsund Íslendingar eigi bankann.
Vísaði Ögmundur til reynslu ann-
arra þjóða, s.s. Norðmanna, og sagði
að öllum mætti ljóst vera að ríkið
yrði látið koma til bjargar, lentu
fjármálafyrirtækin í alvarlegum erf-
iðleikum. Sagði hann nauðsynlegt að
þessari ábyrgð ríkisins fylgdu jafn-
framt einhver völd.
Varaði hann jafnframt við því að
þröngur hópur áhrifaaðila í við-
skiptalífinu styrkti enn tök sín í ís-
lensku viðskiptalífi í kjölfar einka-
væðingar bankanna og lagði áherslu
á mikilvægi dreifðrar eignaraðildar.
Samfylkingin um sölu hlutafjár í Landsbankanum og Búnaðarbankanum
Óráð að selja hlut
ríkisins í bönkun-
um á sama tíma