Morgunblaðið - 14.03.2001, Side 13

Morgunblaðið - 14.03.2001, Side 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 13 Nýr áfangastaður í beinu flugi BERLÍN Litrík saga Í júní verða tvær vikuferðir til Berlínar, höfuðborgar sameinaðs Þýskalands, 2/6 og 9/6. Atburðir liðins tíma verða ljóslifandi á götum borgarinnar þar sem stríðandi fylkingar háðu uppgjör sitt við lok seinni heimstyrjaldar. Borginni var um tíma skipt með múr milli tveggja ríkja og ólíkra hugsjóna. Nú er öldin önnur og borgin iðar af lífi og stórhug. Ný Berlín tekur okkur opnum örmum. Fararstjóri verður Emil Örn Kristjánsson. Hann fylgir hópnum alla ferðina, liðsinnir og fræðir. Takmarkaður sætafjöldi tryggir áhugaverða ferð. Í boði eru ýmsar skoðunar- og kynnisferðir meðan á dvölinni stendur. Innifalið er flug með Flugleiðum, flugvallaskattar, gisting í 2ja manna herb. með baði, akstur milli flugvallar og hótels , morgunverður, skoðunarferð um Berlín og íslensk fararstjórn. Beint flug með Flugleiðum. Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar ehf. Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515, www.gjtravel.is netfang: outgoing@gjtravel.is Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu Marlene Dietrich, dóttur Berlínarborgar sem lagði heiminn að fótum sér með fágætri söngrödd. Eitt hundrað ára árstíð Marlene verður minnst með ýmsum hætti í Berlín, allt árið. Ferðir á næstunni: Til Prag 17/4 (7 dagar), 29/4 (8 dagar) og 6/5 (8 dagar) og 8 daga ferð í beinu flugi í ágúst. Skíðaferðir til Crans-Montana í Sviss um páskana. Noregsferð 18/6 til 28/6, Suður-Afríka 14/4 til 25/4 Höfðaborg/ Blómaleiðin. Góð fararstjórn og skoðunarferðir Ferðir 2/6 og 9/6, 7 dagar, 57.700 á mann RANNSÓKN lögreglunnar í Reykjavík á flugslysinu í Skerjafirði 7. ágúst síðastliðinn þegar eins hreyf- ils flugvél, TF-GTI, fórst og starf- semi flugrekandans, Leiguflugs Ís- leifs Ottesen, er á lokastigi. Er gert ráð fyrir að henni ljúki fljótlega eftir að niðurstaða Rannsóknarnefndar flugslysa liggur fyrir. Gert er ráð fyr- ir að það verði innan tveggja vikna. Fimm fórust með flugvélinni og einn liggur enn á sjúkrahúsi Að sögn Sigurbjörns Víðis Egg- ertssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns er beðið niðurstöðu Rannsókna- nefndar flugslysa. Segir hann rann- sókn lögreglunnar ljúka fáum dögum eftir að sú skýrsla kemur út. Þegar rannsókn lýkur verður ríkissaksókn- ara sent málið til ákvörðunar um framhald. Friðrik Þór Guðmundsson, faðir eins þeirra sem létust í flugslysinu, heldur því fram að Rannsóknarnefnd flugslysa hafi látið úr vörslu sinni hreyfil flugvélarflaksins, fylgihluti hans og logbók eða dagbók fyrir hreyfilinn. Kveðst hann hafa fengið staðfestingu danska trygginga- félagsins Codan fyrir þessu og jafn- framt fyrir því að Ísleifur Ottesen, eigandi Leiguflugs Ísleifs Ottesen, sem átti flugvélina sem fórst, hafi keypt hreyfilinn, fylgihlutina og dag- bókina. Fer fram á að ráðherra víki rannsóknarnefndinni Friðrik Þór tjáði Morgunblaðinu í gær að hann hefði sent samgöngu- ráðherra og lögreglustjóranum í Reykjavík þessar upplýsingar sínar og kvaðst myndu kæra þennan gjörning Rannsóknarnefndar flug- slysa. Kveðst hann einnig fara fram á að samgönguráðherra víki nefndinni frá í heild eða að minnsta kosti þeim sem tóku ákvörðun um það með formlegum hætti að láta hreyfilinn af hendi. Rannsóknarnefnd flugslysa hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þess- ara ásakana Friðriks Þórs og segir þar að nefndin hafi í vörslu sinni flak TF-GTI og alla þá hluti flugvélarinn- ar og hreyfilsins sem máli skipti fyrir rannsóknina. Þá segir í yfirlýsingu rannsóknarnefndarinnar: „Ennfrem- ur hefur rannsóknarnefndin í vörslu sinni öll gögn og dagbækur. Þar sem rannsóknarnefndin hafði strax full- rannsakað hreyfil flugvélarinnar inn- an viku frá því slysið varð og þar sem engir rannsóknarhagsmunir kröfð- ust þess að honum yrði haldið lengur lét hún hann af hendi í lok þeirrar viku. Rannsóknarnefndin hélt hins vegar eftir öllum íhlutum hreyfilsins og kerfa hans sem gátu gefið minnsta tilefni til frekari rannsóknar.“ Skúli Jón Sigurðarson, formaður Rannsóknarnefndar flugslysa, kvaðst ekki vilja tjá sig umfram það sem fram kemur í yfirlýsingunni en ítrekaði aðeins að nefndin hefði undir höndum öll nauðsynleg gögn, íhluti úr hreyflinum, frumbækur og annað sem þyrfti. Í lok yfirlýsingar Rann- sóknarnefndar flugslysa kemur fram að unnið sé nú að lokafrágangi skýrslunnar og að hún verði gefin út innan tveggja vikna. Telur nefndina vanhæfa Jón Ólafur Skarphéðinsson, faðir þess sem liggur á spítala eftir flug- slysið, sendi í gær frá sér yfirlýsingu vegna þess sem Rannsóknarnefnd flugslysa hefur upplýst að þar sem engir rannsóknarhagsmunir hafi krafist þess að hreyflinum yrði haldið lengur hafi nefndin látið hann af hendi viku eftir slysið. Í yfirlýsing- unni segir Jón Ólafur meðal annars: „Ég tel að þetta undirstriki enn frekar vanhæfni rannsóknarnefndar flugslysa til að sinna hlutverki sínu. Hvernig gat nefndin séð það fyrir, innan viku frá flugslysinu, að við frekari rannsókn þeirra eða annarra þyrfti ekki aðgang að hreyflinum? Um það gat nefndin ekkert vitað. Hún veit það ekki enn. Það á eftir að koma í ljós. Rannsókn hennar er ekki lokið, og ekki heldur opinberri rann- sókn lögreglu á málinu. Það hefur áð- ur komið fram að verulegir meinbug- ir hafa verið á rannsókn flugslysanefndar á umræddu slysi. Það kemur ekki í ljós fyrr en skýrsla rannsóknarnefndarinnar verður gerð opinber, hvort rannsókn hennar á hreyflinum hefur verið fullnægj- andi. Rannsóknarnefnd flugslysa verð- ur enn fremur að gera sér grein fyrir því að yfir stendur opinber rannsókn á tildrögum flugslyssins. Á grund- velli þeirrar rannsóknar verða hugs- anlega höfðuð skaðabótamál ef tilefni gefa til. Hreyfill flugvélarinnar kann að verða mikilvægt sönnunargagn í slíkum málarekstri. Um það getur rannsóknarnefnd flugslysa ekkert vitað í dag, hvað þá innan viku frá flugslysinu. Rannsóknarnefnd flug- slysa kann því að hafa fyrirgert mik- ilvægu sönnunargagni. Það kann að varða við lög.“ Þá segir Jón Ólafur í yfirlýsingu sinni að með framferði sínu hafi Rannsóknarnefnd flugslysa sýnt fórnarlömbum flugslyssins ótrúlega vanvirðingu. Telur hann nefndina hafa sýnt að hún sé ekki því hlutverki sínu vaxin að stuðla að auknu flug- öryggi í landinu í þágu allra lands- manna. Athugasemdir við störf Rannsóknarnefndar flugslysa Skýrsla um flugslysið í Skerjafirði væntanleg BROTTFARARTÍMAR flugvéla frá Íslandi verða frá 22. mars háðir samþykki svonefndrar Flæði- stjórnar evrópsku flugumferðar- stofnunarinnar, Eurocontrol CFMU, sem þýðir að hún úthlutar brottfarartímum eins nálægt áætl- aðri brottför og við verður komið. Allar áætlanir flugfélaga í Evrópu eru settar í miðlægan gagnagrunn og út frá því eru brottfarartímar skammtaðir. Ásgeir Pálsson, framkvæmda- stjóri flugumferðarsviðs Flug- málastjórnar, segir tilganginn með því að úthluta brottfarartímum þann að koma í veg fyrir að of mikil flugumferð verði um ákveðin svæði, bæði við flugvelli og á hin- um ýmsu flugrýmum. Því sé þetta mikið öryggisatriði. Hann segir þessa flæðistjórn hafa verið við lýði í um áratug og hún hafi síðustu árin slípast mikið til og liðkast. „Með þessu verður hægt að skipuleggja flugumferðina betur til að minna verði um tafir á flugi. Þá verður minna um biðflug við flugvelli og tafirnar verða þá frek- ar á jörðunni áður en haldið er af stað en þegar vélar nálgast ákvörðunarstað,“ segir Ásgeir í samtali við Morgunblaðið. Hann segir þetta líka til að koma í veg fyrir að of margar flugvélar séu á flugvöllum, í sumum tilvikum sé erfitt að koma vélum að flugstöðv- um og stundum verði stæði hrein- lega yfirfull ef brottfarir ganga ekki nógu hratt og vélar halda áfram að koma inn. Ekki mikil áhrif á Íslandi Ásgeir segir þetta öryggisventil þar sem komið verði í veg fyrir að of mikið álag verði á flugumferð- arstjórn. Með þessu skipulagi megi líka breyta brottförum ef eitthvað komi upp á, til dæmis veð- urfyrirbrigði, ónógur starfskraftur til að sinna afgreiðslu véla eða bil- anir. Áhrif eða tafir á brottförum flugvéla frá Íslandi telur Ásgeir ekki verða miklar, helst geti verið hætt við töfum á tveimur áfanga- stöðum Flugleiða, þ.e. Frankfurt og París, þar sem mjög mikil um- ferð er og þeir einna lengst í burtu frá Íslandi og því um fleiri svæði að fara. Úthlutaður brottfarartími mið- ast við brottför flugvélar frá stæði að viðbættum áætluðum aksturs- tíma fyrir flugtak. Hafa flugmenn 15 mínútur til flugtaks eða frá 5 mínútum fyrir og þar til 10 mín- útum eftir úthlutaðan tíma. Brottfarartímum áætlunarflug- véla miðstýrt Nýjar reglur frá Flæðistjórn evr- ópsku flugumferðarstofnunarinnar ÚRSKURÐARNEFND um upplýs- ingamál hefur komist að þeirri nið- urstöðu að landbúnaðarráðuneytinu hafi verið skylt að veita Þóri Jóns- syni, fréttamanni á Stöð 2, aðgang að myndbandi sem sýnir afleiðingar óhapps í laxeldi. Ráðuneytið synjaði beiðni frétta- mannsins um aðgang að myndband- inu en af erindi ráðuneytisins til hans dagsettu 14. febrúar sl., varð ráðið að myndbandið hefði verið í vörslum ráðuneytisins, þegar beiðnin um að- ganginn barst, en fjarlægð þaðan áð- ur en hún var afgreidd. Fréttamað- urinn kærði til úrskurðarnefndar meðferð ráðuneytisins á beiðni sinni. Úrskurðarnefndin vísaði kærunni frá en átaldi vinnubrögð ráðuneyt- isins harðlega. „Samkvæmt 1. mgr. 11. gr. upp- lýsingalaga bar landbúnaðarráðu- neytinu að leysa úr beiðni kæranda svo fljótt sem verða mátti meðan myndbandið var enn í vörslum þess. Í stað þess endursendi ráðuneytið myndbandið, án þess að séð verði að nokkra nauðsyn hafi borið til þess, eins og á stóð. Með þessu móti hefur verið komið í veg fyrir að unnt sé að afgreiða beiðni kæranda á grundvelli upplýsingalaga þar sem myndbandið er ekki lengur í vörslum stjórn- valda,“ segir í niðurstöðu nefndar- innar, sem taldi ennfremur að um- rædd vinnubrögð gangi gegn því meginmarkmiði upplýsingalaga að málsgögn skuli varðveitt þannig að þau séu aðgengileg svo að almenn- ingur geti átt aðgang að þeim. Vinnubrögð landbúnaðar- ráðuneytis harðlega átalin FUNDAÐ var í málefnum þrotabús rækjuverksmiðju Nasco í Bolungar- vík í gær. Fundurinn var haldinn að frumkvæði Byggðastofnunar en auk fulltrúa hennar sátu fulltrúar veð- hafa, bæjarstjórnar og verkalýðs- félagsins auk tilboðsgjafa í verksmiðj- una. Að sögn Ólafs Kristjánssonar, bæj- arstjóra á Bolungarvík, komu fram á fundinum hugmyndir að lausn máls- ins sem ræddar verða áfram. „Þetta var vinsamlegur fundur og menn voru að reifa hugmyndir að lausnum sem báðir aðilar eru að skoða,“ segir hann. „Farið var yfir þau viðskipti sem við höfum átt á síðustu dögum og menn voru að íhuga stöðuna.“ Kristinn H. Gunnarsson, stjórnar- formaður Byggðastofnunar, segir að fyrir hendi sé viðræðugrundvöllur- sem menn séu að vinna út frá. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið á þessu stigi. Fundur um Nasco í Bolungarvík Hugmyndir um lausn málsins Ljósmynd/Gunnar Hallsson Við upphaf fundarins í gær. F.v. Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri, Theodór Bjarnason, forstjóri Byggðastofnunar, Kristinn H. Gunnarsson, formaður stjórnar Byggðastofnunar, og Ásgeir Sólbergsson sparisjóðsstjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.