Morgunblaðið - 14.03.2001, Síða 62
DAGBÓK
62 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Detti-
foss og Lagarfoss koma
og fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: J.
Bergvoll og Tönnes
koma í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Skrifstofan
er opin alla miðvikud. frá
kl. 14–17. S. 551-4349.
Fataúthlutun og fata-
móttaka er opin annan
og fjórða hvern mið-
vikud. í mánuði, frá kl.
14– 17 s. 552-5277.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í síma Krabba-
meinsráðgjafarinnar,
800-4040 frá kl. 15–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–16.30
klippimyndir, harð-
angur, kl. 13 smíðastofan
opin, trésmíði/útskurður
og spilað, kl. 9 hár- og
fótsnyrtistofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 10 banki, kl. 13
spiladagur og vefnaður.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjud. og fimmtud. kl.
13–16.30, spil og föndur.
Sundtímar á Reykja-
lundi kl. 16 á miðvikud.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13–16.
Tímapöntun í fót-, hand-
og andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566-8060 kl. 8–16.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ!
Þriðjud. 20. mars er
áætlað að fara í skoð-
unarferð austur fyrir
fjall. Lagt af stað frá
Dvalarh. aldraðra, Hlað-
hömrum, kl. 13. Farið
verður að bænum
Grund, austan við Sel-
foss, og skoðaður tréút-
skurður eftir listakon-
una Sigríði Kristjáns-
dóttur. Á heimleiðinni
verður komið við í Eden
og m.a. skoðuð mál-
verkasýning Gunnþórs
Guðmundssonar frá
Dæli í V-Húnavatns-
sýslu. Uppl. og skráning
hjá Svanhildi í síma
5868014 e.h.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslu-
stofan og handa-
vinnustofan opnar, kl. 13
opin handavinnustofan.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–16.
Skrifstofan í Gullsmára
9 opin í dag kl 16.30–18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun,
kl. 10 hársnyrting og
verslunin opin til kl. 13,
kl. 13 föndur og handa-
vinna, kl. 13.30 enska,
byrjendur.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30. Fótaað-
gerðir mánudaga og
fimmtudaga. Ath. nýtt
símanúmer 565-6775.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Línudans kl. 11. Byrj-
endur velkomnir. Mynd-
mennt kl. 13. Píla kl.
13:30. Á morgun
fimmtudag er Púttæf-
ingar í Bæjarútgerð kl.
10–11:30 og aðalfundur á
morgun fimmtud. kl. 14 í
Hraunseli. Grænlenskir
dagar verða í boði
Fjörukráar sunnud. 18.
mars kl. 15:30. Þátttak-
endur skrá í sig í
Hraunseli og taki miða.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeginu.
Göngu-Hrólfar fara í
létta göngu frá Hlemmi í
dag mæting kl. 9.45.
Söngfélag FEB kór-
æfing kl. 17. Línudans-
kennsla fellur niður.
Leikhópurinn Snúður og
Snælda sýna, „Gamlar
perlur“ sem eru þættir
valdir úr fimm gömlum
þekktum verkum. Sýn-
ingar eru á mið-
vikudögum kl. 14 og
sunnudögum kl. 17, í Ás-
garði Glæsibæ. Ath. síð-
ustu sýningar. Miða-
pantanir í símum
588-2111, 568-9082 og
551-2203. Baldvin
Tryggvason verður til
viðtals um fjármál og
leiðbeiningar um þau
mál á skrifstofu FEB
fimmtudaginn 22. mars
kl. 11–12. Panta þarf
tíma. Silfurlínan opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–12.
Ath. skrifstofa FEB er
opin frá kl. 10–16. Uppl. í
s. 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 opin
vinnustofa, postu-
línsmálun og fótaaðgerð,
kl. 13 böðun kl. 13.30
samverustund.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl 10.30 gamlir
leikir og dansar, frá há-
degi spilasalur opinn, kl.
13.30 Tónhornið. Aðstoð
frá skattstofunni verður
veitt miðvikud. 21. mars,
skráning hafin.
Veitingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Allar upp-
lýsingar um starfsemina
á staðnum og í s. 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.10 og 10.10 leikfimi, kl.
10 ganga, kl. 13 keramik-
málun, kl. 13.30 enska.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur, kl. 9–
12 útskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 11 banki,
kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir, hár-
greiðsla, keramik, tau-
og silkimálun og jóga, kl.
11 sund í Grensáslaug,
kl. 15 teiknun og málun.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
ætla að hittast á morgun
fimmtudag 15. mars kl.
10 í Miðgarði, Langa-
rima 21. Hópurinn ætlar
að ræða hugsanlega
kosningu stjórnar fyrir
hópinn og skipulag starf-
seminnar á komandi
mánuðum. Kaffiveit-
ingar í boði Miðgarðs.
Allir velkomnir. Nánari
upplýsingar veitir Þrá-
inn Hafsteinsson í síma
5454–500.
Norðurbrún 1. Fótaað-
gerðastofan opin frá kl.
9–14, kl. 9–12.30 út-
skurður, kl. 9–16.45
handavinnustofurnar
opnar, kl. 10 sögustund,
kl. 13–13.30 bankinn, kl.
14 félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.30
sund, kl. 9 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
aðstoð við böðun, mynd-
listarkennsla og postu-
línsmálun, kl. 13–16
myndlistarkennsla, gler-
skurður og postulíns-
málun, kl. 13–14 spurt og
spjallað.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bankaþjónusta, kl. 10
morgunstund og fótaað-
gerðir, bókband og búta-
saumur, kl. 13 hand-
mennt og kóræfing, kl.
13.30 bókband, kl. 14.10
verslunarferð.
Bústaðakirkja starf
aldraðra, miðvikudaga
kl. 13–16.30 spilað,
föndrað og bænastund.
Boðið upp á kaffi.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19.30 félagsvist.
Hringurinn. Árshátíð
Hringsins verður haldin
á Grand Hóteli, Rvk. við
Sigtún fimmtud. 15.
mars kl. 19.
ITC-deildin Melkorka
heldur fund í Gerðubergi
í kvöld kl. 20.
Skagfirska söngsveitin.
Árshátíðin verður haldin
í félagsheimili Skagfirð-
inga Drangey í Stakka-
hlíð 17, laugard. 17.
mars. Húsið opnað kl. 19
og hefst með borðhaldi
kl. 19.30. Söngur og
skemmtiatriði, dans-
leikur. Miðapantanir
fram á fimmtud. 15.
mars hjá Finni, s. 894
4428, Ástu Júlíu s. 553
0345 kl, 16– 20. Miðar af-
hentir í Drangey föstud.
16. mars kl. 17–19.
Barðstrendingafélagið
Spilað í Konnakoti
Hverfisgötu 105, kl.
20.30. Allir velkomnir.
ITC-deildin Fífa
fundur 20. 15 í kvöld í
safnaðarheimili Hjalla-
kirkju. Gestir velkomnir.
Í dag er miðvikudagur 14. mars,
73. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Enn er það, að vér bjuggum við aga
jarðneskra feðra og bárum virðingu
fyrir þeim. Skyldum vér þá ekki
miklu fremur vera undirgefnir föður
andanna og lifa?
(Hebr. 12, 9.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 hvítleitur, 4 greind, 7
garm, 8 kjánar, 9 hagnað,
11 forar, 13 espa, 14
þorpari, 15 dett hálfveg-
is, 17 bára, 20 óhreinka,
22 skyldmennið, 23 víðar,
24 snaga, 25 fjármunir.
LÓÐRÉTT:
1 hraka, 2 hrósar, 3 væsk-
ill, 4 brytjað kjöt, 5 mátt-
ug, 6 hressa við, 10 rödd,
12 kolefnisduft, 13 borða,
15 snjór, 16 úði, 18 mátt-
vana, 19 ræktuð lönd, 20
svara, 21 nabbi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 merfolald, 8 fljót, 9 næðið, 10 ugg, 11 rýrir, 13
arður, 15 svell, 18 listi, 21 iða, 22 kotið, 23 nakin, 24
ranglátir.
Lóðrétt: 2 erjur, 3 fætur, 4 langa, 5 láðið, 6 æfir, 7 æður,
12 ill, 14 rói, 15 sókn, 16 eitla, 17 liðug, 18 Langá, 19
sekki, 20 inna.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
SKULDIR og vextir sem veriðhafa nokkuð til umræðu að und-
anförnu í þjóðfélaginu verða Vík-
verja tilefni til hugleiðinga. Lánamál
snerta sjálfsagt alla Íslendinga ein-
hvern tíma á lífsleiðinni, ekki síst nú
á dögum þegar auðveldara er að fá
lán en ýsuflök. Víkverji hefur að vísu
ekki talið útsölustaði ýsuflaka eða
lánastofnanir en telur næsta víst að
þar halli nokkuð á ýsuna. Kjörin eru
hins vegar svipuð, þ.e. hvort tveggja
lánin og ýsan kosta sitt.
En þótt margir hafi kynnst því að
þurfa að taka lán og skulda einhverj-
um eru vitanlega til þeir sem aldrei
hafa skuldað neinum neitt og vilja
hafa það þannig. Oft hefur Víkverji
eiginlega öfundað slíka menn þótt
það þyki kannski ekki góð latína. Það
fólk getur um frjálst höfuð strokið og
er ekki háð því að horfa á eftir drjúg-
um hluta tekna sinna í vaxta-
greiðslur, verðbætur og afborganir.
Hefur kosið að fara sér hægar í
neysluna og kaupa hitt og þetta fyrir
eigin krónur þegar þær voru orðnar
nógu margar í bauknum.
x x x
LÁN eru þó gagnleg og kannskinauðsynleg öllu venjulegu fólki,
einkum vegna húsnæðiskaupa. Það
eru hins vegar önnur lán sem staldra
má við og spyrja hversu nauðsynleg
séu. Við heyrum fréttir af því að
skuldir heimilanna hafi aukist, marg-
ir lendi í greiðsluerfiðleikum og séu
jafnvel að fá greiðsluerfiðleikalán.
Slík lán eru Víkverja hulin ráðgáta
því getur það verið að betra sé að fá
meiri lán ef ekki er unnt að borga
þau lán sem þegar hafa fengist? Er í
slíku tilviki ekki betra að rifa seglin,
minnka við sig húsnæði, selja eitt-
hvað eða gera eitthvað annað en að
taka ný lán? Nei, líklega ekki. Tökum
frekar fleiri lán, borgum meiri vexti
og öxlum auknar skuldbindingar,
helst alveg fram á grafarbakkann. Ef
það dugar ekki til taka afkomendur
bara við, þeir erfa landið með gögn-
um þess og gæðum og verðmæti
þeirra sem fara á undan með tilheyr-
andi arði og/eða skuldbindingum.
x x x
NEYSLULÁNIN eru sem sé þaðsem við hljótum að þurfa að
skoða dálítið; þau sem við tökum til
að endurnýja bílinn, húsgögnin,
heimilistækin eða fyrir utanlands-
ferðina sem við röðum á greiðslu-
kortið – helst alveg fram að næstu
ferð. Við erum líklega svo óþolinmóð
að við getum ekki beðið eftir að eign-
ast eitthvað, fara eitthvað eða gera
eitthvað með því að safna fyrir því
heldur þykir okkur skemmtilegra að
rjúka til og fá aðstoð við eyðsluna.
En þetta er auðvitað alltaf spurning
hjá hverjum og einum. Varla viljum
við hverfa aftur til fyrri daga þegar
aðeins fáir útvaldir eða nógu út-
smognir gátu fengið lán. Við viljum
hafa þessa möguleika og þeir eru
nógir í dag. Og það sem fylgt hefur
auknum lánsframboðum er hvers
kyns ráðgjöf, aðstoð og „heildar-
lausnir“ eins og allt heitir í dag. Við
lántökur fá menn að vita hversu
þungar og miklar afborganirnar eru,
hver kostnaðurinn er og hversu mik-
ið í heild lántakinn er að greiða til
baka. Þar sjá menn á einu bretti hvað
dæmið kostar og ef maður hræðist
ekki lántökuna þá er manni ekki við
bjargandi. Nokkurra ára lán er
nefnilega dálítið dýrt og við þurfum
að verja því í góðan fjárfestingarkost
(aftur tískuorð) til að það borgi sig.
Það verður hver og einn að meta.
x x x
AÐ lokum má minna á heilræðisem einhvers staðar varð á vegi
Víkverja. Ef þú getur greitt afborg-
anir af láni sem taka á vegna neyslu
þá geturðu alveg eins safnað ámóta
upphæð á mánuði um tíma og greitt á
einu bretti fyrir þessa „neyslu“. Þá
eru menn lausir við vexti og kostnað
og þurfa bara að bíða aðeins lengur
eftir að geta keypt. En það er líklega
svo oft erfitt að bíða og hyggst því
Víkverji fara og finna einhverja sem
vilja lána honum eitthvað. Hann get-
ur ekki beðið.
ÞAÐ væri sannarlega fagn-
aðarefni ef háttvirtir al-
þingismenn létu loks verða
af því að aflétta eignar-
skattsálagningu á íbúðar-
húsnæði. Sex þingmenn
Sjálfstæðisflokks hafa flutt
þingsályktunartillögu um
afnám eignarskatts á íbúð-
arhúsnæði.
Þessi skattaálagning
bitnar mest á eftirlauna-
fólki, sem varið hefur allri
starfsævinni í að eignast
skuldlaust húsnæði við
starfslok. Þá gerist það að
þér er hegnt fyrir þá ráð-
stöfun með því að húsnæðið
er tvískattlagt, annars veg-
ar fasteignaskattur til bæj-
arfélagsins og hins vegar
eignarskattur til ríkisins.
Það verður áreiðanlega
fylgst vel með því hverjir
verða með eða á móti þess-
ari tillögu. Hætta er á að
þeir sem verða á móti henni
lendi úti í kuldanum við
næstu kosningar.
Þetta mál hefur verið til
umræðu í þjóðfélaginu of
lengi án aðgerða. Háttvirtir
alþingismenn, hefjist
handa núna og hafnið órétt-
lætinu.
Sigríður.
Þakkir fyrir
Viðhorfsgreinar
RAGNHEIÐUR hafði
samband við Velvakanda
og langaði að koma á fram-
færi þökkum til Ásgeirs
Sverrissonar fyrir Við-
horfsgreinar hans, sem
birtust í Morgunblaðinu 16.
febrúar sl. og 23. febrúar sl.
Greinin 16. febrúar sl.
fjallar um minnihluta á
villigötum í sambandi við
flugvöllinn, vegna þess að
flugvöllur er hættulegur í
miðborg Reykjavíkur.
Greinin 23. febrúar sl.
fjallar um opinbera yfir-
burði í sambandi við kyn-
þáttahatur; að Íslendingar
reyni að fela sig á bak við
ættjarðarástina. Einnig að
Íslendingar séu hatursfull-
ir gagnvart dýrum. Þetta
eru frábærar greinar sem
allir ættu að lesa.
Óheiðarleg
vinnubrögð
ÉG vil lýsa vanþóknun
minni á óheiðarlegum
vinnubrögðum við sölu á
geisladiski undir því yfir-
skini að ágóðinn renni til
Einstakra barna.
Þegar hringt var í mig og
blíðmáll sölumaður útlist-
aði göfugt málefnið, spurði
ég sérstaklega að því, hve
hátt hlutfall færi til málefn-
is Einstakra barna, en
reynsla mín í þessum efn-
um hræddi. (Klettaúgáfan
og krabbameinssjúku börn-
in, þar sem hlutfallið var
15%, en 85% í kostnað og
Hjálparstofnun kirkjunnar,
þar sem söfnunarféð fór að
stórum hluta í bílakaup).
Stúlkan fullvissaði mig um
að nú rynni féð óskert til
málefnisins og spurð um
geisladiskinn kvað hún
hann bara vera uppbót,
eins konar verðlaun fyrir
að hafa léð málefninu lið.
Þetta er í síðasta sinn
sem ég læt blekkjast!
Sigurður Jónsson,
Ártúni 19,
Sauðárkóki.
Flugvöllinn í
Vatnsmýrinni
MIG langar til að tjá mig
um það hvers vegna ég vil
að Reykjavíkurflugvöllur
verði áfram í Vatnsmýr-
inni.
Við búum á eldfjallalandi
og sú staða gæti komið upp
vegna eldgosa að allir vegir
inn og út úr borginni lok-
uðust og þess vegna væri
lífsnauðsynlegt fyrir okkur
að völlurinn væri í borginni.
Því það sem einu sinni
gerðist gæti gerst aftur.
Íbúðarbyggð á flugvallar-
svæðinu mundi stórauka
bílaöngþveiti og mengun í
borginni sem er ærin fyrir.
Og síðast en ekki síst
mundi eitt stykki flugvöllur
kosta mikla peninga sem
borgargúar þyrftu að
greiða í stórauknum skött-
um.
Guðrún Magnúsd.
Kannast einhver við
vettlinginn?
ÞESSI vettlingur fannst á
bílastæði við Landsbank-
ann í Lágmúla. Það er aug-
ljóst að eigandinn hefur
haldið mikið upp á hann.
Eigandi getur vitjað hans í
síma 553-9104.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Afnám
eignarskatts