Morgunblaðið - 14.03.2001, Síða 65
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 65
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
2
2
4
0
Buffalóvængi*
á 10 kr.
*l
ít
ill
s
ka
m
m
tu
r
Gos
á 10 kr.
Brauðstangir
á 10 kr.
Pizzu**
á 10 kr.
**
þú
g
re
ið
ir
f
yr
ir
d
ýr
ar
i p
iz
zu
na
eða eða eða
Ótrúlegt 10 kr. tilboð, vikuna 10.-18. mars,
þú kaupir pizzu, sækir hana og færð:
– enginn getur betur...
24
TE
GU
NDIR AF FRÁBÆ
R
U
MDO
M
IN O ‘S P IZ Z U
M
MEGAVIKA DOMINO’S
Guinevere
D r a m a
Leikstjórn og handrit: Audrey
Wells. Aðalhlutverk: Stephen Rea,
Sarah Polley. (95 mín.) Bandaríkin
1999. Myndform. Öllum leyfð.
GUINEVERE er fyrsta leik-
stjórnarverkefni handritshöfundar-
ins Audrey Wells sem á að baki jafn
ólík handrit og
Truth About Cats
and Dogs og
George of the
Jungle. Viðfangs-
efni myndarinnar,
sem hún skrifaði
handritið að, á ekk-
ert skylt við þessi
fyrri verk hennar.
Um er að ræða
vandaða og lágstemmda mynd um
miðaldra ljósmyndara (Rea), lista-
mann af guðs náð, sem er veikur fyr-
ir ungum blómarósum sem enn hafa
ekki náð að blómstra. Sú þrá nær þó
mun lengra en að vera einvörðungu
af kynferðislegum toga því fátt gefur
lífi hans meira gildi en að hjálpa
stúlkunum að uppgötva listamann-
inn í sjálfum sér. Hann hittir hina
feimnu Harper (Polley) og hrífst
samstundis af fegurð hennar, býður
henni að flytja til sín og gerast sín
eina sanna Guinevere. Þegar Harper
kynnist læriföður sínum og elskhuga
betur rennur upp fyrir henni að
þrátt fyrir að vera vinmargur og vin-
sæll bærist innra með honum ein-
mana sál sem þráir lífsförunaut.
Þetta er prýðisfrumraun hjá Wells
og er sérlega ánægjulegt að verða
vitni að jafn góðri leikframmistöðu
og hjá þeim Rea og Polley. Gaman
verður að sjá til Polley í Ófreskju
Hals Hartleys og Friðriks Þórs.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Lokkandi
lærlingur
ÞJÓÐVERJINN SchneiderTM
(Dirk Dresselhaus) hefur á sér líf-
seigt prakkaraorð og er víst gjörsam-
lega óútreiknanlegur í öllu sem hann
tekur sér fyrir hendur.
Það síðasta sem SchneiderTM
sendi frá sér var Binokular, smáskífa
með sex lögum sem hann og hinn
enski KPT.michi.gan (Michael Beck-
ett) unnu ýmist saman eða í sundur.
Lagið „Chotto Matte“, sem er jap-
anska og þýðir „bíddu aðeins“, er að
sögn SchneiderTM tilraun til þess að
stöðva tímann. Hann segir ennfremur
að ef fólk hlusti nógu oft á lagið, muni
glímu þess við tímaskort linna því
takturinn í því endurvinni sig í sífellu
og að á endanum muni fólk hafa mun
meiri tíma til að njóta ásta og sofa…
Á hæla „Bíddu aðeins“ fylgir lagið
„Testton 2“ sem er liður tvö í seríu
KPT.michi.gan sem hann gangsetti á
tólf tommunni Hey Love sem kom út
hjá Trim Records fyrir nokkru.
Grunnhugmyndin að Tesston-serí-
unni er að búa til lög eingöngu úr
prufutónum forláta Akai S 20 hljóð-
sarps og tveimur öðrum afar fornfá-
legum græjum. Að þeim upplýsingum
fengnum kemur á óvart hversu sann-
færandi lagið er bæði í taktuppbygg-
ingu, hrynhita og melódíudaðri.
Þessu fylgir glaðværa ástarlagið
Onnanoko sem KPT.michi.gan. samdi
í félagi við japönsku sálartónlistar-
konuna Hanayo. Lagið er að sögn
KPT undir áhrifum frá svartri, hvítri
og gulri sálartónlist en samið í gegn-
um ofurlítinn rafsjónauka. Söngradd-
irnar læðast mjúkar innan um hljóm-
frasa sem leiknir eru aftur á bak,
bjagaðan gítar og snarpa títuprjóna
takta í anda Mouse on Mars. Fjórða
lagið á Binokular, „Ray Nox“, hefst á
hljóðum úr spiladós í eigu sonar KPT
sem allt annað hljóðefni vefst síðan
utan um. Hrynjandinn er stöðugur og
ef til vill tíðindalítill en litlir, kraum-
andi undirtónar og fundin hljóð, brak,
smellir og útreiknaðir brestir bæta að
nokkru upp fyrir það. Að því loknu
tekur við myrkasta lag disksins,
„Dynamike“, en það fæddist upp úr
hugmynd SchneiderTM og KPT um
að semja lag hver fyrir sig í kringum
litla trommuglefsu úr laginu „Mr.
Onsomeothershit“ með hljómsveit
Tommy Lees, Methods Of Mayhem.
Útkoman er nokkuð þung, minímal
rafstemma sem svipar dálítið til Oval
eða eldra efnis Pan Sonic ef frá er tal-
inn Chet Baker-legur flugelhornfrasi
sem gefur laginu leyndardómsfullan
tón og hlýtt mótvægi við ískalda raf-
smellina. Mörgum dægurtónlistar-
unnendum er Smiths lagið „There Is
A Light That Never Goes Out“ ef-
laust hugleikið. SchneiderTM og
félagi hans enduruppgötvuðu lagið á
tónleikaferðalagi sem þeir fóru með
Finnunum í Pan Sonic árið 1999 en
það fannst víst á ómerktri spólu sem
kúrði undir bílsæti í túrrútunni. Þeir
ákváðu með það sama að votta Morr-
isey og félögum virðingu sína og
smíða sína eigin útgáfu af laginu og
tekst verulega vel til. Tregafull feg-
urðin sem einkennir lagið helst inni
þrátt fyrir fjarveru meistara M. en
hann og hans menn mega aldeilis vera
kátir með hið nýja raflíf þess á Binok-
ular. Nýjasta prakkarastrik Schneid-
erTM er virkilega metnaðarfullt verk
og ágætis vitnisburður um framþróun
melódískrar raftónlistar. Hann og
KPT.michi.gan eru greinilega menn
sem vert er að fylgjast vel með á
næstu árum.
FORVITNILEG
TÓNLIST
Níu raflíf prakkara
Schneider TM vs. KPT. michi.gan,
Binokular. Útgefandi City
Slang árið 2000.
Krist ín Björk Kristjánsdótt ir