Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 1
75. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 30. MARS 2001
ÓDEIGUR Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, sagði í gær að pal-
estínska uppreisnin myndi halda
áfram þrátt fyrir eldflaugaárásir
Ísraela á bækistöðvar palestínskra
öryggissveita. Þrír Palestínumenn
féllu í átökum á Gaza-svæðinu í gær,
þar af voru tveir unglingar. Átta tán-
ingar særðust í átökunum.
Ísraelar beittu skriðdrekum til
árásar á palestínskt hverfi í borginni
Hebron á Vesturbakkanum í gær, í
kjölfar þess að palestínskir byssu-
menn í hverfinu skutu inn í gyðinga-
hverfi í borginni. Lagði þykkan reyk
frá tveim húsum eftir skriðdreka-
árásina.
Í eldflaugaárásinni sem Ísraelar
gerðu sl. miðvikudagskvöld brotn-
uðu rúður í íbúðarhúsi Arafats í
Gaza-borg. Aðalskotmarkið var
bækistöðvar Sveitar 17, leyniþjón-
ustu Palestínumanna á Gaza-svæð-
inu, og í borginni Ramallah á Vest-
urbakkanum. Einn liðsmaður
Sveitar 17 féll og tugir Palestínu-
manna særðust í árásinni.
Arafat sagði um árásina að Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
hefði gert 100 daga áætlun um að
knésetja Palestínumenn. En Arafat
sagði að uppreisnin myndi halda
áfram þar til stofnað hefði verið
sjálfstætt palestínskt ríki.
Sharon gaf í skyn í gær að frekari
aðgerða væri að vænta. Hann sagði
að öryggi ísraelskra borgara yrði
ekki tryggt „á einni nóttu eða einum
degi.“ Síðan í september sl. hafa 446
manns fallið í átökum Ísraela og Pal-
estínumanna, þar af 365 Palestínu-
menn.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í gær að bæði Ísraelar og
Palestínumenn yrðu að gera afger-
andi ráðstafanir til að hemja ástand
mála. Hvatti hann Ísraela til að tak-
marka beitingu vopnavalds og Ara-
fat til að fordæma ofbeldisaðgerðir
tæpitungulaust.
Bush sagði enn fremur í gær að
hann myndi ekki reyna að þröngva
deiluaðilum til samkomulags. Frá
því Bush tók við forsetaembættinu í
janúar sl. hefur hann lagt áherslu á
það að stjórn sín myndi ekki beita
sér jafnmikið í friðarumleitunum
fyrir botni Miðjarðarhafs og stjórn
Bills Clintons hefði gert.
Þrír Palestínumenn féllu í átökum við Ísraela á Gaza
Arafat segir upp-
reisn halda áfram
Ramallah, Jerúsalem. AP, AFP.
Reuters
Ísraelskur hermaður handtekur Palestínumann í borginni Hebron.
MAKEDÓNSKA stjórnin og alb-
anskir skæruliðar neituðu því í gær
að hafa staðið að baki sprengjuárás á
þorp í Kosovo sem varð þremur að
aldurtila og særði tíu. Þorpið er um
þrjá km frá makedónsku landamær-
unum. KFOR, herlið Atlantshafs-
bandalagsins í Kosovo, harmaði í
gær atburðinn og Hans Hækkerup,
yfirmaður stjórnar SÞ í Kosovo,
sagði árásina hræðilega.
Þetta er í fyrsta sinn sem átök
makedónska hersins og albanskra
skæruliða berast með svo afdrifarík-
um hætti yfir landamærin til Kos-
ovo. Einstök dæmi eru um sprengjur
og skot yfir landamærin, þúsundir
flóttamanna hafa leitað skjóls í suð-
urhluta héraðsins og sést hefur til
skæruliða frá Makedóníu í Kosovo.
En árásin á þorpið Krivenik í gær
stóð yfir í hálfa aðra klukkustund og
féllu tíu sprengjur á það.
Hvorki Makedónar né Albanir
taka ábyrgð á árásinni, þeir síðar-
nefndu segjast ekki búa yfir vopnum
sem dragi svo langt. Til að taka af
allan vafa hafa makedónsk yfirvöld
hins vegar fyrirskipað rannsókn á
málinu en KFOR rannsakar
sprengjugígana einnig.
Eftirlitssveitir KFOR sáu til hóps
manna á landamærunum í gærmorg-
un en er hermennirnir nálguðust
hópinn var sprengjum varpað
skammt frá þeim; í um 300 metra
fjarlægð. Skömmu síðar hófst óvænt
sprengjuárás á þorpið Krivenik sem
er um þrjá km frá landamærunum.
Blaðamaður Morgunblaðsins var þar
á ferð tveimur dögum fyrr og var allt
með kyrrum kjörum þótt íbúunum
þætti óþægilegt að heyra sprengju-
gnýinn hinum megin landamæranna.
Fjöldi KFOR-hermanna sáust í og
við þorpið og þar höfðu sömuleiðis
sést tveir menn í einkennisbúningi
skæruliða.
Allir þrír sem féllu voru ungir
karlmenn, einn þeirra bresk-tyrk-
neskur sjónvarpsmaður frá AP-
fréttastofunni. Bíll sem hann var í
varð fyrir sprengju en tökumaður
hafði rétt stigið út úr til að mynda.
Átök hers og skæruliða hafa einkum
verið við makedónska þorpið Grac-
ane um 5 km suður af Krivenik. Í
gær var skotið á bifreið AFP-frétta-
stofunnar sem komist hafði að Grac-
ane. Enginn særðist og ekki er vitað
hverjir voru að verki.
Hækkerup, yfirmaður SÞ í Kos-
ovo, kemur í dag til Makedóníu til að
ræða við forsætisráðherra landsins,
Ljubco Georgevski, um stöðuna á
landamærunum sem eru enn lokuð.
Hvatti Hækkerup makedónska her-
inn til að halda aftur af árásunum og
báðar fylkingar að binda endi á átök-
in.
Átök Makedóníuhers og albanskra skæruliða berast út fyrir landamærin
Sprengjum rignir yfir þorp í
Kosovo og bana þremur
Skopje. Morgunblaðið.
Stormur í aðsigi/39
GEORGE W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, sagðist í gær
myndu vinna með bandamönn-
um lands síns að því að draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda í
heiminum og hann myndi beita
sér fyrir því að orkuþörf Banda-
ríkjanna væri að meira leyti
svarað með jarðgasi – en
brennsla þess skapar minni los-
un slíkra lofttegunda en olía.
Forsetinn lagði hins vegar mikla
áherzlu á, að hann myndi ekki
samþykkja neinar aðgerðir sem
skaða myndu efnahagslega
hagsmuni Bandaríkjanna.
Bush átti viðræður við Ger-
hard Schröder, kanzlara Þýzka-
lands, í gær en þetta var fyrsti
fundur þeirra eftir að Bush tók
við embætti. Á blaðamanna-
fundi sagði Schröder, að þeir
hefðu verið sammála um „nærri
því allt“ en greint á um Kyoto-
bókunina við loftslagssáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Lýsti
Schröder óánægju með þá
ákvörðun Bandaríkjastjórnar að
ætla að hundsa bókunina.
Þýzkaland hefur verið fremst
í flokki Evrópusambandsríkja
er viljað hafa byggja aðgerðir
heimsbyggðarinnar gegn hitnun
loftslags á jörðinni á Kyoto-bók-
uninni sem ekkert iðnríki hefur
þó staðfest til þessa. Þótt and-
staða Bandaríkjastjórnar við að
undirgangast skuldbindingar
bókunarinnar hafi lengi verið
kunn virtist yfirlýsing stjórnar-
innar á miðvikudag koma mörg-
um á óvart og vakti ákvörðunin
hörð viðbrögð víða um heim.
Bandaríkin losa um fjórðung
alls koltvísýrings sem fer út í
andrúmsloftið.
Bush
kveðst
vilja
samstarf
Alþjóðleg /26
Washington. AFP, Reuters.
WILLIAM Hague, leiðtogi breska
Íhaldsflokksins, skoraði í gær á for-
sætisráðherrann Tony Blair að fresta
kosningum í byrjun maí vegna gin- og
klaufaveikifaraldursins í landinu.
Boðað hefur verið til sveitarstjórn-
arkosninga í Bretlandi 3. maí næst-
komandi og talið er víst að Blair stefni
á að þingkosningar fari þá einnig
fram. Margir hafa varað við því að
kosningaslagur kunni að draga at-
hygli stjórnvalda frá lausn gin- og
klaufaveikivandans, auk þess sem það
gæti aukið á útbreiðslu veikinnar að
margir komi saman á kjörstað í land-
búnaðarhéruðunum.
Hague heimsótti í gær svæði í
Yorkshire í norðurhluta Englands
þar sem veikin hefur komið upp.
Krafðist hann þess, í fyrsta sinn síðan
faraldurinn hófst fyrir 38 dögum, að
kosningunum yrði frestað, ella væru
„flokkshagsmunir teknir fram yfir
hag þjóðarinnar“.
Stjórn Blairs virðist hins vegar
ekki ætla að hvika. Margaret Beckett,
foringi þingflokks Verkamanna-
flokksins í neðri deildinni, hefur gefið
til kynna að sveitarstjórnarkosning-
arnar fari fram á tilsettum tíma og
þykir það benda til þess að Blair muni
hunsa kröfur íhaldsmanna og boða þá
einnig til þingkosninga.
Nýjustu skoðanakannanir eru
heldur ekki til þess fallnar að draga
úr leiðtogum Verkamannaflokksins.
Samkvæmt könnun sem birt var í The
Times í gær fengi flokkurinn 50% at-
kvæða og er með 19% forskot á
Íhaldsflokkinn.
Þess er vænst að Blair kunngeri
ákvörðun um kosningarnar eftir
helgi.
Skorar
á Blair að
fresta kosn-
ingum
London. AFP, The Daily Telegraph.