Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 70
KOMIÐ er að úrslitum í spurninga- keppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Í kvöld mun þorri landsmanna sitja með augun límd við sjónvarps- skjáinn og fylgjast með þegar elsti skóli landsins, Menntaskólinn í Reykjavík, mætir þeim yngsta, Borg- arholtsskóla. Menntaskólinn í Reykjavík „Keppnin leggst skrambi vel í mig,“ segir Svanur Pétursson, sem ásamt Hjalta Snæ Ægissyni og Sverri Teitssyni myndar keppnislið MR, sem sigrað hefur undanfarin átta ár. Sverrir og Hjalti taka undir þetta. „Við erum að fara að keppa á móti skemmtilegu liði og svara skemmti- legum spurningum.“ „Það ríkir væntanlega mikil eftir- vænting innan Borgarholtsskóla,“ segir Hjalti. „Þau hljóta að vera ánægð með að vera komin svona langt, og við skiljum það vel, enda er þetta gríðarlega góður árangur.“ Sverrir bætir við að lið Borgar- holtsskóla sé sterkustu andstæðingar sem þeir hafi mætt í ár: „Við vissum það alveg frá upphafi, áður en keppn- in hófst, að Borgarholt yrði sterkasti andstæðingurinn.“ Borgarholtsskóli Sæmundur Ari Halldórsson úr liði Borgarholtsskóla segir keppnina leggjast vel í sig. „Ég myndi ekki taka þátt í þessu ef ég skemmti mér ekki við þetta.“ Auk Sæmundar er lið Borgarholts- skóla skipað þeim Páli Theódórs og Hilmari Má Gunnarssyni. Sæmundur segir liðsmenn ákaf- lega ánægða með að hafa náð svo góð- um árangri í keppninni: „Þetta er ár- angur sem við stefndum að í upphafi,“ segir hann, og bætir við að nú sé liðið í raun að uppskera afrakstur þjálfunar undanfarinna fjögurra ára. „Við sett- umst niður fyrir nokkrum árum og tókum þetta föstum tökum. Við höf- um kerfisbundið viðað að okkur þekk- ingu og lært af öðrum skólum.“ Sæmundur segir nemendur skól- ans einnig ákaflega ánægða með ár- angurinn, en þessi vika hefur verið einskonar Gettu betur-vika í Borgar- holtsskóla. „Vel valið lið nemenda keppti við kennara í spurninga- keppni, skólinn er þakinn auglýsing- um og við héldum pítsuveislu á þriðjudaginn.“ Liðsmenn Borgarholtsskóla ætla að sofa út á keppnisdaginn. „Við mæt- um ekki í skólann og hittumst síðan upp úr hádegi og förum út að borða áður en við höldum í keppnina,“ segir Sæmundur og segist ekki tauga- óstyrkur fyrir kvöldið en bætir við að það verði mikil viðbrigði þegar keppninni er lokið og hann geti loks- ins sleppt fram af sér beislinu. Morgunblaðið/Jón Svavarsson „Af hverju gekk MR-ingurinn yfir götuna?“ Páll Theódórs hvíslar að Sæmundi Ara Halldórssyni og Hilmari Má Gunnarssyni á æfingu í Borg- arholtsskóla. Þeir etja kappi við lið MR-inga í úrslitaþættinum í kvöld. Mun MR falla í kvöld? í Reykjavík mætast í úrslitum Gettu betur Borgarholtsskóli og Menntaskólinn Morgunblaðið/Ásdís Svanur Pétursson, Hjalti Snær Ægisson og Sverrir Teitsson, liðsmenn MR, eru hvergi bangnir. Þeir etja kappi við lið Borgarholtsskóla í kvöld. FÓLK Í FRÉTTUM 70 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Mörkinni 3, sími 588 0640G læ si le ga r gj af av ör ur Bjórglös kr. 1.550 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14. Hrein sum viðar-, rimla-, strimla-, plíseruð- og sólargluggatjöld. Hlíðarhjalla 26, s. 897 3634. alltaf á föstudögum DIOR KYNNIR NÝTT BYLTINGARKENNT SERUM NO AGE Verndar húðfrumurnar fyrir ótímabærri öldrun og lengir líftíma þeirra. Sérfræðingur frá Dior verður í verslun okkar í dag, föstudag, og á morgun, laugardag, og veitir faglega ráðgjöf. Spennandi KAUPAUKI fylgir öllum vörum frá Dior. Verið velkomin. Kringlunni Russell Athletic - Jansport - Slendertone - Polar - Weider - Metaform - ABB - EAS - Muscletech - Labrada - Natures Best - Leppin - MLO - Freddy - Pure Lime K O R T E R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.