Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 49
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 49 Ný verslun! Framköllun Myndavélar Fylgihlutir Viðgerðir Vorum að opna nýja verslun með alhliða ljósmyndaþjónustu Til fermingargjafa: Vorum að taka upp úrval af stafrænum myndavélum. Einnig úrval af venjulegum vélum. Laugavegur Þjóðskjala- safn N óatún H öfðatún Á sholt Hlemmur Viktoria Antik  Síðumúla 34  Sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll Opið mán.-fös. frá kl. 12-18 lau. kl. 11-17 sun. kl. 13-17 Antikhúsgögn og gjafavörur Gömul dönsk postulínsstell Ýmislegt áhugavert fyrir safnara AÐ undanförnu hefur umræða um uppbygg- ingu menningartengdr- ar ferðaþjónustu fengið töluverða umfjöllun í fjölmiðlum, enda ástæða til miðað við þann fjölda ráðstefna, funda og námsstefna sem haldinn er um þetta málefni. Víða um land hafa aðilar sem vinna að uppbygg- ingu ferðaþjónustu og menningar staðið að áð- urnefndum samkomum í þeim tilgangi að koma af stað umræðum og vinnu á sviði þessa málaflokks. Ég tel að þetta sýni þá grósku sem er með þeim sem vilja heill ferðaþjónustunnar sem mesta og þá kannski sérstaklega í hinum dreifðu byggðum landsins, því eitt af markmiðum menningartengdrar ferðaþjónustu er að ítreka sérstöðu hvers svæðis fyrir sig og gera úr henni vöru sem laðar að ferðamenn. Þann 10. mars sl. var haldin ráð- stefna um menningartengda ferða- þjónustu í Húnaþingi vestra að Reykjum í Hrútafirði að tilhlutan Hagfélagsins ehf., Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna og Ferðamálafélags Vestur-Húnvetn- inga. Ráðstefnan bar nafnið AÐ LÁTA STEINANA TALA og skír- skotaði þannig til vísu eftir Guð- mund Ketilsson, þann sem var í hlutverki böðulsins við síðustu af- tökuna á Íslandi og tók þar af lífi banamenn Natans bróður síns. Vís- an hljóðar þannig: Þegar nafn mitt eftir á allra þögn er falið, Illugastaðasteinar þá standið upp og talið. Alls staðar blasir fortíðin og sag- an við. Jafnvel steinarnir geyma sína sögu og hefðu frá mörgu að segja ef þeir gætu talað. Hvítserkur er klettur, eða stór steinn, sem allir þekkja. Og í raun er hann ekki bara hvítflekkóttur klettadrangur við brimsorfna strönd í botni Húna- fjarðar. Hann á sér sína sögu því samkvæmt gamalli þjóðsögu var hann tröll, er bjó norður á Strönd- um, og lagði í sína hinstu för til að mölva kirkjuklukku okkar mann- anna sem angraði hann mjög og stóð á Þingeyrum. Djúpir álar Húnaflóa töfðu hans för og dagaði hann uppi austan við Vatnsnes, en Bárður son- ur er einnig var í för með honum varð að þekktum kletti vestan við Vatnsnes. Sögur sem þessi eru hluti af arf- leifð okkar. Verðmæti á ýmsan hátt sem við eigum að nýta okkur í hví- vetna. Á öldum áður var bókmenning og sagnahefð á þessu svæði með meiri blóma en kannski víða hér á landi. Ekkert hérað státar af fleiri forn- sögum og þáttum og nefna má að Heiðarvígasaga, Kormákssaga, Bandamannasaga, Odds þáttur Ófeigssonar, Finnbogasaga ramma, Þórðarsaga hreðu og Vatnsdæla- saga eiga allar sögusvið að meira eða minna leyti í Húnaþingi. Þá er ótalin mesta hetjusaga tímabilsins, saga Grettis Ásmundarsonar frá Bjargi í Miðfirði. Mjög víða á svæð- inu eru örnefni, og staðir sem tengj- ast með beinum hætti sögunni af Gretti. Steinar sem við þurf- um að láta tala fyrir okkur. Tilgangur ráðstefn- unnar var að vekja áhuga og vitund heimamanna á þeim möguleikum sem eru til staðar í héraðinu á sviði menningar- tengdrar ferðaþjón- ustu, gera þessum þáttum skil og koma þeim á framfæri til þeirra sem ferðast og vilja fræðast um leið. Ég tel að það sé íbú- um í Húnaþingi vestra til heilla að binda trúss sitt við þessa tegund ferðaþjónustu, því innan hennar og með henni rúmast nákvæmlega þeir þættir sem svæðið hefur upp á að bjóða, nefnilega saga, menning, úti- vist og heilnæm afþreying. Meðal þess sem fram kom á ráð- stefnunni var að forsendur byggða- mynsturs eru háðar örum breyting- um og þessar forsendur ráða hvaða lausnir koma að gagni hverju sinni. Að tækifæri landsbyggðarinnar liggi aðeins að takmörkuðu leyti í eflingu hefðbundinna frumvinnslugreina. Ljóst er að nýsköpun í atvinnulífi verður að koma til. Uppbygging ferðaþjónustunnar er hröð og byggðir landsins geta nýtt sér mun betur þau tækifæri sem felast í vexti hennar. Menningarferðaþjónusta er mikilvægt byggðamál vegna þess að hún stuðlar að jákvæðri byggðaþró- un. Búferlaflutningar til höfuðborg- arsvæðisins eru tiltölulega ný þróun í sögu þjóðarinnar og af þeim sökum er stóran hluta af fornminjum og sögustöðum að finna utan höfuð- borgarsvæðisins. Efling þessarar at- vinnugreinar er liður í að styrkja ímynd svæða og auka vitund og áhuga íbúa á eigin sögu og menn- ingu. Þá eykur hún fjölbreytni í at- vinnulífi en það er forsenda stöð- ugleika í byggðaþróun. Til þess að menningartengd ferðaþjónusta nái að verða öflug atvinnugrein þarf að undirbúa grunninn vel og ígrunda með hvaða hætti best sé að þróa þessa vinnu þannig að hún nái að festa sig í sessi og verði samfélaginu arðbær. Í Húnaþingi vestra er hafinn und- irbúningur að verkefni á sviði menn- ingartengdrar ferðaþjónustu sem lýtur að Grettissögu Ásmundarson- ar frá Bjargi í Miðfirði. Hvert sú vinna mun stefna er enn ekki orðið ljóst að öðru leyti en því að til stend- ur að koma upp fræðslu- og menn- ingarmiðstöð, helst á Laugarbakka í Miðfirði, þar sem ímynd Grettis sterka verður gerð eins sýnileg og kostur er. Þetta verkefni ber vinnu- heitið Grettistak og vísar þannig í þá staði í Grettissögu sem bera þetta nafn. Grettistakinu er ætlað að skapa héraðinu ímynd, sérstöðu og örva ferðamannastraum. Þá má ekki gleyma því sem hvað hæst ber á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra en það er sumarhátíðin Bjartar nætur, sem hefur verið starfrækt frá árinu 1994. Fjöldi menningartengdra við- burða er á dagskrá Bjartra nátta á hverju ári. Einn sá viðburður sem hefur náð föstum sessi í menningar- lífi okkar er matarhlaðborðið í Ham- arsbúð, Fjöruhlaðborðið svokallaða, sem húsfreyjurnar á Vatnsnesi framreiða af mikilli snilld og kynna þar með matargerð fyrri ára. Þá hefur að jafnaði fjöldi listviðburða einnig verið á dagskránni. Í máli gesta kom fram að þessi hátíð sé mikils virði og hafi náð að festa sig í sessi í vitund manna. Þarna hafi náðst að skapa verðmæti í menning- arlegu tilliti. Að ofangreindu má sjá að fjöl- margt er á döfinni í Húnaþingi vestra á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Ekki er séð fyrir endann á þeirri vinnu sem má segja að hafi hafist með undirbúningi ráð- stefnunnar Að láta steinana tala, auk þeirra verkefna sem þegar er unnið að á einn eða annan hátt. Að láta steinana tala Þorvarður Guðmundsson Ferðaþjónusta Uppbygging ferðaþjón- ustunnar er hröð, segir Þorvarður Guðmunds- son, og byggðir landsins geta nýtt sér mun betur þau tækifæri sem felast í vexti hennar. Höfundur er ferðamálafulltrúi Húnaþings vestra. Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata Kópavogi Þakrennur og rör frá... Þakrennur flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.