Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 45 undir breytinguna eftir að stefnu- mótun hefur farið fram um úthlutun á tíðni. Misjafnlega hefur gengið að fá sjónvarpsstöðvar til að hefja staf- rænar útsendingar og sem dæmi má nefna að aðeins 180 af þeim 1.600 sjónvarpsstöðvum sem starfræktar eru í Bandaríkjunum hafa hafið staf- rænar útsendingar. En samkvæmt áætlunum eiga allar sjónvarpsstöðv- ar sem fjármagna sig með auglýs- ingum að vera orðnar stafrænar í maí á næsta ári. Nú er ljóst að sú dagsetning mun ekki standast. Þegar hefur verið hafinn undir- búningur að stafrænu sjónvarpi á Ís- landi. Enn er þó ekki farið að úthluta tíðnisviði fyrir stafrænar útsending- ar í loft og engin dagsetning hefur enn verið gefin út um það hvenær allar útsendingar í sjónvarpi verði stafrænar á Íslandi. Næsta tæknibyltingin í Evrópu Nú eru um það bil 16 milljónir not- enda áskrifendur að stafrænu gagn- virku sjónvarpi í Evrópu en það eru helmingi fleiri notendur en fyrir ári síðan. Evrópubúar eru komnir fram úr Bandaríkjamönnum, en aðeins tæplega 5 milljónir heimila í Banda- ríkjunum hafa aðgang að gagnvirku sjónvarpi sem er minna en 5% af þjóðinni. Gagnvirkt sjónvarp er því orðið að raunhæfum valkosti fyrir milljónir Evrópubúa á meðan gagn- virkt sjónvarp er rétt að komast af stað í Bandaríkjunum. Því hefur ver- ið talað um gagnvirkt sjónvarp sem næstu tæknibyltingu Evrópu þar sem Evrópuþjóðir munu verða leið- andi í þróun. Ný viðskiptatækifæri Þrátt fyrir mikla lækkun á gengi hlutabréfa í tæknifyrirtækjum síð- astliðið ár hefur gengi eins stærsta fyrirtækis Evrópu sem býður upp á stafrænt gagnvirkt sjónvarp, BSkyB, hækkað um 40% á sama tíma. Í ljósi þess að notendur staf- ræns gagnvirks sjónvarps eins og t.d. viðskiptavinir Canal+ eru að eyða helmingi meira í afþreyingu en áhorfendur hliðræns sjónvarps er ljóst að fyrirtæki sjá margskonar viðskiptatækifæri í þessum miðli. Kannanir hafa enn fremur sýnt að gagnvirkar auglýsingar virðast skila sér mun betur í gagnvirku sjónvarpi en auglýsingar í hefðbundnu hlið- rænu sjónvarpi, meðal annars vegna þess að hægt er að höfða til mark- hópa á mun skilvirkari hátt en nú er gert. Auk þess eru fyrirtæki eins og Woolworths og Domino’s Pizza að gera sér grein fyrir því að salan er hlutfallslega mun meiri í gegnum gagnvirkt sjónvarp heldur en á Int- ernetinu og því binda fyrirtæki sem hafa reynslu af gagnvirku sjónvarpi miklar vonir við þennan nýja miðil. Gagnvirkt sjónvarp á Íslandi Ljóst er að gagnvirkt sjónvarp nýtur sívaxandi vinsælda í ná- grannalöndum okkar og er búist við mikilli aukningu á gagnvirkum sjón- varpsnotendum á næstu árum. Sem dæmi má nefna að spár gera ráð fyr- ir að að bæði Spánn og Ítalía munu ná Frökkum í gagnvirkri sjónvarps- notkun innan tveggja ára. Eins eru bundnar miklar vonir við Norður- löndin þar sem þau eru leiðandi í margskonar tækninýjungum auk þess sem íbúar hafa aðgang að öfl- ugum dreifikerfum. Allur sá fjöldi sjónvarpsrása sem í boði verður og allir þeir nýju möguleikar sem skap- ast með stafrænni tækni munu án efa fá marga Íslendinga til skipta yfir í stafrænt gagnvirkt sjónvarp í náinni framtíð. Elfa Ýr er yfirmaður viðskipta- mótunar og Davíð er tæknistjóri hjá GMi Digital. EFTIR heldur óburðugan inngang greinar sinnar um ólympíska hnefaleika fellur Ó. Hergill í þá gryfju sem margan hendir sem haldinn er fordómum. Hann full- yrðir að þjóðir sem leyfa hnefaleika leggi þá ekki niður vegna þess að miklir peningar séu í húfi. Það eru engir peningar á bak við ólympíska hnefaleika, sem eru áhugamanna- íþrótt. Það er greinilegt að upplýsingar Ó. Hergils, sem hann hermir upp á nafngreinda lækna, eru ekki fengnar frá rannsóknum á þeim sem iðkað hafa hnefaleika eftir ólympískum hnefaleikareglum enda kemur það hvergi fram. Þetta virðast vera almennar rannsóknir á heila- skaða almennt í sambandi við áverka vegna heilahristings af ýmsum orsök- um. Þó tekur hann eitt dæmi í grein sinni. Hann skrifar: „Dauðsföll verða í áhugamannahnefaleikum (Cowart 1989). Patricia Quinn, 19 ára stúlka, var nemi í lögregluskóla í New Jers- ey í Bandaríkjunum árið 1988. Í skól- anum tók hún þátt í tveimur æfinga- leikjum í áhugamannahnefaleikum og var slegin niður fimm sinnum. Patricia dó skömmu síðar. Krufning leiddi í ljós áverka á heila vegna höf- uðhögga.“ tilvitnun lýkur. Mér er spurn, hefur Ó. Hergill kynnt sér reglur þær sem þjálfað og keppt er eftir í ólympískum hnefa- leikum? Þetta hefði aldrei gerst í slíkri keppni. Þessi lýsing á reglum lögregluskól- ans í New Jersey á ekkert skylt við ólympíska hnefaleika, því í þau örfáu skipti sem menn falla í slíkri keppni getur það ekki gerst nema einu sinni í hverjum leik, það eru reglur. Ath. Patricia dó skömmu síðar o.s.frv. Þeir sem hafa verið dómarar við þessa keppni hafa ekki verið starfi sínu vaxnir. Þeirra er skömmin. Þetta einstaka dæmi er ekki dæmi um keppni í ólympíuíþrótt, heldur hefur þarna far- ið fram einhver amer- ískur lögguleikur. Athygli vert er að læknirinn Ó. Hergill skuli ekki benda á dæmi um sams konar slys í ólympískum hnefaleik- um, þar sem umræðan snýst um að leyfa þá. Trúlega er það vegna þess að slík óhöpp er ekki að finna þar. En þegar Ó. Hergill bendir á dómaramistök í íþróttum er auðvelt að benda á að hámenntaðir fagmenn gera mannleg mistök í starfi, og þol- endum þeirra hafa verið dæmdar skaðabætur, en engum dettur í hug að dæma alla læknastéttina seka. Þegar menn eða konur eru að skrifa andmæli gegn ólympíuíþrótt dettur mér í hug íslenski málshátt- urinn: „Þeir segja mest frá Ólafi kon- ungi sem hvorki hafa heyrt hann eða séð“. Ég gæti af eigin reynslu sagt margt um kosti þess er ég sem 15 ára unglingur hóf að æfa hnefaleika sem ég geri enn í dag. Ég hef í 67 ár stundað þessa þroskandi íþrótt af kappi. Borið saman við aðrar íþróttir sem ég hef stundað um æfina bera hnefaleikar af fyrir þjálfun líkamans á þann hátt sem eðlilegast er hvað varðar líkamshreyfingar, sökum þess hversu eðlilegar þær eru líkams- og vöðvabyggingu mannsins. Ég ráðlegg Ó. Hergli að kynna sér rannsóknir sérfræðinga Karolinska spítalans í Stokkhólmi sem þeir hófu 1980 og stóðu yfir í 5 ár á 50 hnefa- leikamönnum, 25 knattspyrnumönn- um, 25 frjálsíþróttamönnum og 25 al- mennum borgurum. Eftir því sem ég les út úr niður- stöðum þeirrar könnunar koma þess- ir svokölluðu almennu borgarar einna verst út, einkanlega vegna hreyfingarleysis. En þeir eru einmitt sá hópur manna sem mest skrifa á þá lund sem Ó. Hergill gerir, ekki ein- ungis um hnefaleika, heldur um allt milli himins og jarðar, og sanna ótví- rætt fákunnáttu sína þótt þeir telji sig vita allt betur en aðrir. Þar sann- ast hið fornkveðna, „það er mikil skynsemi í þögninni“. Finnst ykkur ekki sagan um Patri- ciu Quinn sannfærandi? Það voru stundaðir hnefaleikar hér á landi frá 1917 til og með 1956. Öll helstu íþróttafélögin höfðu æfingar og keppni í hnefaleikum. Fyrsta ís- landsmótið fór fram 1936. Á svoköll- uðum stríðsárum frá 1940 – 1946 voru haldin hér hnefaleikamót og sýningar í hnefaleikum, viku- og hálfsmánað- arlega, ýmist á vegum íþróttafélag- anna eða hers Englendinga eða Bandaríkjamanna. Þar á eftir komu Norðmenn og Danir til að keppa við okkar pilta, seinast 1953. Þar á meðal í einu tilfelli hnefaleikari í þungavigt sem náð hafði að vera nr. 4 á heims- listanum yfir atvinnumenn og þar áð- ur orðið ólympíumeistari. Það var 1948 sem ég boxaði við hann í Austur- bæjarbíói fyrir fullu húsi áhorfenda. Seinna komu tveir Evrópumeistar- ar og samtímis 4 danskir hnefaleika- kappar sem kepptu við okkar pilta. Þrátt fyrir þetta og úrtölur af ýmsu tagi finnast engin dæmi um slys í hnefaleikum í skýrslum ÍSÍ og ekk- ert komið fram síðar um skaða af þeirra völdum. Þó voru ekki til höf- uðhlífar sem nú eru notaðar við keppni í ólympískum hnefaleikum. Enn um hnefaleika Guðmundur Arason Hnefaleikar Ég ráðlegg Ó. Hergli að kynna sér rannsóknir sérfræðinga, segir Guðmundur Arason, Karolinska spítalans. Höfundur er fyrrverandi formaður hnefaleikaráðs Reykjavíkur. Það er líklegt að alvarlegum slys- um muni fjölga, einkum alvarlegum ákeyrslum, vegna þess að aðstæður eru iðulega þannig á Hellisheiði að þar er blindur skafrenningur. Við þær aðstæður geta ljósastaurarnir sést án þess að ökumenn sjái bíla sem hafa fest í snjóskafli og afleiðingarn- ar geta orðið skelfilegar. Skafla gæti dregið yfir veginn út frá ljósastaur- unum og valdið truflun á akstri. Þó að ljósastaurarnir verði af þeirri gerð að þeir eigi að valda sem minnstri hættu ef keyrt verður á þá eru engir staur- ar þannig að ekki verði tjón ef stjórn- laus bíll skellur á þeim. Þannig getur meinlaus útafakstur í hálku eða krapa orðið að stórslysi. Bíllinn sem skall á staurnum getur skemmst og farþegar slasast. Staurinn getur lent inni á hálum veginum og valdið mik- illi hættu þar fyrir aðvífandi öku- menn. Ljósastaurarnir munu verða fyrir snjóruðningstækjum og tefja fyrir þeim. Veglýsing á Hellisheiði yrði ein- hver alvarlegasta ljósmengun sem hugsast getur á Íslandi. Það er alltof sjaldan sem þéttbýlisbúar geta notið þess að sjá stjörnur og norðurljós. Það tækifæri gefst þegar ekið er yfir Hellisheiði. Lýsing á Hellisheiði væri sóun á almannafé sem kæmi fáum að gagni í mjög fáar klukkustundir á ári. Lýsing á rétt á sér nálægt þéttbýli og þar sem von er á umferð gangandi og hjólandi fólks og hestamanna. Þannig umferð er ekki á Hellisheiði. Að lokum Árni. Telur þú það rétt- lætanlegt að nota tæpar 300 milljónir króna af almannafé í aðgerð sem þú viðurkenndir sjálfur í fréttum RÚV að hefði lítið að gera með umferð- aröryggi, en kæmi sér vel fyrir þá sem eru hræddir við að aka í myrkri? Væri þá ekki betra að leggja féð í heilbrigðisþjónustuna og bjóða fólki meðferð við myrkfælni? Þú berð því við að 3.000 manns hafi skrifað undir áskorun um lýsingu á Hellisheiði. Ég vil benda á að þar var einnig verið að skora á yfirvöld að gera vegabætur á þessari leið. Ég hef ástæðu til þess að ætla að fleiri hefðu skrifað undir þessa áskorun ef beiðn- inni um lýsingu hefði verið sleppt. Við skulum taka höndum saman um að það verði gerðar þær endur- bætur á leiðinni austur fyrir fjall að það dragi úr slysum, en þú ættir að hætta að eyða kröftum þínum og skattfé almennings í aðgerð sem verður engum til góðs og gæti valdið óbætanlegum skaða. Lýsing Lýsing á Hellisheiði væri sóun á almannafé, segir Þorsteinn Ólafs- son, sem kæmi fáum að gagni í mjög fáar klukkustundir á ári. Höfundur er dýralæknir og íbúi á Selfossi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.