Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 31 Í NORRÆNA húsinu verður opn- uð dagskrá á morgun, laugardag kl. 19, til kynningar á menningu frá Norðurbotni í Svíþjóð. Dag- skráin hefur yfirskriftina Að brjóta ísinn og stendur til 6. apríl. Norðurbotnslén er milli Hels- ingjabotns, Finnlands og Noregs. Norðurbotn, og nyrsti hlutar Norðurlanda, hafa borið ýmis nöfn í aldanna rás. Bjarmaland, Lappland, Finnmörk, Samaland, Norðurkolla, og Barentshafs- svæðið. Áður fyrr þótti þessi heimshluti hinn ógnvænlegasti í Evrópu. Þar bjuggu óvættir og tröll, galdramenn og hirðingjar. Á Norðurbotnsdögum verður fjölbreytt dagskrá. Þar verður í boði myndlistarsýningar, eld- skúlptúr, tónleikar, bókmennta- dagskrá, kvikmyndasýningar, matarkynningar og barnadag- skrá. Tónrænn skúlptúr fyrir slagverk og eld Á myndlistarsýningunni, sem opnuð verður í dag, eiga verk Erik Holmstedt, Lena Ylipää, Eva-Stina Sandling, Rose-Marie Huuva og Brita Weglin. Þar eru grafíkverk, ljósmyndir, textílverk, skúlptúrar og innsetningar. Sýn- ingarstjóri er Bertil Sundstedt. Um kvöldið, kl. 21.30 fer fram gjörningur utanhúss þar sem teflt er saman slagverki og eld- skúlptúr undir heitinu „Slagsíða“. Hugmyndina og skúlptúrinn eiga Dan Lestander, Ricky Sandberg og Jan-Erik Falk. Slagverk og tónlist er í höndum Anders Astr- and. Á sunnudaginn kl. 13 verður sérstök kynnig á Luleå, höfuð- borg Norðurbotnsléns. Þar verð- ur m.a. dagskrá fyrir börn og sýnd mynd um kirkjuhverfið í Gammelstad, sem er á lista UNESCO yfir sameiginlega menningararfleifð mannkyns. Dagskránni á sunnudag lýkur með tónleikum þjóðlagahljóm- sveitarinnar J. P. Nyström. Á þriðjudag kl. 12 verður kynn- ing á hafnarborginni Piteå. Þar verður áhersla lög á mat og drykk. Miðvikudaginn 4. apríl verður kynning á Kirunaborg, sem er norðan við heimskauts- baug, og opnuð ljósmyndasýning á safni ljósmynda þaðan. Þjóð- lagasveitin Giron heldur tónleika um kvöldið, en tónlist þeirra er blanda af samískum þjóðlögum, rokki og djassi. Fyrirlestrar Per Erik Svensson frá Film- pool Nord mun halda fyrirlestur um kvikmyndagerð í Norðurbotni fimmtudaginn 5. apríl og þann dag munu verða sýndar stutt- myndir og heimildarmyndir í Norræna húsinu. Rithöfundurinn Bengt Pohj- onen heldur fyrirlestur föstudag- inn 6. apríl sem hann nefnir „Norðurbotn – þjóð án landa- mæra“ og mun m.a. fjalla um rit- höfundinn Eyvind Johnson, sam- starf innan Barentssvæðisins og þýðingu tungumála minnihluta- hópa. Í tengslum við fyrirlesturinn verður sett upp sýning á verkum Eyvind Johnson. Dagskráin er skipulögð af Nor- ræna húsinu í samvinnu við landsþingið í Norðurbotnsléni auk sveitarfélaganna Luleå, Piteå og Kiruna. Eldur og list á Norðurbotnsdögum Skúlptúr Evu-Stinu Sandling, en hún er ein af myndlistarmönnunum sem sýna verk sín á Norðurbotnsdögum í Norræna húsinu. KÓR Víkurkirkju og kór Digranes- kirkju halda sameiginlega tónleika í Digraneskirkju á morgun, laugar- dag, kl. 17. M.a. flytur kór Víkurkirkju Messe bréve nr. 7 í C-dúr eftir Charles Gounod sem hefur ekki áð- ur verið flutt í heild sinni á Íslandi. Stjórnandi Víkurkórsins er Kriszt- ína Szklenár. Kórarnir syngja hvor í sínu lagi og síðan sameiginlega nokkur lög en stjórnandi Digraneskirkjukórs- ins er Kjartan Sigurjónsson. Víkurkór- inn frum- flytur Messe bréve Fagradal. Morgunblaðið. „SÖFNUN – söfnuður – safn“, heitir sýning Sigríðar Erlu Guð- mundsdóttur sem hún opnar í Galleríi Sævars Karls á laugar- dag kl. 14. Sigríður Erla kýs að hafa ekki mörg orð um sýninguna. Gestir þurfi að setja sig inn í hana á eigin forsendum. „Hugmyndir að verkum nálgast ég í grundvallaratriðum á tvenn- an hátt. Annars vegar í gerð nytjahluta úr leir sem er meg- inefni í verkum mínum. Til- gangur nytjahluta er í eðli sínu hógvær, sá að þjóna og létta fólki lífið. Hins vegar vinn ég gjörn- inga eða innsetningar þar sem nytjahlutir gegna stóru hlutverki. Í verkum mínum fjalla ég gjarn- an um sögur. Myndgeri augnablik sem eiga sér bæði fortíð og fram- tíð. Sýningin hér er sett þannig fram. Þetta er innsetning. Einfalt verk úr flóknu ferli. Ég leita gjarnan eftir einfaldleikanum,“ segir Sigríður Erla. Nálgunin lengi að vefjast fyrir mér Hún segir hugmyndina hafa skotið upp kollinum síðastliðið haust og hún sé þannig gerð, að þegar slíkt gerist þurfi hún að koma þeim fljótt frá sér. „Það má segja að hugmyndin hafi sprottið fram fullsköpuð, en nálgunin var lengi að vefjast fyr- ir mér og ég hef farið ansi djúpt í pælingarnar við þessa sýningu, hringnum hefur þó verið lokað.“ Sýningunni lýkur fimmtudag- inn 19. apríl. Hugmyndin spratt fram fullsköpuð Verk eftir Sigríði Erlu Guðmundsdóttur. Swing í Borgarnesi BJÖRN Thoroddsen gítarleikari, Jón Rafnsson kontrabassaleikari og vestur-íslenski trompetleikarinn Richard Gillis leika swing á veitinga- staðnum Búðarkletti í Borgarnesi í kvöld, föstudagskvöld, kl. 23. Úr djúp- unum í Bessastaða- kirkju TÓNLISTARDAGSKRÁ með ljóða- og lausamálstextum að stofni til byggð á lögum sömdum af gyð- ingum í útrýmingarbúðum og gettó- um síðari heimsstyrjaldar verða fluttir í Bessastaðakirkju á sunnu- dagskvöld kl. 20.30. Dagskráin hef- ur yfirskriftina Úr djúpunum og hefur verið flutt í kirkjum á Suður- landi undanfarnar vikur. Flytjendur eru Hilmar Örn Agnarsson sem leikur á orgelharmoníum, Hjörtur Hjartarson leikur á klarinett, Sveinn Pálsson á gítar, Ingunn Jensdóttir flytur söngva, Eyvindur Erlendsson fer með ljóð og laust mál. Gallerí Reykjavík Sýningu Dereks Mundells í Gallerí Reykjavík, Skólavöru- stíg 16, lýkur á morgun laug- ardag. Derek sýnir vatnslita- myndir, flestar af módelum og uppstillingum. Opið er í dag frá kl. 13–18, og á morgun frá kl. 11–16. Í húsi Landsbanka Íslands, Laugavegi 77 Sýningu Garðars Jökuls- sonar lýkur á þriðjudag. Á sýn- ingunni eru 40 landslags- og náttúrumyndir. Sýningin er opin alla daga frá kl. 13–18. Sýningu lýkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.