Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 24
ÚR VERINU 24 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ leit með Sérstakur leitarhnappur er á öllum vefjum mbl.is þar sem hægt er að leita í nokkrum söfnum. FRÉTTABANKI mbl.is Á mbl.is er hægt að leita í Fréttabanka mbl.is að fréttum sem birst hafa á Netinu. Í bankanum eru nú yfir 130.000 fréttir og bætist stöðugt við. GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS Allar greinar og fréttir Morgunblaðsins frá 1987. HA.IS Yfir 1.500.000 skráðar síður. SIMASKRA.IS Öll skráð símanúmer hjá Landssímanum. mbl.is EKKI er enn ljóst hvort Íslend- ingar fái undanþágu til að flytja inn sjávarafurðir til Rússlands en sl. mánudag settu Rússar innflutn- ingsbann á matvæli frá Evrópu vegna gin- og klaufaveiki í álfunni. Norðmenn eru í sömu sporum og Íslendingar og Evrópusambandið hefur reynt að fá banninu aflétt án árangurs. Jón Egill Egilsson, sendiherra Íslands í Moskvu, segir að mikið hafi verið gert til að gera grein fyr- ir stöðu Íslands í málinu. Hann átti fund með starfsmönnum rússneska utanríkisráðuneytisins í gær en segir að ekki hafi fengist nein nið- urstaða varðandi sérstöðu Íslands. Í dag vonar hann að hann nái fundi með yfirdýralækni Rússlands, en á það hefur verið bent að gin- og klaufaveiki sé ekki á Íslandi. Rússar hafa heimilað innflutning á sjávarafurðum sem fóru af stað áður en tilskipunin tók gildi. Málið skiptir Norðmenn sérstaklega miklu máli en þeir fluttu meira en 200.000 tonn af fiskafurðum til Rússlands í fyrra. Jón Egill segir að viðskipti Íslendinga með sjáv- arafurðir í Rússlandi virtust hafa verið að taka við sér eftir að hafa verið lítil undanfarin ár og því skapi bannið ákveðið öryggisleysi, þó ekki hafi orðið neinn skaði af því ennþá, en áfram verði haldið að vinna að lausn málsins. Íslenskar sjávarafurðir til Rússlands Málið ekki í höfn HINN árlegi kynningar- og nemendamótsdagur Vélskóla Íslands, Skrúfudagurinn, verður haldinn á morgun, laugardag, kl. 13–16.30 í Sjómanna- skólanum. Á sama tíma heldur Stýrimannaskól- inn í Reykjavík árlegan kynningardag sinn. Á Skrúfudeginum gefst væntanlegum nem- endum og öðrum þeim sem áhuga hafa á vél- stjóramenntuninni kostur á að heimsækja skólann og kynna sér þá starfsemi sem þar fer fram. Nem- endur og kennarar munu veita upplýsingar um kennsluna og kynna búnað og tæki í verklegum deildum. Á bókasafni Sjómannaskólans verður sýning á bókum og tímaritum sem tengjast námi og störfum vélstjóra og vélfræðinga. Kl. 14.30 mun Ögmundur Einarsson, framkvæmdarstjóri Sorpu, halda erindi um umhverfisvæna orku eða hauggas og kl. 15.10 mun Örn Arason, vélfræð- ingur og öryggisstjóri hjá Landsvirkjun, flytja er- indi um framtíðaráætlanir og öryggismál Lands- virkjunar. Í Vélasal skólans má sjá nýja og gamla tímann mætast þar sem þar verða í gangi nýtísku vélarúmshermir og ein af fyrstu bátavélunum sem notuð var á Íslandi. Í rafmagnsdeild skólans verður meðal annars í gangi fjarviðhaldskerfi sem er árangur Temafis-verkefnisins sem skólinn tók þátt í. Ýmis fyrirtæki á sviði vél- og tæknibúnaðar kynna vörur sínar og þjónustu á Skrúfudeginum, auk þess sem ýmis félagasamtök og stofnanir sem tengjast vélstjórastarfinu kynna starfsemi sína í skólanum. Hollvinasamtök Sjómannaskólans og Eftirmenntun vélstjóra verða með kynningu á starfsemi sinni. Kvenfélögin Keðjan og Hrönn verða með kaffisölu í matsal Sjómannaskólans. Þyrla Landhelgisgæslunnar munkoma í heimsókn og er áformað að hún lendi kl.14. Nýr siglingahermir til sýnis Á kynningardegi Stýrimannaskólans í Reykja- vík verður starfsemi skólans kynnt, ásamt tækj- um og kennslugögnum, m.a. hið nýja sjónsiglinga- tæki tengt siglingasamlíki (hermi) Stýrimanna- skólans. Þá munu fjölmörg fyrirtæki og stofnanir kynna starfsemi sína og þjónustu. Í Hátíðarsal Sjómannaskólans hefst dagskráin með því að skólameistari Stýrimannaskólans, Guðjón Ár- mann Eyjólfsson, og formaður Nemendafélagsins Halldór Guðjón Halldórsson, flytja ávörp. Slysavarnarskóla sjómanna verða afhentar 1,5 milljónir króna úr Björgunarsjóði Stýrimanna- skólans í Reykjavík til kaupa á útbúnaði til sjó- setningar á lokuðum björgunarbáti við Slysa- varnaskólann Sæbjörgu. Keppni í vírasplæsingum hefst klukkan 15:00 og einnig verður sýnd verkleg sjóvinna á lóð Sjó- mannaskólans. Kl. 15.30 flytur Hjálmar Vil- hjálmsson fiskifræðingur fyrirlestur um loðnuna – hegðun hennar og göngur. Kynning í Vélskólanum og Stýrimannaskólanum Stúlkum hefur fjölgað í Vélskólanum og hér er Þórunn Ágústa Þórsdóttir, sem lýkur 4. stigs námi nú í vor, við viðhaldsvinnu á dís- ilvél í vélasal skólans. ÁGÆT loðnuveiði var í gær um 4 sjómílur út af Beruvík á Snæ- fellsnesi. Þannig fékk Ingunn AK um 900 tonna kast í fyrra- kvöld og tvö 300 tonna kost í gærmorgun. Í gærkvöldi voru 8 skip á miðunum og voru þau flest komin langt með að fylla sig. Viðar Karlsson, skipstjóri á Víkingi AK, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að aðeins veiddist hængur á þessum tíma og útilokaði ekki að hægt yrði að veiða einhverja daga í við- bót. „Það kom mikið af loðnu í Víkurál, á eftir stóru göngunni í vetur, sem flotinn náði lítið að sinna vegna veðurs. Nú hefur þessi loðna komið upp að land- inu til hrygningar. Loðnan hef- ur því greinilega hrygnt víða og það eru góðar fréttir. Þetta er stór og falleg loðna og því er maður bjartsýnn á að hrygn- ingin hafi tekist vel. Væntan- lega fer þessi loðna af stað norður eftir og vonandi kemur þá eitthvað meira upp undir landið. Þetta gengur venjulega svona fyrir sig í vertíðarlokin, hængurinn kemur í fjörurnar og við veiðum hann þegar hann fer til baka. Það er lítið lýsi í loðnunni á þessum tíma og það gengur hægt að dæla henni um borð í skipin. Þetta er hinsveg- ar mjög mjölmikill fiskur og því er sjálfsagt að halda áfram veiðum eftir hrygningu,“ sagði Viðar. Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum fiskvinnslustöðva hafa borist um tæp 866 þúsund tonn af loðnu á land af íslensk- um skipum á sumar-, haust- og vetrarvertíð og því um 53 þús- und tonn eftir af heildarkvót- anum. Ennþá kropp á loðnunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.