Morgunblaðið - 30.03.2001, Page 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Oddaleikur hjá
Fram og ÍBV/B4
Njarðvíkingar í úrslit eftir
sigur á KR/B2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á FÖSTUDÖGUM
SIGURÐUR Magnússon, forstöðu-
maður Geislavarna ríkisins, segir að
rætt hafi verið um það í mörg ár
hvort flutningar á brennsluefni fyrir
kjarnorkuver frá Japan til Evrópu
gætu farið fram með skipum um
Beringssund, meðfram Rússlandi og
síðan suður á bóginn. Sigurður segir
að hvati að slíkri umræðu sé einkum
efnhagslegs eðlis. Þetta sé mun
styttri siglingaleið og greiðfærari en
fyrirætlanir af þessu tagi séu and-
stæðar hagsmunum Íslendinga.
„Það er í sjálfu sér ekkert nýtt í
þessu. Í Grønlandsposten 27. febrú-
ar sl. er vísað í aðstoðarforstjóra
dönsku siglingamálastofnunarinnar
en samkvæmt mínum upplýsingum
er þarna aðallega um það að ræða að
einkafyrirtæki eru að tala saman.
Komist menn að einhverri niður-
stöðu þarf væntanlega að leggja
hana fyrir þar til bæra aðila í þessum
löndum,“ segir Sigurður.
Hann segir alveg ljóst að Íslend-
ingar myndu mótmæla slíkum fyrir-
ætlunum harðlega og Norðmenn
sömuleiðis. „Þessir flutningar hafa
farið fram frá Japan til Evrópu síðan
1969 og ekki er vitað um að nein
óhöpp hafi orðið. Það er mikill við-
búnaður í kringum þessa flutninga
og skipin eru sérstaklega hönnuð
með tilliti til alls öryggis. Notað
brennsluefni sem er flutt frá Japan
er í sérstökum gámum sem uppfylla
tæknilegar kröfur sem eru sam-
þykktar á alþjóðlegum vettvangi.
Þeim formsatriðum er því fullnægt.
Hins vegar er meira en að segja það
að sigla þessa leið meðfram strönd-
um Rússlands því þar þyrfti kjarn-
orkuknúinn ísbrjótur að leiða lestina.
Hann gerir rennu í ísinn sem skipin
sigla um. Skipin þyrftu að vera sér-
staklega styrkt með tilliti til slíkrar
siglingar. Það er vafamál hvort þau
skip sem eru notuð núna uppfylli
þær styrktarkröfur. Það er því ákaf-
lega mörgum spurningum ósvarað í
tengslum við fyrirætlanir af þessu
tagi. Þar að auki er heimskautavist-
kerfið ákaflega viðkvæmt fyrir öllum
óhöppum,“ segir Sigurður.
Geislavarnir ríkisins um flutning á kjarnorkubrennsluefni á norðurslóðum
Andstætt
hagsmunum
Íslendinga
Áhyggjur/11
ÁRSVERK hjá Þjóðhagsstofnun
eru 22 talsins, hjá Seðlabanka Ís-
lands starfa um 115 starfsmenn í
107 stöðugildum og hjá Hagstofu Ís-
lands eru starfsmennirnir rúmlega
áttatíu í um 70 stöðugildum og þar
af starfa um 60% við hagskýrslu-
gerð.
Tillögur eru uppi í forsætisráðu-
neytinu um að leggja Þjóðhagsstofn-
un niður og færa verkefni hennar
undir aðrar stofnanir, þ. á m. Seðla-
banka og Hagstofu. Forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar sagði í Morgun-
blaðinu í gær að á sínum tíma hefði
verið rætt um að skipa sérstaka
nefnd til að fjalla um skipulags-
breytingarnar og að hún hefði átt að
starfa undir forystu Ólafs Davíðs-
sonar, ráðuneytisstjóra forsætis-
ráðuneytisins, en nefndin hefði aldr-
ei komið saman svo hann vissi til.
Ólafur Davíðsson sagði aðspurður
að ekki hefði verið starfandi nein
formleg nefnd í þessum efnum. Hins
vegar hefði verið ákveðið að þessar
stofnanir sem þetta varðaði, Seðla-
banki, Þjóðhagsstofnun, fjármála-
ráðuneyti og Hagstofa, settu fram
sín sjónarmið um þessa verkaskipt-
ingu og úr þeim sjónarmiðum hefði
verið unnið innan ráðuneytisins.
Þjóðhagsstofnun hefði sett fram sín
sjónarmið á sínum tíma.
Rúmlega 40 ársverk
við hagskýrslugerð
Hallgrímur Snorrason hagstofu-
stjóri sagði að hjá Hagstofunni
störfuðu rúmlega áttatíu manns í
um sjötíu stöðugildum. Þar af störf-
uðu um 40% við þjóðskrá og fyr-
irtækjaskrár, en við hagskýrslu-
gerð, sem þetta mál snerist um,
störfuðu 47 manns í rúmlega 40 árs-
verkum.
Hallgrímur sagði aðspurður að
það væri talsverð skörun í verkefn-
um Hagstofu og Þjóðhagsstofnunar
í hagskýrslugerðinni á sumum svið-
um. Það væri hægt að einfalda hana
með tilfærslu verkefna og hann teldi
að það yrði til þess að gera störfin
einfaldari og skilvirkari. Þar væri
hann einkum að vísa til gerðar þjóð-
hagsreikninga og atvinnuvega-
skýrslna.
Birgir Ísleifur Gunnarsson seðla-
bankastjóri sagði að starfsmenn
Seðlabankans væru 115 í 107 árs-
verkum. Starfsmönnum hefði fækk-
að töluvert að undanförnu vegna
þess að bankaeftirlitið hefði flust frá
bankanum.
Þjóðhagsstofnun er til húsa í
seðlabankahúsinu. Birgir Ísleifur
sagði að hún væri alveg sjálfstæð
stofnun, þótt hún leigði hjá þeim, en
helmingur rekstrarkostnaðar henn-
ar væri greiddur af Seðlabankanum
samkvæmt lögum.
Aðspurður sagði Birgir Ísleifur að
reynt væri að gæta þess að ekki
væri um skörun verkefna Þjóðhags-
stofnunar og Seðlabanka að ræða.
Segja mætti að eitthvað væri um
slíka skörun, en sér sýndist að það
væri að mjög litlu leyti.
Ársverk hjá
Þjóðhagsstofn-
un 22 talsins
Hart deilt/11
Yfirlýsing/41
♦ ♦ ♦
FLÖSKUSKEYTI sem níu ára
strákur úr Sandgerði kastaði í sjó-
inn síðastliðið vor fannst á dög-
unum við strendur Norður-Írlands.
Svo mikið þótti til fundarins koma
þar í landi að útvarpsstöðin BBC
hafði samband við stráksa og átti
við hann símaviðtal í beinni útsend-
ingu auk þess sem dagblöðin á
staðnum fjölluðu um málið.
Strákurinn sem um ræðir heitir
Andri Steinn Harðarson og segir
hann það hafa verið hugmynd
kennara síns að senda flöskuskeytið
af stað. Öll bekkjarsystkini hans
gerðu slíkt hið sama og fóru því 17
flöskur í sjóinn þennan dag en
skeytasendingarnar voru hluti af
undirbúningnum fyrir sjó-
mannadaginn í fyrravor.
Það voru svo þrjár írskar stelpur,
átta og níu ára gamlar, sem rákust
á flöskuna með skeytinu í á strönd-
inni hjá Carrowmenagh sem er á
norðurströnd Írlands.
Þær áttu þó í erfiðleikum með að
skilja skilaboðin sem voru rituð á ís-
lensku. „Ég skrifaði bara að hringja
í númerið mitt og gaf upp tölvupóst-
inn. Sumir skrifuðu líka „Iceland“ í
bréfið en ég var bara svo kærulaus
að ég sleppti því,“ segir Andri sem
viðurkennir að það hefði hann
kannski átt að gera því það kostaði
Írana töluvert umstang að komast
að uppruna bréfsins. „Það var farið
með þetta til BBC og þeir voru bún-
ir að þýða þetta úr mörgum málum
og svo kom upp úr dúrnum að þetta
væri íslenska. Svo var bara hringt í
mig og ég fór í beina útsendingu á
Norður-Írlandi,“ útskýrir sendand-
inn stutt og laggott.
Leið hálfskringilega
Það var sem sagt írskur málfræð-
ingur sem komst að hinu sanna í
málinu en hann óskaði eftir að fá að
sjá skilaboðin eftir að hann heyrði
þau lesin í útvarpið. Sólarhring
seinna, eftir að hafa borið hið tor-
skilda mál saman við ýmis tungu-
mál á borð við rússnesku og
spænsku, var gátan leyst og þá var
útvarpsstöðinni BBC ekki til set-
unnar boðið heldur tóku þeir þegar
upp símtólið og hringdu í þann sem
skeytið ritaði. „Mér leið hálf-
skringilega,“ segir Andri um að
hafa skyndilega verið kominn í
beina útsendingu á BBC á Írlandi
og segir hógvær að hann hafi nú
ekki sagt mikið enda kunni hann nú
ekki mikið í ensku. „Það var mest
talað við mömmu, ég var bara
spurður nokkurra spurninga og svo
voru þær konurnar bara að tala
saman.“ Mamma Andra, Vilborg
Einarsdóttir, hefur hins vegar aðra
sögu að segja og segir hann skilja
enskuna prýðilega þótt hann hafi
aðallega beitt fyrir sig einsatkvæð-
isorðum á borð við „yes“ og „no“ í
viðtalinu.
Tvær aðrar flöskur hafa fundist
En hvað vildi útvarpsfólkið á Ír-
landi fá að vita? „Þær voru bara að
spyrja mig hvort ég myndi hvað
hefði staðið í bréfinu og hvenær við
gerðum þetta og hvort það hefðu
fundist einhver fleiri,“ segir Andri.
Vilborg upplýsir að vitað sé um að
tvær aðrar flöskur hafi fundist,
önnur á Stapa og hin á Snæfells-
nesi. Flaskan hans Andra er hins
vegar sú eina sem vitað er um að
hafi farið í siglingu til útlanda. „Það
þykir svolítið merkilegt hvernig
straumurinn bar þetta skeyti alla
leið til Írlands því það þarf eig-
inlega fyrst að fara hringinn í kring
um Ísland til að fara alla leið til Ír-
lands,“ segir Vilborg.
Fjölmiðlaathyglinni í kringum
skeytið góða lauk þó ekki aldeilis
með útvarpsviðtalinu því dagblöðin
á staðnum fengu veður af málinu og
stóð til að birta viðtal við stelpurnar
sem fundu skeytið, nú í vikunni.
Þær ætluðu svo að senda Andra
eintak af blaðinu. Þá hafa krakk-
arnir skrifast á í tölvupósti og er
Andri þegar búinn að fá tvö bréf
send frá nýju vinunum sínum á Ír-
landi.
Vilborg segir ekki laust við að
Andri finni fyrir allri athyglinni og
hefur áhugi hans á Norður-Írlandi
aukist fyrir vikið. „Hann er ósköp
hógvær en finnur að það er einhver
spenna í kringum þetta og honum
finnst þetta svolítið ævintýri eins og
krökkunum í bekknum hans. Hann
var t.d. að tala um hvort við gætum
ekki breytt sumarfríinu og farið
bara til Írlands,“ segir hún að lok-
um.
Flöskuskeyti stráks úr Sandgerði fannst á Írlandi
Morgunblaðið/RAX
Andri Steinn Harðarson og Vilborg Einarsdóttir, mamma hans, í fjör-
unni í Sandgerði með flösku eins og þá sem skeytið var sent í.
Umhverf-
is Ísland
og svo
til Írlands
FLUTNINGABIFREIÐ með tengi-
vagni og aftanívagni lenti á hliðinni í
Gatnabrún á Suðurlandsvegi í gær-
morgun.
Lögreglan í Vík í Mýrdal fékk til-
kynningu um óhappið laust fyrir
klukkan átta. Ökumaðurinn var ekki
á staðnum en hann hafði samband
við lögreglu skömmu síðar. Farsíma-
sambandslaust er þar sem óhappið
varð og gat ökumaðurinn því ekki til-
kynnt óhappið fyrr. Ökumanninn
sakaði ekki en hann hafði fengið far
með öðrum flutningabíl.
Að sögn lögreglunnar voru ekki
sjáanlegar miklar skemmdir á bíln-
um. Honum var komið á réttan kjöl
um kaffileytið og ekið á vagni til
Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Ekki voru sjáanlegar skemmdir
á flutningabílnum sem var á
vesturleið, fullur af fiski.
Fiskiflutn-
ingabíll á
hliðinni