Morgunblaðið - 30.03.2001, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 9
föstudag 30. mars kl. 13–19,
laugardag 31. mars kl. 12–19,
sunnudag 1. apríl kl. 13–19.
RAÐGREIÐSLUR
Síðasta söluhelgi
fyrir páska
á nýjum og gömlum, handhnýttum, austurlenskum
gæðateppum á Grand Hótel í Sigtúni
10%
staðgreiðslu-
afsláttur
NÝ SENDING af persneskum teppum
Fallegur og þægilegur fatnaður
í páskafríið
og fyrir hátíðisdaga sumarsins
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230
Opið virka daga kl. 10–18
Opið laugardaga kl. 10–14
ELENA MIRO SPORT
STÓRAR STÆRÐIR
á horni Laugavegs og Klapparstígs
sími 552 2515
Sígild verslu
n
Fermingargjöfina
færðu hjá okkur
Stólatilboðin
halda áfram
Lagersala á Bíldshöfða 14
Skór, töskur, belti, nærföt og margt fleira.
Alltaf eitthvað nýtt.
Opið alla föstudaga frá kl. 16-19,
laugard. 12-16 og sunnud. 13-17.
www.sokkar.is oroblu@sokkar.is
Útsala
Handunnin massífur kapteins stóll með leðuráklæði og
áletruðu nafni. Tilvalin fermingar- og tækifærisgjöf.
Úrval af húsgögnum, ekta pelsum og óvenjulegum
gjafavörum og ljósum. - Verið velkomin.
Opið virka daga frá kl. 11-18
og laugard. frá kl. 11-16.
Sigurstjarnan,
Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin),
sími 588 4545.
LAUGAVEGI 56, SÍMI 552 2201
!
Á AÐALFUNDI Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur, sem haldinn var
nýlega, kom m.a. fram að félags-
mönnum fjölgaði á síðasta ári um
1.500 og eru fullgildir félagsmenn
því um 19.000 talsins. Heildarfjöldi
félagsmanna, þ.e. að þeim meðtöld-
um sem greiddu félagsgjöld að ein-
hverjum hluta, er um 28.600 manns.
Á síðustu fimm árum hefur félags-
mönnum fjölgað um 50%.
Í máli Magnúsar L. Sveinssonar,
formanns VR, kom fram að starf-
semi félagsins, sem fagnaði í janúar
sl. 110 ára afmæli, hefði á undanförn-
um árum tekið mið af umfangsmikilli
fjölgun félagsmanna og hefði síðasta
ár ekki verið nein undantekning í
þeim efnum, segir í fréttatilkynn-
ingu. M.a. hefði VR beitt nýrri hug-
myndafræði í kjarasamningagerð,
lagt áherslu á að virkja félagsmenn
til sjálfstæðrar samningagerðar og
aukið til muna upplýsingaflæði til
þeirra m.a. með gerð sérstakrar
launakönnunar fyrir VR-félaga.
Jafnframt benti Magnús á að hlut-
verk VR á sviði fræðslu og endur-
menntunar hefði aukist verulega. Á
sautjánda hundrað félagsmanna
hefði m.a. notið fræðslustyrkja á síð-
asta ári að upphæð rúmlega 34 millj-
ónir króna, sem er um 180% aukning
frá síðasta ári.
Hvað sjúkrasjóð VR varðar kom
fram að um 5.500 félagsmenn fengu
á síðasta ári greiddar samtals 316
milljónir króna úr sjóðnum, sem er
um 62% aukning á milli ára. Þar af
fengu 517 dagpeninga í fæðingaror-
lofi að upphæð 118 milljónir króna.
Í tilefni af því að hinn 27. janúar
voru 110 ár liðin frá stofnun Verzl-
unarmannafélags Reykjavíkur sam-
þykkti aðalfundur félagsins að veita
Krabbameinsfélagi Íslands styrk að
upphæð 11 milljónir króna, eða um
110 þúsund krónur fyrir hvert ár
sem liðið er frá stofnun félagsins.
Litlar breytingar urðu á stjórn VR
en samkvæmt reglum félagsins eru
stjórnarmenn kosnir til tveggja ára í
senn og er kosið um helming stjórn-
arsæta á hverjum aðalfundi. Hanna
Baldvinsdóttir gaf að þessu sinni
ekki kost á sér til endurkjörs og var í
hennar stað kosin Bjarndís Lárus-
dóttir sem var áður í varastjórn
félagsins. Í hennar stað tekur Ing-
veldur Sigurðardóttir sæti í vara-
stjórn.
Magnús L. Sveinsson var á síðasta
aðalfundi kjörinn formaður til ársins
2002.
Um 19 þús. félagsmenn í VR