Morgunblaðið - 30.03.2001, Side 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKIPTAR skoðanir eru hjá stjórn-
arandstöðunni á því hvort takmörk-
un á innflutningi grænmetis sé
tímabær í ljósi þeirrar einokunar-
stöðu sem upp er komin á grænmet-
ismarkaðnum hér á landi. Sam-
kvæmt samtölum Morgunblaðsins
við þingmenn flokkanna er Samfylk-
ingin eindregin í þeirri afstöðu sinni
að aflétta eigi takmörkunum. Aðrir
flokkar vilja fara varlegar í sakirn-
ar.
Jón Bjarnason, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, sagðist telja koma vel til
greina að lækka tolla á innfluttu
grænmeti. „Ég tel að grænmeti og
reyndar matvörur almennt eigi að
vera sem minnst tollaðar. Ég tel
einnig að við eigum að reyna að búa
þannig um hnútana að það sé sem
jafnast verð á grænmeti yfir árið.
Lækkun gjalda á almenna neyslu-
vöru eins og matvæli er til þess fall-
in að halda niðri almennum vísitölu-
hækkunum. Þetta kæmi því
almenningi til góða. Þess vegna er
ég hlynntur því að stjórnvöld gæti
hófs í skattlagningu á almennri mat-
vöru eins og grænmeti.
Það er hins vegar nauðsynlegt
varðandi innflutning á grænmeti að
þar sé beitt hörðu og ströngu gæða-
eftirliti. Það vita allir að grænmeti
er ekki það sama og grænmeti. Það
er því sérstök ástæða til að leggja
áherslu á hert eftirlit með fram-
leiðslu grænmetis þannig að það
grænmeti sem flutt er til landsins sé
í raun heilsusamleg fæða,“ sagði
Jón.
Best að rýmka ekki reglur
Guðjón Arnar Kristjánsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins, sagð-
ist vera íhaldssamur þegar kæmi að
innflutningi landbúnaðarvara. „Eins
og mál hafa þróast í Evrópu og víð-
ar held ég að það sé mikilvægt að
fara varlega í allar breytingar sem
lúta að því að flytja inn afurðir,
hvort sem þær eru af dýrum eða
vaxa á landi. Við vitum aldrei hvar
smitleiðirnar liggja. Það virðist vera
erfitt að kortleggja þær. Það sést
vel hvað varðar gin- og klaufaveik-
ina. Ég tel að það fari best á því að
rýmka ekki reglur, a.m.k. ekki
strax.“
Guðjón Arnar sagði mikilvægt að
það grænmeti sem flutt væri til
landsins uppfyllti ströngustu reglur
um gæði og heilbrigði. „Það eru
bara alltaf að koma fram vísbend-
ingar um nýjar smitleiðir og þess
vegna hef ég þá afstöðu að vilja ekki
gera neinar róttækar breytingar á
innflutningi landbúnaðarvara.“
Guðmundur Árni Stefánsson,
þingmaður Samfylkingarinnar,
sagði tímabært að létta verulega á
takmörkunum sem hafa verið á inn-
flutningi grænmetis. Íslenskir fram-
leiðendur fengju til þess aðlögunar-
tíma um einhver misseri.
„Mér sýnist að íslenskur græn-
metismarkaður hafi haft þokkalegan
aðlögunartíma til að standa sig í
þessu og ég hef fulla trú á að hann
geti það. Við erum í alþjóðlegu um-
hverfi viðskipta og þótt tímabundið
bakslag sé komið í innflutning land-
búnaðarvara, af ástæðum sem öllum
eru kunnar, tel ég að við Íslendingar
getum ekki verið stikkfrí í því
frjálsa flæði sem mun eiga sér stað í
viðskiptum landa í milli. Til lengri
tíma litið mun það ekki ganga af
innlendri framleiðslu dauðri þótt
innflutningstakmörkunum verði af-
létt, heldur þvert á móti mun hún
styrkjast. Umfram allt mun verð til
neytenda lækka,“ sagði Guðmundur
Árni.
Talsmenn stjórnarandstöðunnar um innflutt grænmeti
Takmörkun inn-
flutnings umdeild
INNFLUTNINGS- og smásöluálagn-
ing á papriku er tæplega 85%. Þetta
staðhæfir Ólafur Friðriksson, deild-
arstjóri í landbúnaðarráðuneytinu.
Hann segir það rangt sem haft er
eftir Guðmundi Marteinssyni, fram-
kvæmdastjóra Bónuss, í Morgun-
blaðinu í gær að 30% verðtollur eigi
sök á mikilli hækkun á papriku að
undanförnu.
Ólafur segir að samkvæmt sínum
upplýsingum sé innkaupsverð á
grænni papriku 218 krónur kílóið
úti í Hollandi og flutningskostnaður
um 20 krónur. Ofan á það sé lagður
30 prósenta verðtollur eða 71 króna
og ofan á þetta leggist svo ýmis
kostnaður sem er um 20 krónur á
kílóið. Paprikan kosti því um 330
krónur komin í hús hér á landi og
segir Ólafur það ríflega áætlað. Sé
virðisaukaskattur, sem er 14% á
papriku, lagður á þá upphæð er kíló-
verðið á grænni papriku 376 krónur.
Í viðtalinu í gær sagði Guð-
mundur hjá Bónus að innkaupsverð
hans á papriku væri 650 krónur og
að útsöluverð frá honum væri 695
krónur. Ólafur bendir á að sam-
kvæmt sínum útreikningum sé
heildarálagning innflytjanda og
smásala því 84,8% og því fari fjarri
að hátt verð á papriku sé verðtollum
að kenna. „Maður er orðinn svolítið
leiður á því þegar verið er að segja
að þetta sé út af einhverjum 30 pró-
senta tolli. Það er mjög auðvelt að
reikna út hver hann er, eða 71 króna
í verðmynduninni. Þannig að maður
krefst eiginlega skýringa,“ segir
hann.
Hátt verð í Hollandi
aðalástæðan
Morgunblaðið hafði samband við
Ávaxtahúsið sem er innflutnings-
aðili á grænmeti fyrir Baug og þar
með Bónus. Einar Þór Sverrisson,
framkvæmdastjóri þar, staðfestir að
innkaupsverð Bónuss á papriku sé
650 krónur á kílóið en segir að þar
sé um meðalverð papriku að ræða.
Græn paprika sé aðeins ódýrari eða
á tæpar 600 krónur.
Hann segir aðalástæðuna fyrir
háu paprikuverði vera hátt verð á
Hollandsmarkaði og vísar á bug
staðhæfingum Ólafs um að inn-
kaupsverð frá Hollandi sé aðeins
218 krónur á kílóið. Hann segir að
það sé mun hærra en vill ekki gefa
upp hvert það sé né hver álagning-
arprósentan hjá Ávaxtahúsinu sé.
„Ég átta mig ekki alveg á þessu
verði sem þarna er verið að tala um
en hins vegar verður að gæta að því
að við erum alltaf að vinna 10 daga
fram í tímann. Þannig að ef hann
hefur fengið uppgefið eitthvert verð
á Hollandsmarkaði í dag eru allar
líkur á að það hafi fallið töluvert frá
því sem það var því það er alveg ljóst
að verð á papriku úti í Hollandi fer
lækkandi.“ Einar segir þetta vænt-
anlega útskýra að mestu verðmun-
inn en bætir við að einnig verði að
hafa í huga að hægt sé að flytja inn
mismunandi gæðaflokka af papriku.
„Ávaxtahúsið flytur eingöngu inn
fyrsta flokk fyrir Baug og það getur
líka verið að tugir króna skýrist af
því.“
Álagning á papriku
85 prósent
arskóla í gær. Kappið var mikið
þegar það kom að því að renna sér
niður gljáandi rennibrautina, enda
mikilvægt að vera fyrstur niður og
komast sem flestar ferðir.
ÞAÐ er vor í lofti og það kann
yngri kynslóðin vel að meta. Vetur
konungur hefur látið lítið fyrir sér
fara á suðvesturhorni landsins og
hafa frískir krakkar því þurft að
renna sér í rennibrautum í stað
þess að þeysast um snjóhvítar
brekkur á snjóþotum.
Það var glatt á hjalla hjá hafn-
firsku pjökkunum á skólalóð Lækj-
Morgunblaðið/Ómar
Örtröð í rennibrautinni
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur
um að íslenska ríkinu væri heim-
ilt að krefja Landsvirkjun um
endurgjald vegna vatnsréttinda í
Blöndu í Blöndudal fyrir almenn-
inga og afréttarlönd Auðkúlu- og
Eyvindarstaðaheiðar.
Ríkið reisti kröfu sína á 3.
grein samningsins þar sem m.a.
var kveðið á um samkomulag um
greiðslur Landsvirkjunar til ís-
lenska ríkisins vegna þeirra
vatnsréttinda á almenningum og
afréttarlöndum sem væru undir
yfirráðum ríkisins.
Þegar ríkið og Landsvirkjun
gerðu með sér samning árið 1982
um virkjanamál, yfirtöku byggð-
arlína o.fl. ríkti óvissa um eign-
arhald á Auðkúlu- og Eyvindar-
staðaheiði.
Í niðurstöðum héraðsdóms seg-
ir að íslenska ríkið fari ekki með
hefðbundin eignarráð fasteignar-
eiganda á þeim almenningum og
afréttum sem um er deilt, heldur
lúti landssvæðið umráðum hans,
þar sem enginn hefur getað sann-
að eignarrétt sinn til þess og
þeirra réttinda sem því fylgja.
Ríkið gæti því í krafti forræð-
isréttar síns ráðið meðferð og
nýtingu þeirra náttúruauðlinda
sem þar er að finna, þ.m.t. vatns-
réttinda.
Enginn annar
hefur eignarrétt
Landsvirkjun áfrýjaði dómnum
til Hæstaréttar sem staðfesti
dóminn. Rétturinn féllst á kröfu
íslenska ríkisins með þeirri at-
hugasemd, að telja yrði að í þeim
umráðarétti ríkisins, sem um
gæti verið að ræða, hefði falist
heimild til að semja um gjaldtöku
vegna vatnsréttinda, ef aðrir
ættu ekki tilkall til þeirra.
Yrði því að skilja 3. gr. hins
umdeilda samnings þannig, að
Landsvirkjun hefði gengist undir
að greiða ríkinu vegna vatnsrétt-
inda á almenningum og afrétt-
arlöndum Auðkúluheiðar og Ey-
vindarstaðaheiðar að svo miklu
leyti sem heiðarnar væru ekki
undirorpnar fullkomnum eignar-
rétti annarra.
Með tveimur dómum Hæsta-
réttar hinn 10. apríl 1997 hefði
verið skorið úr um að svo væri
ekki.
Landsvirkjun var gert að
greiða íslenska ríkinu 300.000
krónur í málskostnað fyrir
Hæstarétti.
Mál þetta dæmdu Hæstarétt-
ardómararnir Garðar Gíslason,
Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur
Henrysson, Hrafn Bragason og
Pétur Kr. Hafstein.
Ríkið getur krafist endurgjalds
Hæstiréttur staðfesti héraðsdóm um vatnsréttindi ríkisins í Blöndu
UM 150–200 sjómenn verða án lög-
skráningar á skip hinn 1. apríl
næstkomandi ef svo heldur fram
sem horfir. Þá rennur út sá frestur
sem veittur var til að ljúka grunn-
námskeiði í öryggismálum hjá
Slysavarnaskóla sjómanna.
Hilmar Snorrason, skólastjóri
Slysavarnaskólans, segir í viðtali
við sjómannablaðið Víking, sem ný-
verið kom út, að útilokað sé að allir
þeir sjómenn sem eiga eftir að
sækja námskeiðið ljúki því fyrir til-
skilinn tíma og áætlar hann að þeir
séu á bilinu 150–200 talsins. Hann
segir að búið sé að veita frest frá
árinu 1997 en nú blasi alvaran við
því fresturinn verði ekki lengdur.
Skipstjórinn ábyrgur
Hilmar segir skipstjórann á
hverju skipi ábyrgan fyrir því að
áhöfnin uppfylli þau skilyrði sem
sett eru. Það muni svo koma í ljós
þegar hann lögskráir áhöfnina
hvort skipverjar hafi fengið örygg-
isfræðslu eða ekki.
Ef einhver hafi hana ekki eigi
ekki að vera hægt að lögskrá við-
komandi á skipið. Þannig geta þeir
sem eru með útrunnið atvinnuskír-
teini eða eru að sækja um það í
fyrsta sinn átt á hættu að missa
skipsrúmið hafi þeir ekki sótt nám-
skeiðið.
Námskeiðið sem um ræðir tekur
fjóra daga en til stendur að lengja
það upp í fimm vegna aukinna al-
þjóðlegra krafna. Að sögn Hilmars
hefur gengið mjög illa að fá menn
til að mæta á námskeiðin. Dæmi
eru um að aðeins ellefu hafi mætt á
námskeið sem fjörutíu höfðu óskað
eftir.
Fá ekki lög-
skráningu án
námskeiðsins
Frestur sjómanna til að ljúka örygg-
isnámskeiði rennur út 1. apríl