Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 14
FRÉTTIR
14 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SAMNINGAR Íslenskrar erfða-
greiningar og átta heilbrigðisstofn-
ana víðs vegar að af landinu, um
vinnslu heilbrigðisupplýsinga og
flutning þeirra í gagnagrunn á heil-
brigðissviði, var undirritaður í gær
að viðstaddri Ingibjörgu Pálmadótt-
ur heilbrigðisráðherra. Með undir-
rituninni í gær hafa alls 17 heilbrigð-
isstofnanir gert slíka samninga við
ÍE og eftir er að semja við 16 til 19
stofnanir til viðbótar.
Samningarnir fela m.a. í sér
vinnslu heilsufarsupplýsinga innan
heilbrigðisstofnana og undirbúning
fyrir flutning þeirra í gagnagrunn-
inn í fjórum áföngum, sem hefjast
mun þegar öryggiskröfum hefur ver-
ið fullnægt að lokinni úttekt Per-
sónuverndar. ÍE mun á móti annast
uppbygginu gagnaöflunarkerfis, þ.e.
sjúkraskrárkerfi. „Það er mjög mik-
ilvægt að mínu mati að það hefur
náðst góð samstaða um samstarf við
heilbrigðisstarfsfólk um að þróa það
tæki sem sjúkraskrárkerfið er,“
sagði Kristján Erlendsson, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs ÍE,
við Morgunblaðið en hann undirrit-
aði samningana fyrir hönd ÍE. „Við
höfum áhuga á að koma að því að
gera tækið sem best úr garði en
þannig munum við fá betri gögn inn í
kerfið og þaðan inn í gagnagrunn-
inn.“
Mikilvægt skref
í framþróuninni
Ingibjörg Pálmadóttir lýsti
ánægju sinni með áfangann sem náð-
ist í gær og sagði samningana vera
mikilvægt skref í framþróun sem
miklar vonir væru bundnar við. Með
samningunum ykjust möguleikar
heilbrigðisstofnananna til nýrra og
góðra verka í heilbrigðisþjónust-
unni. „Rafræn sjúkraskrárnotkun
bæði greiðir fyrir notkun í vísinda-
skyni og eykur persónuöryggi,“
sagði Ingibjörg í samtali við Morg-
unblaðið. „Það er gaman að finna
það, að þeim stofnunum, sem hafa
unnið með Íslenskri erfðagreiningu,
hefur vaxið þrek.“
Heilbrigðisstofnanirnar sem luku
samningum við ÍE í gær voru Heil-
brigðisstofnunin Sauðárkróki, Heil-
brigðisstofnun Austurlands, Heilsu-
gæslustöð Ólafsfjarðar, Heilsu-
gæslustöð Dalvíkur, Heilbrigðis-
stofnun Bolungarvíkur, Heilbrigðis-
stofnunin Selfossi, Heilsugæslan
Þorlákshöfn og Heilsugæslustöðin
Vík. Gert er ráð fyrir að Heilsu-
gæslustöðin Kirkjubæjarklaustri
skrifi undir samning við ÍE í dag,
föstudag, og Heilbrigðisstofnunin
Ísafjarðarbæ í næstu viku sem 19.
stofnunin af 35.
Átta heilbrigðisstofnanir á landinu skrifa undir samning við ÍE
Flutningur í gagna-
grunninn undirbúinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frá undirrituninni í gær. F.h. Magnús Stefánsson, frkvst. Heilbrigðisstofnunar Selfoss, Birgir Gunnarsson,
frkvstj. Heilbrigðisstofnunar Sauðárkróks, Kristján Erlendsson, frkvstj. samskiptasviðs ÍE, sr. Baldur Krist-
jánsson, stjórnarform. Heilsugæslu Þorlákshafnar, Sigurbjörg Yngvadóttir, stjórnarform. Heilsugæslustöðvar
Ólafsfjarðar, og Ásrún Yngvadóttir, frkvstj. Heilsugæslustöðvar Dalvíkur.
UNNIÐ var að því hörðum höndum í gær
að undirbúa snjóbrettastökkmót Ingólfs á
Arnarhóli, sem Íþróttabandalag Reykjavík-
ur stóð fyrir ásamt samstarfsaðilum. Bæði
þurfti að flytja snjó á mótssvæðið og reisa
stökkpallinn sjálfan sem slagaði upp í
verndara mótsins, Ingólf Arnarson, fyrsta
landnámsmanninn. Þá tóku við æfingar
keppendanna 11, sem urðu reyndar 13 á
síðustu stundu þegar gestakeppendurnir
David Carrier Porcheren frá Kanada og
Megan Pischke frá Bandaríkjunum mættu
til leiks. Þau höfðu verið á Eyjafjarð-
arsvæðinu í myndatöku fyrir erlend snjó-
brettatímarit og hafa keppt talsvert í
brettastökki.
Brettamótið á Arnarhóli var fyrst haldið
árið 2000 og þá var eingöngu keppt í
karlaflokki en nú kepptu þrjár konur í
kvennaflokki.
Árni Ingi Árnason, 18 ára, tók fyrstur
keppenda æfingastökk á stökkpalli Ingólfs
Arnarsonar eftir að smiðir höfðu lagt loka-
hönd á pallinn og keppendur sjálfir borið
snjó í hann. Árni byrjaði á einu „Method-
stökki“ samkvæmt upplýsingum Ágústs
Inga Axelssonar keppanda, sem hjálpaði til
við frágang pallsins, og tók síðan annað
flóknara stökk með snúningi. Hann var
ekki viss um hvaða stökkafbrigði hann ætl-
aði að sýna um kvöldið í sjálfri keppninni,
en ætlaði að halda öllum möguleikum opn-
um. „Það verður að ráðast á æfingunni
hvaða stökk ég tek, en sígild stökk eru
„Rodeo“ og ýmsir snúningar,“ sagði Árni.
„Í „Rodeo“ fer maður með höfuðið yfir
vinstri öxlina, setur hægri öxlina niður og
hallar líkamanum að tákanti brettisins. Þá
fer maður einn og hálfan snúning á hvolfi.
Ég er öruggastur með þetta stökk og tek
það á mótum.“
Árni hefur keppt á níu brettamótum, þar
af einu móti atvinnumanna sem fram fór í
Austurríki í vetur og lenti í 25. sæti af 44.
Árni byrjaði á brettum 13 ára gamall og
fékk áhugann í gegnum aðra brettastráka
og sjónvarpið á sínum tíma. En hvernig
hafa samskiptin við skíðafólk gengið á
skíðasvæðunum? „Maður hefur lent á
nokkrum skíðamönnum sem eru með stæla
við mann og segja manni að vera annars
staðar, en það er samt lítið um það. Þetta
er allt í góðu núna.“
Vildi
sjá skíðin
Ingibjörg Finnbogadóttir brettakona hef-
ur verið á brettum síðastliðin sex ár og
keppt á mörgum mótum.
Eins og svo margir byrjaði hún á skíðum
en skipti yfir í brettin um síðir. „Eftir að
ég prófaði bretti vildi ég ekki sjá skíðin
meira. Það var frekar einfalt,“ sagði hún.
Hvað hafa brettin fram yfir skíðin?
„Þetta er tvennt ólíkt, það er bara miklu
skemmtilegra á brettunum.“
Svo mörg voru þau orð, en hvað á að
sýna í kvöld?
„Pallurinn er í stærra lagi fyrir okkur
stelpurnar þannig að við förum ekki í snún-
inga, heldur grip sem hægt er að taka á
mismunandi vegu.“
Hvers konar æfingar tekurðu á skíða-
svæðunum?
„Það fer eftir aðstæðum. Ég er meira
fyrir „Freestyle“ en ef maður lendir í púð-
ursnjó, þá fer maður í „Freeride“,“ sagði
hún.
Fékk bretti í
fermingargjöf
Ágúst Ingi Axelsson, 22 ára, er Akureyr-
ingur og hefur rennt sér í átta ár á brett-
um. Fyrst dvaldi hann löngum stundum í
brettabúðum og skoðaði vöruúrvalið og
þar kom að hann fékk bretti í ferming-
argjöf. Skömmu eftir fermingu fluttist
hann til Akureyrar. „Það er miklu betra
að vera á brettum á Akureyri því þar
þarf maður ekki að brasa við að hand-
langa snjó í fötum upp á pallinn,“ sagði
hann eftir að vera nýbúinn að hella úr
hverri snjófötunni á fætur annarri á
pallinn í augnhæð Ingólfs Arnarssonar.
„Við leikum okkur í fjöllunum, búum til
palla og troðarakallarnir hjálpa okkur
líka. Fólk er farið að taka vel í að
hjálpa okkur en þetta kostar auðvitað
tíma og fé. Ég er mjög sáttur við það
sem hefur verið gert fyrir okkur hérna
á Arnarhóli. Þetta eru fínar aðstæður.“
Hvað er heillandi við brettin?
„Maður er miklu frjálsari en á skíð-
um, maður getur leikið sér meira og
svo er ekki hætta á að maður flæki
saman fótunum, þar sem þetta er ein-
skíðungur.“
Ágúst hefur keppt á fjölda innlendra
móta, nú síðast á Nokia-mótinu á Ak-
ureyri í vetur, sem hann vann reyndar.
Hvað með erlend mót? „Ég hef aldrei
farið utan til að renna mér, en það er
næst á dagskrá,“ sagði Ágúst Ingi.
Á brettum í sex ár
Aðalheiður Birgisdóttir, 31 árs, var
meðal keppenda og hefur verið á brett-
um í um sex ár. Hún hafði stundað
skíðaíþróttina um margra ára skeið en
var einfaldlega orðin leið á skíðunum
og ákvað að prófa brettin. „Eftir það
varð ekki aftur snúið og nú fer ég ekki
á skíði meira,“ sagði hún. Hún ætlaði
sér ekki eins flókna hluti og karlkyns-
keppendurnir enda sagði hún pallinn í
það stærsta fyrir sína getu. „Ég hugsa að
ég leggi ekki í að taka neina snúninga, en
tek í staðinn bein stökk með mismunandi
gripum. Eitt heitir „Mute Grab“.“ Aðal-
heiður hefur keppt á mörgum brettamót-
um á brettaferli sínum og oftast vermt
fyrsta sætið í kvennaflokki.
Eru of fáar stelpur á brettunum?
„Nei, það er fullt af stelpum á brettum
en þær eru ekki eins mikið fyrir stökk af
stórum pöllum og strákarnir.“
11 Íslendingar og 2 erlendir gestir kepptu á öðru snjóbrettastökkmóti Ingólfs á Arnarhóli
Stokkið undir
vernd Ingólfs
Árni Ingi
Árnason
Ágúst Ingi
Axelsson
Ingibjörg
Finnbogadóttir
Aðalheiður
Birgisdóttir
RÚM 50 ár eru síðan fyrstu
umferðarljósin voru sett upp í
Reykjavík, en það var gert
við fern gatnamót í miðborg-
inni í lok ársins
Óhætt er að segja að um-
ferðarljósin hafi valdið bylt-
ingu í umferðarmálum og
aukið öryggi akandi jafnt sem
gangandi vegfarenda til
muna.
Þótt umferðarljósin auki
öryggi er alltaf nauðsynlegt
að líta til beggja hliða áður en
gengið er yfir götur og það
gerði þessi maður sem stóð
við ein af þeim rúmlega 100
umferðarljósum sem í notkun
eru í Reykjavík.
Ekki er laust við að hann
sé í sömu stellingu og rauði
kallinn sem stendur í skugg-
anum.
Morgunblaðið/RAX
Á gatna-
mótum