Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 16
SÖGULEGUR fundur var haldinn í bæjarráði Hafn- arfjarðar í gær þar sem allir fundarmenn voru konur. Til umræðu voru skipulagsmál en segja má að Hafnfirðingar séu ekki á flæðiskeri staddir hvað varðar konur í áhrifastöðum. Frá vinstri á myndinni eru Jóna Dóra Karlsdóttir, Val- gerður Halldórsdóttir, Auður Þorkelsdóttir ritari, Steinunn Guðnadóttir, Guðrún Hjör- leifsdóttir, Valgerður Sigurð- ardóttir og Hafdís Hafliða- dóttir, skipulagsstjóri. Bara kon- ur á fundi bæjar- ráðs Hafnarfjörður HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 16 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ AÐ undanförnu hefur mátt rekast á haförn á sveimi yfir borgarlandinu og hefur raun- ar til hans spurst úr ýmsum áttum. Einn hefur séð hann í Grafarvogi, annar í Mos- fellsbæ, sá þriðji við Hafra- vatn og fjórði í Árbæ, að eitt- hvað sé nefnt. Er skemmst að minnast hafarnar sem sást að morgni 13. mars síðastliðins þar sem hann hnitaði hringi yfir ósum Úlfarsár og greint var frá hér í Morgunblaðinu daginn eftir. Sá vegfarandi til arnarins frá hæðinni þar sem Skyggnir er við Hafravatnsveg og fylgdist með svifflugi hans í sjónauka. Barst fuglinn með vindi vestur yfir Heiðmörk og sást hann svífa í átt að Vatns- skarði austan Sveifluháls. Hvarf hann síðan eftir alls fimm mínútna flugsýningu. Í gærmorgun varð hafarnar vart í Grafarvogi og stefndi hann í átt að Mosfellsbæ. Er að verða árvisst að sjá örn í borginni Samkvæmt upplýsingum frá Náttúrufræðistofnun Ís- lands getur verið að um sé að ræða tvo fugla, því einn hefur sést annað veifið að heita má í allan vetur, og svo var ung- fugli, sem náðist grútugur á Mýrum, sleppt úr haldi við Geldinganes í janúarlok eða febrúarbyrjun eftir hreinsun og endurhæfingu á Náttúru- fræðistofnun Íslands. „Já, þetta gætu verið fleiri en einn,“ sagði Ólafur Karl Nielsen fuglafræðingur þegar málið var borið undir hann í gær. „Það kom einn hingað í vetur og síðan var einum sleppt í janúar eða byrjun febrúar í Geldinganesi; hann hafði náðst á Mýrum, grútblautur. Þetta var merktur ungi. Hann var í endurhæfingu hjá okkur. En svo hafði sést örn á undan því. Menn hafa tilkynnt um haförn ítrekað á síðustu vik- um, á ýmsum stöðum í borg- arlandinu, s.s. í Geldinganesi, Grafarvogi og við Hafravatn og Elliðavatn. Þetta er að verða árvisst að það séu ernir hérna. Í fyrra- vetur sá ég örn í tvígang; einu sinni við Höfðabakkabrúna þar sem ég var stopp á ljós- um; hann kom niður Elliðaár- dalinn; og öðru sinni rakst ég á örn uppi við Hafravatn að kvöldlagi; hann flaug upp í hamrana við vatnið.“ Hafarnarstofninn á hægri uppleið Ólafur sagði, að íslenski hafarnarstofninn væri á hægri uppleið. Eftir því sem þéttleikinn yrði meiri á hefð- bundnum varpslóðum færu þeir að sækja meira og meira út fyrir. „Ef varp lánast vel og mik- ið er af ungörnum á ferðinni er mikill þrýstingur að fara – ef landið er setið af óðalsörn- um í kring. Það eru í vetur búnir að vera þrír ernir við Sogið og sáust þrír á ísnum á Þingvallavatni og í Ölfusi og hefur verið þannig undan- farna vetur. Í fyrra sást örn t.d. fljúga upp í gamla varps- taðinn í Núpshlíðinni í Ölfusi. Þegar stofninn stækkar og hefðbundnar varpslóðir eru fullsetnar leita ný pör annað til varps og koma á þessa gömlu staði sína sem hafa verið í eyði lengi. Ef stofninn heldur áfram að stækka er enginn vafi á því að þeir muni byrja að verpa á Suðurlandi og vestanverðu Norðurlandi. Enn sem komið er er varpið bundið við Vestfirði, Breiða- fjörð og norðanverðan Faxa- flóa en það er ekkert langt í syðstu pörin héðan frá Reykjavík; loftlínan er ekki nema einhverjir tugir kíló- metra.“ Mikið hringt í Nátt- úrufræðistofnun Að sögn Ólafs er töluvert um að fólk sé að hringja á stofnunina og tilkynna um haförn á flugi yfir borgar- landinu og hefur jafnvel verið hringt svo þétt, að það hefur mátt rekja ferðir arnarins úr einum stað í annan. „Menn hafa ekki vanist því að það séu ernir hérna í borg- arlandinu en þetta er búið að vera núna af og á í bráðum 20 ár sem ég man eftir erni í borginni en nú síðustu ár finnst mér þetta hafa verið reglulegra.“ Aðspurður um hvort þessir hafernir kæmu til með að ílendast hér um slóðir, svaraði Ólafur því til, að ernir yrðu ekki kynþroska fyrr en 5-6 ára. Ungfuglar slái sér niður yfir veturinn og séu tiltölu- lega staðbundnir þá en svo taki þeir sig aftur upp á vorin og haldi í átt að þeim slóðum þar sem þeir ólust upp. „Ern- ir hafa aldrei verið hérna að sumarlagi; þeir hafa komið á haustin og sjást reglulega yfir veturinn og hverfa svo,“ sagði Ólafur Karl Nielsen fugla- fræðingur að lokum. Ítrekaðar fregnir berast af haferni á sveimi yfir höfuðborgarsvæðinu Gæti verið um tvo fugla að ræða                Höfuðborgarsvæðið FÉLAGAR í Lionsklúbbnum Eir heimsóttu fyrir skömmu Hjúkrunarheimilið Skjól við Kleppsveg en þeir hafa haft það fyrir sið mánaðarlega síðustu 15 árin. Að þessu sinni var 6. hæðin heimsótt en fyrr í vetur hafa aðrar hæðir heimilisins verið heimsóttar. Félagar úr Eir koma ávallt með hljóðfæraleikara sem spilar fyrir fjöldasöngi. Í flestum tilfellum hefur ver- ið með í för góðvinur klúbbs- ins Haukur Harðarson harmonikkuleikar og Lions- félagi í Víðarri og kom hann einnig nú. Haukur hefur öll árin gefir vinnu sína. Spiluð hafa verið og sungin „gömlu góðu lögin“ sem flest heim- ilisfólk þekkir frá yngri ár- um. Sem fyrr segir var það fyrir 15 árum að Lkl. Eir hóf reglulegar heimsóknir til heimilisfólksins á Skjóli. Fyrirkomulagið hefur ávallt verið það sama. Vetrinum er skipt upp í fjórar heimsóknir og fær hver félagi í Eir það verkefni að heimsækja Skjól tvo laugardaga á vetri. Einu sinni fyrir jól og einu sinni eftir jól. Félagarnir baka eða útbúa „eitthvað gott“ með kaffinu. Úr því verður ávallt hið glæsilegasta kaffi- hlaðborð, heimilis- og starfs- fólki til mikillar ánægju. Fyrir kaffið koma allir sam- an, heimilisfólk, starfsfólk og Eirarkonur, syngja og skemmta sér með fjöldasöng og hljóðfæraleik. Er það samdóma álit félaganna, að þessi þáttur í starfi klúbbs- ins sé sérlega ánægjulegur og gefandi fyrir alla aðila. Lionsklúbburinn Eir var stofnaður 1984 sem Lions- essuklúbbur og síðan sem Lionsklúbbur 1988. Félaga- fjöldi hefur frá upphafi verið á bilinu 30 til 40. Núverandi formaður klúbbsins er Ragna Lára Ragnarsdóttir. Gömlu góðu lögin sungin Morgunblaðið/Árni Sæberg Félagar úr Eir koma ávallt með hljóðfæraleikara sem spilar fyrir fjöldasöngi. Kleppsholt FORSVARSMENN hús- félaganna á Skeljagranda 1-7 og Seilugranda 2-8 telja sig hafa orðið fyrir opin- berri valdníðslu í samskipt- um sínum við borgaryfir- völd. Forsaga málsins er sú að húsnæðisnefnd Reykja- víkur byggði fyrir rúmlega fimmtán árum félagslegar íbúðir á Skeljagranda, Seilu- granda og Öldugranda í Reykjavík. Á milli fjölbýlis- húsanna voru reist bílskýli, alls fjögur að tölu, og í skýl- unum eru bílastæði fyrir hverja íbúð. Í bréfi sem for- svarsmenn húsfélaganna hafa sent fjölmiðlum kemur fram að frá upphafi hafi þök bílskýlanna lekið og þrátt fyrir umleitanir og kvartan- ir íbúðareigenda hafi Hús- næðisnefnd Reykjavíkur ekki gert fullnægjandi ráð- stafanir til að lagfæra vatns- lekann. Ný íbúð með leku bílskýli eða engin íbúð og ekkert bílskýli Í bréfinu kemur fram að 1999 hafi komið fram í dags- ljósið matsgerð framkvæmd af dómskvöddum matsmanni þar sem kemur fram að samkvæmt upphaflegri hönnun hafi átt að malbika þak bílskýlanna. Kostnaðar- áætlun vegna þessa var 1.440.000 kr. vegna malbik- unar og frágangi á þaki hvers bílskýlis. Húsnæðis- nefnd Reykjavíkur lýsti sig reiðubúna að greiða þá fjár- hæð til íbúðareigenda. Þeir leituðu til fagmanna, þ.á m. hjá Línuhönnun og Hlaðbæ Colas, og fengu þar þær upplýsingar að upphæð í dómsmatinu væri allt of lág og að auki sé ófullnægjandi einvörðungu að malbika þak bílskýlanna. Aðilum bar saman um að kostnaður við frágang bílskýlanna væri á bilinu 6-10 milljónir kr. á hvert bílskýli. Lögmaður húsnæðisnefndar og borgar- lögmaður höfnuðu því að nýtt mat færi fram á bíl- skýlunum. Sendu þá for- svarsmenn húsfélaganna tölvupóst til borgarráðs- manna og borgarstjórnar- manna án þess að árangur yrði af því. Einnig sendu þeir erindi til borgarstjóra í desember sl. en því hefur ekki verið svarað. „Opinber valdníðsla“ „Við lítum á þetta mál sem dæmigert um opinbera valdníðslu þar sem ráðist er á garðinn þar sem hann er lægstur. Það er alveg ljóst að það fólk sem flutti inn í íbúðirnar sínar fyrir rúmum fimmtán árum hafði ekki í önnur hús að venda með húsaskjól, en til baka í faðm okur húsaleigu. Þetta fólk hugsaði sig ekki um tvisvar þegar valið stóð á milli þess að eignast nýja íbúð með hripleku bílskýli eða enga íbúð og ekkert bílskýli. Það var algert skilyrði að til að fá að kaupa íbúð þá varð viðkomandi að kaupa bíl- skýlið með,“ segir í bréfi forsvarsmanna húsfélaganna Skeljagranda 1-7 og Seilu- granda 2-8. Fá ekki úrbætur vegna lekra bílskýla Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.