Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 22
VIÐSKIPTI
22 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HAGNAÐUR Íslenskra aðalverk-
taka hf. (ÍAV) nam 203 milljónum
króna árið 2000 að teknu tilliti til
reiknaðra skatta en hagnaður var
207 milljónir króna árið 1999.
Afkoma félagsins á árinu 2000 er
viðunandi að mati stjórnenda, að
teknu tilliti til ytri aðstæðna, þótt á
skorti að hún nái þeim markmiðum
um arðsemi sem félagið setur sér til
lengri tíma.
Árið 2000 var mikið umbrotaár í
starfsemi Íslenskra aðalverktaka
hf. Verkefnastaða félagsins var al-
mennt góð á árinu og gengu verk-
efni félagsins almennt vel á árinu
en þó hefur félagið þurft að gjald-
færa endanlega verulegar fjárhæðir
vegna taps á nokkrum eldri verkum
sem lokið var eða þar sem lokanið-
urstaða lá fyrir á síðasta ári.
Stærstu áföllin eru vegna uppgjörs
framkvæmda við Bláa lónið og við
Náttúrufræðahús Háskóla Íslands,
að sögn Stefáns Friðfinnssonar, for-
stjóra ÍAV.
Stefán segir að þetta sé þriðja ár-
ið í röð sem tekið er tillit til þess í
ársreikningum félagsins en nú sé
verkefnunum lokið og uppgjöri
vegna þeirra.
Því til viðbótar þótti stjórn
félagsins rétt að færa nú til gjalda í
varúðarskyni í ársreikningi samtals
280 milljónir króna vegna verulegr-
ar óvissu um endanlegar niðurstöð-
ur kröfugerðar vegna verksamnings
sem félagið hefur gert við Lands-
virkjun um byggingu Vatnsfells-
virkjunar. Viðræður við verkkaupa
standa nú yfir um atriði sem lúta að
verulegum breytingum á verkinu
frá því sem gert var ráð fyrir og
vegna aukakostnaðar við að vinna
upp tafir í verkinu þannig að því
verði skilað á réttum tíma.
Stefán segir að verkið sé rúmlega
hálfnað en síðasti vetur hafi reynst
mjög erfiður og það hafi kostað
mikið að ná upp þeim tíma sem tap-
aðist þá. „Síðan eru flókin upp-
gjörsmál eftir og stjórn félagsins
taldi rétt að færa í varúðarskyni án
þess að þar sé um afskrift að ræða
sem slíka,“ segir Stefán.
250 milljóna króna söluhagnaður
vegna hlutabréfa
Fjármagnsliðir í heild voru nei-
kvæðir um 195 milljónir króna þrátt
fyrir að söluhagnaður af sölu hluta-
bréfa sé 250 milljónir króna en það
er til komið vegna sölu á 31% hlut í
fasteignafélaginu Landsafli hf.
Félagið varð fyrir verulegu geng-
istapi vegna óhagstæðrar gengis-
þróunar íslensku krónunnar á árinu
en verulegur hluti skulda félagsins
er bundinn erlendum gjaldmiðlum.
Þá var hátt vaxtastig á innlendum
fjármagnsmarkaði félaginu óhag-
stætt. Stefnt er að skráningu fast-
eignafélagsins Landsafls hf., sem er
að 49% hluta í eigu Íslenskra að-
alverktaka hf. og 25,5% í eigu hvors
um sig, Landsbanka Íslands og
Fjárfestingar hf., á Verðbréfaþingi
Íslands á næsta ári.
Verkefnastaða félagsins er við-
unandi en þó er gert ráð fyrir að
velta ársins 2001 dragist nokkuð
saman frá síðasta ári ef ekki koma
til ný stórverkefni í stað þeirra sem
nú eru á lokastigi, að því er fram
kemur í tilkynningu frá félaginu.
Auk verkefna á Keflavíkurflug-
velli og byggingu Vatnsfellsvirkj-
unar eru stærstu einstöku bygging-
arsvæði félagsins um þessar
mundir við Sóltún/Mánatún í
Reykjavík, á Álftanesi og í Mos-
fellsbæ.
Stjórn ÍAV samþykkti á fundi
sínum í gær að leggja til við aðal-
fund sem haldinn verður 10. apríl
nk. að greiddur verði 7% arður til
hluthafa.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Búnaðar-
bankans – Verðbréfa segir að árs-
uppgjör Íslenskra aðalverktaka sé
ágætt og mun betra en uppgjör árs-
ins 1999. „Hagnaður fyrir fjár-
magnsliði (EBIT) eykst úr tæpum
170 m.kr. árið 1999 í 487 m.kr. árið
2000 eða úr 2,9% í 3,4% af veltu.
Árið 1999 keyptu Íslenskir aðal-
verktakar allt hlutafé í Ármanns-
felli og Álftarós og árið 2000 er því
fyrsta ár sameiginlegs félags.
Veltufé frá rekstri minnkar um 80
milljónir króna milli ára og það er
áhyggjuefni. Skýringar með árs-
reikningi hafa ekki verið birtar og
því er ekki hægt að sjá ástæður
þessa með fullnægjandi hætti. Við
erum nú komin yfir topp hagsveifl-
unnar og sveiflur í byggingariðnaði
eru jafnan aðeins á eftir hagsveifl-
unni. Það er því nokkurt áhyggju-
efni að afkoma skuli ekki vera betri
en raun ber vitni,“ segir Edda Rós.
Íslenskir aðalverktakar með 203 milljónir króna í hagnað
! " #
$ #
#
%&' #( )
$ !
*+, *+**
,
./
+- +*
*/,
. ,0
! "
! "
! "
Veruleg óvissa
vegna Vatns-
fellsvirkjunar
Á AÐALFUNDI Vátryggingafélags
Íslands hf. (VÍS), sem haldinn var í
gær, var samþykkt að stefna að því að
skrá félagið á Verðbréfaþing Íslands
hf. Í samþykktinni felst að um 30%
hlutafjár í félaginu verði í dreifðri
eignaraðild eftir skráningu, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Þar kemur jafnframt fram að þró-
un síðustu ára hefur verið sú að
skráðum fjármálafyrirtækjum fjölgar
og nú þegar eru tvö af þremur stóru
tryggingafélögunum með hlutabréf
sín skráð á Verðbréfaþingi, Trygg-
ingamiðstöðin hf. frá því síðla árs
1998 og Sjóvá-Almennar hf. frá því í
fyrra.
28% verða í dreifðri
eign við skráningu
Um framkvæmd á opnun félagsins
segir að hún verði með þeim hætti, að
í upphafi verði hlutafé félagsins aukið
um 4% eða rúmlega 22 milljónir
króna að nafnverði. Þetta hlutafé
verði boðið starfsmönnum í beinni
sölu og í formi kaupréttar til næstu
fjögurra ára. Til að tengja betur sam-
an hagsmuni starfsmanna Lands-
banka Íslands hf. og bankans hyggist
Landsbankinn bjóða starfsmönnum
sínum að kaupa allt að 1% af núver-
andi eignarhluta bankans í VÍS.
Núverandi hluthafar muni í sam-
einingu selja 15% af hlutafjáreign
sinni í VÍS og sala á þessu hlutafé fari
fram í lokuðu útboði þar sem kaup
hvers og eins verði bundin við ákveðið
hámark.
„Með þessu mun nást sú dreifing
hlutafjár sem Verðbréfaþing gerir
kröfu um og nægjanlegt magn bréfa
fer á markað, þannig að góð viðskipti
geti átt sér stað með bréfin og verð-
myndun verði eðlileg. Að lokinni
hlutafjáraukningu og sölu munu um
28% hlutafjár verða í dreifðri eign-
araðild samkvæmt skilgreiningu
Verðbréfaþings. Landsbanki Íslands
verður stærsti hluthafi í VÍS með um
39% hlut. Samvinnutryggingar verða
með um 22% hlut, Olíufélagið 11%
hlut og aðrir hluthafar munu eiga inn-
an við 10% hlut hver,“ segir í frétta-
tilkynningunni.
Þá kemur einnig fram að samfara
skráningu verða gerðar breytingar á
samþykktum félagsins, sem lúta með-
al annars að stjórn þess. Gert er ráð
fyrir að stjórnarmenn verði 5 í stað 8 í
dag og það er von núverandi hluthafa
að með nýjum fjárfestum komi nýir
aðilar að stjórn félagsins.
„Samhliða því að VÍS verður skráð
á markað hefur verið gert samkomu-
lag um breytt eignarhald á Líftrygg-
ingafélagi Íslands hf. (LÍFÍS).
Landsbanki Íslands mun auka eign-
arhlut sinn í LÍFÍS í 50% en Ehf.
Andvaka mun minnka eignarhlut sinn
í 25% og selja m.a. hluta af lækkun
eignarhluta síns til VÍS sem mun þá
verða með um 25% eignarhlut í
LÍFÍS,“ segir í fréttatilkynningunni
frá VÍS.
Skráningin styrkir félagið og
eykur sveigjanleika í fjármögnun
Á blaðamannafundi sem haldinn
var eftir aðalfund VÍS nefndi Axel
Gíslason, forstjóri félagsins, ýmsa
kosti skráningar. Skráningin gæti
styrkt ímynd og markaðsstöðu
félagsins, hún gæfi kost á hlutabréfa-
eign nýrra fjárfesta, viðskiptavina,
starfsmanna og stjórnenda, sem
styrktu markmið félagsins. Þá yrði
verðmyndun hlutabréfa skýrari, sem
væri í þágu hluthafanna, félagsins
sjálfs og markaðarins. Skráningin yki
einnig sveigjanleika í fjármögnun og
leiddi til aukinnar kynningar og um-
fjöllunar um fyrirtækið með ýmsum
hætti.Axel sagði að stefnt væri að
skráningu fyrir mitt ár ef aðstæður á
markaði leyfðu.
Kjartan Gunnarsson, stjórnarfor-
maður VÍS, tók fram að mikil ein-
drægni hefði ríkt meðal eigenda um
skráningu félagsins og hvernig að
henni skyldi staðið. Um ákvarðanir
hefði verið öflug samstaða og á aðal-
fundinum hefði ákvörðunin verið
samþykkt einum rómi.
Skilyrt eignarhald á
Samvinnutryggingum
Samvinnutryggingar eru með
26,2% eignarhlut í VÍS í dag og verða
eins og áður segir með um 22% hlut
eftir skráningu. Samvinnutryggingar
voru gagnkvæmt tryggingafélag sem
þýðir að eigendur þess eru þeir sem
tryggðu á hverjum tíma. Samvinnu-
tryggingar eru hins vegar eignar-
haldsfélag í dag og hafa frá árinu 1994
ekki haft neina tryggingastarfsemi
með höndum.
Axel Gíslason, forstjóri VÍS, er
jafnframt framkvæmdastjóri Sam-
vinnutrygginga. Hann segir að farið
sé með Samvinnutryggingar eins og
önnur félög af sama tagi og sam-
kvæmt samþykktum félagsins. Eign-
arhald Samvinnutrygginga sé skilyrt
og verði aðeins virkt ef félaginu verði
slitið. Eigendur séu þá þeir sem voru
tryggingatakar tvö síðustu ár áður en
tryggingastarfsemi var hætt. Stjórn
þess, sem skipuð er fimm mönnum,
taki ákvarðanir um meðferð eigna
félagsins eins og tíðkast um önnur
félög, en stjórnina kjósi fulltrúaráð
Samvinnutrygginga. Samanlagt sé
fulltrúaráðið skipað 18 aðal- og vara-
mönnum og aðalfundur Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga kjósi þrjá að-
almenn á hverju ári.
Stefnt að skráningu VÍS á
markað á fyrri hluta ársins
Morgunblaðið/Þorkell
Axel Gíslason, forstjóri VÍS (t.v.), og Kjartan Gunnarsson stjórnarformaður
kynna samþykkt aðalfundar um skráningu félagsins. Kjartan sagði mikla
samstöðu hafa verið um ákvörðunina meðal eigenda félagsins.
ENGLANDSBANKI (The Bank of
England) á yfir höfði sér lögsókn frá
skiptastjórum BCCI-bankans (Bank
of Credit and Commerce Inter-
national) og er krafan allt að einn
milljarður punda, um 125 milljarðar
íslenskra króna, að því er fram kem-
ur á fréttavef BBC. Lögsóknin verð-
ur sú fyrsta í 300 ára sögu Englands-
banka.
Deloitte and Touche sér um
skiptastjórn BCCI og að sögn tals-
manna Deloitte and Touche er málið
höfðað á þeim grunni að Englands-
banki hafi gefið út starfsleyfi til
BCCI en ekki brugðist nógu hratt
við til að afturkalla það áður en starf-
semi BCCI var lögð niður árið 1991
eftir að upp komst um stærsta svindl
í bankasögu Englands til þess tíma.
Deloitte and Touche hefur umboð
um 6.000 lánardrottna BCCI í Bret-
landi.
BCCI var stofnaður á áttunda ára-
tugnum af hópi Pakistana. Bankinn
starfaði í sextíu löndum og laut
reglugerðum frá Englandsbanka,
Caymaneyjum og Lúxemborg.
Hæstiréttur Bretlands hefur sam-
þykkt málsóknina og hefjast mála-
ferlin á næsta ári en búist er við að
þau taki hálft til eitt ár. Málaferlin
munu fela í sér ítarlegustu rannsókn
á starfsemi Englandsbanka sem
fram hefur farið og aðalbankastjór-
inn, Sir Edward George, verður lík-
lega á meðal vitna.
Að sögn BBC var Englandsbanki í
forystuhlutverki í þeirri alþjóðlegu
aðgerð að loka BCCI eftir að fram
komu sannanir um áralanga spill-
ingu meðal æðstu stjórnenda bank-
ans. BCCI-bankinn varð að lokum
gjaldþrota og skildi eftir sig skuldir
að upphæð 12 milljarðar punda eða
um 1.500 milljarðar íslenskra króna.
Sparifjáreigendur, 150.000 talsins
um allan heim, gátu lítið sem ekkert
gert til að ná peningunum sínum til
baka. Englandsbanki er ekki lengur
æðsta bankaeftirlit í Bretlandi, held-
ur hefur sérstöku fjármálaeftirliti
verið komið á fót. Að öllu jöfnu njóta
báðar stofnanirnar friðhelgi og
bannað er að lögsækja þær fyrir van-
rækslu. Löglegt er þó að stefna
bankayfirvöldum fyrir alvarlegri
sakir eins og misbeitingu valds og
lögbrot af ásettu ráði.
Málaferli
gegn
Englands-
banka
KJELL Inge Røkke hefur boðið
hluthöfum í Aker Maritime að
kaupa hlut þeirra gegn stað-
greiðslu og hlutabréfum í
Kværner og minnka þannig eign-
arhlut sinn í Kværner. Með
þessu vonast hann til að samruni
Aker Maritime og Kværner verði
álitinn jákvæðari, að því er fram
kemur í Dagens Næringsliv.
Fulltrúar starfsmanna Kværner
hafa þegar lýst óánægju með
þetta síðasta útspil Røkke.
Starfsmenn Kværner hafa
gagnrýnt Røkke harðlega fyrir
að vilja gjörbreyta Kværner og
flytja starfsemina úr landi.
Røkke svarar gagnrýni þeirra
m.a. með því að vilja minnka
eignarhlut sinn í Kværner á
þennan hátt og þannig vill hann
einnig koma til móts við aðra
hluthafa í Aker Maritime sem
finnst sínir hagsmunir fyrir borð
bornir með samruna við Kværn-
er. Røkke á 63% hlutafjár í Aker
Maritime.
Røkke deil-
ir enn við
starfsmenn
Kværner
Ósló. Morgunblaðið.