Morgunblaðið - 30.03.2001, Page 23

Morgunblaðið - 30.03.2001, Page 23
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 23 Vatnaskógur Frísk félög fyrir hressa krakka! Skráning í sumarbúðir KFUM í Vatnaskógi hefst mánudaginn 2. apríl kl. 8:00 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg. Einnig er tekið við skráningum í síma 588-8899. Flokkaskrá sumarsins birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins (2. apríl). Hana er einnig að finna á bls. 629 í textavarpi sjónvarpsins og á heimasíðu KFUM og KFUK www.kfum.is. Skráning í sumarbúðirnar Hólavatni, Kaldárseli, Ölveri og Vindáshlíð hefst miðvikudaginn 4. apríl kl. 8. Á AÐALFUNDI Tryggingamið- stöðvarinnar hf. í vikunni lýstu Gunnar Felixson, forstjóri félagsins, og Jón Ingvarsson, þáverandi stjórn- arformaður, áhyggjum sínum af því að nauðsynlegt hefði reynst að grípa til útjöfnunarskuldar í bókum félags- ins annað árið í röð til að mæta mikl- um tjónaþunga í ökutækja- og eigna- tryggingum. Að sögn Gunnars hefði tap af vátryggingarekstri félagsins numið 55 milljónum króna ef ekki hefði verið gripið til útjöfnunar- skuldarinnar, en þar sem 200 millj- ónir voru færðar úr útjöfnunarskuld nam hagnaðurinn af vátrygginga- rekstrinum 145 milljónum króna. Á fundinum kom fram að síðast- liðið ár reyndist Tryggingamiðstöð- inni að mörgu leyti þungt í skauti. Stór tjón á borð við brunann í Ís- félaginu í Vestmannaeyjum og brun- ann í MS Hanover lentu á félaginu. Þá var tjónaþungi mikill í ökutækja- tryggingum, svo og í fjölskyldu- og fasteignatryggingum. Iðgjöld ársins hækkuðu, að sögn Jóns, um tæp 13% en tjón ársins hækkuðu um rúm 50% og sagði hann að skýringuna á þess- ari gríðarlegu hækkun tjóna væri að miklu leyti að finna í tveimur fram- antöldum stórtjónum, en samtals næmi fjárhæð þessara tveggja tjóna nokkru á annan milljarð króna. Þörf á hækkun iðgjalda eignatrygginga „Bókfært tap félagsins af rekstri ökutækjatrygginga á síðastliðnu ári var 315 milljónir og á síðastliðnum þremur árum er tapið orðið samtals 1.043 milljónir króna,“ sagði Jón og gat um 25–30% hækkun iðgjalda ökutækjatrygginga félagsins um mitt sl. ár. Miðað við óbreyttan tjónaþunga sagði Jón að enn hefði vantað 15–20% á að iðgjöld væru nægjanleg. Félagið hefði hins vegar talið að ýmislegt benti til þess að draga myndi úr tjónaþunga og nú virtist sem það væri að gerast. „Verði framhald á þeirri þróun gæti rekstur ökutækjatrygginga komist í viðunandi horf á þessu ári eða því næsta.“ Hvað rekstur eignatrygginga varðar kom fram í máli Jóns að þær hafa fram til þessa gengið vel en mik- il samkeppni á undanförnum árum hefur leitt til lækkunar iðgjaldstaxta um leið og tjónaþungi hefur verið að aukast. Hann sagði þörf vera á frek- ari iðgjaldahækkunum til þess að af- koma þessarar greinar yrði viðun- andi. Ný stjórn Tryggingamiðstöðvar- innar var kosin á fundinum en þrír stjórnarmenn, Ágúst Karlsson, Magnús Bjarnason og Svavar B. Magnússon, gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Nýju stjórnina skipa Tryggvi Jónsson formaður, Einar Sigurðsson, Geir Zoëga, Guðbjörg Matthíasdóttir, Haraldur Sturlaugs- son, Jón Ingvarsson og Þorgeir Baldursson. Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Morgunblaðið/Þorkell Jón Ingvarsson sagði bókfært tap Tryggingamiðstöðvarinnar af rekstri ökutækjatrygginga á sl. þremur árum vera orðið rúmur milljarður. Mikill tjónaþungi setti mark sitt á reksturinn VARAFORMAÐUR norska alþýðusambandsins LO segir að sambandinu takist að koma á 30 tíma vinnuviku fyrir alla í Noregi innan tíu til fimmtán ára. Fyrsta skrefið, 35 tíma vinnuvika án launaskerðingar, verður samþykkt á aðalfundi LO í maí, að því er fram kem- ur í Dagens Næringsliv. Gerd-Liv Valla er varafor- maður LO og næsti formaður. Í samtali við DN segir hún að 30 tíma vinnuvika sé raun- hæft markmið. Margir sem eru í hluta- starfi vilji vinna meira og mikil veikindaforföll bendi til þess að fólk þoli ekki vinnu- álagið eins og það er nú. Styttri vinnuvika mun minnka veikindaforföll þar sem fleiri munu þola að vinna fulla vinnu, að mati Valla. 30 tíma vinnuvika innan 15 ára Ósló. Morgunblaðið. PLASTPRENT hefur verið rekið með tapi undanfarin ár og í fyrra jókst tapið um 29% milli ára og var 115 milljónir króna. Afkoma fyrir fjármunaliði hefur þó snúist úr tapi í hagnað, en það sem átti stóran þátt í að draga félagið niður var niður- færsla á hlut Plastprents í dóttur- félagi þess, Akó-Plastosi hf. Þessi nið- urfærsla nam 64 milljónum króna og er gerð vegna óvissu um áframhald- andi rekstur félagsins, en það stendur nú í nauðarsamningum við lánar- drottna sína. Annað sem miklu réð um afkomu Plastprents var að neikvæð sveifla gengismunar nam um 80 milljónum króna. Fjármunaliðir voru neikvæðir um 107 milljónir króna í stað 47 millj- óna króna ári fyrr. Rekstrartekjur hækkuðu um 1% milli ára, en rekstrargjöld án af- skrifta lækkuðu um 8%. Þessu veldur aðallega að laun og launatengd gjöld lækkuðu um 61 milljón króna, eða 18%. Ástæðan er sú að starfsfólki fækkaði um 20% milli ára. Tekjur á starfsmann hafa því hækkað um 27 milljónir króna. Hlutafé félagsins var aukið um 30 milljónir króna með hlutafjárútboði í september í fyrra. Eignarhlutur í Akó-Plastosi, sem keypt var á síðasta ári, var fjármagnaður með allt að 13% aukningu hlutafjár að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félag- inu. Langtímaskuldir félagsins lækk- uðu um tæpar eitt hundrað milljónir króna milli ára og voru 519 milljónir króna í árslok 2000. Afborganir lang- tímalána þyngjast hins vegar mikið milli ára. Árið 2000 voru þær 97 millj- ónir króna, en eru 217 milljónir króna í ár og 171 milljón króna á næsta ári. Tap Plastprents eykst milli ára                                      1 '     ! (" #         $ #         #   %&' #   $   !                      +,, + * , . . .     ,  . . -0       #   #             ! "  ! "  ! "                   

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.