Morgunblaðið - 30.03.2001, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 30.03.2001, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. FRAMKVÆMDIR eru nú langtkomnar við rúmlega 620.000 rúm-metra brimvarnargarð við Sirevågí Jæren, eða Jaðri í Suður-Noregi. Garðurinn, sem er svokallaður bermugarður, var hannaður hjá Siglingastofnun en þar hafa menn skapað sér sérstöðu í hönnun slíkra garða undanfarin ár. Auk Siglingastofnunar koma að verkinu íslenska jarðfræðistof- an Stapi og Pihl og Søn AS, móðurfyrirtæki Ístaks í Dan- mörku, en stjórnendur við framkvæmdir eru íslenskir. Höfnin í Sirevåg er opin fyrir úthafinu sunnarlega á vestur- strönd Noregs og þarf brim- varnargarðurinn þar af leiðandi að taka á sig verulegan öldu- gang. Að sögn Sigurðar Sigurð- arsonar, verkfræðings hjá Sigl- ingastofnun, fær enginn hafnargarður í Noregi á sig jafnmikið ölduálag og varnar- garðurinn í Sirevåg. „Þetta er garður sem fær á sig heilmikla öldu. Hönnunaralda á þetta mannvirki er um 7 metra há kennialda, eða yfir 10 metra háar einstakar öldur á hæð við þriggja til fjögurra hæða hús, þannig að þarna eru rosaleg átök.“ Að sögn Sigurðar hefur Siglingastofnun undanfarin 17 ár verið að þróa hönnunar- aðferðir við brimvarnargarða úr sprengdu grjóti með góðum árangri og hefur íslensk gerð bermugarða vakið töluverða athygli er- lendis. Í kjölfar þess hefur verið staðið að kynningu á hönnuninni erlendis, sem m.a. leiddi til þess að Norðmenn ákváðu að leita eftir íslenskri sérfræðiþekkingu við grjót- námsrannsóknir og hönnun garðsins í Sire- våg. Vísindastofnunin SINTEF í Þránd- heimi hafði útbúið líkan af varnargarði í hafnarmynninu sem ætlað var að verja höfn- ina sjógangi og skapa kyrrð inni í höfninni. SINTEF hafði jafnframt lagt fram tillögur um gerð brimvarnargarðsins en stjórnendur hjá Kystverket, hinni norsku siglingastofn- un, ákváðu hins vegar að semja við Siglinga- stofnun um hönnun garðsins, auk þess sem Jarðfræðistofan Stapi var fengin til að ann- ast grjótnámsrannsóknir og útbúa vinnsluspá fyrir grjótnámur. „SINTEF í Þrándheimi var komin með til- lögu að hönnun brimvarnargarðsins en Kyst- verket treysti okkur betur til þess að rann- saka grjótnámur og hanna garðinn, sem er heilmikil viðurkenning,“ segir Sigurður. Garðurinn tíu sinnum ódýrari en hefðbundnir kerjagarðar Siglingastofnun hefur allt frá árinu 1983 unnið að þróun bermugarða og náð að skapa sér sérstöðu í heiminum við hönnun slíkra garða. Frá árinu 1984 hafa verið byggðir 58 slíkir garðar í heiminum og þar af 27 á Ís- landi, en í Kanada, þaðan sem hugmyndin kemur upphaflega, hafa 5 slíkir garðar verið byggðir. Sérstaða bermugarða og ástæðan fyrir því að þeir þola öldurótið vel felst í því að stórt grjót með holrými á milli steina tek- ur við öldunni, sem leiðir til þess að aldan gengur inn í mannvirkið í stað þess að brotna á sléttum vegg. „Holrýmið gleypir ölduna sem gengur inn í mannvirkið og deyr smám saman út eftir því sem innar dregur. Þannig er hvert svæði í garðinum að taka á sig minni ölduorku en ella,“ segir Sigurður. Önnur sérstaða íslenska bermugarðsins felst í því hvernig garðurinn er byggður upp af mörgum lögum af misstóru grjóti, þar sem minnsti mulningurinn er neðstur en stærstu grýtin liggja efst og taka við öldubrotinu. Í garðinum í Sirevåg eru t.d. fimm lög af grjóti, frá 0,4–1 tonna grjóti innst og neðst í garðinum og síðan stækkandi grjóti upp í efsta lagið sem samanstendur af 20 til 30 tonna grjótblokkum. Undir öllum garðinum er síðan það sem kallað er sprengdur kjarni, sem er af- gangsefni sem til fellur þegar búið er að flokka grjótið úr sprengda salvanum. Í hönnunarvinnunni hefur Siglingastofnun leitast við að nýta sem best þær grjótnámur sem næstar eru þeim höfnum sem garðinum er ætlað að verja. Með þeim hætti sparast talsverðir fjármunir við bygg- ingu garðsins og segist Sigurð- ur telja að garðurinn í Noregi sé allt að stærðargráðu ódýrari en hefðbundnir kerjagarðar sem víða eru byggðir, þ.e. allt að tíu sinnum ódýrari í smíðum og felst það bæði í hönnuninni og aðgengi að efninu í garðinn. Áætlað er að garðurinn sjálfur muni kosta um 80 milljónir norskra króna. Þá mun bæjarfélagið byggja bryggjukanta og aðkomuvegi fyrir um 50 milljónir norskra króna, þannig að heildar- kostnaður við verkið nemur ríflega 1,2 millj- örðum íslenskra króna. Sérstaðan felst m.a. í aðlögun að aðstæðum hverju sinni Í höfninni við Sirevåg er allt efni í garðinn fengið nánast af hafnarbakkanum, þar sem stórskornar klappir beggja vegna við hafn- armynnið eru sprengdar upp í hæfilega stóra steina, grjótið síðan flokkað og allir stærð- arflokkar notaðir í garðinn. „Og í því felst kannski okkar sérstaða í heiminum í þessari hönnun, að við leggjum áherslu á að ná fram sem bestri heildarnýtingu úr námunni með því að nýta allar grjótstærðir. Það er enginn vandi að sprengja klöpp þannig að hún fari í smælki. En vandinn er sá að sprengja þannig að þú fáir sem stærst grjót,“ segir Sigurður. Ómar Bjarki Smárason hjá Jarðfræðistof- unni Stapa hefur um árabil verið í samstarfi við Siglingastofnun um þróun aðferða til að spá fyrir um hversu stóru grjóti megi ná úr tilteknum námum. Hann gerði jarðfræði- könnun á klöppunum við höfnina í Sirevåg og var garðurinn hannaður samkvæmt niður- stöðu hans varðandi mögulega stærðardreif- ingu grjótsins. Að sögn Sigurðar tekur hefð- bundin hönnun fyrst og fremst mið af því að verjast öldugangi og því álagi sem garðurinn þarf að standast. „En við hugsum um álagið annars vegar og hins vegar úr hverju við höfum að spila. Ef við höfum góða grjótnámu er hönnunin öðruvísi heldur en þegar við höfum lélega grjótnámu. Þannig að við aðlögum okkur að- stæðum og í því felst m.a. sérstaða okkar.“ Íslenskir aðilar stjórnað framkvæmdum frá upphafi Nýting á grjótklöppunum við höfnina í Sirevåg felur einnig í sér annan kost, um- fram þá hagkvæmni sem því fylgir. Við höfn- ina hafa menn verið í vandræðum með bygg- ingarlóðir en við námuvinnsluna verður til fjöldi lóða sem hægt er að nýta fyrir mann- virki og hús, t.d. í fiskiðnaði. Í Noregi er reiknað með að verið sé að flytja út ígildi 20.000 starfa í fiskiðnaði til Danmerkur og segir Sigurður að menn sjái sér þarna leik á borði við að auka vinnu í fiskiðnaði í landinu. Brim langur stendu legt, en og þar Viggós Bjarka garðsin 1998 og var ver aðilar í og Søn tilboð í irtæki Að s ur hjá við gar ingasto Siglingastofnun Íslands hannar brim Hefur skapað s í hönnun ber Siglingastofnun hefur undanfarna áratugi náð góðum árangri í hönnun brimvarnargarða sem eru hag- kvæmir í byggingu og þola mikinn sjávargang. Hönnunin hefur vakið athygli erlendis og eru fram- kvæmdir nú langt komnar við fyrsta brimvarnargarð- inn sem Íslendingar hanna og smíða við erlenda höfn, í kjölfar þess að Norðmenn ákváðu að leita eftir sérfræðiþekkingu Íslendinga. Frá v Þega fra S Sigurður Sigurðarson BURT MEÐ TOLLVERND Á GRÆNMETI Enn einu sinni er neytendummisboðið, þegar verð á inn-fluttu grænmeti rýkur skyndi- lega upp úr öllu valdi. Í Morgun- blaðinu í gær var sagt frá því að verð á papriku hefði frá því í síðustu viku hækkað úr 400–500 krónum kílóið í 700–800 krónur. Þetta gerðist þegar tímabil tollfrelsis innflutts grænmetis samkvæmt EES-samningnum rann út og settur var 30% verðtollur á inn- flutta papriku. Þetta er kunnuglegt ferli, sem endurtekur sig á hverju ári; fyrst kemur verðtollurinn og svo hækka tollarnir enn frekar; svokallaðir magntollar leggjast á innflutta græn- metið til að verja innlenda framleiðslu fyrir samkeppni, jafnvel þótt framboð hennar anni engan veginn eftirspurn. Markaður fyrir grænmeti, þessa hollu og eftirsóttu vöru, er enn í fjötr- um hafta, einokunar og tollverndar. Í síðustu viku tók samkeppnisráð ákvörðun vegna yfirtöku Sölufélags garðyrkjumanna og tengdra félaga á Ágæti hf. Þar kemur fram að innlend samkeppni á þessum markaði er lítil sem engin. Sölufélagið og fyrirtæki tengd því ráða markaðnum. Eini keppinauturinn, sem eitthvað kveður að, er Mata hf. en vegna mikils afls- munar telur samkeppnisráð að Mata geti ekki veitt SFG samkeppnislegt aðhald á markaðnum fyrir grænmeti og kartöflur. Langflestir framleiðend- ur innlends grænmetis leggja inn hjá SFG-samstæðunni eða Ágæti, sem SFG hefur yfirtekið. Mata er ekki í sambandi við nógu marga innlenda garðyrkjubændur og getur ekki boðið nægilegt magn og úrval íslenzks græn- metis á þeim árstíma, sem ofurtoll- arnir vernda innlenda framleiðslu. Í skilmálum, sem gilda milli SFG og Ágætis og garðyrkjubændanna, er bændunum bannað að skipta við önnur grænmetisdreifingarfyrirtæki. Fram- leiðendur SFG eru félagsmenn þess og þess vegna er lítið sem ekkert um að garðyrkjubændur selji beint í verzl- anir, óháð dreifingarfyrirtækjunum. Núverandi og hugsanlegir nýir keppinautar SFG og Ágætis eiga því varla annan kost en að flytja inn græn- meti, en ofurtollarnir gera samkeppn- isstöðu þeirra nánast vonlausa stóran hluta ársins. Eins og fram kemur í samtölum við kaupmenn í Morgun- blaðinu í gær sniðgengur fólk einfald- lega grænmetið þegar verð á því er komið í þessar svimandi hæðir. Við þessar aðstæður er ljóst að grípa verður til aðgerða til að efla samkeppni og tryggja hag neytenda. Ákvörðun samkeppnisráðs, um að SFG-samstæðan verði að færa alla af- urðasölu í sjálfstætt fyrirtæki, er skref í þá átt. Fram kom í Morgunblaðinu á miðvikudag að Samkeppnisstofnun hygðist senda landbúnaðarráðuneyt- inu álit um influtningshöft og innflutn- ingsvernd á grænmeti. Það er auðvitað orðið löngu tíma- bært að afnema tollverndina, sem inn- lend grænmetisframleiðsla hefur not- ið. Gæði íslenzks grænmetis eru slík, að það á að geta staðizt eðlilega og heilbrigða samkeppni frá innflutningi, auk þess sem innlendir garðyrkju- bændur njóta nálægðar sinnar við markaðinn. Að mörgu leyti myndu inn- lendir framleiðendur líka njóta þess að verð á grænmeti lækkaði, því að þar með ykist neyzla og markaðurinn stækkaði. Þetta hefur legið í augum uppi árum saman, án þess að stjórn- völd aðhefðust í málinu. Nú, þegar við bætist að dreifingarfyrirtækin SFG og Ágæti eru komin í „nálega einokunar- stöðu á mörkuðum fyrir flestar teg- undir innlends grænmetis“, eins og samkeppnisráð orðar það, er enn rík- ari ástæða til að innlendir framleið- endur fái eðlilega samkeppni frá út- löndum. Eins og fram kemur í fréttum Morg- unblaðsins í gær telur landbúnaðar- ráðuneytið sig ekki hafa heimild til að aflétta verðtollum á innflutt grænmeti með reglugerð, þar sem þeir séu ákveðnir með lögum. Það er því ljóst að hér dugir ekki atbeini landbúnaðar- ráðuneytisins, heldur þarf Alþingi að breyta lögum. Morgunblaðið hefur áð- ur lýst þeirri skoðun sinni að núver- andi löggjöf veiti landbúnaðarráðherra of mikið svigrúm til að taka geðþótta- ákvarðanir um tilhögun innflutnings landbúnaðarvara, í ljósi þess að land- búnaðarráðherra á hverjum tíma hafi í reynd verið einn helzti hagsmunagæzl- umaður landbúnaðarins. Það á að skipa innflutningsmálunum með al- mennum lagaákvæðum, sem tryggja sem mest frjálsræði og samkeppni, í þágu neytenda. BEINT LÝÐRÆÐI Í BESSASTAÐAHREPPI Síðastliðinn laugardag birtist íMorgunblaðinu frétt þess efnis að hreppsnefnd Bessastaðahrepps hefði til meðferðar tillögu um að gengist verði fyrir skoðanakönnun meðal kosn- ingabærra manna í hreppnum til að kanna afstöðu þeirra til viðræðna um sameiningu við Garðabæ. Stutt er síðan Reykvíkingar kusu um framtíð Reykja- víkurflugvallar svo ef af þessari skoð- anakönnun verður er það í annað skipti á stuttum tíma þar sem hinum almenna borgara gefst tækifæri til að sýna skoð- un sína á mikilsverðu málefni í sínu sveitarfélagi með atkvæðagreiðslu. Í framkvæmd fulltrúalýðræðis eins og við þekkjum það endurspeglast stundum sú hugmynd að það sé hlut- verk stjórnmálamanna að hafa vit fyrir almenningi á þeim forsendum að þeir hafi verið kosnir til að sinna slíkri ákvarðanatöku. En þó almenningur fylki sér um þann stjórnmálaflokk er stendur næst viðhorfum þeirra sjálfra í hefðbundnum kosningum, þýðir það að sjálfsögðu ekki að samstaða ríki um öll málefni meðal kjósenda hvers flokks. Eftir því sem almenn menntun verður betri og aðgengi að upplýsingum auð- veldara má gera ráð fyrir að einstak- lingar verði síst vanhæfari en stjórn- málamenn til að draga ályktanir um þau málefni sem þá varða. Því er full ástæða til að styðja tilburði er miða að því að gefa fólki tækifæri til að sýna hug sinn. Hugmyndir hreppsnefndarinnar um þessa atkvæðagreiðslu benda til þess að stjórnmálamenn sjái í auknum mæli kosti þess að beita beinu lýðræði og eru tvímælalaust skref í átt til aukins lýð- ræðis.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.