Morgunblaðið - 30.03.2001, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 65
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbarn dagsins:
Fólk kann vel að meta gam-
ansemi þína, en þér hættir
til þess að gera of mikið úr
hlutunum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er ekki nóg að tala um
hlutina; orðum verða að fylgja
athafnir. Nú er komið að þér
að leita eftir greiða hjá vini,
sem þú hefur oft hjálpað.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reyndu að verjast streitu sem
bezt þú mátt. Þótt þér finnist
sum verkefni ekki fýsileg,
skaltu ganga að því með oddi
og egg að leysa þau sem hin.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þótt þér finnist gaman að tala
verður þú að gæta þess að töl-
ur þínar hafi eitthvert inni-
hald. Annars nennir enginn að
hlusta á þig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Taktu þér tíma til þess að
gaumgæfa aðstöðu þína. Það
er örugglega ýmislegt sem þú
getur gert til þess að bæta líð-
an þína, en hún skiptir öllu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft að ganga í það að
leysa einhver verkefni heima
fyrir en þau hefur þú látið sitja
á hakanum alltof lengi. Haltu
samskiptaleiðunum opnum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Stundum fer best á því að
hlusta í stað þess að tala.
Leyfðu góðum vini að gráta á
öxl þinni án þess að þér finnist
þú tilneyddur til þess að ger-
ast dómari í máli hans.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gerðu þér sem mestan mat úr
þeim tækifærum sem standa
þér opin. Þótt erfitt sé að velja
máttu ekki láta það hindra þig
því þá gerist ekki neitt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Líttu vandlega í eigin barm
áður en þú kennir öðrum um
hvernig komið er. Sjaldan
veldur einn þá tveir deila og
þú átt að vera maður til þess
að taka til í eigin ranni.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Settu ekki upp hundshaus
þótt þú verðir að taka þátt í
því að vinna upp mistök sem
þú átt enga sök á. Einhvern
tíma kann að koma til þess að
þú gerir mistökin.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ættir ekki að taka veiga-
miklar ákvarðanir þegar þú
ert illa fyrirkallaður. Frestaðu
öllu slíku á meðan þú vinnur
upp orku og andlegt jafnvægi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu ekki atburðarásina
kippa undan þér fótunum
heldur stattu fastur fyrir og
haltu þínu striki ótrauður.
Láttu aðra um að hlaupast
undan merkjum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú nýtur mikillar velvildar
vina þinna sem vilja gleðjast
með þér og gefa þér lausan
tauminn. Þá þarftu að gæta
þess að misnota ekki alúð
þeirra.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
DEMANTSBRÚÐKAUP og 80 ÁRA afmæli. Á morgun,
laugardaginn 31. mars, eiga 60 ára hjúskaparafmæli
hjónin Hansína Sigurbjörg Hjartardóttir og Eyjólfur
Ragnar Eyjólfsson, Dúfnahólum 4, Reykjavík. Sama dag
verður Eyjólfur 80 ára. Í tilefni dagsins taka þau hjónin á
móti vinum og vandamönnum í Færeyska sjómanna-
heimilinu, Brautarholti 29, kl. 15.
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 30.
mars, verður áttræður Er-
lendur Einarsson, fyrrver-
andi forstjóri SÍS, til heim-
ilis á Kirkjusandi 3,
Reykjavík. Hann og eigin-
kona hans, Margrét Helga-
dóttir, verða að heiman.
50 ÁRA afmæli. Nk. sunnudag, 1. apríl, verður fimmtug
Sólveig Jónsdóttir, kennari, Heiðvangi 26, Hafnarfirði.
Eiginmaður hennar, Ólafur Ragnar Jónsson, sendibíl-
stjóri, verður fimmtugur 19. apríl nk.
STAÐAN kom upp í annarri
deild Íslandsmóts skák-
félaga. Einar K. Einarsson
(2060) hafði hvítt gegn
Torfa Léossyni (2075). 11.
Rxb5! axb5 12. Bc7 og
svartur gafst upp enda stað-
an ófögur eftir 12... Dd7 13.
Re5. Einar er lipur skák-
maður og hættulegur þegar
sá gállinn er á honum. Hann
tefldi fyrir Taflfélag Akra-
ness og sýndi góða takta á
skákborðinu. Í síðustu um-
ferð atti hann kappi við Ró-
bert Harðarson, sem teflir
fyrir skákfélagið Grand
Rokk. Sá síðarnefndi stóð
afar höllum fæti þegar Ein-
ar að því er virðist fraus og
féll á tíma í sama mund og
hann lék sínum 39. leik.
Þessi dramatík hafði það
m.a. í för með sér að Grand
Rokki tókst að bera sigur úr
býtum í 2. deild með eins
vinnings forskoti og tryggja
sér fyrstudeildarsæti að ári.
Án efa munu þeir fyrir
næstu keppni bera víurnar í
marga af fremstu skák-
mönnum þjóðarinnar og hef-
ur þegar frést að Einar hafi
snúið aftur til síns gamla
félags, Grand Rokks. Skák-
þing Norðlendinga hefst í
dag, 30. mars, á Þórshöfn og
stendur til 1. apríl. Nánari
upplýsingar um mótið er
hægt að finna á Skak.is.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
KVÖLD
Nú blika við sólarlag sædjúpin köld;
ó, svona’ ætti’ að vera hvert einasta kvöld,
með hreinan og ljúfan og heilnæman blæ,
og himininn bláan og speglandi sæ.
Ó, ástblíða stund, þú ert unaðsæl mjer,
því alt er svo ljómandi fagurt hjá þjer,
og hafið hið kalda svo hlýlegt og frítt,
og hrjóstruga landið mitt vinlegt og blítt.
Og fjallhnúka raðirnar rísa í kring,
sem risar á verði við sjóndeildarhring;
og kvöldroðinn brosfagur boðar þar drótt
hinn blíðasta dag eftir ljúfustu nótt.
Þorsteinn Erlingsson.
NÝLEGA kom út bók eftir
Skotann Barnet Shenkin,
spilafélaga Zia Mahmood á
Bridshátíð. Shenkin býr nú í
Bandaríkjunum og spilar
brids sér til lífsviðurværis í
kompaníi með Zia og Mich-
ael Rosenberg, sínum fyrsta
makker. Bók Shenkins heitir
„Playing with the Bridge
Legends“ og er svona hálf-
partinn ævisaga höfundar
sem spilara. Öfugt við ýmsa
aðra höfunda, er Shenkin
ófeiminn við að birta „vondu
spilin“ sín og hefur því efni á
að monta sig inn á milli. Eins
og hér, en þetta spil kom upp
á EM í Menton 1995 í leik
Breta og Ungverja (en
Shenkin var þá liðsmaður
Stóra-Bretlands).
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 108
♥ DG
♦ KD3
♣ KG8752
Vestur Austur
♠ DG974 ♠ 52
♥ K64 ♥ 53
♦ 107 ♦ ÁG98654
♣ D96 ♣ Á10
Suður
♠ ÁK63
♥ Á109872
♦ 2
♣ 43
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 lauf 3 tíglar Dobl *
Pass 3 grönd Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
* Neikvætt dobl.
Vestur kom út með tígul-
tíu og austur drap kóng
blinds og sendi tígulfjarkann
til baka í öðrum slag. Hvern-
ig myndi lesandinn spila?
Eftir nokkra yfirlegu
verður sennilega til eftirfar-
andi áætlun: Laufi er hent
heima í tíguldrottninguna.
Síðan er ÁK í spaða spilað og
spaði trompaður. Tígli spilað
og trompað með ás og fjórði
spaðinn stunginn í borði. Þá
á aðeins eftir að sækja
hjartakónginn. En blindur
er inni og eðlilegast er að
opna þar samganginn með
laufkóng. En þá gerast und-
ur mikil: Austur drepur og
spilar tígli. Það verður að
stinga frá með tíunni og vest-
ur hendir. Næst er trompníu
spilað. Vestur tekur strax á
kónginn og spilar fimmta
spaðanum, sem asutur sting-
ur með fimmunni. Suður yf-
irtrompar og á nú eftir 82 í
trompi, en vestur 64. Dálítið
sérstakt að hægt sé að gefa
slag á trompsexuna með
þéttan lit niður í sjöu.
Þetta sá Shenkin fyrir.
Hann horfði vel og lengi á
tígulfjarka austurs, sem
hlaut að vera hliðarkall í laufi
byggt á ásnum (því auðvitað
var austur að vona að tígultía
makkers væri einspil). En
var líklegt að austur ætti ÁD
í laufi og ÁG í tígli? Það er
aðeins of mikið fyrir hindr-
unarsögn og Shenkin ákvað
því að henda spaða, en ekki
laufi í tígulinn. Síðan tromp-
aði hann spaða, yfirdrap
hjartadrottningu og sótti
hjartakónginn. Þar með var
trompið ekkert vandamál og
síðar spilaði hann laufi á
gosa og fékk tíu slagi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Aldrei meira úrval af nýjum
brúðarkjólum
Allir fylgihlutir, undirföt o.fl.
Ítölsk föt fyrir herra
FATALEIGA GARÐABÆJAR
sími 565 6680
Opið virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14.
Tapaðirðu minninu?
Þú verður að sækja það
á aðalskrifstofuna.
FRÉTTIR
BÍLHEIMAR kynna um helgina
nýjan og gjörbreyttan Opel Corsa.
Nýi Opel Corsa-bíllinn er af þriðju
kynslóð eins allra vinsælasta smá-
bíls heims um árabil, en fram að
þessu hafa alls rúmlega 9 milljónir
Opel Corsa selst í yfir 80 löndum.
Nýi bíllinn hefur stækkað talsvert
frá því sem var, auk þess sem hann
hefur fengið alveg nýtt útlit þó svo
að þekkja megi hann sem arftaka
hins eldri Opel Corsa.
Það sem einkennir nýja bílinn er
að hann býður upp á gott innan-
rými, sérstaklega er gott rýmið fyr-
ir olnboga og axlir, en auk þess hef-
ur hann líka lengst nokkuð og er
hjólahafið í nýja Opel Corsa það
mesta í bíl í þessum stærðarflokki
(2.491 mm). Helsta nýjung sem boð-
in er í Opel Corsa er svokölluð
„Easytronic“-sjálfskipting með 1.2i
16V-vélinni.
Nýi Opel Corsa-bíllinn er betur
búinn en áður. Þannig er m.a. ABS-
hemlalæsivörn orðin staðalbúnaður
í bílnum sem og rafdrifnar rúður og
speglar, öryggisloftpúðar, útvarp/
geislaspilari með fjarstýringu í
stýrinu og fleira í þessum dúr. Opel
Corsa verður boðinn bæði 3ja og 5
dyra, beinskiptur og sjálfskiptur
með þremur mismunandi vél-
arstærðum. Eins og áður segir fer
kynning á nýjum Opel Corsa fram
hjá Bílheimum um helgina. Opið
verður milli kl. 12 og 17 á laug-
ardag og kl. 14–17 sunnudag.
Nýr Opel Corsa
frumsýndur
BORGARALEG ferming verður
haldin í 13. sinn sunnudaginn 1. apríl
á Íslandi. Fermingarathöfn er út-
skriftarhátíð eftir 3ja mánaða
námskeið um siðfræði, mannleg
samskipti, ábyrgð, frelsi, og mann-
réttindi. Tilgangur borgaralegrar
fermingar er að efla heilbrigð og
farsæl viðhorf ungmenna til lífsins.
Þátttakendur rækta meðal annars
með sér jákvæðni og ábyrgðarkennd
gagnvart sjálfum sér og samborg-
urum sínum, segir í fréttatilkynn-
ingu
Athöfnin einkennist af virkri þátt-
töku fermingarbarna. Þar er dag-
skrá með stuttum ávörpum, tónlist
og ljóðalestri. Utanaðkomandi ræðu-
menn í þetta skipti eru Óskar Dýr-
mundur Ólafsson, sagnfræðingur og
formaður Samtaka félagsmiðstöðva
á Íslandi, og Antoinette Nana
Gyedu-Adomako, félagsfræðingur.
Fermingarstjóri að þessu sinni er
Sveinn Kristinsson, kennari.
Nú í ár hefur þátttaka í borgara-
legri fermingu á Íslandi aldrei verið
meiri (73 ungmenni) og hefur aukist
um 50% frá síðastliðnu ári. Um 5000
manns hafa verið viðstaddir þessar
athafnir. Athöfnin í ár er í stærsta
sal Háskólabíós og hefst kl. 11.
Félagið Siðmennt sér um borgara-
lega fermingu.
Fleiri en áður
fermast borg-
aralegri
fermingu
VILHELMÍNA Magnúsdóttir held-
ur fyrirlestur í Baðhúsinu laugar-
daginn 31. mars kl. 14 þar sem hún
mun fjalla um hvernig ástar- og
flóttafíkn getur skemmt samskipti
ástvina. Í fréttatilkyninngu segir að
Vilhelmína muni hjálpa þátttakend-
um að koma auga á hvernig ástarfíkn
/flóttafíkn komi fyrir í lífi einstak-
lingsins og kenni hvernig á að skapa
betri og ástríkari samskipti.
Fyrirlestrar verða haldnir í hverj-
um mánuði í Baðhúsinu um hvernig
hægt sé að samræma jafnvægi lík-
ama, hugar og sálar og viðhalda
hreysti, segir ennfremur. Allir eru
velkomnir.
Fyrirlestur um
ástar- og flótta-
fíkn í Baðhúsinu
BERGMÁL, vina- og líknarfélag,
heldur árshátíð sína í safnaðarheim-
ili Háteigskirkju laugardaginn 31.
mars. Húsið verður opnað kl. 18.30
og verður borðhald kl. 19. Skemmti-
atriði.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦