Morgunblaðið - 30.03.2001, Blaðsíða 66
FÓLK Í FRÉTTUM
66 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í GEGNUM tíðina hefur höfuð-
staður Norðurlands, Akureyri, getið
af sér töluvert af atkvæðamiklum
tónlistarmönnum. Bara-flokkurinn
sálugi var afbragðssveit en fátt ann-
að en innihaldsrýrt gleðipopp hefur
heyrst frá norðanmönnum síðan
svanasöngur Ásgeirs Jónssonar og
flokksfélaga, Gas, kom út og þar til
200 þúsund naglbítar kvöddu sér
hljóðs á safnplötunni Spírur meira
en áratug síðar.
Naglbítarnir hafa starfað saman í
átta ár og er það langlífi í hverfulum
heimi hins íslenska tónlistarmanns.
Þeir hafa sent frá sér nokkur safn-
plötulög og gefið út tvær afbragðs-
plötur, Neondýrin og Vögguvísur
fyrir skuggaprins, sem er ótvírætt
með betri plötum síðasta árs. Eft-
irvæntingin var því ærin þegar ég
gekk inn í Kompaníið til þess að
hlýða á tónleika þessara rómuðu
norðanrokkara.
Kompaníið, áður Dynheimar, er
hið fallegasta hús og mér er enn í
fersku minni ágætir tónleikar
Bubba Morthens í húsinu árið 1987.
Salurinn í Kompaníinu er ekki stór
og var ég fremur efins um að hann
hentaði fyrir rokktónleika. Hlýr við-
arhljómur er þó í húsinu og kjörin
fyrir einfaldari hljómflutning, eins
og áðurnefndir tónleikar Bubba
voru. Áhyggjur mínar reyndust
góðu heilli ástæðulausar því að
hljómburðurinn var ágætur til rokk-
iðkana og styrkurinn var farsællega
hófstilltur, nokkuð sem því miður er
undantekning á rokktónleikum hér-
lendis.
Naglbítarnir byrjuðu á laginu
„Toksík Allah“, af Vögguvísunum,
og virkuðu lítið eitt óstyrkir þrátt
fyrir hnökralítinn flutning. Í öðru
laginu, „Einn var“, náðu þeir þó
ágætum þéttleika og hrynrænni afs-
löppun, en lagið, sem er af Neondýr-
unum, verður þó seint talið til betri
smíða sveitarinnar. Titillag seinustu
plötu, „Vögguvísur fyrir skugga-
prins“, fylgdi í kjölfarið og er af-
bragðssmíð en umtalsverðs óörygg-
is gætti í flutningi, einkum þó í söng
Vilhelms og röddun Kára Jónsson-
ar, bassaleikara.
„Velgengni án mistaka, er engin
velgengni,“ sagði Bob Dylan og á
það afar vel við um þessa tónleika
Naglbítanna. Eftir hnökrana í upp-
hafi var sem allt gengi upp hjá sveit-
armönnum. Þéttleiki, hrynræna og
spilagleði voru allsráðandi og smíð-
arnar, sem flestar eru grípandi,
komust afar vel til skila. Smellirnir
af Neondýrunum, „Brjótum það
sem brotnar“ og „Neðanjarðar“,
voru frábærlega fluttir sem og
gæðasmíðarnar af Vögguvísunum;
einkum „Stopp nr. 7“ og „Lítill
fugl“, sem var einn þriggja há-
punkta kvöldsins. Gítarleikurinn í
laginu sver sig mjög í ætt við hina
miklu meistara stafrænna seinkun-
arbrellna, þeirra David Gilmour, nú-
verandi forsprakka Pink Floyd, og
The Edge úr U2. Þessi áhrif koma
ekki á óvart því „Lítill fugl“ inni-
heldur kunnuglegan frasa af meist-
araverkinu The Wall og Naglbítarn-
ir eru um margt svipaðir U2 í
lagasmíðum og atgervi. Vilhelm,
söngvari og gítarleikari, var meira
að segja afar líkur poppgoðinu
Bono, hvort sem með vilja var eður
ei.
Áhrifavaldar Naglbítanna eru
greinilega mun fleiri en áðurnefndar
risaeðlur og sem betur fer er enginn
það veigamikill að sjálfstæði í stíl-
brigðum sveitarinnar sé ógnað. Í
rokkuðustu köflunum minntu Nagl-
bítarnir mig lítið eitt á Sham ’69 og
á stundum varð mér hugsað til eð-
algrúppunar Violent Femmes. Ekki
dónalegur félagsskapur það.
Ásamt áðurnefndum „Litlum
fugli“ þótti mér Naglbítunum best
takast upp í, annars vegar sérkenni-
legu uppfyllingaratriði sem ég leyfi
mér að kalla „2 mínútur“, og hins
vegar í laginu eftir uppklapp, „Hæð
í húsi“.
Uppfyllingaratriðið varð til vegna
bilunar í ljósakerfi, og eftir að ljósa-
meistari tilkynnti tveggja mínútna
viðgerðartíma þá tók Vilhelm til við
að hafa ofan af fyrir gestum með
dæmalaust leikrænni og magn-
þrunginni talningu sem átti að vera
upp í 120 sekúndur. Þetta var súr-
realísk stund og kynngimögnuð.
Mér flaug Nick Cave í hug og jafn-
vel enn sterkar þegar Naglbítarnir
fluttu, eftir uppklapp, hæga og seið-
andi útgáfu af smellnum „Hæð í
húsi“, sem í upprunalegri útgáfu
hafði eitt sinn minnt mig á Madness
og Clash! 200 þúsund naglbítar eru
um margt afbragðshljómsveit. Axel
trymbill og Kári bassaleikari eru
pottþétt hryndeild og Vilhelm er
söngvari með persónulegan stíl og
ágæta breidd. Gítarleikur hans og
hins nýja liðsmanns, Róberts Reyn-
issonar, er og góður, þótt mér þyki
sem möguleikarnir séu ekki nýttir
til fullnustu; það vantar meiri breidd
og blæbrigðamun á milli gítaranna
tveggja. Tónlist Naglbítanna er um
margt „gítarísk“ og aukinn laglínu-
leikur á gítar er eitthvað sem ég tel
að sveitarmenn ættu að athuga bet-
ur. Johnny Marr, Robert Smith og
The Edge eru afbragðsdæmi um
snillinga í gítarútsetningum og Ró-
bert Reynisson getur vafalaust bætt
meiru við útsetningar Naglbítanna
þegar fram líða stundir, en hann er
jú nýgenginn í bandið. Nóg um það.
Annars, að öllu rausi slepptu,
voru tónleikarnir í flesta staði fyr-
irtak og höfuðborgarbúar mega fara
að hlakka til, því að Naglbítarnir
eru á leiðinni.
Af vel-
gengni
Ljósmynd/Aron Bergmann Magnússon
„Halló!!“: Vilhelm og félagar hans í 200 þúsund naglbítum
eru nú á góðri tónleikareisu um landið.
Orri Harðarson
TÓNLIST
K o m p a n í i ð
Tónleikar með hljómsveitinni
200 þúsund naglbítar í Komp-
aníinu, Akureyri Fimmtudags-
kvöldið 22. mars sl.
TÓNLEIKAR
Cranio-nám
Norðurland / Akureyri
28. 04 — 3. 05. 2001
Thomas Attlee, DO, MRO, RCST
College of Cranio—Sacral Therapy
Félag höfuðbeina og spjaldhryggsjafnara
www.simnet.is/cranio
422 7228, 699 8064, 897 7469
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is
Sýnt í Gamla bíói (í húsi Íslensku óperunnar)
Miðasala í síma 511 4200
og á Netinu - www.midavefur.is
Föstudag 30. mars kl. 20:00 - frumsýning, uppselt
Laugardag 31. mars kl. 23:00 - örfá sæti laus
Fimmtudag 5. apríl kl. 20:00 - nokkur sæti laus
Laugardag 7. apríl kl. 20:00 - örfá sæti laus
Laugardag 14. apríl kl. 20:00
25% afsláttur af mat fyrir og eft ir sýningu á Café Óperu.
Hópar: Hafið samband í síma 511 7060.
+ !
7
"
' " !"
0! " !
0! ,
+ ,
-
.
! -
8
7 , ' "#
$"#
"
%&'(')**+,%- ./*'
0 *+- .1 ,&+%02,
333
4
Leikfélag
Mosfellssveitar
Gamanleikritið
Á svið
Hið fúla fólskumorð
í Bæjarleikhúsinu, Mosfellsbæ
Leikstjóri Ingrid Jónsdóttir
Frumsýning fös. 30. mars kl. 20.00.
2. sýn. sun. 1. apríl kl. 20.00.
3. sýn. fös. 6. apríl kl. 20.00.
4. sýn. sun. 8. apríl kl. 20.00.
Miðaverð aðeins kr. 1.500.
Miðapantanir í síma 566 7788.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
-+'1*%(2.+*+- *#
3
!"9!
$'3
.9
$83
& "9
$,3
9
2,1&', &','567-8#2 9#
+ ! 9!
$ :
;-*6((',**+5 #
-
9
,
$
.9
$
9
$ .9
:9
,#
5 &1'--+0+++1,8<(58# "9
$ 9
=>
?@
$ .9A
$
:9 ?@B@
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
5 &1'--+0+++1,8<(58# ; !"9!
$
9
$
.9
& "9
9
'9
89
Litla sviðið kl. 20.30:
8$+5*8+*. ! C #
+ ! 9!
.9( !
333
D
-
" 5
# AE
=BA=F$ A
=BA?@
552 3000
Opið 12-18 virka daga
SNIGLAVEISLAN KL. 20
flyst í Loftkastala vegna mikillar aðsóknar
lau 21/4 örfá sæti laus
fim 26/4 örfá sæti laus
sun 29/4 örfá sæti laus
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20
fös 6/4 örfá sæti laus
mið 11/4 nokkur sæti laus
sun 22/4 örfá sæti laus
SJEIKSPÍR EING OG
HANN LEGGUR SIG KL. 20
lau 31/3 örfá sæti laus
lau 7/4 nokkur sæti laus
fös 27/4 nokkur sæti laus
Síðustu sýningar!
530 3030
Opið 12-18 virka daga
SNIGLAVEISLAN KL. 20
fös 30/3 UPPSELT
lau 31/3 kl. 16 UPPSELT, Aukasýn.
sun 1/4 UPPSELT
mið 4/4 UPPSELT
fim 5/4 UPPSELT
lau 7/4 UPPSELT
sun 8/4 UPPSELT
mið 11/4 UPPSELT
fim 12/4 UPPSELT - Skírdagur
Ath! Sýningar færast eftir 12/4 í Loftkastala
Á sýningardögum er miðasalan opin fram að
sýningu og um helgar opnar hún í viðkom-
andi leikhúsi kl. 14 ef sýning er um kvöldið.
Hópasala er í síma 530 3042 frá kl. 10-16
virka daga.
midasala@leik.is — www.leik.is
Í HLAÐVARPANUM
Í kvöld - föstudagur 30. mars kl. 19.00
Árshátíð Grikklandsvinafélagsins
Hellas með fjölbreyttri dagskrá!
Eva - bersögull sjálfsvarnareinleikur
21. sýn. sun. 1. apríl kl. 21.00
22. sýn. þri. 3. apríl kl. 21 örfá sæti laus
þri. 10.4, fim. 19.4, lau. 21.4 kl. 21
„...textinn er bæði skemmtilegur og sannur í allri
sinni tragí-kómík...ég skora á (konur) að fjölmenna
og taka karlana með..." (SAB Mbl.)
<
5
: :GG=H@GG
333
Stóra svið
BLÚNDUR & BLÁSÝRA e. Joseph
Kesselring
Í KVÖLD: Fös 30. mars kl. 20 3.
sýning - ÖRFÁ SÆTI
Lau 31. mars kl. 19 4. sýning - ÖRFÁ
SÆTI Lau 7. apríl kl. 19 5. sýning
MÓGLÍ e. Rudyard Kipling
Lau 31. mars kl 13 - UPPSELT
Sun 1.apríl kl 14 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 8. apríl kl 14 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 22. apríl kl 14 – ATH:Sýningin er
túlkuð á táknmáli
Sun 29. apríl kl 14
SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason
Fös 6. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Lau 21. apríl kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Fös 27. apríl kl. 20
AUKASÝNINGAR V. MIKILLAR
EFTIRSPURNAR
MENNINGARVERÐLAUN DV 2001
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR!
ÍD
KRAAK EEN OG KRAAK TWEE e. Jo
Strömgren
POCKET OCEAN e. Rui Horta
Sun 1. apríl kl. 20 – 5. sýning
Fim 5. apríl kl. 20 – 6. sýning
Litla svið
KONTRABASSINN e. Patrick Süskind
Í KVÖLD: Fös 30. mars kl. 20
FRUMSÝNING - UPPSELT
Fim 5. apríl kl. 20 2. sýning - ÖRFÁ
SÆTI
Lau 7. apríl kl. 19 3. sýning
Leikari: Ellert A. Ingimundarson
Lýsing: Lárus Björnsson. Þýðing:
Hafliði Arngrímsson/Kjartan
Óskarsson. Leikmynd og búningar:
Axel Hallkell Jóhannesson. Leikstjórn:
Kjartan Ragnarsson.
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Sun 1. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 8. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 22. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fim 26. apríl kl. 20
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
sýnir í Tjarnarbíói
Höfundar: Hjördís Hjartardóttir,
Ingibjörg Hjartardóttir
og Sigrún Óskarsdóttir.
Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir.
Frumsýning laugardaginn 31. mars.
2. sýning fimmtudaginn 5. apríl.
3. sýning föstudaginn 6. apríl.
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í síma 551 2525.
Miðasala opin alla sýningardaga
frá kl. 19.00.