Morgunblaðið - 10.04.2001, Side 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Honda CRV RVI, mars
1999, ekinn 36 þ. km, 5
dyra, ssk., svartur.
Verð 1.720.000 þ.
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra reifaði á ársfundi rannsókn-
arráðs Íslands í gær tillögur sem
hann hefur lagt fram í tengslum við
endurskoðun á lögum um ráðið.
Gera þær ráð fyrir að stefnumótun í
vísindum og tækni verði í höndum
gjörbreytts rannsóknarráðs Íslands,
sem starfi undir formennsku for-
sætisráðherra með þátttöku hóps
ráðherra, vísindamanna og fulltrúa
atvinnulífs. Undir þessu stefnumót-
andi rannsóknarráði Íslands starfi
tvær stjórnarnefndir, önnur á veg-
um menntamálaráðuneytis og hin
iðnaðarráðuneytis. Þessar nefndir
úthluti styrkjum og veiti lán á
grundvelli umsókna.
Rannsóknarráð heyrir nú undir
menntamálaráðuneyti og í því sitja
tólf starfsmenn að tillögu ríkis-
stjórnar, háskóla, rannsóknastofn-
ana og atvinnulífsins. Samkvæmt
lögum um rannsóknarráð Íslands
bar að endurskoða þau innan fimm
ára frá því, að þau tóku gildi hinn 1.
júlí 1994.
Á ársfundi rannsóknarráðs sagð-
ist hann hafa kynnt þeim þessa hug-
mynd og við úrvinnslu hennar hefði
hann haft að leiðarljósi að stefna í
vísindum, rannsóknum og þróun
setji ótvíræðan svip á almenna
stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahags-
og atvinnumálum.
Tillögurnar gera m.a. ráð fyrir því
að rannsóknarráð Íslands móti
stefnu í vísinda- og tæknimálum til
þriggja ára í senn. Litið verði til
þess, hvert sé gildi starfs á þessu
sviði fyrir allt efnahagslíf þjóðarinn-
ar. Stefnu ráðsins fylgi fram-
kvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun
þar sem meðal annars verði tekin af-
staða til starfsemi opinberra rann-
sóknastofnana og opinberra úthlut-
unarsjóða. Þá skili ráðið ríkisstjórn
árlega skýrslu um horfur í vísinda-
og tæknimálum. Þá er gert ráð fyrir
að Vísindasjóður og Tæknisjóður
verði sameinaðir í einn sjóð. Styrkj-
um verði úthlutað til einstaklinga og
fyrirtækja þeirra en ekki til stofn-
ana eða ríkisaðila. Þá er gert ráð fyr-
ir að í stað skrifstofu rannsóknar-
ráðs Íslands komi stofnun án
stjórnsýsluhlutverks til að annast
úttektir á rannsóknum, upplýsinga-
öflun um rannsóknir, ráðgjöf til
rannsóknaraðila og skýrslugjöf,
kynningu á vísinda- og rannsókna-
störfum og e.t.v. umsýslu fyrir
stjórnarnefndirnar.
„Þessi nýja skipan felur það í sér,
að af hálfu menntamálaráðuneytis-
ins verði höfuðáherslan lögð á að
styrkja grunnrannsóknir og stuðla
að menntun ungra vísindamanna.
Hlutverk ríkisins á þessu sviði yrði
samkvæmt því annars vegar að fjár-
magna öfluga sjóði til að styrkja
grunnrannsóknir og hins vegar að
stuðla að meistara- og doktorsnámi
á háskólastigi. Aðrir þættir rann-
sókna- og þróunarstarfs mundu
hvíla á herðum einkaaðila eða sjóða,
sem veita fé til nýsköpunar,
vöruþróunar og áhættufjárfestinga.
Þar er lagt til að starfi sjóður, sem
styrki frumkvöðla við nýsköpun og
vöruþróun hvers konar. Reynslan
hefur sýnt að vaxandi þörf er á
stuðningi sem brúar bilið frá því að
grunnrannsókn er lokið og þar til
áhættufjárfestar koma beint til sög-
unnar,“ sagði Björn ennfremur.
Ráðherrar setjist í
breytt Rannsóknarráð
Morgunblaðið/Kristinn
Björn Bjarnason menntamálaráðherra flytur mál sitt á ársfundi Rann-
sóknarráðs Íslands á Hótel Loftleiðum í gær.
Fantur er þó varla réttnefni og lík-
ast til er þessi illvígi svipur Fants
bara dulargervi svo hann fái að
hlaupa og leika sér óáreittur.
FANTUR heitir labrador-hundur
sem var í banastuði á Þingvöllum á
dögunum og naut þess að kljást við
greinar og annað sem tönn á festi.
Morgunblaðið/Ingólfur
Fantur í banastuði
FULLTRÚAR ASÍ verða í nefnd
landbúnaðarráðuneytis sem leita
skal sátta um leið til að tryggja hag-
stætt verð grænmetis til neytenda
og koma því þannig fyrir að þeir við-
skiptahættir sem hafa tíðkast verði
ekki til frambúðar. Þetta kom fram á
fundi forsvarsmanna ASÍ og land-
búnaðarráðherra í gær.
Halldór Björnsson, varaforseti
ASÍ, segist hafa lýst áhyggjum sín-
um við ráðherra um það hvernig mál
í grænmetisiðnaði hafa þróast.
„Við erum mjög óhressir með það
ástand sem nú blasir við. Þrátt fyrir
að við höfum verið að reyna að gera
kjarasamninga sem taka tillit til
stöðugleikans í þjóðarbúinu horfum
við upp á það að þarna til hliðar eru
aðilar sem hafa þá viðleitni okkar að
engu og nánast ræna fólk fengnum,“
sagði Halldór.
Leyfa þarf frjálsan innflutning
„Það þýðir lítið að vera að hlífa
mönnum af því þeir eru bændur ef
þeir eru að fara í svona viðskipta-
hætti eins og þarna virðast hafa við-
gengist. Við höfum því gert athuga-
semdir við það verðlag sem verið
hefur á þessari neysluvöru. Skilyrðið
er að lækka tollana og leyfa innflutn-
ing frjálsan allt árið án þessarar
miklu tollaverndar – það verður að
finna einhverja aðra leið en ofurtolla
til að vernda íslenskan landbúnað.“
Á fundinum var sú krafa ASÍ
kynnt ráðherra að þegar verði tekin
ákvörðun um niðurfellingu á vernd-
artollum vegna innflutnings á græn-
meti. Þá leggur Alþýðusambandið
áherslu á að tryggt verði að virkri
samkeppni við verðlagningu og sölu
á grænmeti og ávöxtum í heildsölu
og smásölu verði komið á hér á landi.
Halldór Björnsson eftir fund með landbúnaðarráðherra
Skilyrði að lækka
tolla á grænmeti
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið
út ákæru á hendur þremur mönnum
sem ákærðir eru fyrir að hafa staðið
að innflutningi á rúmlega 8 kílóum af
amfetamíni til landsins.
Mennirnir eru 22–23 ára gamlir.
Einum þeirra er gefið að sök að
hafa skipulagt innflutninginn. Sam-
kvæmt ákæru lét hann hinum mönn-
unum tveimur í té farareyri og lofaði
þeim greiðslu fyrir verkið. Hann hafi
séð um að útvega fé til fíkniefna-
kaupanna og skipulagt flutning
þeirra til landsins. Maðurinn hefur
ávallt neitað sök í málinu. Hann sat í
gæsluvarðhaldi í sex vikur eftir að
hann var handtekinn en dómstólar
mátu það svo að ekki hefðu komið
fram nægileg rök til að halda honum
lengur inni og var honum því sleppt.
Hinir mennirnir tveir eru sakaðir
um að hafa að undirlagi mannsins og
gegn loforði um fjögurra milljóna
króna þóknun keypt rúmlega átta
kíló af amfetamíni í Amsterdam.
Efnið földu þeir í hátölurum sem
þeir fluttu til Hamborgar og sendu
þaðan til landsins með hraðsending-
arþjónustu.
Mennirnir hafa játað aðild sína að
málinu. Þeir sitja enn í gæsluvarð-
haldi.
Þrír ákærðir fyrir
innflutning á átta
kílóum af amfetamíni
Lofað fjór-
um milljón-
um í þóknun
STEFANÍA Magnúsdóttir var kjör-
in nýr varaformaður Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur (VR) á
fundi stjórnar félagsins í gærkvöldi
og hlaut hún sjö atkvæði gegn einu
atkvæði Péturs A. Maack, fram-
kvæmdastjóra og fyrrverandi vara-
formanns félagsins. Sjö atkvæði voru
auð og ógild. Þá var Elín Elíasdóttir
kjörin ritari og Edda Kjartansdóttir
gjaldkeri.
Stjórnarkjörið í gær kom í kjölfar
deilna sem staðið hafa milli Magn-
úsar L. Sveinssonar, formanns
félagsins og Péturs undanfarna daga.
Að sögn Magnúsar snerust deilurnar
um ýmis mál er varða eignir félagsins
og greiðslur félagsins í lífeyrissjóð
vegna Magnúsar. Á fundinum var,
samkvæmt tillögu formanns, ein-
róma kosin nefnd til að fara yfir og
meta þá þætti í starfsemi VR sem
deilan hefur staðið um á undanförn-
um dögum. Lögð er áhersla á að
þessari vinnu verði lokið sem fyrst og
niðurstöður birtar. Ástæða þess að
ráðist var í stjórnarkjör nú er sú að
stjórnin átti eftir að skipta með sér
verkum eftir aðalfund félagsins 26.
mars síðastliðinn, en ár er síðan
Magnús var kjörinn formaður til
tveggja ára.
Framkvæmdastjórastaðan
mál morgundagsins
Að sögn Magnúsar liggur ekkert
fyrir um stöðu Péturs sem fram-
kvæmdastjóra innan félagsins annað
en að hann muni gegna því starfi
áfram enda hafi fundurinn í gær ein-
göngu tekið á kjöri í embætti innan
stjórnarinnar. „Ég vona að hann
[Pétur] dragi einhvern lærdóm af
þeirri alvöru sem yfir okkur hefur
dunið og að hann átti sig á því að
trúnaður þarf að ríkja á milli manna.“
Þá segist Magnús vona að bjartari
tímar séu framundan. „Ég vona að
öldurnar lægi innan félagsins því það
er búið að skaða félagið óskaplega
mikið að mál voru ekki kláruð innan
stjórnarinnar heldur hefur einhver
farið með þetta í fjölmiðla.“
Pétur segist vera ósköp sáttur við
niðurstöðu fundarins í gærkvöldi og
segist geta vel við unað. „Niðurstað-
an er að það var kosinn nýr varafor-
maður og óska ég henni velfarnaðar í
starfi. Hins vegar ákváðum við að
skipa nefnd til að fara yfir þessi deilu-
mál sem ég og formaðurinn höfum
átt í og það er ég mjög sáttur við.“
Hann segist ekki geta dæmt um það
hvort niðurstaða fundarins muni hafa
áhrif á stöðu sína sem framkvæmda-
stjóra félagsins og segir það vera mál
morgundagsins. Hann segist þó ekki
upplifa kosninguna sem vantraust á
sig.
Nýr varaformað-
ur kjörinn í VR