Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
getum forðast þær villigötur sem við
höfum séð aðra rata í. Við erum frá
upphafi meðvituð um að slá hvergi af
vísindalegum kröfum um fag-
mennsku og gæði og sú vinna hefur
farið vel af stað.“
Mikilvægt að fá
viðurkenningu í heimalandinu
Dr. Magnús Már Halldórsson tölv-
unarfræðingur lauk doktorsprófi frá
Rutgers University í New Jersey ár-
ið 1991. Hann starfaði að því loknu
við rannsóknir í Japan en kom heim
1995 og gegndi rannsóknarstöðu við
Raunvísindastofnun Háskólans til
ársloka 2000, auk þess að kenna við
tölvunarfræðiskor skólans. Rann-
sóknir Magnúsar hafa einkum verið á
því sviði fræðilegrar tölvunarfræði
sem fjallar um flækjustig reiknirita
fyrir erfið reikniverkefni, sér í lagi
svokölluð netverkefni. Hann hefur að
áliti dómnefndar verið mjög afkasta-
mikill vísindamaður á þeim áratug
sem liðinn er frá því hann birti sína
fyrstu vísindagrein. Hann hefur hasl-
að sér völl á alþjóðavísu sem virtur
fræðimaður og haldið uppi árangurs-
ríku, alþjóðlegu samstarfi, en með-
höfundar að ritverkum hans skipta
tugum og koma úr öllum heimshorn-
um. „Það eru einkum hæfileikar
Magnúsar til þess að halda uppi
þróttmiklum rannsóknum í samstarfi
við vísindamenn út um allan heim
sem gera hann verðugan þess að
hljóta Hvatningarverðlaun Rannís að
þessu sinni,“ sagði í umsögn dóm-
nefndar.
„Ég er nú eiginlega að jafna mig og
á enn eftir að gera mér grein fyrir
raunverulegu gildi þessara verð-
launa,“ sagði Magnús Már Halldórs-
son við Morgunblaðið að verðlauna-
afhendingunni lokinni. „En það er
alltaf mikilvægt að fá að vita að verk
manns séu metin, sérstaklega í
heimalandinu. Manni finnst stundum
í þessu þjóðfélagi, þar sem peningar
eru helsta mælistikan, að þessir hlut-
ir lendi til hliðar.“
Magnús Már vinnur á sviði sem
hérlendis er fremur fámennt, eðli
málsins samkvæmt. „Ísland er erfitt
að því leyti að sökum fámennis vinna
óhjákvæmilega fáir á sérsviði manns.
Flestir samstarfsmenn mínir eru úti í
heimi, um þessar mundir eru það
helst menn í Ísrael, Japan, Noregi og
Bandaríkjunum, auk eins Íslend-
ings.“
Magnús Már bendir á að tölvunar-
fræði sé ungt svið hér á landi og þar
séu breytingar hraðar. „Þetta krefst
þess að við vísindamennirnir þurfum
að fylgjast vel með, en einnig gerir
þetta að verkum að fólk á oft erfitt
með að átta sig á því um hvað þessar
rannsóknir snúast. Fólki hættir til að
tengja þær við þá tölvunotkun sem
nú gerist sífellt útbreiddari, en tölv-
unarfræði snýst alls ekki um að búa
til vefsíður eða teikna myndir með
músum. Hún snýst ekki um tölvurnar
sjálfar, heldur um þann grunn sem
allir notkunarmöguleikarnir eru
byggðir á. Hún á þannig meira skylt
við stærðfræði en rafmagnsverk-
fræði, enda snýst tölvunotkun um
vinnslu og geymslu upplýsinga. Að-
ferðirnar stúderum við með abstrakt
líkönum og reynum að fá lausnir sem
nýtast svo á ólíkum sérsviðum.“
Að sögn Magnúsar Más er til fjöld-
inn allur af mikilvægum verkefnum
sem ekki er hægt að leysa fullkom-
lega með tölvum, og á því sviði hefur
hann ekki síst látið til sín taka. „Þar
felst vinnan í því að sætta sig við tak-
markanirnar og hanna út frá því að-
ferðir sem gefa eins góðar lausnir og
mögulegt er.“ Dæmi um slíkt verk-
efni er að finna stærsta hóp fólks þar
sem hverjir tveir þekkjast, eins kon-
ar tengslanet – eða klíku – á hvers-
dagslegra máli. Slíkt verkefni er
aldrei hægt að leysa fullkomlega með
tölvutækni en fyrsta grein Magnúsar
Más gaf aðferð til þess sem enn hefur
ekki verið bætt að honum vitandi.
Hann kveðst vona að sviðið sem
hann starfar á eigi eftir að stækka
hér heima og bendir á að víða erlend-
is hafi verið hrundið í framkvæmd
stórum átaksverkefnum á sviði tölv-
unarfræði. „Þetta er að mínu áliti
lykilatriði, að ýta undir grunnrann-
sóknir í tölvunarfræði. Hér á landi
hefur vantað mikið upp á að þetta
svið sé litið sömu augum og erlendis,
án þess að ég kunni á því skýringu.
En það er vonandi að þessi verðlaun
gefi vísbendingu um að það sé að
breytast. Ég lít á þau sem viðurkenn-
ingu á tölvunarfræði sem alvöru
fræðasviði,“ sagði Magnús Már sem í
ársbyrjun skipti um starfsvettvang
og gerðist yfirmaður upplýsingasviðs
líftæknifyrirtækisins UVS.
HVATNINGARVERÐLAUN
Rannsóknarráðs Íslands 2001 voru
veitt í gær á ársfundi ráðsins. Verð-
launahafarnir eru tveir fræðimenn af
yngri kynslóð, hvor á sínu sviði, þeir
dr. Magnús Már Halldórsson tölvun-
arfræðingur og dr. Orri Vésteinsson,
sagn- og fornleifafræðingur, en dóm-
nefnd reyndist ómögulegt að gera
upp á milli þeirra.
Valið var úr hópi ungra vísinda-
manna á hug- og raunvísindasviði og
sjónum sérstaklega beint að gæðum
og afköstum í rannsóknum, ekki síst
að loknu formlegu námi. Hvatning-
arverðlaun Rannís nema einni millj-
ón króna á mann auk viðurkenning-
arskjals, en forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, afhenti verðlaun-
in. Dómnefnd skipuðu sem fyrr verð-
launahafar fyrri ára, en þeir eru nú
orðnir fjórtán talsins.
Um margt gott að vera ungur
vísindamaður á Íslandi
Dr. Orri Vésteinsson lauk doktors-
prófi í sagnfræði frá University of
London 1996 en hafði áður lokið
mastersgráðu í fornleifafræði. Sam-
hliða doktorsnámi vann hann ötul-
lega að þeim verkefnum sem leiddu
til stofnunar Fornleifastofnunar Ís-
lands sem að mati dómnefndar er
„gagnmerkt frumkvöðulsverkefni
sem lýsir miklu áræði og stórhug“ og
hefur stofnuninni „tekist að gjör-
breyta á stuttum tíma landslagi ís-
lenskrar fornleifafræði- og starf-
semi“. Orri hefur í orði og verki fylgt
þeirri sannfæringu sinni að stórefla
þurfi fornleifarannsóknir í landinu,
ekki síst til þess að unnt reynist að
varpa nýju og skýru ljósi á tímabilið
fyrir ritöld. „Það er þessi samtvinnun
traustrar fræðimennsku og nýstár-
legrar frumkvöðulsstarfsemi sem
gerir hann sérstaklega verðugan
þess að hljóta Hvatningarverðlaun
Rannís að þessu sinni,“ sagði í um-
sögn dómnefndar.
Í samtali við Morgunblaðið kvað
Orri verðlaunin vissulega myndu
verða sér til hvatningar, eins og í
heiti þeirra fælist. Ennfremur liti
hann á verðlaunin sem viðurkenn-
ingu á starfi sínu og félaga sinna við
uppbyggingu Fornleifastofnunar Ís-
lands. „Lykillinn að þeim árangri er
samstarf. Við erum sjálfsagt óvenju-
legir að því leyti að við störfum í hóp,
en það hefur skilað okkur miklum ár-
angri auk þess sem það er ólíkt
skemmtilegra vinnulag.
Annars lít ég líka á þessi verðlaun
sem viðurkenningu fyrir íslenska
fornleifafræði og hvatningu til þess
að standa að enn frekari eflingu
hennar. Vísindasamfélagið sýnir hér
með viðurkenningu og skilning á
mikilvægi vísinda fortíðarinnar, en
við „fortíðarfræðingarnir“ höldum
því einmitt fram að framtíðin verði
ekki skilin nema þekkja til fortíðar-
innar. Kannski vekur þetta líka
áhuga fleiri stúdenta á námi í forn-
leifafræði, en skortur á fagfólki hefur
einmitt staðið vexti í greininni fyrir
þrifum hér á landi.“
Hann sagði að þótt ævinlega væru
not fyrir aukin fjárframlög til rann-
sókna væri um margt gott að vera
ungur vísindamaður á Íslandi. Forn-
leifastofnun Íslands væri dæmi um
verkefni sem ekki hefði átt mögu-
leika við þær aðstæður sem víða eru
erlendis. „Þar myndu ýmsir í okkar
sporum þurfa að vinna fyrir sér með
þjónustuverkefnum og ekki eiga færi
á því að byggja upp sjálfstæða rann-
sóknarstofnun.“
Hann tók fram að á liðnum árum
hefði stofnunin fengið góða styrki frá
Rannís. „Þeir styrkir hafa skipt máli,
þótt þeir geri það ekki í eins miklum
mæli í dag þar sem upphæðirnar eru
ekki það háar. En í þessum styrkjum
hefur falist viðurkenning á því að við
séum að vinna alvöru vísindaverkefni
og það hefur meðal annars hjálpað
við öflun styrkja erlendis frá.“
Þróun fornleifafræði sem atvinnu-
greinar hefur hingað til verið hæg á
Íslandi að mati Orra, en líf færist nú
óðum í tuskur. „Kosturinn við að vera
eins seinir við þessa uppbyggingu og
raun ber vitni er reyndar sá að við
Tveimur ungum vísindamönnum veitt Hvatningarverðlaun Rannís 2001
Morgunblaðið/Kristinn
Dr. Magnús Már Halldórsson og dr. Orri Vésteinsson taka við Hvatning-
arverðlaununum úr hendi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar.
Mikilvægt
að verkin
eru metin
Athyglin beindist að fortíð og framtíð þegar
Hvatningarverðlaun Rannsóknarráðs Ís-
lands 2001 voru afhent í gær. Sigurbjörg
Þrastardóttir fylgdist með þegar fornleifa-
fræðingur og tölvunarfræðingur veittu
verðlaununum viðtöku.
sith@mbl.is
EINS hreyfils flugvél hlekktist á
þegar flugmaður hennar var að snúa
henni á flugvellinum á Skógarsandi á
sunnudagsmorgun. Skipta þurfti um
skrúfu á vélinni en litlar skemmdir
urðu að öðru leyti.
Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli
hafði maðurinn ætlað sér að snertil-
enda vélinni á vellinum, sem er mal-
arvöllur. Í lendingunni fann flug-
maðurinn hins vegar að völlurinn var
blautur og ákvað því að lenda vélinni.
Þegar hann var að snúa henni við
sökk nefhjól vélarinnar niður í sand-
inn en við það rakst skrúfan í jörðina
og vélin lagðist á annan vænginn.
Lögreglan á Hvolsvelli telur völlinn í
raun ónothæfan, hann sé bæði gljúp-
ur og laus í sér.
Flugvél
hlekktist á
VÉLSLEÐAMAÐUR slasaðist al-
varlega þegar hann kastaðist af
sleða sínum í Þjófahrauni við
Klukkutinda sunnan Skjaldbreiðs á
laugardagskvöld. TF-SIF, þyrla
Landhelgisgæslunnar, sótti mann-
inn og flutti hann meðvitundarlaus-
an á Landspítala-háskólasjúkrahús í
Fossvogi. Í gær lá hann enn á gjör-
gæsludeild spítalans og hafði ekki
komið til meðvitundar.
Maðurinn, sem er 34 ára gamall,
var í hópi vélsleðamanna. Félagar í
Björgunarfélagi Árborgar komu á
slysstað skömmu eftir slysið en þeir
voru þá á heimleið úr æfingaferð.
Lögreglunni á Selfossi barst tilkynn-
ing frá þeim kl. 20.44 og var þyrla
Landhelgisgæslunnar þegar kölluð
út. Jafnframt lögðu lögreglu- og
sjúkraflutningabílar af stað til
mannanna. Þeim var snúið við þegar
ljóst var að þyrlan yrði fljótari í för-
um.
Þyrlan lenti við slysstaðinn
klukkustund eftir að tilkynning
barst og var komin að Landspítalan-
um um klukkan hálf ellefu.
Slasaðist alvarlega
í vélsleðaslysi
NETARALL Hafrannsókna-
stofnunarinnar stöðvaðist fyr-
ir helgi vegna þess að Sjó-
mannasamband Íslands og
LÍÚ drógu undanþágu frá
verkbanni til baka. Í gær
veitti LÍÚ svo aftur undan-
þágu fyrir sitt leyti að beiðni
Hafrannsóknastofnunar en
Sjómannasambandið hyggst
ekki veita undanþágu á ný
nema sjávarútvegsráðherra
gefi út reglugerð um netarall-
ið, eins og til stóð.
Stofnmæling þorsks með
netum, svokallað netarall, þar
sem sjónum er sérstaklega
beint að hrygningarslóð
þorsks, hófst hinn 2. apríl sl.
og
átti því að ljúka 15. apríl nk.
Áður en togararallið hófst í
vetur óskaði Hafrannsókna-
stofnun eftir undanþágu frá
verkfalli og verkbanni hjá öll-
um hagsmunaaðilum vegna
netarallsins og fékk hana, en
fyrir helgi drógu Sjómanna-
sambandið og LÍÚ undanþág-
una til baka til að knýja á um
hrygningarstopp. LÍÚ hefur
hins vegar veitt undanþágu
frá verkbanninu að nýju, að
beiðni Hafrannsóknastofnun-
arinnar.
Sævar Gunnarsson, formað-
ur Sjómannasambands Ís-
lands, segir sambandið hafa
afturkallað undanþáguna
vegna þess að þar hafi verið
blandað saman kjarabaráttu
og stjórnvaldsaðgerðum að
undirlagi vísindamanna. „Við,
ásamt öðrum hagsmunasam-
tökum, studdum tillögur Haf-
rannsóknastofnunarinnar um
netarallið. Ráðherra ákveður
síðan einhverra hluta vegna
að gefa reglugerðina ekki út.
Við hins vegar teljum engin
efnisleg rök fyrir því að gefa
reglugerðina ekki út. Ég hef
hins vegar heimild fyrir því að
veita undanþáguna um leið og
reglugerðin verður gefin út,“
segir Sævar.
Segir slæmt að dragast
inn í verkfallsátök
Jóhann Sigurjónsson, for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar,
segist harma að verið sé að
stefna mikilvægri rannsókn í
voða. „Það er slæmt að við
skulum dragast inn í verk-
fallsátök með þessum hætti.
Þessar rannsóknir hafa meðal
annars verið gerðar að frum-
kvæði sjómanna og gagnast
þeim ekki síst. Ég vonast hins
vegar til þess að menn nái að
sjá þessi mál í öðru ljósi og í
víðara samhengi,“ segir Jó-
hann.
Hlé á
neta-
rallinu