Morgunblaðið - 10.04.2001, Síða 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÁMSMENN eru flestir farnir að
huga að sumarstarfi enda styttist óð-
um í próf og langþráð sumar.
Viðfangsefni stúdenta eru ólík og
fara sumir ótroðnari slóðir en aðrir.
Þetta gildir um stöllurnar Maríu
Gestsdóttur, Árnýju Jónsdóttur,
Önnu Dagbjörtu Þórðardóttur og
Helen Garðarsdóttur sem ákváðu að
setja á laggirnar tungumálanámskeið
með nýstárlegu sniði fyrir börn og
fullorðna í sumar. Fjórmenningarnir
eru allar nemar í spænsku við Há-
skóla Íslands og segja hugmyndina að
námskeiðunum upphaflega hafa kom-
ið frá lektornum sínum, Margréti
Jónsdóttur, sem kastaði henni fram í
tíma í vetur.
„Við gripum hugmyndina á lofti og
ákváðum að framkvæma hana enda
þótti okkur tilvalið að vekja áhuga
fólks á spænskunni á evrópsku tungu-
málaári,“ segir Árný.
„Á hverju ári fara þúsundir Íslend-
inga til Spánar á sólarstrendur og
mjög fáir þeirra geta talað við inn-
fædda þar sem Spánverjar eru ekkert
of fúsir til að tala ensku,“ segir María
og bætir við að það sama gildi um
þjóðir Suður-Ameríku. Allar hafa
þær ferðast um spænskumælandi
lönd og segja tungumálafærni skapa
tækifæri til betri samskipta og skiln-
ingur á tungumálum annarra þjóða
auki virðingu fyrir fólki og menningu
þess.
„Það er svo miklu auðveldara að
eiga samskipti við innfædda ef maður
kann hrafl í tungumáli þeirra. Bara að
geta bjargað sér á veitingastöðum, í
verslunum og á hótelinu getur skipt
sköpum,“ bætir Anna Dagbjört við.
Námskeiðin eru hugsuð sem fyrstu
skref fyrir byrjendur og er engrar
kunnáttu krafist af þátttakendum.
„Það er einmitt hugsunin að baki
námskeiðunum. Við verðum annars
vegar með vikulöng hraðnámskeið
fyrir fjölskyldur á leið í fríið og hins
vegar með tveggja vikna barnanám-
skeið þar sem áherslan er lögð á að
kenna spænskuna í gegnum leik,“
segir Helen.
Búkolla baular með hreim
Stúdínurnar segja undirbúning
fyrir krakkanámskeiðið hafa verið
sérstaklega skemmtilegan þar sem
þær hafi viðað að sér ógrynnum af
leikjum og söngvum sem spænsku-
mælandi börnum eru töm. „Börn geta
og vilja læra tungumál en það þarf
ekkert endilega að láta þau sitja inni í
skólastofu til þess,“ segir Árný.„Já,
við ætlum þess vegna að hafa þetta
skemmtilegt og fara í vettvangsferð-
ir, t.d. í Húsdýragarðinn þar sem dýr-
in fá splunkuný nöfn upp á spænsku,“
segir María. Hinar taka undir og fara
að skellihlæja þegar í tal berst ólíkt
„tungutal“ dýra. Það virðist nefnilega
ekkert sjálfgefið að dýrin tali sama
tungumál og kýr baula bara alls ekki
eins alls staðar í heiminum.
Spurðar um frekari áætlanir eru
fjórmenningarnir fljótar til svars,
þær langar einnig að setja á laggirnar
unglinganámskeið og spænskunám
fyrir eldri borgara. Fyrst í stað ætla
þær þó að láta fjölskyldu- og barna-
námskeiðin duga og hlakka til að leiða
Íslendinga í ferðahug fyrstu skrefin
til Spánar og Rómönsku-Ameríku.
Frekari upplýsingar um námskeið-
in er að finna á heimasíðunni:
www.geocities.com/spaenska.
Nýstárleg
sumarvinna
námsmanna
SAMNINGAR tókust með samfloti
sex bæjarstarfsmannafélaga og
Launanefndar sveitarfélaga í gær-
morgun eftir stíf fundarhöld síðustu
daga. Samningurinn nær til starfs-
manna í Kópavogi, Hafnarfirði,
Akranesi, Árborg, Vestmannaeyjum
og félagsmanna í Félagi opinberra
starfsmanna á Suðurlandi.
Í fréttatilkynningu frá Launa-
nefnd sveitarfélaga segir að hækk-
anir í samningnum séu í samræmi
við þá kjarasamninga sem launa-
nefndin hefur gert undanfarið og eru
sambærilegar og gilda á almennum
vinnumarkaði. Þá er mikil áhersla
lögð á sí- og endurmenntun í samn-
ingnum auk þess sem fyrirhugað er
að taka upp nýtt starfsmatskerfi við
árslok 2002.
Voru ekki með
í samstarfi í kjarna
Fyrr á árinu slitnaði upp úr sam-
starfi 19 sveitarfélaga en þau áttu
sameiginlega í viðræðum við launa-
nefnd sveitarfélaga. Í kjölfarið skrif-
aði launanefndin undir kjarasamn-
ing við 13 starfsmannafélög sem
voru aðilar að samstarfsvettvangin-
um Kjarna.
Þau sex starfsmannafélög sem nú
skrifuðu undir samninga eru þau
félög sem ekki tóku þátt í því sam-
starfi.
Samið
við bæj-
arstarfs-
menn
KOSIÐ var um tillögu samstarfs-
nefndar Blönduósbæjar og Engi-
hlíðarhrepps hvort sameina ætti
Blönduóssbæ og Engihlíðarhrepp
í Austur-Húnavatnssýslu síðastlið-
inn laugardag. 660 manns voru á
kjörskrá á Blönduósi og nýttu
329 atkvæðisrétt sinn sem er
49,85%. Samþykktur sameiningu
var 301 eða 91,49% þeirra sem
kusu, nei sögðu 23 og 5 at-
kvæðaseðlar voru auðir eða
ógildir. Í Engihlíðarhreppi voru
52 á kjörskrá og neyttu 50 þeirra
atkvæðisrétt síns. Sammála sam-
einingu voru 29 eða 58%, 19 voru
á móti og tveir seðlar voru ógild-
ir.
Þessi úrslit þýða það að frá og
með næstu sveitarstjórnarkosn-
ingum verða sveitarfélögin í A-
Húnavatnssýslu 9 í stað 10. Sam-
starfsnefndarmenn voru kátir að
kosningum loknum og voru sam-
mála um að niðurstaða kosning-
anna væri mjög afgerandi og
vonuðu að þessi sameining væri
upphafið að frekari sameiningu
sveitarfélaga í A-Húnavatnssýslu.
1. desember sl. voru búsettir í
sveitarfélögunum báðum 999 íbú-
ar, 929 á Blönduósi og 70 í Engi-
hlíðarhreppi.
Engihlíðarhreppur og Blönduós í A-Húnavatnssýslu
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Samstarfsnefndarmenn Blönduósbæjar og Engihlíðarhrepps. Talið frá vinstri: Valgarður Hilmarsson Fremsta-
gili, Ágúst Þór Bragason Blönduósi, Jakobína Halldórsdóttir Fagranesi og Skúli Þórðarson Blönduósi.
„Sameinaðir stöndum vér“ var niður-
staða sameiningarkosningar
HALLDÓR Finnsson,
fyrrverandi sparisjóðs-
stjóri, oddviti og sveit-
arstjóri á Grundarfirði,
lést á Landspítalanum
7. apríl sl. Hann var 76
ára að aldri, fæddur 2.
maí 1924.
Halldór var for-
göngumaður að ýms-
um framfaramálum í
Eyrarsveit og á Snæ-
fellsnesi. Hann gegndi
trúnaðarstörfum í
fjölda nefnda og ráða á
vettvangi sveitar-
stjórnarmála, lands-
mála, málefna sýslunnar, kirkju-
mála í Eyrarsveit og á kirkjuþingi
og í Lionshreyfing-
unni. Halldór var
sæmdur riddara-
krossi íslensku fálka-
orðunnar 1. desem-
ber 1994 fyrir störf
að félagsmálum.
Eftirlifandi eigin-
kona Halldórs er
Pálína Gísladóttir.
Þau eiga átta börn,
Höllu, Gísla Karel,
Jóhönnu Hallgerði,
Jóhannes Finn, Hall-
dór Pál, Guðrúnu,
Sólrúnu og Svein-
björn. Halldór lætur
eftir sig 25 barnabörn og barna-
barnabörn.
Andlát
HALLDÓR FINNSSON
ÍSLANDSSÍMI setur fyrirfram-
greidda farsímaþjónustu undir nafn-
inu Rautt á markað í dag. Að sögn
Magnúsar Árnasonar, verkefnis-
stjóra hjá Íslandssíma, verður þjón-
ustan ólík þeirri þjónustu sem
Landssíminn og Tal bjóða upp á og
kennd er við frelsi, að því leyti að
hún verður fjölbreyttari.
Talið er að um 75 þúsund farsíma-
notendur nýti sér fyrirframgreidda
þjónustu í dag, að stærstum hluta
ungt fólk. Magnús sagði að Íslands-
sími væri sérstaklega að reyna að
höfða til unga fólksins. Í fyrstu yrði
boðið upp á tal, SMS og ýmsa aðra
þjónustuþætti en að á næstu vikum
mætti búast við margvíslegum nýj-
ungum, s.s skemmtiefni. Kortin
verða m.a. seld á bensínstöðvum.
Íslandssími
eykur
þjónustuna FINNUR Árnason, framkvæmda-
stjóri Hagkaups, segir það alveg
skýrt markmið hjá Baugi að vera í
smásölu en ekki framleiðslu og af
þeim sökum muni fyrirtækið ekki
sjálft hefja sveppaframleiðslu hér á
landi. Finnur gagnrýndi í Morgun-
blaðinu sl. laugardag ofurtolla sem
lagðir eru á innflutt grænmeti og
benti á að á Íslandi væri einn aðili
sem ræktar sveppi. Það þætti sjálf-
sagt mál að íslenskir skattgreiðend-
ur greiddu tugi milljóna í verndar-
tolla til að vernda hagsmuni þessa
eina manns.
„Miðað við alla umræðuna sem
hefur verið í gangi hlýtur þetta til-
tekna mál einungis að vera hluti af
hluti af tollamálinu í heild. Það hafa
verið fluttir inn sveppir en það eru
tollar sem koma í veg fyrir að hægt
sé að halda því áfram,“ segir Finnur.
Sveppir
ekki fluttir
inn vegna
ofurtolla
Á AÐALFUNDI Verndar –
fangahjálparinnar 5. apríl sl. voru
þau Axel Kvaran og frú Hanna Jo-
hannessen kjörin heiðursfélagar.
„Axel Kvaran var fyrsti fram-
kvæmdastjóri Verndar en sam-
tökin hafa starfað frá árinu 1960.
Hann sat í stjórn Verndar til
margra ára og jafnframt í hús-
nefnd áfangaheimilis samtakanna
á Laugateigi 19. Hefur hann verið
samtökunum hollur og skjólstæð-
ingar Verndar hafa átt hauk í
horni þar sem hann er.
Frú Hanna Johannessen er for-
maður jólanefndar Verndar og
hefur setið í þeirri nefnd frá 1963
og verið formaður hennar frá
1967. Jólanefndin undirbýr jóla-
fagnað samtakanna sem hefur
verið haldinn hin síðari ár í sam-
vinnu við Hjálpræðisherinn og
sóttu á annað hundrað manns
fagnaðinn um síðustu jól. Hefur
frú Hanna kostað kapps um að
hafa jólafagnaðinn sem myndar-
legastan og lagt mikla vinnu í að
afla jólamatar og gjafa handa
skjólstæðingum Verndar.
Vernd – fangahjálpin vildu
þakka þeim fórnfúst starf í þágu
samtakanna með því að gera þau
að heiðursfélögum. Samtökin
voru stofnuð 1958 en tóku form-
lega til starfa tveimur árum síð-
ar,“ segir í frétt um aðalfundinn
frá Vernd.
Núverandi formaður Verndar
er sr. Hreinn S. Hákonarson,
fangaprestur þjóðkirkjunnar.
Framkvæmdastjóri samtakanna
er Þráinn B. Farestveit.
Heiðursfélagar Verndar, Hanna Johannessen og Axel Kvaran.
Kjörin heiðurs-
félagar í Vernd
♦ ♦ ♦