Morgunblaðið - 10.04.2001, Síða 14
LANDIÐ
14 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ísafirði - Á pálmasunnudag tóku
Ísfirðingar í notkun nýja skíða-
lyftu í Tungudal og telja að nýja
skíðasvæðið í dalnum sé orðið jafn-
gott hinu frábæra skíðasvæði, sem
var á Seljalandsdal fyrir snjóflóð.
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra var viðstaddur
opnunina og voru honum færðar
sérstakar þakkir fyrir að bregðast
fljótt við beiðni um lagningu vegar
að nýju lyftunni á síðasta hausti.
Án framtaks hans hefði fram-
kvæmdin tafist að minnsta kosti
um eitt ár.
Við þetta tækifæri færðu hjónin
Sigríður Brynjólfsdóttir og Ásgeir
Guðbjartsson útgerðarmaður bæj-
arsjóði eina milljón að gjöf til
framkvæmdanna.
Nú er kominn nægur snjór í
skíðalöndin og með tilkomu nýju
lyftunnar er hægt að skíða allt að
tveim kílómetrum í einu rennsli.
Nýja lyftan, svokölluð Hauganes-
lyfta, kemur almennum skíðaiðk-
endum og börnum að mestum not-
um, auk þess að standa hærra í
hlíðinni og nýtast betur í snjólétt-
um árum. Tvær lengri lyfturnar,
sem eru tæpur kílómetri hvor,
geta flutt samtals 3.000 manns á
klukkutíma.
Skíðavikan
sett á morgun
Skíðavikan verður svo formlega
sett á miðvikudag á Silfurtorgi, en
afar fjölbreytt dagskrá verður
daglega til og með páskadags. Þar
má nefna gönguskíðaferðir frá
Hesteyri í Jökulfjörðum til Að-
alvíkur, tvíkeppni í rennsli með
sneiðingum og 120 skrefa hlaupi í
anda fyrstu skíðakeppni á Vest-
fjörðum, sem haldin var í Önund-
arfirði 1910. Þá má nefna furðu-
fatadag og skíðanótt.
Mikil dagskrá verður í gangi um
páskana og hápunktur hennar er
flutningur Sálumessu Mozarts í
Ísafjarðarkirkju á föstudaginn
langa. Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna, Hátíðarkór Tónlistarskóla
Ísafjarðar ásamt óperusöngv-
urunum Guðrúnu Jónsdóttur, Ing-
unni Ósk Sturludóttur, Snorra
Wium og Ólafi Kjartani Sigurðs-
syni flytja.
Hefð er fyrir því að brottfluttir
Ísfirðingar hópist vestur á Skíða-
viku og eru nokkrar aukaferðir
vegna þess hjá Flugfélagi Íslands,
en með bættum vegum og stórauk-
inni þjónustu Vegagerðarinnar í
snjómokstri fer þeim mjög fjölg-
andi sem keyra.
Fengu eina
milljón
króna í nýja
skíðalyftu
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Sturla Böðvarsson og Ásgeir Guðbjartsson við opnun skíðalyftunnar.
Hnappavöllum - Brúarvinnuflokkur Sveins Þórðarson-
ar úr Vík er fyrir nokkru byrjaður að styrkja tvo
stöpla á brúnni yfir Skeiðará. Er það gert með því að
reknir eru niður nokkrir steyptir staurar beggja meg-
in við gamla sökkulinn, síðan eru steyptir nýir og
stærri sökklar utan um og svo steypt utan um stöpl-
ana. Við þetta verk var notaður nýinnfluttur niður-
rekstrarkrani sem allur er vökvaknúinn. Reyndist
hann vel og mun meðfærilegri en eldri tæki þótt hann
vegi um 50 tonn.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Brúin yfir Skeiðará styrkt
Stykkishólmi - Guðmundur Benja-
mínsson í Stykkishólmi hætti vöru-
flutningum þann 1. apríl sl. Vöru-
flutningafyrirtækið Ragnar og
Ásgeir í Grundarfirði yfirtók rekst-
urinn. Allir starfsmenn Vöruflutn-
inga Guðmundar fá starf hjá nýjum
rekstraraðilum.
Guðmundur Benjamínsson hóf
vöruflutninga á milli Stykkishólms
og Reykjavíkur árið 1977 í samstarfi
við Höskuld Höskuldsson. Samstarf
þeirra hætti átta árum síðar og síðan
þá hefur Guðmundur rekið öflugt
flutningafyrirtæki. Hann hefur verið
með allt að fjóra flutningabíla í för-
um. Daglegar ferðir hafa verið á milli
Reykjavíkur og Stykkishólms.
Svona rekstur er mjög viðkvæmur
því markaðssvæðið er hvorki stórt
né fjölmennt. Flutningur hans hefur
byggst mikið á fiski en á síðari árum
hefur orðið mikill samdráttur, eink-
um á flutningi á rækju. Þá ákvað 10-
11, eina matvöruverslunin í Stykk-
ishólmi, ekki alls fyrir löngu að bjóða
út flutninga fyrir verslunina og
treysti Guðmundur sér ekki að flytja
á því verði sem þar var í boði. Allt
þetta hefur hjálpað til að gera rekst-
urinn erfiðari.
Vöruflutningar Ragnars og Ás-
geirs færa enn út kvíarnar með til-
komu sinni í Hólminn. Er það orðið
eina vöruflutningafyrirtækið á norð-
anverðu Snæfellsnesi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Starfsmenn Vöruflutninga Guðmundar Benjamínssonar hafa fengið
nýja vinnuveitendur. Á myndinni eru þeir fyrir framan einn af flutn-
ingabílum fyrirtækisins síðasta vinnudaginn: Steingrímur Guðmunds-
son, Þorgrímur Kristinsson, Guðmundur Benjamínsson, Ingibjörg Gúst-
afsdóttir og Sigurður Skagfjörð.
Eina vöruflutninga-
fyrirtækið hættir
Fagradal - Ferðaþjónustubændur
héldu aðalfund sinn á Hótel
Höfðabrekku í Mýrdal nýlega. Að
sögn Sævars Skaftasonar, fram-
kvæmdastjóra ferðaþjón-
ustubænda, voru mættir 60–70
fulltrúar víðsvegar af landinu til
að ræða sín mál og voru fund-
armenn almennt bjartsýnir á
komandi sumar.
Við þetta tækifæri var opnuð
heimasíða samtakanna. Það var
Árni Johnsen, alþingismaður og
formaður samgöngunefndar al-
þingis, sem fyrstur kveikti á
vefnum en þar er að finna mynd-
ir og upplýsingar um þjónustu og
afþreyingu á um 120 sveitabæjum
sem eru með ferðaþjónustu, vef-
fangið er www.sveit.is
Á fundinum voru samþykktar
tvær ályktanir: „Aðalfundurinn
beinir því til samgönguyfirvalda
að uppbyggingu þjóðvega yfir há-
lendið um Sprengisand og Kjöl
verði flýtt sem kostur er. Jafn-
framt skorar fundurinn á rík-
isstjórn Íslands að beita sér fyrir
bættum lánakjörum íslenskrar
ferðaþjónustu í dreifbýli.“
Ferðaþjón-
ustubændur
netvæðast
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Árni Johnsen, alþingismaður og
formaður samgöngunefndar al-
þingis, kveikti á vefnum.
Grindavík - Fegurðasamkeppni
Suðurnesja 2001 var haldin í Festi í
Grindavík. Svanhildur Björk Her-
mannsdóttir, 18 ára Grindavík-
urmær, bar sigur úr býtum í þess-
ari keppni sem var sú fimmtánda í
röðinni.
Það þótti vel við hæfi að halda
þessa keppni í fyrsta skipti í
Grindavík þar sem sex af fjórtán
keppendum voru úr Grindavík og
keppnin aldrei verið haldin þar áð-
ur. Grindvísku stúlkurnar sópuðu
að sér verðlaunum og áttu að sjálf-
sögðu salinn en troðfullt hús var
þetta kvöld.
Í öðru sæti var Grindavíkur-
mærin Hrund Óttarsdóttir en í
þriðja sæti var Hulda María
Jónsdóttir úr Keflavík en hún var
einnig kosin K-sport stúlkan.
Ljósmyndafyrirsætan var líka úr
Grindavík og heitir Gerður Björg
Jónasdóttir en hún hreppti einnig
titilinn Stúdíó Huldu-stúlkan.
Oroblu-stúlkan var Þóra Jónsdóttir
en eins og kynnir kvöldsins, Freyr
Sverrisson, orðaði það „hún er með
fallegustu fótleggina“. Vinsælasta
stúlkan var kosin Margrét Rut
Sörensen. Gallery förðun-stúlkan
og net-stúlkan var kosin Svanhildur
Björk Hermannsdóttir. Grindvík-
ingar eiga því þrjár stúlkur í
keppninni ungfrú Ísland en auk
þeirra þriggja efstu keppir sú sem
var ljósmyndafyrirsæta einnig um
þann titil.
Systirin fegurðar-
drottning Íslands
Það er óhætt að fegurðin sé í
ættinni hjá Svanhildi því systir
hennar Guðbjörg Hermannsdóttir
var ungfrú Ísland 1998 og var þá
líka 18 ára að verða 19 ára.
Þegar fréttaritari hafði samband
við Svanhildi daginn eftir
fegurðarsamkeppnina og spurði
um líðan fegurstu stúlku
Suðurnesja var hún að gera sig
tilbúna í fermingarveislu. „Bara
mjög vel, það er heilmikið að gera í
kringum þetta, margar æfingar og
líklega enn meira í ungfrú Ísland
sem er í maí. Nei, ég var ekki
stressuð en kærastinn, Grétar
Lárus Matthíasson, tók út stressið
fyrir okkur bæði og er rosalega
stoltur af mér eins og fjölskyldan
reyndar öll. Ég er frekar feimin og
hafði því mjög gott af þessu. Þetta
var frábær hópur og við allar
sigurvegarar,“ sagði Svanhildur.
Svanhildur Björk
Hermannsdóttir
valin fegurst
Morgunblaðið/GPV
Grindavíkurmærin Sigríður Anna Ólafsdóttir, fegurðardrottning Suð-
urnesja 2000, krýnir Svanhildi Björk Hermannsdóttur, fegurðardrottn-
ingu Suðurnesja 2001.
Fegurðarsamkeppni Suðurnesja