Morgunblaðið - 10.04.2001, Qupperneq 18
VIÐSKIPTI
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GENGI Arcadia Group, sem Baug-
ur o.fl. fjárfestar í A-Holding eiga
fimmtungshlut í, hafði við lok við-
skipta í gær hækkað í 246,5 pens
eða um 3% frá upphafsgengi dags-
ins, sem var 239,5 pens. Markaðs-
virði Arcadia fór því í 464,5 millj-
ónir punda í gær, eða tæpa 62
milljarða íslenskra króna. Virði
eignarhlutar A-Holding er því 12,4
milljarðar króna.
Arcadia Group birti afkomutölur
fyrstu sex mánaða fjárhagsárs síns
sl. fimmtudag og þóttu þær sýna
fram á verulega bættan rekstur
félagsins. Hagnaður fyrir óreglu-
lega liði reyndist 29 milljarðar
punda nú, en á sama tímabili síð-
asta fjárhagsárs varð 8,6 milljarða
punda tap á rekstrinum. Í kjölfar
birtingarinnar hækkaði gengi hluta-
bréfa í félaginu um 46 pens upp í
239 pens.
Wade Smith selt
Arcadia Group seldi fyrir helgi
eitt þeirra fimm vörumerkja sem
félagið hefur ákveðið að losa sig við
á næstunni. Það fyrsta sem seldist
var Wade Smith en það var upphaf-
legur eigandi og stofnandi merk-
isins, Robert Wade-Smith, sem
keypti vörumerkið aftur á 7 millj-
ónir punda, eða rúmar 900 milljónir
íslenskra króna.
Wade Smith-keðjan samanstend-
ur af fjórum verslunum og einni
dreifingarstöð. Nýi eigandinn seldi
Arcadia verslanirnar árið 1998 en
eignast þær nú aftur með þremur
greiðslum upp á alls 7 milljónir
punda. Hin fjögur vörumerkin sem
nú eru til sölu eru Warehouse,
Principles, Racing Green og
Hawkshead.
Gengi Arcadia hækkar enn
GREININGARDEILD Kaupþings
sendi í gær frá sér ritið Þróun og
horfur fyrir aprílmánuð. Þar kemur
fram það mat greiningardeildarinnar
að nú styttist í að botninum sé náð á
hlutabréfamörkuðum og að verðþró-
un verði jákvæð á ný. Greiningar-
deildin telur að hafa beri í huga að
horfur í rekstrarumhverfi fyrirtækja
séu mun betri nú en í fyrra. Olíuverð
hafi haldist nokkuð stöðugt, vextir
hafi verið lækkaðir og ætla megi að sú
þróun haldi áfram ef útlit haldist gott.
Þrátt fyrir nokkra veikingu krónunn-
ar að undanförnu sé frekar gert ráð
fyrir styrkingu hennar þegar líða tek-
ur á árið.
Að mati greiningardeildar Kaup-
þings eru ótal kauptækifæri á mark-
aðnum í dag og mælir greiningar-
deildin ekki með sölu á neinum
bréfum að þessu sinni. Fram kemur
að fjárfestingartækifæri má finna í
flestum geirum, meðal annars í fram-
leiðslu, lyfjaiðnaði, fjármálageiranum
og upplýsingatækni. Æ fleiri fyrir-
tæki sækja fram á erlendum mörk-
uðum og það eykur vaxtarmöguleika
þeirra til muna. Í sjávarútvegi eru
einnig næg tækifæri og mælt er með
bréfum sjávarútvegsfyrirtækja fyrir
þá sem eru áhættusæknir og fjárfesta
til langs tíma.
Bætt afkoma fyrir afskriftir og
fjármagnsliði
Greiningardeild segir samanlagt
tap fyrirtækja á Aðallista VÞÍ hafa
numið 5,7 milljörðum króna í fyrra en
16,8 milljarða króna hagnaður varð
árið 1999. Þyngst vegi Össur, sem
skilað hefur 6,6 milljarða króna tapi,
en þess ber að geta að þar var um að
ræða mikla afskrift á viðskiptavild
vegna kaupa Össurar á fyrirtækjum.
Félög á Vaxtarlista voru rekin með
325 milljóna króna tapi en töpuðu árið
áður 13 milljónum króna.
Afkoma fyrirtækja á Aðallista fyrir
afskriftir og fjármagnsliði er hins
vegar heldur betri í fyrra en árið
1999, eða 31 milljarðs króna hagnaður
miðað við 29 milljarða króna hagnað.
Greiningardeild segir ljóst að það séu
einkum fjármagnsliðirnir sem draga
afkomuna niður, en bendir jafnframt
á að vegna breyttra reglna um færslu
á söluhagnaði fastafjármuna falli
hann nú undir reglulegar tekjur og
hækki þar með hagnað fyrir afskriftir
og fjármagnsliði.
Fjarskiptaiðnaðurinn í meira
uppnámi en áður hefur þekkst
Greiningardeildin fjallar sérstak-
lega um þriðju kynslóð farsíma og
segir lækkandi gengi bréfa símfyrir-
tækja í Evrópu vera til vitnis um að
hluthafar fyrirtækjanna telji að
rekstrarleyfin hafi verið of dýru verði
keypt. Nú sé spurt hvernig þau eigi að
skila hagnaði miðað við þær gríðar-
legu fjárfestingar sem þegar hafa
verið gerðar og framundan eru vegna
rekstrarleyfa og uppbyggingar nýrra
símneta fyrir þriðju kynslóðina. Sagt
er frá því að símafélögin hafi reynt að
fara ýmsar leiðir til að afla sér fjár-
magns, en flest hafi þó farið út í um-
fangsmikla skuldabréfaútgáfu. Þetta
hafi aukið skuldir félaganna og fjár-
magnskostnaður þeirra hafi aukist á
sama tíma og verð hlutabréfa þeirra
hafi lækkað. Greiningardeildin segir
að bent hafi verið á að áhætta í rekstri
margra stærstu símafyrirtækja Evr-
ópu hafi stóraukist í kjölfar útboða á
leyfum fyrir þriðju kynslóð farsíma.
Þannig megi færa rök fyrir því að
uppboðsleiðin, sem hefur fært mikinn
auð í ríkissjóð margra landa, hafi sett
fjarskiptaiðnaðinn í Evrópu í meira
uppnám en dæmi séu áður til um.
Greiningardeildin segir verðbólgu-
væntingar hafa minnkað undanfarna
mánuði og þetta megi sjá þegar skoð-
að er verðbólguálag ríkisvíxla, þótt
það hafi reyndar aukist lítillega aftur í
kjölfar veikingar krónunnar.
Spá 100 til 150 punkta
vaxtalækkun á árinu
Gert er ráð fyrir að Seðlabankinn
muni lækka vexti sína á árinu um 100
til 150 punkta til viðbótar þeirri 50
punkta vaxtalækkun sem kom um leið
og breytt var yfir í verðbólgu-
markmið á dögunum. Greiningar-
deildin setur þann fyrirvara við þessa
spá að hún sé háð óvissu um útlána-
þróun, þróun á vinnumarkaði og öðr-
um þáttum. Þetta séu þeir þættir sem
ennþá hafi ekki fengist óyggjandi vís-
bendingar um að séu að dragast sam-
an. Áframhaldandi útlánaaukning
lánastofnana, ásamt álíka launaskriði
og undanfarin tvö ár, séu ógn við
mjúka lendingu í hagkerfinu og
áframhaldandi vaxtalækkanir Seðla-
bankans.
Ósammála forsendum
Þjóðhagsstofnunar
Í Þróun og horfum er einnig fjallað
um forsendur spár Þjóðhagsstofnun-
ar fyrir auknum viðskiptahalla. Þar
segir að stofnunin geri ráð fyrir að
viðskiptahallinn í ár verði nær hinn
sami og í fyrra, eða sem svari til um
10% af landsframleiðslu. Búist sé við
3,5% samdrætti í útflutningi sjávaraf-
urða. Greiningardeild telur líklegt að
samdrátturinn verði minni þar sem
verð sjávarafurða hafi haldist nokkuð
stöðugt og ekki sé útlit fyrir breyt-
ingar. Þá hafi veiking krónunnar já-
kvæð áhrif á verðmæti útflutnings.
Verði viðskiptahallinn minni megi
gera ráð fyrir að krónan styrkist. Þá
kemur fram að kaupi erlendir fjár-
festar af hlut ríkisins í bönkunum eða
Landssímanum við einkavæðingu
hafi það einnig jákvæð áhrif á krón-
una.
Þróun og horfur aprílmánaðar frá Kaupþingi
Styttist í umskipti á
verðbréfamörkuðum
KALDBAKUR hf., sem er annar
stærsti einstaki hluthafinn í Íslensk-
um aðalverktökum hf., ásamt félag-
inu Jamieton International, er í
jafnri eigu Kaupfélags Eyfirðinga
hf., KEA, og útgerðarfélagsins Sam-
herja hf. Eignarhlutur Kaldbaks í
Íslenskum aðalverktökum er 7,0%,
eins og Jamieton International, sem
er óskráð félag í eigu Jóns Ólafsson-
ar, stjórnarformanns Norðurljósa og
Sigurðar G. Guðjónssonar, lög-
manns. Þeir Jón og Sigurður eiga
einnig félagið Nasalar Consultancy,
sem á 2,93% hlut í Íslenskum aðal-
verktökum. Íslenska ríkið er stærsti
hluthafinn í Íslenskum aðalverktök-
um með 39,86% hlut.
Kaldbakur hf. var stofnað fyrir
réttum tveimur árum til að fara með
eignaumsýslu KEA og Samherja.
Samkvæmt upplýsingum frá Árna
Magnússyni, fjármálastjóra KEA,
hefur Kaldbakur fjárfest í ýmsum
félögum sem þykja áhugaverð og eru
Íslenskir aðalverktakar þar á meðal.
Tillögur á aðalfundi um greiddan
arð og kaup á eigin hlutum
Aðalfundur Íslenskra aðalverk-
taka verður í dag. Sigurður G. Guð-
jónsson, lögmaður, segir aðspurður
það úr lausu lofti gripið að hann og
Jón Ólafsson hafi undanfarna daga
verið að safna saman umboðum frá
minni hluthöfum til að styrkja stöðu
sína fyrir fundinn, umfram það sem
tæpur 10% eignarhlutur félaga
þeirra gefur tilefni til.
Samkvæmt tilkynningu til Verð-
bréfaþings Íslands í gær verður lögð
fram tillaga fyrir aðalfund Íslenskra
aðalverktaka hf. um að greiddur
verði 7% arður af nafnverði hlutafjár
vegna rekstrar ársins 2000. Jafn-
framt verður lögð fram tillaga um að
heimila stjórn félagsins á næstu 18
mánuðum að kaupa hluti í félaginu
að nafnverði allt að 140 milljónum
króna. Kaupverð hlutanna má ekki
vera lægra en nafnverð hlutanna
margfaldað með 2,0 og ekki hærra
en nafnverð hluta margfaldað með
5,0.
Annast eignaumsýslu
fyrir KEA og Samherja
Kaldbakur hf., annar stærsti hluthafi ÍAV