Morgunblaðið - 10.04.2001, Síða 19

Morgunblaðið - 10.04.2001, Síða 19
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 A 19 JÓN Júlíusson, stjórnarformaður Sparisjóðs vélstjóra, SPV, segir að sparisjóðurinn sé í mikilli sókn og hann sé nú þriðji stærsti sparisjóður landsins. Rekstur hans verði um- fangsmeiri með hverju árinu sem líð- ur og þjónustan alltaf að aukast við viðskiptavini sem sífellt fari fjölgandi. Þá sé eiginfjárstaða og eiginfjárhlut- fall sparisjóðsins orðin mjög sterk. Þetta kom fram í máli Jóns á aðal- fundi SPV sem nýlega var haldinn að viðstöddum rúmlega 300 stofnfjárað- ilum. Í máli Hallgríms Jónssonar spari- sjóðsstjóra kom fram að árið í fyrra var besta rekstrarárið í sögu SPV en hagnaður nam 1.272 milljónum króna fyrir skatta og 908 milljónum króna eftir skatta. Sagði Hallgrímur að ef sömu uppgjörsreglur giltu hjá öðrum fjármálafyrirtækjum og gilda hjá sparisjóðunum þá væri hagnaður Sparisjóðs vélstjóra á árinu 2000 sá hæsti í krónum talið af öllum fjár- málafyrirtækjum í landinu. Það sé þá í þriðja skipti á tæpum áratug sem sparisjóðurinn sýni bestu rekstraraf- komu allra fjármálafyrirtækja og þá sé ekki verið að reikna hlutfallsreikn- ing heldur sé samanburðurinn í bein- hörðum krónum. Hin árin voru 1992 og 1993. Gat Hallgrímur þess að þau ár hafi reyndar verið mikil kreppuár og þungar afskriftir hjá flestum fjár- málafyrirtækjum, en það breytti því þó ekki að hér væri um einstakan ár- angur að ræða hjá ekki stærra fyr- irtæki en sparisjóðurinn er. Arðsemi eigin fjár SPV var 63,5% á síðasta ári og eigið fé sparisjóðsins í árslok var 2.330 milljónir króna. Vaxtatekjur voru 1.592 milljónir króna og höfðu vaxið um 17,2% frá fyrra ári. Vaxtagjöld voru 1.094,7 milljónir króna og hafa hækkað um 19,3% frá fyrra ári. Heildarútlán sparisjóðsins að markaðsverðbréfum meðtöldum voru í árslok 14.022,3 milljónir króna og höfðu vaxið um 22,8%. Heildarinnlán sparisjóðsins og verðbréfaútgáfa voru í árslok 12.187,5 milljónir króna og höfðu vaxið um 5,5%. Verðbréfaútgáfa sparisjóðsins var 3.268,9 milljónir króna og hafði vaxið um 11,4% frá fyrra ári. Starfs- menn SPV í fyrra voru 76 í 71 stöðu- gildi. Á aðalfundi SPV flutti Helgi V. Jónsson hæstaréttarlögmaður erindi þar sem hann kynnti nýtt frumvarp til laga um banka og sparisjóði sem tek- ur á breyttu rekstrarformi og mögu- legri hlutafjárvæðingu sparisjóðanna. Ný stjórn Sparisjóðs vélstjóra kosin Á fundinum tilkynntu þeir Jón Júlí- usson stjórnarformaður og Jón Hjaltested varaformaður að þeir gæfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu hjá sparisjóðnum. Jón Júlíusson hefur gegnt stjórnarsetu samfleytt í 38 ár, þar af í 37 ár sem stjórnarformaður. Jón Hjaltested hefur setið samfleytt í stjórn spari- sjóðsins frá árinu 1965, eða í 36 ár. Í stjórnarkosningu buðu sjö stofnfjár- aðilar sig fram til setu í stjórninni og urðu úrslitin þau að í stjórn voru kos- in þau Sigríður Smith, Helgi Laxdal og Jón Þorsteinn Jónsson. Þeir sem kosnir eru af borgarstjórn Reykjavík- ur eru Alfreð Þorsteinsson og Guð- mundur Jónsson. Nýkjörin stjórn hefur þegar skipt með sér störfum og var Alfreð Þorsteinsson kosinn for- maður, Sigríður Smith varaformaður og Guðmundur Jónsson ritari. Staða SPV mjög sterk Mikið fjölmenni var á aðalfundi Sparisjóðs vélstjóra sem rúmlega 300 stofnfjáraðilar sóttu. Sparisjóður Vélstjóra orðinn þriðji stærsti sparisjóður landsins og sífellt í sókn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.