Morgunblaðið - 10.04.2001, Page 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 23
„ÆTLUNIN var kynna fyrir les-
endum hvernig Jane Plant læknaði
sjálfa sig af brjóstakrabbameini
með því að hætta neyslu mjólkuraf-
urða. Löngu áður hafði hún breytt
mataræði sínu en ekkert gekk,
krabbameinið kom aftur og aftur.
Ég vildi aðeins vekja umræðu og
áhuga almennings á hennar aðferð.
Í framhaldinu getur fólk ákveðið
sjálft, hvað það vill gera, því þekk-
ing er máttur,“ segir Kristín Vala
Ragnarsdóttir, sem skrifaði grein í
Morgunblaðið í liðinni viku um
tengsl mjólkurafurða og krabba-
meins en viðbrögð heilbrigðisstarfs-
fólks við grein hennar birtust sl.
laugardag.
Kristín Vala segir að í bók Jane
Plant, „Your life in your hands“,
ráðleggi hún aldrei krabbameins-
sjúklingum að hætta læknismeðferð,
aðeins að sleppa mjólk.
Kristín Vala telur að mun betra
hefði verið ef heilbrigðisstarfsfólkið,
sem tjáði sig um grein hennar í
Morgunblaðinu, hefði lesið bókina
áður.
70 krabbameinssjúklingar
fengu bata
„Hugmynd mín með greininni var
ekki að sannfæra krabbameins-
lækna um að Jane Plant hafi farið
réttu leiðina. Ég hef litla trú á lækn-
um, þeir eru þröngsýnir og eru upp-
teknir af því að gefa lyf til þess að
halda einkennum niðri, í stað þess
að hugsa um hvað veldur sjúkdóm-
um. Með því sýna þeir sjúklingum
óvirðingu. Læknar lækna því ekki
að mínu áliti nema örfáir.“
Bók Jane Plant, um hvernig hún
læknaði sjálfa sig af krabbameini,
hefur hlotið mikla athygli víða um
heim og Jane Plant er gestafyrirles-
ari á læknaráðstefnum, að sögn
Kristínar Völu.
„Í bókinni er vitnað til fjölda vís-
indarannsókna um að þegar vaxt-
arhormónið IFG 1, sem er að finna í
mjólk, kemst í tæri við brjósta-
krabbameinsfrumur þá stækka þær.
Það er því ekki satt að fyrir liggi
engar rannsóknir.
Jane Plant taldi víst, að ekkert
nema umhverfisþættir hefðu áhrif á
hana og mjólk sé líklega einn af
nokkrum áhrifaþáttum. Þau tengsl
þyrfti að athuga betur.
Bókin er rannsókn á henni sjálfri
en í framhaldinu hafa um 70 krabba-
meinssjúklingar fengið bata, um 60
konur og tíu karlar en þau tóku ráð-
leggingum Jane Plant um breytt
mataræði.
Tíu konur til viðbótar fengu einn-
ig uppskriftir hjá Jane en fylgdu
þeim ekki eftir og þær eru nú ann-
aðhvort mjög veikar eða látnar.
Ég myndi ráðleggja þeim sem eru
með krabbamein að hætta að
drekka mjólk. Þeir hafa margir
engu að tapa.“
Getur mjólk valdið krabbameini?
Ætlunin að vekja
umræðu og áhuga
PÁSKAEGG
fyrir sykur-
sjúka og fólk
með mjólk-
urofnæmi
hafa fengið
nýtt útlit en
Móna hefur í
fjölda ára
framleitt ekki
bara venjuleg
páskaegg úr
rjómasúkkulaði heldur líka fyrir
sykursjúka og þá sem ekki þola
mjólk. Innan í páskaeggjum fyrir
sykursjúka eru leikföng og málshátt-
urinn góði og innan í páskaeggjum
fyrir þá sem ekki þola mjólk er ýmiss
konar mjólkurlaust sælgæti og einn-
ig málsháttur.
Páskaeggin eru á almennum neyt-
endamarkaði og fást í öllum stærri
verslunum.
Páskaegg
NÝTT
Páskaegg
Hagstæðara að kaupa egg í
stykkjatali
Nýlega ætlaði viðskiptavinur
Sparkaups í Suðurveri að kaupa lítil
páskaegg í álpappír fyrir fjölskyld-
una. Hægt var að kaupa eggin í
stykkjatali og einnig sex saman í
pakka. Rak hann þá augun í að ódýr-
ara var að kaupa páskaegg í stykkja-
tali en sex saman í pakka. Eitt egg
kostaði 99 krónur en sex saman í
pakka kostuðu 654 krónur eða 109
krónur stykkið.
„Ástæða þessa var sú að ég var
ekki kominn með verð á stykkin og
ákvað því sjálfur að selja þau á 99
krónur,“ segir Guðmundur Guð-
mundsson, verslunarstjóri Spar-
kaups í Suðurveri. Aðspurður hvort
sama verð gildi í dag segir hann litlu
páskaeggin í álpappír ekki vera til
sölu lengur hjá versluninni.
Spurt og svarað um neytendamál
annan hvern miðvikudag