Morgunblaðið - 10.04.2001, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.04.2001, Qupperneq 24
ÚR VERINU 24 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnu-, rað- og smáauglýsingar Auglýsingatexta og fullunnum auglýsingum, sem eiga að birtast á skírdag, fimmtudaginn 12. apríl, þarf að skila fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 10. apríl. LANDHELGISGÆSLAN hefur fest kaup á þremur nýjum harð- botnabátum sem verða um borð í varðskipum gæslunnar. Þeir munu leysa af hólmi Avon-harðbotnabáta sem verið hafa í þjónustu Land- helgisgæslunnar um 8 ára skeið. Nýju bátarnir eru norskir, með um 300 hestafla vél og ná allt að 40 hnúta hraða. Þeir eru búnir svo- kölluðu jet-drifi en ekki hefð- bundnum skrúfubúnaði. Bátarnir hafa reyndar enn ekki verið teknir í notkun, verið er að hanna gálga fyrir þá um borð í varðskipunum og þjálfa áhafnir þeirra í notkun bátanna. Alls verða haldin fjögur námskeið í stjórnun bátanna í sam- starfi Landhelgisgæslunnar og Björgunarskóla Slysavarnafélags- ins Landsbjargar. Myndin var tek- in þegar skipverjar á varðskipinu Óðni æfðu sig á bátunum á Sund- unum fyrir skemmstu. Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson Nýir bátar í varðskipin ÁHRIFA sjómannaverkfallsins er þegar farið að gæta hjá fiskverkunar- fyrirtækjunum og að öllu óbreyttu má gera ráð fyrir að fljótlega fari starfs- fólk sumra þeirra af launaskrá yfir á atvinnuleysisbætur. Þetta á samt ekki við um starfsfólk frá löndum ut- an Evrópska efnahagssvæðisins, því það á ekki rétt á atvinnuleysisbótum á Íslandi nema það hafi unnið hér á landi í fimm ár og hafi svonefnt grænt kort. Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, segir að þó alltaf berist eitthvað hráefni að landi með smábátunum megi gera ráð fyrir að sum fiskverkunarfyrirtæki tilkynni fljótlega um verkefnaleysi eða verkefnaskort með þeim afleið- ingum að starfsfólk fari af launaskrá yfir á atvinnuleysisbætur. 600 til 700 utan landa Evrópska efnahagssvæðisins Hann segir að ekki undir 600 til 700 manns á meðal starfsfólks í fisk- vinnslu komi frá löndum utan Evr- ópska efnahagssvæðisins, en í því sambandi gildi þær reglur að þetta fólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbót- um á Íslandi nema að uppfylltum fyrrnefndum reglum. Hins vegar sé ekki útilokað að sama gildi um þetta fólk og aðra starfsmenn þar sem starfsfólki sé almennt haldið á launa- skrá í þeirri von að verkfallið verði ekki langt og samningar náist nú í páskavikunni. Þess vegna megi ætla að mörg fyrirtæki hinkri við og haldi starfsfólki sínu áfram á launaskrá, en önnur standi frammi fyrir verkefna- leysi og verði að setja fólk út af launa- skrá. Í því sambandi sé staða um- rædds fólks frá löndum utan EES lökust. Gundvallaratriði að ná samningum Með reglum frá 1979 er tekið á því að verði fyrirtæki skyndilega hráefn- islaust geti það fyrirvaralaust tekið fólk út af launaskrá. Sama á við vegna til dæmis bruna eða að hráefnisskort- ur verði vegna skipstaps. Arnar segir að þó lögin séu alls ekki bundin við fiskvinnslu reyni oftar á þau í henni en ekki vegna þess að hún sé svo háð aðstreymi hráefnis. Dragist verkfallið á langinn segist Arnar óttast töluvert atvinnuleysi, jafnvel strax eftir páska, verði deilan ekki leyst þá. Verkfallið sé mikið áfall fyrir fyrirtækin, starfsfólkið og at- vinnugreinina en munurinn nú og um daginn sé sá að náðst hafi að ljúka loðnuvertíðinni og mjög góðum kafla vetrarvertíðarinnar, sem hafi bjargað töluvert miklu. Eins hafi verið fyr- irsjáanlegt að það yrði þorskveiði- bann núna um einhvern tíma.Verk- fallið bíti því ekki með sama hætti nú í aðdraganda páska og það hefði gert, þegar því var frestað. Vitað sé að báð- ir aðilar noti tímann mjög vel til að ná kjarasamningum og það sé grundvall- aratriði að ná samningum. Atvinnuleysisbætur ekki til allra Mörg hundruð manns fá engar bætur Gísli SH 721 sem er 6 tonna trilla kom með fimm og hálft tonn af þorski að landi í Grundarfirði í síð- ustu viku. Aflann fékk hann inni í Grundarfirðinum. Ágætis veiði hef- ur verið í flest veiðarfæri þar. Fyrir helgina var sett línubann í Grund- arfirði. Smábátar hafa róið und- anfarna daga meðan hinir stóru eru í landi vegna verkfalls. Hins vegar er páskafrí framundan svo allt er á rólegri nótunum. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Gott hjá smábátunum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.