Morgunblaðið - 10.04.2001, Side 26
ERLENT
26 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á ÓVART kom í gær að
Alan Garcia, hinn vinstri-
sinnaði fyrrverandi for-
seti Perú, skyldi fá næst-
flest atkvæði í fyrri
umferð forsetakosninga í
landinu á sunnudag. Þeg-
ar um 60% atkvæða
höfðu verið talin í gær
var Garcia með talsvert
meira en fjórðung at-
kvæða, en sá sem al-
mennt hafði verið búizt
við að sigraði, Alejandro
Toledo – sem er frjálslyndur
miðjumaður og indíáni að uppruna
– var með rúm 36%. Þeir Toledo og
Garcia munu því eigast við í síðari
umferð kosninganna, sem gert er
ráð fyrir að fari fram síðla maí-
mánaðar, en fyrrverandi þingkon-
an Lourdes Flores, sem hafði
næstmest fylgi í skoðanakönnunum
fyrir kosningarnar, er úr leik. Hún
hafði einsett sér að verða fyrsta
konan á þjóðhöfðingjastóli
í Rómönsku Ameríku.
Flores hlaut samkvæmt
bráðabirgðatölum 23,66%
atkvæða.
Þessi óvænta niðurstaða
er mikill pólitískur sigur
fyrir Garcia, sem gegndi
forsetaembættinu á árun-
um 1985–1990. Svo virðist
sem ímynd hans sem
reynds leiðtoga og
mælskuhæfileikar, sem
nýttust honum vel í kosn-
ingabaráttunni, hafi skilað honum
svona langt. Í janúar mældist fylgi
hans ennþá minna en 10%. Stjórn-
málaskýrendur segja hann jafnvel
hafa meiri byr með sér nú en To-
ledo. Búast megi við að fylgi við
Garcia haldi áfram að aukast og
hann geti orðið Toledo verulega
skeinuhættur í síðari umferð kosn-
inganna. Þykir þessi velgengni
Garcia nú með nokkrum ólíkindum
með tilliti til þess að forsetatíðar
hans er minnzt fyrir spillingu,
óábyrga eyðslusemi úr ríkissjóði
og glundroða í efnahagsmálum sem
leiddi til meira en 7.600% verð-
bólgu og ekki sízt mikillar virkni
vopnaðra uppreisnarhópa.
Alþjóðlegir fjármálamarkaðir
tóku fréttunum af velgengni Garcia
illa. Bjuggust markaðsrýnar við
því að gengi perúsku myntarinnar
félli, enn drægi úr erlendum fjár-
festingum í landinu og verðmæti
perúskra hlutabréfa rýrnaði.
Sigurvissa Toledo óbilandi
Toledo lét engan bilbug á sér
finna í gær og tjáði stuðnings-
mönnum í Lima að lokaáfanginn til
sigurs yrði tekinn með trompi.
Toledo var í framboði í hinum
umdeildu kosningum í maí í fyrra,
þegar meint kosningasvindl hjálp-
aði Alberto Fujimori að hljóta – að
nafninu til að minnsta kosti – end-
urkjör til setu á forsetastólnum
þriðja fimm ára kjörtímabilið í röð
(þótt til þess að það væri hægt
hefði einnig þurft að breyta stjórn-
arskránni). Toledo og stuðnings-
menn hans viðurkenndu aldrei úr-
slitin í þeim kosningum og áttu
með mótmælaaðgerðum sínum í
framhaldi af kosningunum allnokk-
urn þátt í falli Fujimori í vetur.
Honum var steypt í nóvember, mitt
í sívaxandi spillingarhneykslismáli
sem leyniþjónustustjóri Fujimori-
stjórnarinnar var höfuðpaurinn í.
Perúska þingið svipti Fujimori
embætti og sakaði hann um spill-
ingu og vanhæfi, en hann flúði land
og fékk hæli í Japan.
Þingkosningar fóru einnig fram
samhliða forsetakosningunum á
sunnudag en enginn einn flokkur
virtist ætla að ná meirihluta.
Perúbúar gengu að kjörborðinu á sunnudag í fyrri umferð forsetakosninga og þingkosningum
Lima. Reuters, AP.
Lourdes
Flores
AP
Alejandro Toledo, t.h., talar við Alan Garcia í kosningahöfuðstöðvum
hins síðarnefnda í Lima í gærmorgun.
Garcia óvænt
í öðru sæti
ÍSLENZKIR ríkisborgarar munu
brátt njóta hliðstæðra réttinda í Sviss
og þeir hafa notið í aðildarríkjum
Evrópska efnahagssvæðisins (EES)
fram að þessu, svo sem hvað varðar
frjálsa flutninga vinnuafls, eftir að
gengið hefur verið frá endurskoðun
stofnsáttmála Fríverzlunarsamtaka
Evrópu, EFTA, en aðalsamninga-
menn EFTA-ríkjanna – Íslands, Nor-
egs, Liechtenstein og Sviss – hafa
áritað samning þar að lútandi. Stefnt
er að því að endurskoðaður stofnsátt-
máli verði formlega undirritaður á
ráðherrafundi EFTA í Vaduz í Liech-
tenstein í lok júní nk.
Samningaviðræður um endurskoð-
un sáttmálans hafa staðið yfir frá því
ráðherrar EFTA-ríkjanna ákváðu á
fundi sínum vorið 1999 í Lillehammer
í Noregi að ráðast skyldi í það verk,
með tilliti til þróunar síðustu áratuga
og tvíhliða saminga Sviss við Evrópu-
sambandið (ESB), sem undirritaðir
voru í júní 1999 og eru að koma til
framkvæmda á þessu ári.
Stofnsáttmáli EFTA, sem tók gildi
í maí 1960, miðaðist eingöngu við við-
skipti með vörur. Með endurskoðun-
inni víkka EFTA-ríkin samnings-
bundinn grundvöll fyrir samstarfi
sínu út. Bætt er við ákvæðum um
þjónustuviðskipti, fjárfestingar,
fólksflutninga, gagnkvæma viður-
kenningu starfsréttinda og opinber
innkaup og reglum um úrlausn deilu-
mála sem koma kunna upp milli
EFTA-ríkjanna um framkvæmd
samningsins og fleiru.
Var orðinn úreltur
Að sögn Stefáns Hauks Jóhannes-
sonar sendiherra, skrifstofustjóra
viðskiptaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins, var gamli stofnsáttmálinn
löngu orðinn úreltur.
„Þetta er yfir 40 ára gamall samn-
ingur og það var orðið löngu tíma-
bært að uppfæra hann og laga að að-
stæðum nútímans. Tækifærið var
notað eftir að Svisslendingar luku
samningum sínum við ESB; þá buðu
þeir okkur upp í dans um að taka inn í
EFTA-samninginn þessi réttindi og
önnur atriði sem þeir voru búnir að
semja um við ESB,“ segir Stefán.
Auk þessara atriða skiptir endur-
skoðunin verulegu máli í tengslum við
samningaviðræður EFTA við þriðju
ríki, að sögn Stefáns. Nú hafa verið
gerðir vel á annan tug slíkra samn-
inga, síðast við Mexíkó. Það veiki
samningsstöðu EFTA-ríkjanna í slík-
um viðræðum að vera að krefja þessi
ríki um að taka atriði inn í samn-
ingana sem séu ekki einu sinni í þeim
samningum sem gilda innbyrðis milli
EFTA-ríkjanna. Þessu sé kippt í lið-
inn með endurskoðun sáttmálans.
Þá segir Stefán það mikilvægt, að
við Íslendingar fáum þau réttindi sem
Svisslendingar sömdu um við ESB,
að ákveðnum aðlögunartíma liðnum.
Til dæmis taki ákvæðin um frjálsa
flutninga vinnuafls gildi eftir tvö ár.
Loks má nefna, að í hinum endur-
skoðaða EFTA-sáttmála verða svo-
kölluð „beztu-kjara“-ákvæði, sem að
sögn Stefáns er mikilvægt fyrir Ís-
lendinga þar sem Svisslendingar
skuldbindi sig þar með til að veita
okkur sömu réttindi og þeir muni
semja um við ESB-ríki eða önnur
þriðju ríki.
Stofnsáttmáli EFTA endurskoðaður eftir 40 ár í gildi
Samstarfið víkkað út
NÆR 171.000 bandarískir ungling-
ar undir 18 ára aldri létu gera á sér
fegrunaraðgerðir í fyrra, að sögn
Samtaka um lýtalækningar í
Bandaríkjunum, ASAPS, í gær.
Oftast er um að ræða aðgerð á nefi.
Sumir lýtalæknar álíta að ung-
lingar innan við tvítugt séu of ung-
ir til að fara í slíka aðgerð. „Ung-
lingar eru ófærir um að taka
skynsamlega ákvörðun í jafn til-
finningaþrungnum málum og þess-
um. Ég vísa þeim á dyr,“ sagði Ger-
hard Imber, þekktur lýtalæknir í
New York. Hann sagði að foreldrar
létu oft undan óskum unglinganna
um aðgerð. „Hvers vegna? Vegna
þess að fólk er vitlaust!“
Unglingar verða stöðugt fyrir
áhrifum af myndum af leikurum og
fyrirsætum með fullkomna andlits-
drætti og gallalausan vöxt. Þeir
leita því til lýtalækna í von um að fá
útlitið bætt. Imber segir að ekki
virðist neinn skortur á læknum sem
eru fúsir að fara að óskum ungling-
anna. Læknarnir láti peningasjón-
armið stjórna gerðum sínum.
„Mér finnst þetta á mörkum þess
sem getur talist siðlegt,“ segir John
Grossman, sem er þekktur lýta-
læknir í Beverly Hills í Kaliforníu
og hefur gert aðgerðir á frægum
kvikmyndaleikurum. „Menn eru að
notfæra sér eðlilegar tilhneigingar
unglinga og einnig foreldra sem
því miður eiga meira af peningum
en skynsemi.“ Væri lýtalæknirinn
„nógu heimskur eða siðlaus“ til að
framkvæma aðgerðina væri verið
að gefa í skyn að öll vandamál sé
hægt að leysa með peningum.
Foreldrar segi nei
New York. AFP.
Fegrunaraðgerðir á unglingum
FLUGUMFERÐ var aftur orðin eðli-
leg á Schiphol-flugvelli í Amsterdam
í gær en í fyrrakvöld kom upp eldur
á skyndibitastað í flugstöðinni. Barst
hann síðan eftir loftræstistokkum
upp á sjöundu og áttundu hæð húss-
ins. Vel gekk að ráða niðurlögum
hans en hins vegar varð að rýma allt
húsið. Hér má sjá nokkra þeirra,
sem flýja urðu undan reyknum.
Eldur á Schiphol
Reuters
EFTIR að hnefaleikakappi lét
lífið vegna höfuðmeiðsla sem
hann hlaut í keppni í Sydney um
helgina lýsti heilbrigðismálaráð-
herra Ástralíu sig í gær fylgjandi
því að hnefaleikar yrðu bannaðir.
Ahmad Popal, sem var 29 ára
gamall og upprunninn í Afgan-
istan, hlaut banvænt höfuðhögg í
sjöttu lotu bardaga við Tony
Pappa sl. föstudagskvöld, en þeir
voru að keppa um fylkismeist-
aratitil Victoriu-fylkis í dverg-
vigtarflokki (bantamvigt). Popal
féll aftur fyrir sig með höfuðið í
gólfið, missti meðvitund og náði
henni aldrei aftur. Hann lézt á
sjúkrahúsi í gær.
Læknasamband Ástralíu
(AMA) ítrekaði áskorun sína um
að iðkun hnefaleika yrði bönnuð,
á þeim forsendum að hætturnar
sem hún byggi iðkendum væru
meiri en hægt væri að sætta sig
við. Ástralski heilbrigðisráðherr-
ann Michael Wooldridge, sem
sjálfur er læknir, sagði að banna
ætti hnefaleika vegna hættunnar
á að iðkendur hlytu heilaskaða
og önnur hættuleg meiðsl, en
hann lagði þó áherzlu á að
ákvörðun um slíkt bann væri á
valdi fylkisstjórna.
En Jack Rennie, víðkunnur
hnefaleikaþjálfari, vísaði áskor-
un áströlsku læknasamtakanna á
bug. „Ég tel að þetta sé aðeins
óheppilegt slys, sem því miður
henda af og til í þessari íþrótta-
grein, reyndar sjaldnar en í sum-
um öðrum greinum,“ sagði hann.
Joe Bugner, fyrrverandi Evr-
ópumeistari í þungavigt, sagði að
bann við hnefaleikum myndi ekki
leiða til annars en ólöglegra
„neðanjarðar“-bardaga .
Vilja banna hnefa-
leika í Ástralíu
Sydney. AFP.