Morgunblaðið - 10.04.2001, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 10.04.2001, Qupperneq 28
LISTIR 28 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ     1. Eitt þekktasta þvottahús borgarinnar sem býður upp á gífurlega stækkunarmöguleika. Góður og mikill vélakostur. Mikil umsvif sem auðvelt er að stórauka. Frábært fyrirtæki fyrir duglega einstaklinga sem vilja gera það gott. Mikið af föstum viðskiptavinum. 2. Höfum frábærar myndbandaleigur með góðri veltu bæði í Reykja- vík og Hafnarfirði. Einnig söluturna í öllum stærðum og sumir með mikla veltu. Aldrei meira úrval. 3. Frábær sólbaðstofa í nýju stóru og ört vaxandi hverfi með ný og góð tæki. Góður tími framundan. Laus strax. Hægt að yfirtaka áhvílandi skuldir. 4. Lítill matsölustaður með hádegismat. Staðsettur miðsvæðis í góðu hverfi. Lokað kl. 5 á daginn. Einnig höfum við framleiðslu- fyrirtæki sem framleiðir léttan heilsumat fyrir fyrirtæki, stofnanir og verslanir. Svo erum við með sérhæft matvinnslufyrirtæki fyrir kjötiðnaðarmann sem er starfandi í 4 mánuði, haust- og vetrarmánuði. 5. Frábær lítil og gjöful heildverslun með gjafavörur. Einstaklega gott dæmi fyrir duglegt fólk sem vill græða peninga. 6. Höfum úrval af góðum gjafavörubúðum og einnig góðum og þekktum blómaverslunum. Betri dæmi en þig grunar. 7. Lítið innrömmunarfyrirtæki á mjög góðum stað. Góð afgreiðslu- og sýningaraðstaða ásamt góðri vinnuaðstöðu. Öll tæki sem þarf fylgja með. 8. Erum með á sölu eina fallegustu snyrtistofu landsins á góðum stað í miðborginni. Er með einkarétt frá þekktu alþjóðlegu snyrti- fyrirtæki. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. Arðvænleg fyrirtæki Höfum aldrei haft eins mikið af góðum fyrirtækjum eins og núna. Fyrirtæki sem eru í fullum rekstri og hafa skilað mjög góðum hagnaði. Þetta eru bæði lítil og stór fyrirtæki, í öllum verðflokkum og öllum greinum. Hafið samband við skrifstofuna sem fyrst því við veitum takmarkaðar upplýsingar í gegnum síma. Nú er rétti tíminn til að kaupa góð fyrirtæki. Landsins mesta úrval af fyrirtækjum ÍTALSKI tenórinn Luciano Pav- arotti tilkynnti í gær að hann hafi hug á að minnast þess nú í lok aprílmánaðar að fjörutíu ár eru liðin frá því hann fyrst steig á óp- erusvið með því að halda tónleika á Netinu. Tónleikarnir verða sendir út frá óperuhúsinu í Modena á Ítalíu, en Pavarotti ætlar við þetta tækifæri einnig að opna sína eigin netsíðu, www.lucianopavarotti.com, og verður þar að finna upplýsingar um söngferil hans, plötuútgáfu og tónleika. „Ég mun syngja í tvö ár til við- bótar,“ sagði Pavarotti á Fut- urshow-tæknisýningunni í Bologna í gær, en að þeim loknum kvað söngvarinn það líklegt að hann sneri sér að mestu að kennslu. Pavarotti, sem verður 66 ára í október á þessu ári hóf söngferil sinn með hlutverki í La Bohème eftir Puccini í Reggio Emilia á Ítalíu þann 29. apríl 1961. Pavarotti á Netinu Róm. AFP. Luciano Pavarotti fagnar 40 ára söngafmæli um þessar mundir. Reuters PÁLL Bragi Kristjónsson útgef- andi hefur tekið við starfi fram- kvæmdastjóra útgáfufyrirtækisins Genealogia Islandorum. Hann hef- ur um árabil verið útgefandi hjá Nýja bókafélaginu og Þjóðsögu, en stefnt er að því að þau fyrirtæki verði rekin undir hatti Genealogia Islandorum. Hyggst Páll Bragi verja næstu vikum við að fara yfir stöðu fyrirtækisins og móta í kjöl- farið endurskipulagningu á rekstr- inum með hliðsjón af upphaflegum markmiðum þess, en í framhaldinu hyggst fyrirtækið auka hlutafé sitt. „Ég kem inn í fyrirtækið með opnum huga, óbundinn af fortíð- inni. Í dag er ekki hægt að segja nákvæmlega til um með hvaða hætti reksturinn verður. Leitast verður við að fylgja upphaflegum markmiðum fyrirtækisins um þjón- ustu við líftækniiðnaðinn og al- menna útgáfu. Reksturinn verður hins vegar að vera arðbær og mun ég einkum líta á málin með hliðsjón af því að svo verði,“ segir Páll Bragi. Undanfarið hafa orð- ið talsverðar breyting- ar á rekstri Genealogia Islandorum, sem stofn- að var á síðasta ári með það að markmiði að vinna að uppbygg- ingu öflugs ættfræði- grunns auk almennrar bókaútgáfu. Nýlega hætti störfum Jóhann Páll Valdimarsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fyrir- tækisins og útgáfu- stjóri JPV-forlags, sem gaf út fagurbókmennt- ir og bækur almenns efnis á vegum fyrir- tækisins. Þá var gerður starfsloka- samningur við Þorstein Jónsson, ættfræðing og útgáfustjóra Sögu- steins, sem annaðist ættfræðiút- gáfu innan fyrirtækisins. Að sögn Páls Braga er stefnt að því að Þjóðsaga taki að sér útgáfu ættfræðirita í stað Sögusteins, en að Nýja bókfélagið sinni almennri bókaútgáfu og útgáfu fagurbókmennta í stað JPV-forlags, en þó í mun minna mæli. „Þjóðsaga er gam- algróið fyrirtæki sem sinnt hefur útgáfu ættfræðirita um ára- bil, og er því eðlilegt að það haldi uppi ættfræðiútgáfu fyrir- tækisins. Nýja bók- félagið mun hins veg- ar fyrst og fremst einbeita sér að al- mennri bókaútgáfu, einkum á sviði þjóð- mála og kennsluefnis, eins og verið hefur. Markmiðið er ekki að keppa við stóru útgáfufélögin í almennri bókaútgáfu.“ Aðspurður segir Páll Bragi að ekki verði farið út í hlutafjáraukn- ingu fyrr en stefna fyrirtækisins hefur verið fullmótuð, og hyggur hann að sú vinna gæti tekið um tvo til þrjá mánuði. „Kem inn í fyrirtækið með opnum huga“ Páll Bragi Kristjónsson Páll Bragi Kristjónsson ráðinn framkvæmdastjóri útgáfufyrirtækisins Genealogia Islandorum MÁLVERK eftir Jón Stefánsson seldist á sem samsvarar um 1.370.000 krónum á málverkauppboði danska uppboðsfyrir- tækisins Bruun Rasm- ussen á dögunum. Verkið hefur ekki verið áður á listmunamark- aði og verður söluverð þess að teljast nokkuð hátt á íslenskan mæli- kvarða. Þá seldist á uppboðinu málverk eft- ir Jóhannes S. Kjarval á verði sem samsvarar um 1.100.000 krónum og þrjú verk eftir Erró, sem seldust á verði sem samsvarar um 500.000 krónum hvert. Bruun Rasmussen er í Kaup- mannahöfn og hefur starfað frá árinu 1948. Fyrirtækið er reglulega með verk eftir íslenska listmálara á uppboðsskrá sinni. Málverkið eftir Jón Stefánsson ber titilinn „Íslenskt landslag“ (52 x 70) og ber undirskrift listamannsins. Verkið var í eigu Knuds Tra- nekjær, en hann starf- aði sem tannlæknir á Íslandi um miðjan fjórða áratug síðustu aldar. Málverkið eftir Jóhannes Kjarval er portrettsamsetning í anda táknsæisstefn- unnar (70 x 100) og er undirritað af J.S. Kjar- val árið 1933. Það var einnig í eigu Tranekjær. Myndirnar þrjár eftir Erró sem seldust á upp- boðinu bera titilinn „The brunch“ (88 x 96), „Space Harem“ (62 x 96) og „The caresses spacial – the caresses of sphinx“ (96 x 69) og eru unnin á áttunda áratugnum. Verk Jóns Stefáns- sonar selst á tæpa hálfa aðra milljón Jón Stefánsson  SVARTFUGL eftir Gunnar Gunnarsson er komin út í nýrri út- gáfu en bókin hefur lengi verið ófá- anleg. Sagan kom upprunalega út á dönsku árið 1929 og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Gunnar var gríð- arlega vinsæll víðs vegar í Evr- ópu á þessum ár- um og í Dan- mörku og Þýskalandi voru bækur hans hvað eftir annað efst á met- sölulistum. Svartfugl er byggð á sögulegum atburðum. Bakgrunnur sögunnar er eitthvert frægasta morðmál Íslandssögunnar, svoköll- uð Sjöundármorð sem framin voru í upphafi 19. aldar. Atburðarásin fylgir að mestu sögu þeirra Bjarna Bjarnasonar og Steinunnar Sveins- dóttur. Þau voru hvort um sig gift en sögusagnir komust á kreik um samdrátt þeirra og jafnframt að þau hefðu orðið mökum sínum að bana. Svartfugl hefur stundum verið kölluð fyrsta alvöru íslenska glæpa- sagan. Og hún er vissulega saga um glæp en er þó fyrst og fremst mögn- uð saga sem kveikir áleitnar spurn- ingar um mannlega samábyrgð, eðli valdsins og skyldur mannsins gagn- vart guði sínum, segir í kynningu. Bókin var gefin út í íslenskri þýð- ingu höfundar árið 1973 og er það sú þýðing sem nú kemur út á ný. Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræð- ingur ritar formála að bókinni þar sem fjallað er um skáldið og verkið. Útgefandi er Íslenski bókaklúbb- urinn og er í ritröðinni Íslands þús- und ár. Bókin er 262 bls., prentuð í Odda hf. Ragnar Helgi Ólafsson hannaði ytra útlit bókarinnar. Bókin er eingöngu seld í áskrift í ritröðinni Íslands þúsund ár. Verð: 2.490 kr. Nýir áskrifendur fá bókina á hálf- virði. Nýjar bækur Gunnar Gunnarsson LJÓSMYNDASÝNING frá Kiruna í anddyri Norræna hússins verður framlengd til 13. maí. Sýningin var sett upp í tilefni af Norðurbotnsdög- unum. Í fyrra var haldið upp á ald- arafmæli Kiruna. Á þessari sýningu eru ljósmyndir af fólki, húsum, iðn- aði og umhverfi. Sýning framlengd ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.