Morgunblaðið - 10.04.2001, Síða 32

Morgunblaðið - 10.04.2001, Síða 32
LISTIR 32 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fermingartilboð Snittur, brauðtertur, alhliða veisluþjónusta Pantið tímanlega Stúdíó Brauð, Arnarbakka 2 - sími 577 5750 NÝVERIÐ komu ríflega 200 kór- félagar og organistar úr 14 kirkjum í Reykjavíkurprófastsdæmum sam- an í Grafarvogskirkju. Dagskráin hófst á ávarpi formanns Kirkju- kórasamband Reykjavíkurprófasts- dæma, KSRP, Karls Skírnissonar, sem rakti í stuttu máli sögu og við- fangsefni Kirkjukórasambands Reykjavíkurprófastsdæma. Að því loknu stjórnaði Oddný J. Þorsteins- dóttir organisti samsöng kórfólks- ins. Þá tók við dagskrá þar sem átta kóranna komu fram einn af öðrum og fluttu tvö eða þrjú verk. KSRP er félag söngfólks í þjóð- kirkjusöfnuðum í Reykjavík, Kópa- vogi og á Seltjarnarnesi sem stofnað var árið 1948 af fólki sem þá starf- aði í kirkjukórum Dómkirkjunnar, Fríkirkjunnar, Hallgrímskirkju, Laugarneskirkju og Neskirkju. Í dag eru um 500 manns sem syngja í 20 kórum í prófastsdæmunum og eru flestir þeirra virkir í KSRP. Kirkjukór- ar syngja saman Kirkjukór Fella- og Hólakirkju tekur lagið í Grafarvogskirkju. ALÞEKKT er sagan um tilurð Sálumessu Mozarts, síðasta verks eins mesta tónsnillings sem uppi hefur verið. Aðalsmaður nokkur í Vín, Franz Walsegg-Stuppach, vildi láta syngja sálu látinnar konu sinnar messu undir eigin nafni sem hann pantaði á laun hjá Moz- art fyrir milligöngumann. Fjár- hagskröggur Mozart-fjölskyld- unnar urðu til þess að gengið var að skilyrðum kaupandans um al- gjöran trúnað. Hins vegar náði Mozart ekki að ljúka verkinu fyrir andlát sitt 5.12. 1791, og var nem- anda hans Franz X. Süssmayr því falið að orkestra meginpart þess eftir frumdrögum kennara síns og semja þá þætti sem upp á vantaði, þ.e. Benedictus, Agnus Dei og Communio, auk meirihluta Lacr- imosa. Süssmayr endurnotaði síð- an tónlist Mozarts úr Introitus og Kyrie við texta lokaþáttar. Það er ekki aðeins dapurlegur hátíðarbragur sálumessuformsins heldur einnig hinar kaldranalegu kringumstæður við tilurð verksins og óvefengjanleg tign þess – þrátt fyrir brotakenndan heildarsvip – sem gerir það ekki sízt viðeigandi til flutnings þegar líður að pásk- um. Það litla sem Mozart náði sjálfur að fullgera gefur vísbend- ingar um að hann ætlaði sér að kóróna kirkjutónsmíðar sínar með ótvíræðu meistaraverki, og hefði það eftir öllu að dæma gengið eft- ir, hefði hann fengið að lifa fáeinar vikur í viðbót. En þó að orkestrun nemandans þyki vera töluvert úr stíl, á köflum þykkildisleg og efn- istök langt frá andagift Mozarts, hefur verkið samt náð að lifa sem ein af fimm mest fluttu sálumess- um sígildra tónbókmennta. Er það í sjálfu sér ekki lítið afrek hjá ekki betra tónskáldi en Süssmayr, sem skildi fátt annað eftir er haldið hefur nafni hans á lofti. Blásaraskipan í hljómsveitar- áhöfn Sálumessunnar ber drjúgan hlut af dimmúðugum hátíðarblæ verksins, enda sérstæð. Hvorki flautur, óbó né horn koma við sögu, heldur aðeins 2 trompet, 3 básúnur (hefðbundin hljóðfæri í kirkjutónlist og táknígildi dóms- dags) 2 fagott og 2 bassethorn, dimmradda tenórklarínett sem Mozart hafði mikið dálæti á. Ef trúa má tónleikaskrárritaranum Bjarna Gunnarssyni voru hér not- uð bassethorn í fyrsta sinn við uppfærslu verksins á Íslandi. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem undirritaður heyrði jafn- marga hljómlistarmenn í hálf- mánalaga Hásalasalnum, og voru fyrstu áhrifin nærri yfirþyrmandi. Hinn venjulega mikli en þó pass- legi endurómur, sem hentar svo vel kammertónlist og minni kór- um, framkallaði nú þvílíka glymj- andi – að vísu við fulluppdregin veggtjöld – að heppilegra hefði kannski verið að færa verkið upp í einhverri kirkjunni. Endurómur- inn gruggaði talsvert samhljóm kórs og hljómsveitar og kann að auki að hafa stuðlað að því hvað styrkræn blæbrigði urðu einsleit, þegar litið er á flutninginn í heild. Einsöngvararnir komu einna bezt út við þessar aðstæður og skiluðu allir sínu hlutverki með sóma. Ekkert var út á dömurnar að setja. Hinn ungi tenór virtist enn í mótun, en raddefnið lofaði góðu. Bassinn, Jóhann Smári Sævarsson, var hljómmikill en fágaður. Tónleikaskráin var óvenjuspör á upplýsingar um flytjendur og kom því ekki fram raddsamsetning sameinuðu kirkjukóranna, en hlustandi fór ekki varhluta af verulegri yfirvigt sópransins. Næst honum heyrðist mest í tenórröddinni; því miður oftast vegna ofþenslu, síðast og átakanlegast á lokahljómi verks- ins. Annars var samhljómur kórs- ins furðugóður og yfirleitt hreinn, þó að stundum yrði vart við þreytutón á efstu nótum sóprans, sem virtist t.a.m. ekki vel við óþægilegu hæðarstökkin í Domine Jesu. Að því er heyrt varð gegnum fyrrtaldan akústískan graut tók- ust flúrsöngskaflar kórsins, eins og í tvöföldu Händel-innblásnu fúgunni Kyrie eleison/Christe eleison (og aftur í Cum sanctis tuis), nokkuð vel, og sömuleiðis framlag hljómsveitar, þrátt fyrir trúlega nauman samæfingartíma, enda hefði sennilega verið til lítils að fást um smáatriði í téðri ómvist. Natalía Chow, sá til- greindra stjórnenda sem stjórnaði að þessu sinni, hélt saman um allt af festu og fetaði meðalveginn með klassísku tempóvali án mik- illa útúrdúra í hraðabreytingum eða dýnamískri mótun. Sálumessa frú Walsegg-Stuppach TÓNLIST H á s a l i r W. A. Mozart/Süssmayr: Requiem K626. Elín Ósk Óskarsdóttir sópr- an, Anna Sigríður Helgadóttir alt, Jónas Guðmundsson tenór, Jóhann Smári Sævarsson bassi; Kór Hafnarfjarðarkirkju; Kór Kópa- vogskirkju. Kammersveit meðlima Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Stjórnendur: Natalie Chow, Julian Hewlett. Laugardaginn 7. apríl kl. 15. KIRKJUTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson KÓR Hjallakirkju telst vart til kunnustu kóra landsins. Það segir þó ekkert um það kórstarf sem þar er unnið og þann metnað sem í það er lagt. Á fimmtudagskvöldið flutti kór kirkjunnar ásamt einsöngvur- um Sálumessu eftir Gabriel Fauré. Einsöngvarar voru Tryggvi Valdi- marsson sópran og Loftur Erlings- son bariton, en verkið var hér flutt með orgelleik, sem Lenka Mátéová sá um. Á undan flutningi verksins flutti kórinn tvo föstusálma; Krossferli að fylgja þínu í radd- setningu Róberts Abrahams Ott- óssonar og Ó, höfuð dreyra drifið eftir Hans Leo Haßler í raddsetn- ingu Jóhanns Sebastians Bachs, en á milli erinda var fluttur sálm- forleikur Bachs við sama sálm. Söngur Kórs Hjallakirkju í þess- um litlu sálmalögum var sérstak- lega fallegur og vandaður. Sópr- aninn syngur einn fyrstu hendingu í Krossferli að fylgja þínum, og var strax ljóst að hér voru fínar raddir að syngja og vant kórfólk. Jafn- vægi milli radda í kórnum var sér- staklega gott þótt karlarnir, – sér- staklega bassinn væri fáliðaður miðað við sópran. En það sem best var, var að söngur kórsins var músíkalskur og auðheyrt að vand- að hafði verið til alls undirbúnings. Innkomur voru öruggar og nið- urlag hendinga hnífjafnt hjá öllum röddum. Hljómur kórsins var heil- steyptur og jafn. Sálumessa Faurés er nokkuð viðamikið verk fyrir áhugamanna- kór og hreint ekkert áhlaupaverk. Kór Hjallakirkju söng verkið með stakri prýði og það skilaði sér hve flutningurinn var auðheyrilega vel undirbúinn og verkið vel æft. Þó var söngur kórsins ekki gallalaus. Veikasti hlekkurinn var altröddin, sem hélt ekki uppi langri strófu með tenor í upphafi annars þátt- arins Offertorium. Þegar orgelið kom inn hafði söngurinn fallið um nærri heiltón, - en altinn kippti þessu snarlega í liðinn þegar org- elhljómurinn tók undir sönginn og hækkaði sig í rétta tónhæð. Þrátt fyrir þessi stöku „óhreinindi var söngur kórsins gegnumgangandi fallegur og hreinn. Loftur Erlings- son söng í öðrum og sjötta þætti verksins; Offertorium og Libera me. Söngur Lofts var ákaflega góður, falleg rödd hans hæfir tón- list af þessu tagi dæmalaust vel. Einu samræmingaratriði í latínu- framburði var ábótavant, þar sem Loftur söng „per injem uppá ítölsku, en kórinn „per ignem á venjulegri skólabókarlatínu. Hvort tveggja er í lagi, en það þarf að ákvarðast fyrirfram í hvora áttina framburðurinn á að vera. Á engan er hallað þótt Tryggva Valdimars- syni sópran verði hrósað sérstak- lega. Þessi ungi piltur söng kunn- asta kafla verksins: Pie Jesu af sérstöku listfengi og svo undurfal- lega að létt gleðiandvarp leið um salinn að söng hans loknum. Lenka Mátéová lék orgelpartinn mjög fallega, og í heild var þetta þokkafullur og fallegur flutningur undir stjórn organista kirkjunnar Jóns Ólafs Sigurðssonar. Prestur Hjallakirkju Íris Kristjánsdóttir las úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar milli verka, og var ágætur lestur hennar til að auka á indæla stemmningu þessarar kvöldstundar. Indæll föstusöngur TÓNLIST H j a l l a k i r k j a Kór Hjallakirkju flutti tvo föstu- sálma og Sálumessu eftir Gabriel Fauré. Einsöngvarar voru Loftur Erlingsson bariton og Tryggvi Valdimarsson sópran; organisti: Lenka Mátéová; stjórnandi: Jón Ólafur Sigurðsson. Fimmtudag kl. 20.30. KÓRTÓNLEIKAR Bergþóra Jónsdótt ir SAMKÓR Selfoss heldur sína ár- legu vortónleika í Selfosskirkju ann- að kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30. Á efnisskránni eru íslensk vorlög, fjögur slavnesk þjóðlög eftir Bela Bartók, Gloria úr Messiasi, Streðjakórinn eftir Verdi og fl. Gestir tónleikanna er Karlakór Hreppamanna og stjórnar Edit Molnár báðum kórunum. Undirleik- ari er Miklos Dalmay. Samkórinn hefur sungið víða, á undanförnum árum bæði innanlands og utan, og núna í vor fer hann í söngferð í Borgarfjörð og heldur tónleika í Reykholti 12. maí ásamt Kveldúlfskórnum í Borgarnesi. Vortón- leikar í Sel- fosskirkju 4KLASSÍSKAR halda söngskemmt- un í Edinborgarhúsinu á Ísafirði annað kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30 Á efnisskránni eru lög úr söng- leikjum, óperum og óperettum ásamt kunnum dægurlagaperlum. 4Klassískar eru Aðalheiður Þor- steinsdóttir píanóleikari og söngkon- urnar Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Signý Sæmunds- dóttir. Söngskemmt- un í Edinborg- arhúsinu LISTASAFN Íslands verður opið á skírdag, 12. apríl, annan í páskum. Lokað verður föstudaginn langa. Annars er safnið opið frá kl. 11–17 alla daga nema fimmtudaga en þá er safnið opið til kl. 22 að kvöldi. Lokað mánudaga að öllu jöfnu (nema 16. apríl nk. sem er annar í páskum). Listasafn Íslands opið um páska ♦ ♦ ♦ Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is flísar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.